Fleiri
Beit Javier Mascherano 24.10.2006 06:30 Knattspyrnukappinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson: Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson fékk í gær samningstilboð frá sænska félaginu Norrköping en ÍA og Norrköping höfðu áður komist að samkomulagi um greiðslu og því er það undir Hafþóri komið hvort hann taki tilboðinu og fari utan eða spili áfram á Íslandi. 24.10.2006 06:15 Öruggur sigur hjá KR-ingum KR-ingar gerðu góða ferð í Reykjanesbæ í gær og báru sigurorð af Keflvíkingum, 81-90. Keflvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti en KR-ingar sigu framúr og stóðu að lokum uppi sem öruggir sigurvegarar. 24.10.2006 06:00 Vill notast við tæknina 23.10.2006 15:15 Spennuþrungið jafntefli Fylkismenn héldu þriðja sæti deildarinnar í gær er liðið gerði jafntefli við liðið í fjórða sæti, Hauka úr Hafnarfirði. Leikurinn var æsispennandi frá fyrstu mínútu en bæði lið komust mest í þriggja marka forystu í sínum hvorum hálfleiknum. Fylkismenn skoruðu síðasta mark leiksins þegar ein mínúta var til leiksloka og misnotuðu bæði lið tækifæri til að stela sigrinum í síðustu sóknum sínum. 23.10.2006 14:30 Rosenborg með níu fingur á titlinum 23.10.2006 14:00 Roland gerði gæfumuninn Stjarnan vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu þegar liðið lagði ÍR með fimm marka mun. Roland Valur Eradze fór hamförum í marki Stjörnunnar. 23.10.2006 13:30 Real Madrid sigraði í risaslagnum Real Madrid hrósaði í gær 2-0 sigri á Barcelona í einum af stórleikjum tímabilsins í Evrópufótboltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði ekki að koma í veg fyrir sigur heimamanna. 23.10.2006 13:00 Liverpool yfirspilað á Old Trafford Manchester United endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í gær með því að verðskulduðum sigri, 2-0, á Liverpool. Paul Scholes og Rio Ferdinand skoruðu hvor í sínum hálfleik. 23.10.2006 12:45 Lið Loga og Jóns töpuðu Bæði lið Loga Gunnarssonar og Jóns Arnórs Stefánssonar töpuðu sínum leikjum um helgina. ToPo, lið Loga í finnsku úrvalsdeildinni, tapaði á útivelli fyrir TC, 96-83, og var Logi annar stigahæstu leikmanna liðsins með 20 stig. ToPo er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar sem telur alls tólf lið. Liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað þremur. 23.10.2006 12:30 Sjá næstu 50 fréttir
Ákærir Englendinga fyrir ólæti í Króatíu Enska knattspyrnusambandinu hefur verið birt kæra vegna óláta stuðningsmanna enska landsliðsins fyrir leik liðsins gegn Króötum í Zagreb á dögunum. Talsmenn enska knattspyrnusambandsins hafa ekki stórar áhyggjur af kærunni því þeir telja sig hafa mikið við starfshætti kollega sína í Króatíu að athuga. 25.10.2006 14:16
Klístri snýr aftur annað kvöld Framherjinn Alan Smith spilar væntanlega sinn fyrsta leik í níu mánuði í byrjunarliði Manchester United annað kvöld þegar liðið sækir Crewe heim í enska deildarbikarnum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn. 24.10.2006 22:30
Hughes stýrir Blackburn í 100. sinn Leikur Blackburn og Chelsea í enska deildarbikarnum annað kvöld er merkilegur fyrir þær sakir að hér er um að ræða 100. leik Mark Hughes í stjórastólnum hjá félaginu. 24.10.2006 22:30
Grótta burstaði Fram Einn leikur var á dagskrá í ss bikar kvenna í handbolta í kvöld. Grótta burstaði Fram 28-15 á Seltjarnarnesi eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-5. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með fimm mörk. 24.10.2006 21:19
Enn tapar West Ham Ógæfa enska úrvalsdeildarliðsins West Ham virðist engan endi ætla að taka og í kvöld féll liðið úr keppni í enska deildarbikarnum með því að tapa 2-1 fyrir liði Chesterfield sem leikur í 2. deildinni. 24.10.2006 20:39
Massa ætlar ekki að gera Raikkönen neina greiða Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari hefur sent verðandi félaga sínum Kimi Raikkönen og öðrum keppinautum sínum aðvörun fyrir næsta keppnistímabil og ætlar sér stóra hluti. 24.10.2006 20:30
