Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forlan fer líklega frá Villarreal Talið er víst að framherjinn Diego Forlan muni fara frá Villarreal í sumar eftir að umboðsmaður hans átti fund með stjórn félagsins til að ræða tilboð sem borist hafa í hann undanfarið. Forlan er nú að spila með Úrúgvæ í Copa America en framtíð hans ræðst eftir keppnina. Sunderland og Arsenal eru talin hafa áhuga á honum, auk liða á Spáni. 27.6.2007 12:15
Perú vann óvæntan stórsigur á Úrúgvæ Óvænt úrslit urðu strax á fyrsta degi Copa America í gærkvöld þegar Perúmenn unnu öruggan 3-0 sigur á Úrúgvæ í A-riðli. Miguel Villata, Jose Guerrero og varamaðurinn Juan Marino skoruðu mörk liðsins á Metropolitano vellinum í Merida. Þá gerðu heimamenn í Venesúela 2-2 jafntefli við Bólivíu þar sem mark sjö mínútum fyrir leikslok gerði út um vonir heimamanna um fyrsta sigur þeirra í keppninni í 40 ár. 27.6.2007 11:06
Coleman að taka við Sociedad? Chris Coleman, fyrrum knattspyrnustjóri Fulham í ensku úrvalsdeildinni, er nú sagður vera í viðræðum við forráðamenn Real Sociedad á Spáni um að gerast þjálfari liðsins. Spænska félagið á að hafa sett sig í samband við Coleman eftir að hafa ráðfært sig við fyrrum þjálfara sinn John Toshack. Coleman staðfesti að hann væri í viðræðum við Baskaliðið í samtali við The Sun. 27.6.2007 10:57
Ronaldo tekur Nani undir sinn verndarvæng Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ætlar að sjá til þess að landi hans Nani fái góða handleiðslu í herbúðum liðsins á næsta tímabili. Nani gekk í raðir United frá Sporting Lissabon á dögunum og hefur stundum verið líkt við landa sinn Ronaldo. 27.6.2007 10:42
Beðið eftir Wenger Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segist vongóður um að Arsene Wenger knattspyrnustjóri fáist til að framlengja samning sinn við félagið lengur en út næsta keppnistímabil. Framtíð stjórans virðis óráðin hjá félaginu og margir hafa slegið því föstu að hann muni fara frá félaginu eftir ár. 27.6.2007 10:36
Liverpool er í viðræðum við Atletico Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að Liverpool sé nú að gera lokatilraun til að fá til sín framherjann Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Sagt er að félögin séu í viðræðum en forseti Atletico segir ekkert tilboð hafa komið frá enska félaginu. 27.6.2007 10:31
Valsmenn auka forystuna Guðmundur Benediktsson var rétt í þessu að koma Valsmönnum í 4 - 1 á móti FH á Laugardalsvellinum. Guðmundur skoraði fyrr í leiknum og eru mörkin tvö hans fyrstu á þessari leiktíð. 27.6.2007 21:15
Þrjú eitt fyrir Val Staðan í upphafi fyrrihálfleiks í leik Vals og FH er 3 - 1. Það var Matthías Vilhelmsson sem náði að minnka muninn fyrir FH á fyrstu mínútum hálfleiksins. 27.6.2007 20:34
Valsmenn með tveggja marka forystu Valsmenn eru tveimur mörkum yfir á móti Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli en þeir komust í eins marks forystu á 13. mínútu. Á tuttugustu mínútu kom Helgi Sigurðsson Valsmönnum í tveggja marka forystu með sjötta marki sínu í deildinni í sumar. Það var hins vegar Guðmundur Benediktsson sem gerði fyrra markið, hans fyrsta í deildinni. 27.6.2007 20:09
