Fleiri fréttir

Simon Mignolet varði víti í lokin og tryggði Liverpool þrjú stig

Belgíski markvörðurinn Simon Mignolet var hetja Liverpool í sínum fyrsta leik með félaginu en hann varði vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir leikslok. Daniel Sturridge skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en stórsókn Liverpool bar ekki frekari árangur og það var nærri því búið að kosta liðið stigin í lokin.

Sjáið blaðamannafundinn hjá Jose Mourinho

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina og hann var sjálfum sér líkur þegar hann mætti á blaðamannafund fyrir fyrsta leik Chelsea-liðsins sem er á móti nýliðum Hull City á morgun.

Rodgers: Liverpool verður að komast í Meistaradeildina

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, gerir sér grein fyrir því að það er krafa á Anfield að hann komi liðinu aftur í Meistaradeildina en þetta er fjórða tímabilið í röð þar sem Liverpool er ekki í Meistaradeildinni.

Læt verkin tala í stað þess að rífa kjaft í fjölmiðlum

Gylfi Þór Sigurðssonverður í stærra hlutverki hjá Tottenham í vetur en á síðustu leiktíð ef marka má undirbúningsleiki liðsins. Gylfi fagnar aukinni ábyrgð. Gylfi segist vera mjög hamingjusamur í London og hjá Spurs. Hann segist hafa meiri áhuga á því að

Toppliðin öll með nýja stjóra

Enska úrvalsdeildin hefst í dag og sjaldan hafa verið fleiri spurningarmerki á lofti en einmitt nú. Nýir stjórar og ósáttar stjörnur settu mikinn svip á sumarið og margir bíða spenntir eftir að fótboltaveislan byrji.

Stjörnumenn í dauðafæri

Fram og Stjarnan eigast við í úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í dag en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Framarar hafa tapað fjórum bikarúrslitaleikjum í röð en Stjarnan hefur aldrei unnið titil í meistaraflokki karla í knattspyrnu.

Vill færa sig yfir í karlaboltann

Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í gær að Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefði ákveðið að hætta sem þjálfari A-landsliðs kvenna. Sigurður er eini þjálfarinn í sögu Íslands sem hefur farið með A-landslið á stórmót og það afrekaði hann í tvígang, árið 2009 og 2013.

Eina stöðin í Evrópu með alla leiki

"Þetta verður algjör veisla. Við erum að fara að sýna alla 380 leikina í ensku úrvalsdeildinni. Við erum eina stöðin í Evrópu sem gerir það og við erum mjög stoltir af því,“ segir Hjörvar Hafliðason, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Sport, en hans menn eru klárir í bátana fyrir enska boltann sem hefst í dag.

Vidic: Hópurinn er nógu sterkur

Man. Utd hefur ekkert gengið á leikmannamarkaðnum í sumar en fyrirliði liðsins, Nemanja Vidic, segir að liðið sé þrátt fyrir það nógu sterkt til þess að verja titilinn.

Jakob: Erum á réttri leið

"Leikurinn var ekki okkar besti en við náðum að klára þetta í lokin. En mér fannst við samt alltaf hafa yfirhönd í leiknum. Það var eftir góða byrjun,“ sagði Jakob Sigurðarson sem fór mikinn fyrir Ísland í kvöld gegn Rúmeníu.

Nýliðarnir eyddu 50 milljónum punda í sumar

Cardiff City, Crystal Palace og Hull City eru nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta sem hefst á morgun. Cardiff City vann b-deildina og Hull City komst einnig beint upp en Crystal Palace fór í gegnum umspilið eftir að hafa endaði í fimmta sæti deildarinnar.

Hörð barátta í 1. deild

Leiknir og Haukar unnu góða sigra í 1. deildinni í kvöld og eru í þriðja og fjórða sæti deildarinnar eftir leiki kvöldsins.

Brjálaður út í boltastrákana

Dunga, fyrrum fyrirliði heimsmeistara Brasilíu og núverandi þjálfari Internacional, var allt annað en sáttur út í boltastrákana eftir 3-3 jafntefli liðsins á móti Botafogo í brasilísku deildinni.

Búin að skora 65 prósent marka Selfossliðsins

Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss í Pepsi-deild kvenna, skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 útisigri á Aftureldingu í gær og hefur þar með skorað 11 mörk í 12 deildarleikjum í sumar.

Federer og Nadal mætast í 31. skipti

Svisslendingurinn Roger Federer og Spánverjinn Rafael Nadal munu mætast í átta liða úrslitum opna Western and Southern-mótinu í tennis en þetta er í 31. skipti sem þessir tveir kappar mæta hvor öðrum.

Breti og tveir aðrir á undan Bolt í 200 metrunum

Jamaíkamaðurinn og ríkjandi Heims- og Ólympíumeistari, Usain Bolt, varð aðeins með fjórða besta tímann í undanúrslit í 200 metra hlaupi á HM í Moskvu en úrslitahlaupið fer fram á morgun.

