Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viggó og félagar í beinni á Eurosport Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska handknattleiksliðinu Flensburg etja nú kappi við Króatíumeistara RK Zagreb í meistaradeildinni og er leikurinn sýndur beint á Eurosport 2 sem er að finna Fjölvarpi Digital Ísland. 28.9.2006 20:22
Kominn með HM húðflúr Varnarmaðurinn umdeildi Marco Materazzi hjá Inter Milan er búinn að fá sér enn eitt húðflúrið og er það minnisvarði um sigur Ítala á HM í sumar. Materazzi komst þar eins og allir vita í heimsfréttirnar með því að verða fyrir reiðum skalla Zinedine Zidane, en ítalski varnarmaðurinn skoraði líka mark Ítala í leiknum dramatíska. 28.9.2006 19:32
Inter, eruð þið geðveikir? Ítölsku blöðin vönduðu stjörnum prýddu liði Inter Milan ekki kveðjurnar á síðum sínum í dag eftir að liðið tapaði 2-0 fyrir Bayern Munchen á heimavelli í Meistaradeildinni. Þeim Zlatan Ibrahimovic og Fabio Grosso var báðum vikið af leikvelli í gærkvöldi og það nýtti þýska liðið sér vel, en Inter hefur ekki fengið eitt einasta stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum í B-riðli. 28.9.2006 18:57
Margrét Lára með fjögur mörk í stórsigri á Portúgal Íslenska kvennalandsliðið lauk keppni með stæl í undankeppni HM 2007 í kvöld þegar liðið rótburstaði Portúgala 6-0 ytra, þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir íslenska liðið og Katrín Jónsdóttir tvö. Íslenska liðið hafnaði í þriðja sæti í riðli sínum á eftir Svíum og Tékkum en þegar var ljóst að liðið kæmist ekki á HM. 28.9.2006 18:42
Mæta liði frá Litla-Hrauni í kvöld Knattspyrnuliðið KF Nörd fær sitt erfiðasta verkefni til þessa í kvöld þegar liðið mætir knattspyrnuúrvali fanga á Litla-Hrauni í vikulegum raunveruleikaþætti á Sýn. Þátturinn hefst klukkan 21:15 og forvitnilegt verður að sjá hvernig Njörðunum vegnar gegn glæpamönnunum innan girðingar. 28.9.2006 17:30
Ísland hefur yfir í hálfleik Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur 2-0 forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign sinni við Portúgala ytra í lokaleik sínum í riðlinum í undankeppni HM 2007. Katrín Jónsdóttir kom íslenska liðinu í 1-0 eftir aðeins 9 mínútur og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði annað markið eftir 22 mínútur. 28.9.2006 16:54
Kona tekur við forsetaembætti hjá Bilbao Spænska knattspyrnufélagið Athletic Club Bilbao hefur nú í fyrsta sinn ráðið konu sem forseta. Sú heitir Ana Urkijo og tekur hún við embættinu tímabundið eftir að Fernando Lamikiz sagði af sér. Urkijo er 51 árs gömul og gegndi áður embætti varaforseta félagsins, en hún tók formelga við starfinu eftir stjórnarfund í dag. 28.9.2006 15:57
Bonzi Wells semur við Houston Rockets Framherjinn Bonzi Wells sem lék með Sacramento Kings í NBA deildinni á síðustu leiktíð hefur gengið frá samningi við Houston Rockets. Wells var síðasta "stóra nafnið" á lista leikmanna sem voru með lausa samninga fyrir næsta tímabil, en samningur hans við Texas liðið er aðeins til tveggja ára og getur hann orðið laus allra mála eftir næsta tímabil. 28.9.2006 15:44
ÍA vill halda Arnari og Bjarka Stjórn meistaraflokks ÍA hefur farið þess á leit við þá Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni að þeir verði áfram í röðum félagsins eftir að ljóst varð að Guðjón Þórðarson tæki við starfi þeirra sem þjálfari félagsins í Landsbankadeildinni. Þetta kemur fram á vefnum Skessuhorni í dag. 28.9.2006 15:04
Dein vill halda Wenger í 10 ár til viðbótar Í dag eru liðin tíu ár síðan franski knattspyrnustjórinn Arsene Wenger tók við enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal og hefur stjórnarformaður félagsins gefið það út í tilefni dagsins að Wenger sé æviráðinn hjá félaginu ef hann óskar þess og vonast til að halda honum í að minnsta kosti áratug í viðbót. 28.9.2006 14:12