Markalaust í Keflavík Markalaust er í leik Keflavíkur og Fylkis í Landsbankadeild karla í knattspyrnu þegar um hálftími er liðinn af leiknum sem leikinn er í Keflavík. Stórleikur umferðarinnar, leikur Vals og FH hefst á Laugardalsvelli klukkan átta. 27.6.2007 19:45
Blikar höfðu betur í grannaslagnum Breiðablik vann í kvöld góðan 3-0 sigur á grönnum sínum í HK í fyrsta einvígi Kópavogsliðanna í efstu deild. Kristján Óli Sigurðsson kom Blikum yfir strax á þriðju mínútu leiksins og þannig var staðan í hálfleik. 26.6.2007 21:47
Caborn ræðir við erlenda eigendur Richard Caborn, íþróttamálaráðherra á Englandi, ætlar að funda með erlendum eigendum knattspyrnuliða í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Tilefni fundarins eru auknar áhyggjur heimamanna af þeim fjölda útlendinga sem eiga nú mörg af stóru félögunum í landinu. Sjö félög eru nú í eigu útlendinga í úrvalsdeildinni og þá fyrirhuguð sala á Manchester City ekki talin með. 26.6.2007 21:35
Skagamenn unnu Víking 3-0 Skagamenn gerðu góða ferð í Fossvoginn í kvöld og unnu góðan 3-0 sigur á Víkingi í Landsbankadeild karla. Króatinn Vjekoslav Svadumovic kom gestunum á bragðið með marki á 26. mínútu og bætti öðru við skömmu fyrir leikhlé. Það var svo Jón Vilhelm Ákason sem skoraði þriðja mark Skagamanna á 65. mínútu. Skagamenn skutust með sigrinum í 11 stig í deildinni. 26.6.2007 21:11
Tíu dómarar reknir í Rúmeníu Knattspyrnusambandið í Rúmeníu hefur nú ákveðið að taka rækilega til í dómaramálum sínum því í dag voru alls tíu dómarar strikaðir út af lista sambandsins fyrir næsta keppnistímabil. Dómaramál hafa verið í miklu uppnámi í landinu síðustu ár og hver skandallinn rekið annan. Rúmenar hafa ekki átt fulltrúa úr dómarastéttinni í stórleik síðan Ion Carciunescu dæmdi úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 1995. 26.6.2007 20:31
Arnór ánægður með nýjan samning við FCK Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason hefur framlengt samning sinn við danska liðið FCK um þrjú ár. Arnór sagðist í samtali við Vísi vera mjög ánægður með samninginn því sér liði mjög vel í Kaupmannahöfn. Aldrei hefði komið til greina að fara annað. 26.6.2007 18:21
Þrír fóru holu í höggi á fjórum tímum Sá einstæði atburður átti sér stað á Urriðavelli í gær að þrír kylfingar fóru holu í höggi á 15. brautinni á aðeins fjórum klukkutímum. Þetta voru þau Hrefna Sigurðardóttir, Bríet Þorsteinsdóttir og Hlynur Þór Haraldsson úr golfklúbbnum Oddi. Allir kylfingarnir voru þarna að slá draumahöggið sitt í fyrsta sinn á ferlinum. Þetta kom fram á kylfingur.is í dag. 26.6.2007 22:20
Wallace með lausa samninga Framherjinn Gerald Wallace hjá Charlotte Bobcats verður með lausa samninga hjá liðinu á sunnudaginn eftir að hann ákvað í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við félagið. Wallace verður væntanlega eftirsóttur á næstu dögum eftir frábært tímabil í fyrra. 26.6.2007 22:00
Sharapova vann í svanskjólnum Maria Sharapova þurfti á öllu sínu að halda þegar hún lagði Chan Yung-Jan frá Tævan 6-1 og 7-5 í fyrstu umferð Wimbledon mótsins í tennis í kvöld. Sharapova klæddist hvítum kjól og þótti minna á svan þegar hún hentist um völlinn. 26.6.2007 20:41
