Formúla 1

Schumacher er besti ökumaður allra tíma

Schumacher tekur við viðurkenningu úr höndum knattspyrnugoðsins Pele um helgina
Schumacher tekur við viðurkenningu úr höndum knattspyrnugoðsins Pele um helgina NordicPhotos/GettyImages

Michael Schumacher er besti ökumaður í sögu Formúlu 1 að mati þeirra Niki Lauda og David Coulthard, en þýski ökuþórinn lagði stýrið á hilluna eftir Brasilíukappaksturinn á sunnudaginn.

Lauda vann heimsmeistaratitilinn þrisvar sinnum og hann segist ekki í nokkrum vafa um að Schumacher sé sá besti - í það minnsta á árunum eftir stríð. "Juan Manuel Dangio vann fimm titla, en ég held að Schumacher sé án efa sá besti. Sérhver ökumaður þarf að búa yfir óslökkvandi sigurþorsta og þó menn hafi gagnrýnt Schumacher fyrir fólskulega taktík í gegn um tíðina, er hann án efa sá besti," sagði Lauda og Coulthard tók í sama streng.

"Michael er umdeildur ökumaður vegna árekstra sem hann átti við menn á borð við Damon Hill og Jacques Villeneuve, en mér sjálfum finnst frábært að hafa fengið að reyna mig gegn sigursælasta ökumanni allra tíma. Það hefur stundum verið svekkjandi, því Michael hefur beygt reglurnar og hefur alltaf gert það sem til þurfti til að ná sem bestum árangri," sagði Coulthard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×