Eto´o verður frá í allt að þrjá mánuði Illur grunur lækna Evrópumeistara Barcelona frá í gærkvöldi hefur nú verið staðfestur eftir að framherjinn Samuel Eto´o fór í myndatöku í dag og í ljós kom að hann verður frá í allt að þrjá mánuði vegna hnémeiðsla. Eto´o meiddist í leik Werder Bremen og Barcelona í gær, en meiðsli hans gætu þó þýtt að tækifærum Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Katalóníuliðinu ætti eftir að fjölga til muna. 28.9.2006 14:01
Ásgeir Elíasson að taka við ÍR Ásgeir Elíasson verður að öllu óbreyttu tilkynntur sem næsti þjálfari 2. deildarliðs ÍR á morgun. Heimildir NFS herma að stutt sé í að samningar náist milli Ásgeirs og Breiðhyltinga, en Ásgeir var látinn fara frá Fram á dögunum og við starfi hans þar tók Ólafur Þórðarson. 28.9.2006 13:46
Guðjón Þórðarson tekur við liði ÍA Guðjón Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍA um að taka við þjálfun liðsins í Landsbankadeildinni. Það hefur lengi legið í loftinu að Guðjón sneri aftur á fornar slóðir, en Fréttablaðið birti fyrst fréttir þessa efnis í fyrir um tveimur vikum. 28.9.2006 13:25
Naismith frá keppni í sex vikur Skoski landsliðsmaðurinn Gary Naysmith hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton verður frá keppni í að minnsta kosti sex vikur eftir að hafa tognað á hné í leik gegn Newcastle um síðustu helgi. Þetta þýðir að Naysmith mun missa af landsleikjum Skota gegn Frökkum og Úkraínumönnum í næsta mánuði og snýr væntanlega ekki aftur í lið Everton fyrr en undir lok nóvember að mati lækna félagsins. 27.9.2006 23:00
Hughes ætlar Blackburn í riðlakeppnina Mark Hughes, stjóri Blackburn, segir ekkert annað koma til greina en að koma liði sínu í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða en Blackburn mætir Salzburg á heimavelli í síðari viðureign liðanna í forkeppninni annað kvöld. Fyrri leikurinn fór 2-2 þar sem enska liðið fékk á sig jöfnunarmark í blálokin. 27.9.2006 22:30
Eto´o verður frá í 2-3 mánuði Evrópumeistarar Barcelona hafa orðið fyrir miklu áfalli en skæðasti framherji liðsins, Kamerúninn Samuel Eto´o, meiddist á hné í leiknum gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í kvöld og segist læknir liðsins halda að hann verði frá keppni í tvo til þrjá mánuði fyrir vikið. 27.9.2006 22:05
Óvæntur sigur ÍR á Haukum Lið ÍR gerði sér lítið fyrir og skellti Haukum örugglega 36-30 í síðari leik kvöldsins í DHL deild karla í handbolta. Það var mál manna fyrir mót að ÍR yrði í miklum vandræðum í vetur eftir að hafa enn eina ferðina misst mikið af mönnum úr hóp sínum, en þessi fyrsti leikur liðsins í deildinni virðist þó ekki bera þess merki. 27.9.2006 21:53
Mark Crouch var stórkostlegt Rafa Benitez var ánægður með leik sinna manna í Liverpool í 3-2 sigrinum á Galatasaray í kvöld, þrátt fyrir að gestirnir frá Tyrklandi hafi gert sig líklega til að jafna leikinn eftir að hafa lent undir 3-0. Benitez sá ástæðu til að hrósa hinum leggjalanga Peter Crouch fyrir tilburði sína á vellinum, enda skoraði sá eftirminnilegt mark með hjólhestaspyrnu fyrir framan Kop stúkuna frægu. 27.9.2006 21:41
Drogba er funheitur Jose Mourinho var skiljanlega í skýjunum yfir framherja sínum Didier Drogba eftir leikinn við Levski Sofia í Meistaradeildinni í kvöld, en Fílstrendingurinn sterki skoraði þrennu í 3-1 sigri Chelsea í Búlgaríu. 27.9.2006 21:21
Framarar komu fram hefndum Íslandsmeistarar Fram sóttu Stjörnuna heim í fyrsta leik DHL deildar karla í handknattleik í kvöld og höfðu Íslandsmeistararnir sigur 30-26 og komu því fram hefndum frá tapinu í meistarakeppni HSÍ á dögunum. Þess má geta að Fram tekur á móti lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach í meistaradeildinni um helgina og verður sá leikur sýndur beint á Sýn. 27.9.2006 21:14
Liverpool slapp með skrekkinn Liverpool vann í kvöld nauman 3-2 sigur á tyrkneska liðinu Galatasaray í Meistaradeild Evrópu í leik sem sýndur var beint á Sýn. Peter Crouch skoraði tvö mörk og Luis Garcia eitt og komu enska liðinu í 3-0, en Tyrkirnir höfðu alls ekki sagt sitt síðasta og skoruðu tvö mörk á sex mínútum um miðjan síðari hálfleikinn. Lengra komust þeir þó ekki og enska liðið slapp með skrekkinn. 27.9.2006 20:38