Þrír titlar hjá Íslendingum á NM í skylmingum í dag Íslensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í skylmingum gerðu gott mót í dag. Þrír af íslensku keppendunum unnu þannig sigra í skylmingum með höggsverði á öðrum keppnisdeginum. 26.6.2007 19:31
Nadal í aðra umferð Spænski tenniskappinn Rafael Nadal komst í dag í aðra umferð Wimbledon mótsins þegar hann vann sigur á Bandaríkjamanninum Mardy Fish 6-3, 7-6 (7-4) og 6-3. Sigurinn var ekki auðveldur hjá Spánverjanum, en hann sagðist mjög ánægður með frammistöðu sína á grasinu og sýndi að hann er ekki bara góður á leirnum. 26.6.2007 19:25
Henry: Meiðslin í fyrra geta hjálpað mér Thierry Henry gat lítið spilað með Arsenal á síðustu leiktíð vegna meiðsla en hann fullvissar stuðningsmenn Barcelona um að hann sé enginn meiðslakálfur. Hann segir þvert á móti að fjarvera hans á síðustu leiktíð geti hjálpað honum á næsta tímabili. 26.6.2007 18:30
Zola langar að taka við Chelsea Hinn smái en knái Gianfranco Zola segir að sig langi mikið að gerast knattspyrnustjóri Chelsea einn daginn, en hann átti glæsilegan sjö ára feril með liðinu sem leikmaður á síðasta áratug. Zola er sem stendur aðstoðarmaður Pierluigi Casiraghi hjá U-21 árs liði Ítala. 26.6.2007 17:15
Motta má fara frá Barcelona Forráðamenn Barcelona hafa verið iðnir á leikmannamarkaðnum undanfarna daga og nú er svo komið að ekki er lengur pláss fyrir miðjumanninn Thiago Motta í framtíðaráformum félagsins. Motta hefur verið settur á sölulista, en hann var aðens fimm sinnum í byrjunarliði Barca á síðustu leiktíð. Honum var gefið frí frá æfingum í vor eftir að hann viðurkenndi að hann hefði ekki nauðsynlegt sjálfstraust til að spila. 26.6.2007 15:25
Mauresmo hefur titilvörnina með stæl Ameli Mauresmo var í miklu stuði í dag þegar hún vann öruggan sigur á Jamea Jackson í fyrstu umferðinni á Wimbledon mótinu í dag 6-1 og 6-3. Mauresmo vann leikinn á rétt rúmri klukkustund og vann nokkuð átakalítinn sigur gegn Jackson sem er í 158. sæti á heimslistanum. 26.6.2007 15:02
Sonur Zinedine Zidane er efnilegur (Myndband) Sonur knattspyrnugoðsagnarinnar Zinedine Zidane heitir Enzo Alan Martinez og notar ekki föðurnafnið til að vekja ekki á sér óþarfa athygli. Hann er 12 ára og leikur með unglingaliði Real Madrid. Drengurinn þykir kippa hressilega í kynið eins og sést í myndbrotinu sem fylgir fréttinni. 26.6.2007 14:48
Serenko fer frá Fram Framarar hafa ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Úkraínumanninn Sergiy Serenko og því mun hann ekki leika með liðinu í DHL-deildinni á næstu leiktíð. Serenko kom til Fram haustið 2005 og átti þá frábæra leiktíð, en náði sér ekki á strik síðasta vetur. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. 26.6.2007 14:26
Samningaviðræðunum um Henry var hætt 15 sinnum Ákvörðun Thierry Henry um að ganga í raðir Barcelona var leikmanninum mjög þungbær ef marka má fregn Daily Mail um málið í dag, en þar er haft eftir varaforseta Barcelona að 15 sinnum hafi slitnað upp úr viðræðunum í samningaferlinu. 26.6.2007 13:54
Mayweather sagður tilbúinn að mæta Hatton Talsmaður hins ósigraða Floyd Mayweather segir að Ricky Hatton sé ofmetnasti boxari í heiminum á síðasta áratug og segir að Mayweather sé tilbúinn að taka hanskana niður af hillunni bara til að kenna Hatton lexíu í hringnum. Hatton skoraði á Mayweather að snúa aftur og mæta sér eftir að hann sigraði Jose Luis Castillo með glæsibrag um helgina. 26.6.2007 13:39
