Fleiri fréttir

David Winnie: Gunnleifur var strippari

David Winnie, fyrrum leikmaður og þjálfari KR, segir í samtali við The Sun í dag að hann minnist þess að Gunnleifur Gunnleifsson, annar markvarða íslenska landsliðsins, hafi drýgt tekjurnar sínar sem strippari á meðan þeir voru saman í KR.

Veigar Páll er góður í Laser Tag

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta leitar ýmsa leiða til þess að efla liðsheildina og gera skemmtilega hluti saman milli æfinga. Á heimasíðu KSÍ er sagt frá því þegar allt liðið skellti sér í Laser Tag í gærmorgun.

F1: Toyota áfrýjar ekki dómi

Toyota keppnisliðiði í Formúlu 1 sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem segir að liðið sjái ekki tilgang í að árýja dómi dómara á kappakstursbrautinni í Melbourne á sunnudaginn. Liðsmenn telja að dómurinn hafi verið rangur, en áfrýjanir hafi ekki skilað tilæltuðum árangri.

Boltavaktin: Skotland - Ísland

Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins er með beina texta- og atburðarlýsingu frá leik Skotlands og Íslands í undankeppni HM 2010.

Miklar vangaveltur um markvarðastöðu Skota

Það eru ekki einungis vangaveltur um hver muni verja mark Íslands í leiknum gegn Skotum í Glasgow á morgun heldur eru heimamenn efins um að Allan McGregor sé tilbúinn í verkefnið.

Eggert: Þetta er bara fótboltaleikur

Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, sagðist vitanlega spenntur fyrir leiknum gegn Skotum á Hampden Park í Glasgow á morgun.

Theodór Elmar: Vil sanna mig á Hampden

Theodór Elmar Bjarnason vill ólmur sýna sig og sanna fyrir skoskum áhorfendum þegar íslenska landsliðið mætir því skoska á Hampden Park í Glasgow á morgun.

Hermann: Hvað er að heyra í þér?

Hermann Hreiðarsson skaut föstum skotum á Eggert Gunnþór Jónsson, liðsfélaga sinn í íslenska landsliðinu, á blaðamannafundi liðsins nú í kvöld.

Iwelumo vill sanna sig gegn Íslandi

Chris Iwelumo, leikmaður Wolves og skoska landsliðsins, vill ólmur fá tækifæri til að sanna sig í skoska landsliðsbúningnum er liðið mætir því íslenska á Hampden Park á morgun.

Hlynur: Betra liðið vann einvígið

"Ég held að heilt yfir hafi betra liðið unnið þessa seríu," sagði Hlynur Bæringsson, spilandi þjálfari Snæfells, eftir að hans menn féllu úr leik í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar fyrir Grindavík í kvöld.

Helgi Jónas: Auðvitað eigum við möguleika í KR

"Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið smá grís," sagði Helgi Jónas Guðfinnsson hjá Grindavík í samtali við Stöð 2 Sport þegar hann var spurður út í ævintýralegt skot sem hann setti niður í lok þriðja leikhlutans.

Burley sá óöruggasti í starfi

Samkvæmt veðmálafyrirtækjum í Bretlandi þykir George Burley, landsliðsþjálfari Skota, óöruggastur í starfi af þeim landsliðsþjálfurum sem starfa á Bretlandseyjum.

Grindavík í úrslitin

Það verða KR og Grindavík sem leika til úrslita í Iceland Express deild karla í körfubolta. Þetta varð ljóst í kvöld þegar Grindavík skellti Snæfelli 85-75 í fjórða leik liðanna í undanúrslitunum.

Hatton er drjúgur með sig

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton er mjög brattur á síðustu vikunum fyrir stórbardaga hans gegn hinum magnaða Danny Pacquiao þann 2. maí nk.

Garnett settur á ís

Framherjinn Kevin Garnett hjá Boston Celtics í NBA deildinni verður látinn hvíla næstu fjóra leiki í það minnsta vegna hnémeiðsla.

Terry Butcher: Verðum að vera klókari

Terry Butcher, aðstoðarlandsliðsþjálfari Skota, sagði að Hollendingar hafi verið mun klókari á vellinum í leiknum gegn Skotum um helgina. Þeir þurfi nú að vera klókari aðilinn gegn Íslandi á morgun.

McManus og Hutton klárir í slaginn

Þeir Stephen McManus, fyrirliði Celtic, og Alan Hutton, varnarmaður Tottenham, eru sagðir klárir í slaginn fyrir leik Skota og Íslendinga á morgun.