Orlando - Miami í beinni Níu leikir eru á dagskrá á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt og verður leikur Flóridaliðanna Orlando Magic og Miami Heat sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á besta tíma í kvöld eða klukkan 23. 24.10.2006 20:14
West Ham yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í öllum leikjum kvöldsins í enska deildarbikarnum. West Ham hefur yfir 1-0 gegn Chesterfield í sjónvarpsleiknum á Sýn þar sem Marlon Harewood skoraði mark gestanna í upphafi leiks. 24.10.2006 19:40
Mark Viduka tábrotinn Ástralski framherjinn Mark Viduka getur ekki spilað með Middlesbrough næstu sex vikurnar eða svo eftir að í ljós kom að hann tábrotnaði í leik gegn Newcastle á sunnudaginn. 24.10.2006 19:15
58% leikmanna gerðu sér upp meiðsli Jiri Dvorak, yfirlæknir alþjóða knattspyrnusambandsins, segir að við nánari athugun hafi komið í ljós að 58% leikmanna sem þurftu læknisaðstoð á meðan leik stóð á HM í sumar hafi alls ekki verið verið meiddir. 24.10.2006 18:28
Dennis Wise tekur við Leeds Harðjaxlinn Dennis Wise var í dag ráðinn knattspyrnustjóri Leeds United og honum til aðstoðar verður annar gamall Chelsea-maður Gus Poyet. Þeir félagar voru síðast við stjórnvölinn hjá Swindon og gerðu þar ágæta hluti. Ráðning Wise hefur valdið nokkru fjaðrafoki á meðal stuðningsmanna Leeds, en árangur hans með liðið fær væntanlega úr því skorið hvort hann verður tekinn í sátt. 24.10.2006 17:50
Nóg að vinna einn titil í viðbót Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist sáttur geta lagt stýrið á hilluna ef hann nær að vinna einn titil í viðbót og jafna þar með árangur Brasilíumannsins Ayrton Senna. Hinn 25 ára gamli Spánverji varð um helgina heimsmeistari annað árið í röð. 24.10.2006 17:45
Kristján og Veigar tilnefndir í lið ársins Kristján Örn Sigurðsson hjá Brann og Veigar Páll Gunnarsson hjá Stabæk eru tilnefndir sem varnar- og sóknarmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þetta árið, en venja er að veita leikmönnum sem þykja hafa skarað framúr í hverri stöðu verðlaun eftir hvert tímabil. 24.10.2006 17:18
Schumacher er besti ökumaður allra tíma Michael Schumacher er besti ökumaður í sögu Formúlu 1 að mati þeirra Niki Lauda og David Coulthard, en þýski ökuþórinn lagði stýrið á hilluna eftir Brasilíukappaksturinn á sunnudaginn. 24.10.2006 16:54
Cech útskrifaður af sjúkrahúsi Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech var í dag útskrifaður af sjúkrahúsi og talið er að hann muni hefja léttar æfingar á ný eftir helgina. Höfuðkúpa markvarðarins brákaðist í samstuði hans við leikmann Reading um fyrir rúmri viku og búist er við því að hann verði í það minnsta þrjá mánuði frá fullum æfingum á meðan sár hans gróa. 24.10.2006 16:50
Kolo Toure framlengir við Arsenal Fílabeinsstrendingurinn Kolo Toure hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal. Ekki hefur verið gefið upp hve lengi samningurinn mun gilda, en þessi 25 ára gamli varnarmaður hefur lýst því yfir að hann vilji vera sem lengst hjá félaginu. 24.10.2006 16:34
Adriano farinn í frí til heimalandsins Brasilíska framherjanum Adriano hjá Inter Milan hefur verið gefið vikufrí af forráðamönnum félagsins sem hann mun nota til að fara til heimalandsins í læknis- og sálfræðimeðferð. Adriano hefur alls ekki náð sér á strik á síðustu mánuðum og hefur ekki skorað mark síðan í vor. 24.10.2006 16:30
Gerrard verður áfram á kantinum Rafa Benitez segist ætla að halda áfram að tefla enska landsliðsmanninum Steven Gerrard fram á hægri kanti áfram, þrátt fyrir að þessi ráðstöfun hafi verið gagnrýnd harðlega í kjölfar lélegs gengis liðsins í úrvalsdeildinni undanfarið. 24.10.2006 16:28
Hafþór Ægir semur við Val Hafþór Ægir Vilhjálmsson mun að öllum líkindum spila með Val í Landsbankadeildinni á næsta ári en í dag hafnaði hann tilboði frá sænska félaginu Norrköping. Umboðsmaður Hafþórs staðfesti í samtali við NFS í dag að leikmaðurinn myndi í kvöld ganga frá þriggja ára samningi við Val. Hafþór losnar undan samningi við ÍA í næstu viku. 24.10.2006 16:19