Klose skrifar undir hjá Bayern Bayern Munchen sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að félagið hafi nú loks fest kaup á landsliðsmanninum Miroslav Klose frá Werder Bremen. Klose var markakóngur á HM í Þýskalandi í fyrra og hefur lengi verið orðaður við Bayern. Klose hefur þegar undirritað samning við Bayern sem sagður er gilda til ársins 2011. Kaupverðið er um 12 milljónir ef marka má frétt Kicker um málið, en formlegt kaupverð var ekki gefið upp. 26.6.2007 13:29
Heitustu tenniskonur heims Wimbledon mótið í tennis stendur nú sem hæst og í tilefni af því er ekki úr vegi að skoða myndir af nokkrum af heitustu spilurunum í kvennaflokki í gegn um árin. Þær hafa náð mislangt á tennisvellinum en vekja athygli ljósmyndara hvar sem þær koma. Smelltu á myndirnar í albúminu hér fyrir neðan til að sjá þessa huggulegu spilara í essinu sínu. 26.6.2007 13:09
Einn lést í óeirðum í Argentínu Fertugur karlmaður lét lífið og fjörutíu slösuðust í uppþoti sem varð á knattspyrnuleik í Buenos Aires í Argentínu í fyrrakvöld. Til átaka kom á leik Nueva Chicago og Tigres sem léku síðari leik sinn um laust sæti í efstu deild og réði lögreglulið sem kallað var út ekkert við óeirðaseggina. Átökin brutust út í kjölfar þess að stuðningsmenn réðust inn á völlinn og bárust átökin út fyrir leikvanginn. 26.6.2007 12:58
Þriðjudagsslúðrið á Englandi Íslenskir leikmenn koma við sögu í slúðurpakkanum í bresku blöðunum í morgun. Daily Mirror segir Manchester United vera á höttunum eftir Eiði Smára Guðjohnsen og þá segir The Times að Heiðar Helguson gæti verið á leið aftur til fyrrum félaga sinna í Watford. 26.6.2007 11:42
Recoba tæpur í kvöld Framherjinn Alvaro Recoba frá Inter Milan er tæpur í kvöld þegar lið hans Úrúgvæ mætir Perú í opnunarleik Copa America. Recoba er tognaður á vöðva aftan í hægri fæti en ekki verður tekin ákvörðun um þáttöku hans fyrr en rétt fyrir leik. Strax á eftir leik Úrúgvæ og Perú verður svo á dagskrá leikur heimamanna í Venesúela og Bólivíu. Báðir leikir eru sýndir beint á Sýn. 26.6.2007 11:29
Eriksson semur við Manchester City Manchester City hefur náð samkomulagi við knattspyrnustjórann Sven-Göran Eriksson um að taka við liðinu eftir langar viðræður. Reuters fréttastofan greindi frá þessu rétt í þessu. Eriksson var síðast þjálfari enska landsliðsins en tekur nú við City þar sem reiknað er með að Thaksin Shinawatra verði nýr eigandi innan skamms. 26.6.2007 11:21
Toure til Barcelona Barcelona fékk frekari liðsstyrk í morgun þegar liðið gekk frá kaupum á Fílstrendingnum Yaya Toure frá Mónakó í Frakklandi. Kaupverðið er 10 milljónir evra. Toure er yngri bróðir Kolo Toure hjá Arsenal og nú hefur Barcelona varið tæpum þremur milljörðum króna til leikmannakaupa og búist er við því að félagið festi kaup á Rúmenanum Christian Chievu hjá Roma fljótlega. 26.6.2007 11:16
Ísraelar fá liðsstyrk Innanríkisráðuneytið í Ísrael kom knattspyrnulandsliðinu þar í landi til hjálpar í gær með því að veita 2 knattspyrnumönnum ríkisborgararétt. Fyrir vikið verða þeir löglegir í byrjun sept. Þegar Ísraelar mæta Englendingum í undankeppni EM. Roberto Colautti (Argentínumaður) og Toto Tamuz (Nígeríumaður). 26.6.2007 11:14