Söguleg skref íslensku stelpnanna í tíð Sigga Ragga

Íslenska kvennalandsliðið hefur leikið sinn síðasta leik undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar sem ákvað í dag að hætta með kvennalandsliðið. Sigurður Ragnar hefur þjálfað liðið frá árinu 2007.

Neglurnar hennar Ásdísar í fánalitunum

Ásdís Hjálmsdóttir, eini íslenski keppandinn á HM í frjálsum í Moskvu, hóf og lauk keppni í morgun þegar hún varð í 21. sæti í undankeppninni í spjótkasti kvenna. Ásdís kastaði lengst 57,65 metra og var tæpum þremur metrum frá því að komast inn í úrslitin.

Cissokho á leiðinni til Liverpool

Samkvæmt fréttastofu Sky Sports hefur spænska félagið samþykkt tilboð Liverpool í Aly Cissokho en leikmaðurinn mun fara til félagsins á láni út næstu leiktíð.

Guðmundur og Dagur líklegir arftakar Wilbek

Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik og núverandi þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og Dagur Sigurðsson, þjálfari Füche Berlin, eru taldir upp sem líklegir arftakar Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfara Dana, á næsta ári.

Kominn tími á sigur í Laugardalshöllinni

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Rúmeníu í kvöld í undankeppni EM 2015 en þetta er síðasti leikur íslenska liðsins í riðlinum. Ísland og Rúmenía eru að keppa um annað sæti riðilsins og það skiptir miklu máli fyrir íslenska liðið þegar kemur að styrkleikaröðun fyrir næstu keppni.

Mourinho vill aftur fjölskyldustemningu hjá Chelsea

Jose Mourinho er tekinn við liði Chelsea á nýjan leik og hann leggur ofurkapp á það að bæta andrúmsloftið í kringum liðið en stuðningsmenn Chelsea voru mjög sundurleitur hópur á meðan Rafael Benitez var við stjórnvölinn.

Setti fimm Íslandsmet á sama deginum

Hjörtur Már Ingvarsson úr Íþróttafélaginu Firði gat verið himinlifandi með afrakstur sinn á þriðjudaginn á HM fatlaðra í sundi en mótið fer að þessu sinni fram í Montréal í Kanada. Hann hélt síðan áfram að bæta sig í 200 metra fjórsundi í gær.

Suarez fékk að æfa með aðalliði Liverpool í morgun

Luis Suarez fékk að æfa á ný með aðalliði Liverpool í morgun en honum var skipað að æfa einn eftir að hafa barist fyrir því að vera seldur til Arsenal. Liverpool ætlar ekki selja Úrúgvæmanninn og bæði eigandi og knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers gáfu það út.

Þessi fá miða á landsleikinn í kvöld

Lesendum Vísis gafst í vikunni tækifæri á að vinna sér inn miða á leik Íslands og Rúmeníu sem fram fer í Laugardalshöll klukkan 19.15 í kvöld og nú er komið í ljós hverjir hinir heppnu eru.

Villas-Boas: Bale spilar ekki fyrr en í september

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham verða án Gareth Bale á sunnudaginn þegar liðið mætir Crystal Palace í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Bale hefur ekki spilað með liðinu síðan um miðjan júlí.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Rúmenía 77-71

Ísland sigraði Rúmeníu 77-71 og tryggði sér annað sæti A-riðils í undankeppni Evrópumeistaramótsins í körfubolta 2015. Ísland var yfir allan leikinn þó Rúmenía hafi aldrei verið langt undan en staðan í hálfleik var 40-36.

Aston Villa lánaði Darren Bent til Fulham

Darren Bent verður Fulham í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en Lundúnafélagið fær hann á eins árs lánsamningi frá Aston Villa. Aston Villa keypti Bent á 18 milljónir punda í janúar 2011.

Lagerback svarar Theodóri | Ekki nægilega góður

Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður Randers, í dönsku úrvalsdeildinni er ekki paránægður með Lars Lagerback, landsliðsþjálfara Íslands, og telur sig eiga erindi í íslenska landsliðið.

Gunni Helga fékk lax!

„Finally...after one year, eleven months and 25 days of nothing I got a salmon. Sunray!“

Ekkert aktu taktu gluggaskytterí

Hreindýraveiðar ganga treglega og hefur til að mynda Pálmi Gestsson leikari, þaulvanur veiðimaður, verið á hreindýraslóð og leitað dýra í nokkra daga án árangurs. Aðeins er búið að veiða 300 dýr af 1229 dýra kvóta.

Hjörtur Már heldur áfram að bæta sig

Sundkappinn Hjörtur Már Ingvarsson hafnaði í 10. sæti í 200 metra fjórsundi á heimsmeistaramóti fatlaðra sem fram fer í Montreal í Kanada.

Blendingar villts lax og eldislax í Elliðaánum

Greinileg merki sjást um að göngur eldislaxa í Elliðaárnar hafi raskað stofngerð villta laxins sem þar var fyrir. Forstjóri Veiðimálastofnunar varar við þeirri hættu sem getur stafað af sjókvíaeldi á laxi af norskum uppruna.

Sjá næstu 50 fréttir