Formúla 1

Schumacher er fjórum sinnum vinsælli en Alonso

Michael Schumacher
Michael Schumacher NordicPhotos/GettyImages

Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er fjórum sinnum vinsælli meðal áhugamanna í greininni en heimsmeistarinn Fernando Alonso. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Alþjóða Akstursíþróttasambandið lét gera á dögunum.

Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að Schumacher er uppáhaldsökumaður 28% þeirra sem spurðir voru, en Alonso var aðeins í fjórða sæti með 7% atkvæða. Finninn Kimi Raikkönen reyndist næstvinsælasti ökumaðurinn og Jenson Button sá þriðji.

Þá kom í ljós að 66% aðspurðra voru fylgjandi nýjum reglum um hjólbarðaskipti og 73% sögðu að nýju reglurnar í tímatökunum væru til góðs, enda sögðust 51% aðspurðra fylgjast meira með tímatökum í kjölfar þessa.

88% þeirra sem tóku þátt í könnuninni vildu að meiri áhersla yrði lögð á hæfileika ökumanna frekar en tæknimál og aðstoðarfólk, en 86% sögðu að framúrakstur væri mikilvægasti þátturinn í skemmtanagildi íþróttarinnar.

Michael Schumacher er sem fyrr langvinsælasti ökumaðurinn í Formúlu 1, þrátt fyrir að hafa allan sinn feril verið mjög umdeildur. Könnunin náði til 91.000 manns í 180 löndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×