Fleiri fréttir

Skrtel ætlar sér að spila um jólin

Martin Skrtel, varnarmaður Liverpool, ætlar sér að spila með liðinu á nýjan leik um jólin en hann meiddist illa í leik með liðinu í síðasta mánuði.

Quagliarella nefbrotnaði á æfingu

Ítalski landsliðsmaðurinn Fabio Quagliarella var fluttur á sjúkrahús á Aþenu eftir að hann nefbrotnaði á æfingu ítalska landsliðsins sem mætir því gríska í kvöld.

Modric frá í tvær vikur

Króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric, sem leikur með Tottenham, verður frá næstu tvær vikurnar að minnsta kosti vegna meiðsla.

Megson hissa á Capello

Gary Megson, stjóri Bolton, segist afar hissa á því að Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands hafi ekki valið Gary Cahill í enska landsliðið.

Boston vann án Garnett

Kevin Garnett tók út leikbann er Boston vann sigur á New York á útivelli í NBA-deildinni í nótt. Alls fóru tíu leikir fram.

Heiðar í fremstu víglínu á móti Möltu

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í vináttulandsleik gegn Möltu sem fram fer þar í landi klukkan hálftvö að íslenskum tíma.

Ecclestone : Sigrar færi titil ekki stig

Bernie Ecclestone er að skoða þá hugmynd að flestir sigrar í Formúlu 1 færi mönnum meistaratitil ökumanna á næsta ári, en ekki stigasöfnun.

Alexander frá í fjóra mánuði

Silfurdrengurinn Alexander Petersson hefur gengist undir aðgerð á vinstri öxl en meiðsli hafa verið að hrjá hann síðan á Ólympíuleikunum í Peking. Aðgerðin heppnaðist vel og mun hann vera útskrifaður af sjúkrahúsi fyrir helgi.

Diarra meiddur á ökkla

Franski miðjumaðurinn Lassana Diarra hjá Portsmouth gæti verið frá næstu þrjár vikurnar. Hann sneri sig á ökkla í markalausa leiknum gegn West Ham síðasta laugardag.

Rossi byrjar hjá Ítalíu

Sóknarmaðurinn Guiseppe Rossi mun fá tækifæri í byrjunarlið ítalska landsliðsins sem mætir Grikklandi á miðvikudagskvöld. Þetta verður hans fyrsti landsleikur í byrjunarliðinu en hann fékk að spila 20 mínútur gegn Búlgaríu.

Gustafsson hættur hjá Keflavík

Sænski varnarmaðurinn Kenneth Gustafsson hefur yfirgefið herbúðir Keflavíkur en hann hefur verið hjá félaginu í fjögur ár. Hann gekk til liðs við Keflavík sumarið 2005.

Walcott ekki með gegn Þýskalandi

Theo Walcott, leikmaður Arsenal, fór úr axlarlið á æfingu enska landsliðsins í kvöld. Hann getur því ekki leikið með í vináttulandsleiknum gegn Þýskalandi í Berlín á miðvikudagskvöld.

Ballesteros af gjörgæslu

Seve Ballesteros hefur verið tekinn af gjörgæsludeild sjúkrahússins í Madríd þar sem hann hefur verið í meðhöndlun síðan 14. október vegna heilaæxlis.

Hinn umdeildi Attwell dæmir á Fratton Park

Dómarinn Stuart Attwell mun um næstu helgi dæma leik Portsmouth og Hull. Þetta er hans fyrsti leikur í ensku úrvalsdeildinni síðan hann dæmdi frægt draugamark í leik Reading og Watford.

Framtíðarmenn enska landsliðsins

Theo Walcott og Wayne Rooney eiga það sameiginlegt að hafa orðið enskir landsliðsmenn áður en þeir urðu 18 ára. The Sun hefur skoðað framtíðina fyrir enska landsliðið.

KKÍ mun skoða þetta mál

Hannes Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, segir í samtali við Vísi að sambandið muni bregðast við fullyrðingum Damon Bailey.

Sir Alex í tveggja leikja bann

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann og sektaður um 10 þúsund pund. Ferguson óð inn á völlinn til að ræða við Mike Dean dómara eftir að United vann Hull þann 1. nóvember.

Njarðvíkingar segja fullyrðingar Bailey rangar

„Þetta er bara ekki rétt. Við getum sýnt fram á að við stóðum í skilum með okkar greiðslur,“ sagði Sigurður H. Ólafsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.

Girtu niðrum sig til að trufla markvörðinn

Í gegnum tíðina hafa menn reynt ýmis brögð til að skora mörk. Leikmenn Catania notuðu sérkennilega aðferð þegar þeir náðu að tryggja sér sigur gegn Torino á sunnudaginn.

Drogba í þriggja leikja bann fyrir peningakastið

Sóknarmaðurinn Didier Drogba hjá Chelsea hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir peningakastið í leiknum gegn Burnley í deildabikarnum. Drogba missti stjórn á skapi sínu og kastaði smápeningi í átt að stuðningsmönnum Burnley.

Yfirlýsingar að vænta frá Grindavík

Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, vildi ekkert tjá sig um þau ummæli sem Damon Bailey hafði við Vísi í dag.

Bailey: Engar skattgreiðslur á fjórum árum

Körfuknattleiksmaðurinn Damon Bailey segir að engin gögn séu að finna um að tekjuskattur hafi verið greiddur af launum hans á þeim rúmum fjórum árum sem hann lék körfubolta hér á landi.