Eiður kemur inn fyrir meiddan Eto´o Það blæs ekki byrlega fyrir Evrópumeistara Barcelona það sem af er kvöldi, því liðið er ekki aðeins 1-0 undir gegn Werder Bremen á útivelli í Meistaradeildinni, heldur var framherjinn skæði Samuel Eto´o borinn meiddur af leikvelli strax í upphafi síðari hálfleiks. Hann virðist vera nokkuð alvarlega meiddur á hné, en eins dauði er annars brauð og Eiður Smári Guðjohnsen er því kominn inn í lið Barcelona í stað Eto´o á 55 mínútu. 27.9.2006 20:06
Bandaríska liðið spilaði ömurlega Bandaríski kylfingurinn Jim Furyk hefur vísað þeim kenningum á bug að lið Bandaríkjanna hafi tapað í Ryder-bikarnum vegna þess að það skorti hungur. Furyk segir liðið einfaldlega hafa tapað fyrir því evrópska af því það hafi spilað ömurlegt golf alla keppnina. 27.9.2006 20:00
Liverpool í góðum málum Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Peter Crouch (9.) og Luis Garcia (14.) skoruðu mörk Liverpool sem hefur 2-0 yfir gegn Galatasaray á heimavelli sínum í sjónvarpsleiknum á Sýn. Heimamenn hafa ráðið ferðinni lengst af og útlit fyrir að eftirleikurinn verði þeim auðveldur. 27.9.2006 19:38
Eiður Smári á varamannabekk Barcelona Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Barcelona sem sækir þýska liðið Werder Bremen heim í Meistaradeildinni en leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra nú klukkan 18:45. Eiður Smári er á varamannabekk Barcelona í kvöld sem áður. 27.9.2006 18:26
Leikir kvöldsins á rásum Sýnar Sjónvarpsstöðin Sýn verður að venju með þrjá leiki í boði í beinni útsendingu úr Meistaradeild Evrópu á rásum sínum. Aðalleikur kvöldsins verður viðureign Liverpool og Galatasaray á Sýn, en þar kemur ekkert annað en sigur til greina hjá fyrrum Evrópumeisturunum eftir að gengi liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska í Evrópukeppninni undanfarið. 27.9.2006 17:44
Schaaf ætlar að koma Barcelona á óvart Lið Werder Bremen hefur ekki unnið sigur í fimm síðustu leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu en Thomas Schaaf þjálfari ætlar sér að koma Evrópumeisturum Barcelona á óvart í kvöld þegar liðin mætast í A-riðli á Westerstadion í Bremen. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. 27.9.2006 17:35
Sögulegur leikur í Moskvu í kvöld Leikur Spartak Moskvu og Sporting Lissabon á Luzhniki Stadium verður kannski ekki stærsti leikurinn sem verður á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld, en hann verður þó merkilegur fyrir þær sakir að þetta verður í fyrsta sinn sem leikur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar verður háður á gervigrasvelli. 27.9.2006 17:25
Þýsku brautirnar skipta með sér keppnum Nú hefur verið tilkynnt að þýsku kappakstursbrautirnar Nurburgring og Hockenheim muni skipta með sér mótshaldi í Formúlu 1 næstu fjögur árin. Þetta þýðir að keppnin á næsta ári fer fram á Nurburgring og svo aftur árið 2009, en 2008 og 2010 verður Þýskalandskappaksturinn haldinn á Hockenheim. 27.9.2006 17:15
Nowitzki framlengir við Dallas Þýski stjörnuleikmaðurinn Dirk Nowitzki hefur framlengt samning sinn við NBA lið Dallas Mavericks til þriggja ára og fær fyrir það um 60 milljónir dollara samkvæmt heimildarmanni ESPN sjónvarpsstöðvarinnar. 27.9.2006 17:03
Ólafur Þórðarson nýr þjálfari Fram Ólafur Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Fram í knattspyrnu. Samningur Ólafs við Fram er til þriggja ára. Framarar tryggðu sér sæti í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð með sigri í fyrstu deild. 27.9.2006 16:40
Vekur reiði samkynhneigðra Fyrrum landsliðsmaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United hefur vakið upp nokkra gremju meðal baráttumanna fyrir jafnrétti samkynhneigðra eftir að hann var sakaður um að hafa látið niðrandi orð um samkynhneigða falla í kjölfar þess að hann var spjaldaður í leiknum gegn Benfica í meistaradeildinni í gær. 27.9.2006 16:34
Ætlar að skála í kvöld Ítalski landsliðsmaðurinn Francesco Totti hjá Roma vill ólmur næla í þrjú stig með liði sínu þegar það sækir Valencia heim í D-riðli meistaradeildarinnar í kvöld, því hann segist vilja skála við félaga sína í fluginu heim til Ítalíu og halda þannig upp á þrítugsafmæli sitt sem er í dag. 27.9.2006 16:28
