Við lítum á þetta sem tapaðan leik 17. júlí 2007 10:15 Víkingar fagna marki fyrr í sumar. Þeir fögnuðu tvisvar í gær en héldu ekki fengnum hlut. fréttablaðið/daníel
HK og Víkingur náðu bæði í langþráð stig í 2-2 jafntefli liðanna í Landsbankadeildinni í gær. Víkingar komust í 2-0 og fengu mörg færi til að skora fleiri mörk en HK sýndi mikinn karakter í að vinna sig aftur inn í leikinn og tryggja sér stigið. Tvö mörk Víkinga á fyrsta á hálftímanum þýddu að nýliðarnir urðu að koma út úr skelinni og gera eitthvað því þetta var sannkallaður sex stiga leikur liða sem allt hafði gengið á afturfótunum hjá í undanförnum umferðum. Magnús Gylfason var í banni og það virtist hafa mjög góð áhrif á Víkinga í upphafi leiks. Víkingar fengu vítaspyrnu eftir aðeins tólf mínútur. Sinisa Kekic skoraði af öryggi úr spyrnunni og bjó síðan til annað mark fyrir Viðar Guðjónsson 19 mínútum síðar. Það tók HK-menn nokkurn tíma að átta sig á stöðunni en undir lok hálfleiks náðu þeir ítrekað að skapa hættu í kringum aukaspyrnur Rúnars Páls Sigmundssonar. Finnbogi Llorens féll í teignum eftir eina slíka og Ólafur Valdimar Júlíusson skoraði af öryggi úr vítinu. HK var komið inn í leikinn. Seinni hálfleikurinn var síðan opinn í báða enda og bæði lið voru dugleg í að skapa sér færi. HK-menn tóku meiri áhættu í leik sínum og færðu liðið framar á völlinn en Víkingar voru alltaf hættulegir í skyndisóknum sínum. Finnbogi Llorens jafnaði síðan leikinn með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu Rúnars Páls Sigmundssonar og það sem eftir var leiksins gátu bæði lið skoraði sigurmarkið og tryggt sér öll stigin þó að færi Víkinga væru bæði fleiri og hættulegri. HK lék síðustu sjö mínúturnar manni færri eftir að Oliver Jaeger fékk sitt annað gula spjald. „Við vorum gjörsamlega á hælunum í fyrri hálfleik og byrjuðum ekkert leikinn fyrr en þeir voru komnir 2-0 yfir. Við ræddum málin í hálfleik og það var allt annað að sjá okkur í seinni hálfleik. Við máttum ekki tapa þessum leik og það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að tapa ekki fyrir Víking sem er að berjast við okkur í neðri hlutanum. Þetta var líka dýrmætt fyrir okkur sjálfa að sjá það að þó að við lendum undir og jafnvel 2-0 undir þá getum við komið til baka og fengið eitthvað út úr leikjunum," sagði Gunnleifur Gunnleifsson, fyrirliði HK. „Við áttum að vinna þennan leik. Það var eins og við höfðum orðið saddir þegar við komumst 2-0 yfir og þá er skelfilegt að missa þetta niður. Þetta var fínn leikur í heildina hjá okkur. Við erum að gera góða hluti fram á við og erum búnir að breyta um stíl sem er að skapa okkur mikið af færum. Þetta eru mikil vonbrigði að missa þetta niður því við erum í mikilli keppni við HK og nú eru þeir ennþá tveimur stigum á undan okkur og því lítum við á þetta sem tap," sagði Grétar Sigurðarson, fyrirliði Víkinga.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds Enski boltinn „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ Fótbolti „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Enski boltinn KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina Sjá meira