David Moyes sektaður

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, hefur verið sektaður um fimm þúsund pund vegna framkomu sinnar á leik Stoke og Everton í september síðastliðnum.

Sigurður Ragnar: Ætlum okkur áfram

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu var hvergi banginn þó svo að Ísland hafi dregist í erfiðan riðil í EM í Finnlandi sem fer fram næsta sumar.

Ísland byrjar á Frökkum

Ísland leikur fyrst gegn Frökkum á EM í Finnlandi en leikurinn fer fram mánudaginn 24. ágúst næstkomandi.

Ísland í afar erfiðum riðli á EM

Ísland var dregið í afar sterkan riðil í úrslitakeppni EM 2009 sem fer fram í Finnlandi næsta sumar. Ísland er með heims- og Evrópumeisturum Þýskalandi í riðli.

Duff vill að Kinnear verði fastráðinn

Damien Duff, leikmaður Newcastle, vill að Joe Kinnear verði fastráðinn knattspyrnustjóri liðsins en undir stjórn hans hefur það unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum.

Arshavin dreymir um Bayern München

Andrei Arshavin, leikmaður Zenit frá St. Pétursborg í Rússlandi, segir að það væri draumi líkast að fá að spila fyrir Bayern München.

Ívar: Of snemmt að afskrifa hin liðin

Ívar Ingimarsson segir að það sé of snemmt að fullyrða að aðeins þrjú lið eru í baráttunni um efstu sætin í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

Ronaldo áhugasamur um Manchester City

Brasilíumaðurinn Ronaldo segist vita vel af áhuga Manchester City á sér og að hann sé nú að einbeita sér að endurhæfingu sinni til að skoða þann möguleika betur.

Rallmeistarinn snöggur í Formúlu 1

Frakkinn Sebastian Loeb, sem er fimmfaldur heimsmeistari í rallakstri æfir á Formúlu 1 bíl í Barcelona í dag og hann ók einnig í gær. Hann náði mjög frambærilegum tíma á Red Bill í samkeppni við reynda kappaksturskappa.

NBA í nótt: Utah lagði Phoenix

Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt og allir í Vesturdeildinni. Utah, San Antonio og Houston unnu öll sigra á andstæðingum sínum.

KR-ingar áttu 10 af 11 bestu leikmönnum vallarins

Það er athyglisvert að skoða tölfræðina úr leik KR og Njarðvíkur í Iceland Express deildinni í gær þar sem heimamenn í KR unnu 55 stiga sigur á gestunum úr Njarðvík, 103-48.

Stór stund Senna á Spáni

Brasilíumaðurinn Bruno Senna ók Formúlu 1 bíl í fyrsta skipti í gær. Fjölmiðlamenn biðu þess með eftirvæntingu, þar sem Bruno er frændi Ayrtons heitins Senna, sem var goðsögn í Formúlu 1.

Langstærsta tap Njarðvíkur í úrvalsdeild karla

Njarðvíkingar hafa aldrei tapað stærra í úrvalsdeild karla en þeir gerðu í DHL-Höll þeirra KR-inga í kvöld. KR vann leik liðanna með 55 stigum, 103-48, sem er meira en tvöfalt stærra en stærsta deildartap Njarðvíkur fyrir þennan leik.

Stefán skoraði mark ársins - Myndband

Stefán Gíslason skoraði flottasta mark ársins í danska boltanum. Lokahóf danska knattspyrnusambandsins var haldið í kvöld og þar var tilkynnt að mark Stefáns hafi verið fallegasta mark ársins.

Beckford með þrennu fyrir Leeds

Jermaine Beckford skoraði þrennu fyrir Leeds í kvöld þegar liðið vann 5-2 útisigur á Northampton á útivelli og komst þar með í aðra umferð FA bikarsins.

Kvennalið Fjölnis með sinn fyrsta sigur

Kvennalið Fjölnis vann botnslaginn í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Liðið vann Snæfell á heimavelli sínum 84-65. Þetta var fyrsti sigur Fjölnis í deildinni en Snæfell er stigalaust á botninum.

Þjálfarar KR þurfa að hlaupa 22 spretti

Benedikt Guðmundsson þjálfari KR var mjög ánægður með 103-48 stórsigur sinna manna á Njarðvík í Iceland Express deildinni í kvöld, en þessum áttunda sigri liðsins í röð fylgir þó ekki eintóm gleði fyrir þjálfarann.

Svona er bara staðan á Njarðvík í dag

"Það hefði hvaða lið sem er unnið okkur með fjörutíu stigum í dag," sagði Valur Ingimundarson í samtali við Vísi eftir að hans menn í Njarðvík voru teknir í kennslustund af frískum KR-ingum í vesturbænum 103-48.

Fram vann Stjörnuna í Garðabæ

Einn leikur var í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Framarar gerðu góða ferð í Garðabæinn og unnu 29-27 útisigur gegn Stjörnunni. Safamýrarpiltar voru með forystu allan leikinn.

KR slátraði Njarðvík - ÍR vann botnslaginn

KR burstaði Njarðvík með 55 stiga mun, 103-48 í DHL-höllinni í kvöld. Staðan í hálfleik var 59-24. KR er því enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar og erfitt að sjá að liðið verði stöðvað.

Sjá næstu 50 fréttir