Vandræði hjá Sacramento Lið Sacramento Kings virðist ekki ætla að byrja leiktíðina glæsilega í NBA, en nú þegar nákvæmlega vika er í að deildarkeppnin hefjist hefur liðið orðið fyrir tveimur áföllum en góðu fréttirnar eru kannski þær að hvorugt atvikið tengist vandræðagemlingnum Ron Artest. 24.10.2006 16:15
Ensk lið hafa mikinn áhuga á Beckham Glenn Roeder segir að ef David Beckham tæki þá ákvörðun að snúa aftur til Englands, yrði enginn skortur á kauptilboðum frá liðum í heimalandi hans. Þetta segir Roader í kjölfar þess að Beckham sagðist ósáttur við að sitja á varamannabekknum hjá Real Madrid - en það hefur vitanlega valdið fjaðrafoki í breskum blöðum. 24.10.2006 16:09
Raul íhugaði að hætta eftir tapið gegn Getafe Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segir að framherjinn Raul hafi verið mjög langt niðri eftir að liðið tapaði fyrir Getafe í deildinni á dögunum og segir leikmanninn hafa íhugað alvarlega að hætta í kjölfarið. 24.10.2006 15:55
Chesterfield - West Ham í beinni Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beina útsendingu frá leik Chesterfield og West Ham klukkan 18:30. West Ham hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum og því er ekki laust við að öll augu beinist að Alan Pardew og félögum í kvöld. 24.10.2006 15:45
United að kaupa ungan Portúgala Heimildir Sky sjónvarpsstöðvarinnar herma að Manchester United sé við það að ganga frá kaupum á 15 ára gömlum portúgölskum sóknarmanni, Evandro Brandao hjá Walsall. Brandao þessi hefur búið á Englandi í níu ár og því er haldið fram að hann hafi þegar skrifað undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið. 24.10.2006 15:15
Wright-Phillips orðaður við Atletico Madrid Talsmaður spænska stórliðsins Atletico Madrid segir ekkert til í þeim orðrómi að félagið ætli að bjóða í enska kantmanninn Shaun Wright-Phillips þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, en félagið er nú að leita að manni í stað þeirra Maxi Rodriguez og Martin Petrov sem báðir verða lengi frá vegna meiðsla. 24.10.2006 14:47
Þrír leikir fóru fram í nótt Þrír leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en deildarkeppnin hefst eftir nákvæmlega viku. Leikur grannaliðanna Orlando og Miami verður sýndur beint á NBA TV klukkan 23:00 í nótt. 24.10.2006 14:24
Mascherano þykir Defoe sleppa vel Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano hjá West Ham er mjög ósáttur við að Jermain Defoe skuli ekki hafa fengið harðari refsingu en gult spjald fyrir á bíta sig í leik grannaliðanna á sunnudag. 24.10.2006 14:14
Porato til reynslu hjá Chelsea Ensku meistararnir Chelsea eru nú með markvörðinn Stephane Porato til reynslu en ef hann stendur sig vel fær hann það hlutverk að leysa Petr Cech af hólmi. Þar eð félagaskiptaglugginn er lokaður, getur Chelsea ekki keypt samningsbundinn leikmann en Porato þessi er með lausa samninga. 24.10.2006 14:07
ÍR fer upp Áfrýjunardómstóll KSÍ komst í dag að niðurstöðu í leiðindamáli Þórs/KA og ÍR í 1. deild kvenna og var niðurstaðan sú að ÍR leikur í Landsbankadeild kvenna að ári en ekki Þór/KA. ÍR vann sér sæti í deildinni með sigri á norðanliðnu í umspili, en ÍR tefldi fram ólöglegum leikmanni og kærði Þór/KA það til KSÍ. Það var hinsvegar knattspyrnusambandið sem gaf grænt ljós á að leikmaðurinn spilaði og því standa úrslitin og ÍR fer upp um deild. 24.10.2006 14:00
Hannes Þór til Framara Hannes Þór Halldórsson gekk í gær frá tveggja ára samningi við Fram. Hannes Þór er markvörður sem lék með Stjörnunni í sumar en hann rifti á dögunum samningi sínum við Garðabæjarfélagið og var því frjálst að ræða við þau félög sem honum sýndist. 24.10.2006 09:00