Schumacher er fjórum sinnum vinsælli en Alonso Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er fjórum sinnum vinsælli meðal áhugamanna í greininni en heimsmeistarinn Fernando Alonso. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Alþjóða Akstursíþróttasambandið lét gera á dögunum. 27.9.2006 15:32
Deildin byrjar á stórleik DHL-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Fyrsti leikur tímabilsins er stórleikur í Ásgarði þar sem bikarmeistarar Stjörnnunar mæta Íslandsmeisturum Fram og hefst leikurinn kl. 19:00. Í Austurbergi mætast ÍR og Haukar og hefst sá leikur kl. 20:00. 27.9.2006 15:30
Titus Bramble heldur sæti sínu Hinn seinheppni varnarmaður Newcastle, Titus Bramble, heldur sæti sínu í liðinu fyrir Evrópuleikinn gegn Levadia Tallinn. Bramble varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi að hafa verið valinn í lið vikunnar, hjá ESPN, eftir síðasta leik gegn Everton. Hið vafasama er hann var valinn í liðið fyrir hönd andstæðinga sinna í leiknum, en hann þótti hafa verið besti leikmaður Everton í leiknum. 27.9.2006 14:45
Yfirtökutal hefur truflandi áhrif á liðið Alan Pardew segir að endalausar vangaveltur um að gert verði yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið West Ham séu farnar að hafa truflandi áhrif á liðið. West Ham hefur gengið afleitlega síðan Argentínumennirnir Javier Mascherano og Carlos Tevez gengu í raðir félagsins á sínum tíma, en síðan hefur aðeins einn sigur unnist. 27.9.2006 14:43
Barclays framlengir styrktarsamning Barclays bankinn hefur framlengt styrktarsamning sinn við ensku úrvalsdeildina til ársins 2010, en þetta er tveggja ára framlenging á gildandi samningi. Þetta mun færa deildinni tæpar 66 milljónir punda í tekjur. 27.9.2006 14:38
Lætur ummæli þjálfara Levski Sofia ekki á sig fá Stanimir Stoilov, knattspyrnustjóri Levski Sofia, lét hafa eftir sér að Chelsea spilaði ekki nálægt því eins fallega knattspyrnu og Evrópumeistarara Barcelona, en Jose Mourinho segist ekki taka þetta nærri sér. 27.9.2006 14:30
KFÍ fær atvinnuleyfi fyrir 2 leikmenn og þjálfara Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur fengið atvinnuleyfi fyrir tvo leikmenn og þjálfara frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu. Mennirnir koma frá Serbíu og Makedóníu en Vinnumálastofnun hafði áður synjað umsókn félagsins um atvinnuleyfi fyrir þá. 27.9.2006 14:00
HK lagði ÍBV Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð DHL deildar kvenna í handknattleik í kvöld. HK lagði ÍBV nokkuð óvænt í Digranesi 27-24, Grótta lagði FH 26-20 og þá gerðu Reykjavíkurliðin Valur og fram jafntefli 25-25. 26.9.2006 22:24
Sjálfstraust leikmanna vex stöðugt Arsene Wenger segir að 2-0 sigur Arsenal á Porto í kvöld beri þess merki að sjálfstraust leikmanna sé að vaxa til muna og að liðið sé nú að finna taktinn eftir fremur dapra byrjun á leiktíðinni. 26.9.2006 21:57
Mark Saha var frábært Sir Alex Ferguson sá aðeins það jákvæða við leik sinna manna í sigrinum á Benfica í meistaradeildinni í kvöld og hrósaði frábæru einstaklingsframtaki Louis Saha sem á endanum réði úrslitum í leiknum. 26.9.2006 21:38
Einstaklingsframtak Saha tryggði United sigur Franski framherjinn Louis Saha skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United náði fram hefndum á Benfica og kom sér í góð mál í riðli sínum með 1-0 sigri. Enska liðið var fjarri sínu besta í leiknum, en Cristiano Ronaldo var maður vallarins og í raun eini maðurinn sem spilaði vel í kvöld. 26.9.2006 20:52
Hættið að reyna að vera Roy Keane Framherjinn Dwight Yorke hefur skorað á félaga sína í liði Sunderland að hætta að reyna að vera Roy Keane á knattspyrnuvellinum með því að tækla í allar áttir eins og óðir menn. Sunderland tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Keane um helgina og þótti Yorke félagar sínir taka full harkalega á andstæðingunum. 26.9.2006 20:00