United að bjóða í Eið Smára? Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag að Manchester ætli að bjóða 8 milljónir punda eða einn milljarð í landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona. Þó verði ekki af kaupunum fyrr en United klárar að selja Alan Smith til Middlesbrough. Þá segir blaðið að félagið muni selja framherjann Giuseppe Rossi til Parma. 26.6.2007 11:10
Trezeguet framlengdi við Juventus Franski framherjinn David Trezeguet framlengdi í gær samning sinn við ítalska liðið Juventus til ársins 2011 og batt þar með enda á sögusagnir um að hann væri á leið til Arsenal á Englandi. Trezeguet hafði lengi verið ósáttur í herbúðum Juventus og lýsti því yfir á dögunum að hann ætlaði ekki að spila aftur með liðinu. Hann dró þó í land þegar honum voru boðin betri kjör. Hann hefur skorað 145 mörk á sjö árum hjá Juve. 26.6.2007 11:04
Tevez spenntur fyrir Arsenal Carlos Tevez viðurkennir að hann sé spenntur yfir áhuga Arsenal á sér. Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Arsenal eftir að Thierry Henry var keyptur til Barcelona í gær. 26.6.2007 10:03
400 kílóa Hatton Vísindamenn reyndu á dögunum að mæla höggþunga hnefaleikamannsins Ricky Hatton. Hnefahögg Hattons braut hins vegar mælitækin. 26.6.2007 09:56
Trúi ekki öðru en að þetta hjálpi mér Akureyringurinn Jónatan Magnússon fór fyrir viku síðan í sína fyrstu aðgerð vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann síðan á síðasta ári. Jónatan hefur lítið getað hreyft sig vegna meiðslanna sem enginn getur sjúkdómsgreint. „Það veit enginn hvað er að mér,” sagði kappinn í nýlegu viðtali við Fréttablaðið en Brynjólfur Jónsson ákvað loks að skera hann upp. 26.6.2007 07:00
Viðar og Serbi í Fossvoginn Víkingur hefur gengið frá félagaskiptum við tvo leikmenn fyrir áframhaldandi átök í Landsbankadeild karla. Viðar Guðjónsson skrifaði í gær undir í Fossvoginum og verður hann kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn ÍA í kvöld. Viðar hætti hjá Fram á dögunum en hann leikur iðulega í stöðu miðjumanns. 26.6.2007 06:45
Liðum fækkað í riðlakeppninni UEFA hefur tekið þá ákvörðun að breyta fyrirkomulagi undankeppni HM 2010. Alls berjast 53 þjóðir um þrettán laus Evrópusæti á HM í Suður-Afríku. Þjóðunum verður skipt upp í átta riðla þar sem sex þjóðir eru í öllum riðlum nema einum sem telur fimm þjóðir. Efsta þjóðin kemst beint á HM en átta lið fara í umspil. 26.6.2007 06:45
Fær hærri laun hjá Fylki en í Danmörku Peter Gravesen kom til Fylkis fyrir tveimur árum síðan og hefur átt sæti í liði félagsins síðan þá. Hann var lykilleikmaður hjá Herfølge í Danmörku áður en hann lenti í slagsmálum við samherja sinn og fékk samning sinn ekki endurnýjaðan í kjölfarið. 26.6.2007 06:30
Yfirburðir Valsstúlkna í Kópavogi Valur gerði góða ferð í Kópavogi í brakandi blíðu í gær þar sem þær unnu Breiðablik 4-0. Valsstúlkur sóttu meira til að byrja með og Margrét Lára sýndi strax úr hverju hún er gerð með góðum tilþrifum þar sem hún bæði skapaði færi fyrir stöllur sínar auk þess sem hún kom sér sjálf í góðar stöður. 26.6.2007 04:00