Mega ekki ræða við Wise Enska knattspyrnufélagið Leeds United á sér marga aðdáendur á Íslandi en það hefur verið framkvæmdastjóra laust frá því í september. Leeds fékk á dögunum samþykki frá Swindon til að ræða við Dennis Wise, framkvæmdastjóra Swindon, um hugsanlega ráðningu hans til félagsins en í gær dró Swindon það samþykki til baka og hefur meinað Leeds að ræða við Wise. 24.10.2006 08:45
Kristján ráðinn þjálfari út tímabilið Stjarnan réð í gær Kristján Halldórsson sem þjálfari karlaliðsins út þetta tímabil en Kristján tekur við starfinu af þeim Sigurði Bjarnasyni og Magnúsi Teitssyni sem sögðu upp störfum á dögunum. Það hafði gengið frekar brösuglega hjá Stjörnumönnum að finna nýjan mann en nú er loks orðið ljóst að Kristján stýrir skútunni til loka tímabilsins en hann hitti leikmennina í gærkvöldi. 24.10.2006 08:00
Benitez svarar fyrir sig Rafa Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur verið harðlega gagnrýndur uppá síðkastið vegna gegni liðsins í deildinni heima fyrir, en Liverpool er sem stendur í ellefta sæti deildarinnar og hefur tapað fjórum af fyrstu níu leikjum tímabilsins. Benitez hefur einnig verið gagnrýndur fyrir að láta fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, spila í stöðu hægri kantmanns en Benitez hefur nú varið þá ákvörðun sína. 24.10.2006 07:30
Eiður Smári fær slæma dóma Spænsku blöðin eru ekki hrifin af leik Barcelona gegn Real Madrid á sunnudaginn og Eiður Smári Guðjohnsen fær ekki góða dóma fyrir sína frammistöðu í leiknum. Talað er um að Barcelona sakni mjög Samuel Eto‘o og að Eiður sé ekki að standa undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar. 24.10.2006 07:00
Jörundur kominn til Blika og Ásthildur á leiðinni? Jörundur Áki Sveinsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Breiðablik um að þjálfa kvennalið félagsins. Skýrist eftir næstu helgi hvort Ásthildur Helgadóttir komi heim og spili fyrir Breiðablik. 24.10.2006 06:45
Knattspyrnukappinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson: Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson fékk í gær samningstilboð frá sænska félaginu Norrköping en ÍA og Norrköping höfðu áður komist að samkomulagi um greiðslu og því er það undir Hafþóri komið hvort hann taki tilboðinu og fari utan eða spili áfram á Íslandi. 24.10.2006 06:15
Öruggur sigur hjá KR-ingum KR-ingar gerðu góða ferð í Reykjanesbæ í gær og báru sigurorð af Keflvíkingum, 81-90. Keflvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti en KR-ingar sigu framúr og stóðu að lokum uppi sem öruggir sigurvegarar. 24.10.2006 06:00
Spennuþrungið jafntefli Fylkismenn héldu þriðja sæti deildarinnar í gær er liðið gerði jafntefli við liðið í fjórða sæti, Hauka úr Hafnarfirði. Leikurinn var æsispennandi frá fyrstu mínútu en bæði lið komust mest í þriggja marka forystu í sínum hvorum hálfleiknum. Fylkismenn skoruðu síðasta mark leiksins þegar ein mínúta var til leiksloka og misnotuðu bæði lið tækifæri til að stela sigrinum í síðustu sóknum sínum. 23.10.2006 14:30
Roland gerði gæfumuninn Stjarnan vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu þegar liðið lagði ÍR með fimm marka mun. Roland Valur Eradze fór hamförum í marki Stjörnunnar. 23.10.2006 13:30
Real Madrid sigraði í risaslagnum Real Madrid hrósaði í gær 2-0 sigri á Barcelona í einum af stórleikjum tímabilsins í Evrópufótboltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði ekki að koma í veg fyrir sigur heimamanna. 23.10.2006 13:00
Liverpool yfirspilað á Old Trafford Manchester United endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í gær með því að verðskulduðum sigri, 2-0, á Liverpool. Paul Scholes og Rio Ferdinand skoruðu hvor í sínum hálfleik. 23.10.2006 12:45
Lið Loga og Jóns töpuðu Bæði lið Loga Gunnarssonar og Jóns Arnórs Stefánssonar töpuðu sínum leikjum um helgina. ToPo, lið Loga í finnsku úrvalsdeildinni, tapaði á útivelli fyrir TC, 96-83, og var Logi annar stigahæstu leikmanna liðsins með 20 stig. ToPo er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar sem telur alls tólf lið. Liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað þremur. 23.10.2006 12:30