Di Canio: Guttarnir hafa það of gott

Ítalska knattspyrnugoðsögnin Paulo di Canio sem áður lék m.a. með West Ham á Englandi, segir að ungir knattspyrnumenn í dag hafi það allt of gott.

Ballesteros sér fram á stærstu áskorun lífs síns

Spænski kylfingurinn Seve Ballesteros segist vera á góðum batavegi eftir margfaldan heilauppskurð, en segir að nú standi hann fram fyrir stærstu áskorun sinni í lífinu - að ná heilsu á ný.

Diaby á meiðslalistann

Miðjumaðurinn Abou Diaby hjá Arsenal er nýjasta nafnið á sjúkralistanum hjá félaginu eftir að hafa meiðst á mjöðm. Diaby verður fyrir vikið ekki með franska landsliðinu gegn Litháen annað kvöld.

Hutton vill halda McGregor í markinu

Alan Hutton, leikmaður Tottenham og skoska landsliðsins, vill að Allan McGregor, fyrrum liðsfélagi sinn hjá Rangers, haldi sæti sínu í marki Skota. McGregor stóð vaktina í marki Skota gegn Hollendingum ytra um helgina og fékk á sig þrjú mörk.

Beri stangarstökkvarinn á Ebay

Franski stangarstökkvarinn Romain Mesnil, sem vakti heimsathygli um helgina fyrir að skokka nakinn í gegn um París, hefur opnað uppboð á netinu til að finna sér stuðningsaðila.

Alvanos: Ólafur Stefánsson var mín fyrirmynd

Grikkinn Alexis Alvanos hlakkar mikið til að spila með Íslendingaliðinu Rhein-Neckar Löwen næsta vetur. Sérstaklega hlakkar hann til að spila með Ólafi Stefánssyni sem var hans átrúnaðargoð á árum áður.

Capello: Leikmenn mínir óttast ekkert

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur trú á því að leikmenn landsliðsins séu loksins farnir að leika eins vel fyrir landsliðið og þeir gera með félagsliðum sínum.

Benedikt búinn að vinna Íslandsmeistaratitilinn

Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR-inga, er búinn að vinna fyrsta Íslandsmeistaratitilinn sinn á tímabilinu þótt að lokaúrslitin séu ekki byrjuð í Iceland Express deild karla.

Romario vill fá Ronaldo aftur í landsliðið

Brasilíumaðurinn Romario hefur hafið baráttu fyrir því að Ronaldo fái aftur tækifæri með brasilíska landsliðinu en hinn 32 ára framherji hefur komið til baka eftir erfið meiðsli.

Framherjaálög á enska landsliðinu - Bent meiddist

Enska landsliðið er búið að missa enn einn framherjann í meiðsli eftir að ljóst var að Darren Bent getur ekki tekið þátt í leiknum á móti Úkraínu í undankeppni HM á morgun. Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, hefur valið Gabriel Agbonlahor í hans stað.

Drillo kemur í Laugardalinn í haust

Norska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að Egil „Drillo" Olsen muni stjórna norska fótboltalandsliðinu út undankeppni HM í Suður-Afríku en Norðmenn eru eins og kunnugt með Íslendingum í riðli.

Fabregas: Ég talaði við forseta Real Madrid

Cesc Fabregas, ein aðalstjarna enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, viðurkenndi í spænska blaðinu El Mundo, að hann hafi á dögunum rætt við Ramon Calderon, forseta Real Madrid í síma.

Árni Már stóð sig vel á NCAA-háskólamótinu

Árni Már Árnason stóð sig vel á NCAA-háskólamótinu í sundi um síðustu helgi en þetta er meistaramót allra háskóla í Bandaríkjunum og það mikill heiður að öðlast keppnisrétt á þessu móti.

Gabriel Agbonlahor fær stuðning frá Luke Young

Markaleysi Gabriel Agbonlahor, framherja Aston Villa, hefur verið í umræðunni að undanförnu enda hefur Agbonlahor aðeins skorað eitt mark í síðustu sextán leikjum með Villa.

Fernando Torres: Það vilja allir vinna Evrópumeistarana

Spánverjar geta unnið sinn sjötta leik í sex leikjum undankeppni HM þegar þeir heimsækja Tyrki til Istanbúl á morgun. Liðin mættust einnig um síðustu helgi á Spáni og þar unnu Evrópumeistararnir nauman 1-0 sigur.

F1: Sigurlið Brawn rekur 270 manns

Hið nýkrýnda sigurlið Brawn í Brackley í Englandi hefur sagt upp 270 af 700 manns í ljósi breytinga hjá liðinu. Liðið vann sigur í ástralska kappakstrinum um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir