Fleiri fréttir

Henry: Meiðslin í fyrra geta hjálpað mér

Thierry Henry gat lítið spilað með Arsenal á síðustu leiktíð vegna meiðsla en hann fullvissar stuðningsmenn Barcelona um að hann sé enginn meiðslakálfur. Hann segir þvert á móti að fjarvera hans á síðustu leiktíð geti hjálpað honum á næsta tímabili.

Zola langar að taka við Chelsea

Hinn smái en knái Gianfranco Zola segir að sig langi mikið að gerast knattspyrnustjóri Chelsea einn daginn, en hann átti glæsilegan sjö ára feril með liðinu sem leikmaður á síðasta áratug. Zola er sem stendur aðstoðarmaður Pierluigi Casiraghi hjá U-21 árs liði Ítala.

Motta má fara frá Barcelona

Forráðamenn Barcelona hafa verið iðnir á leikmannamarkaðnum undanfarna daga og nú er svo komið að ekki er lengur pláss fyrir miðjumanninn Thiago Motta í framtíðaráformum félagsins. Motta hefur verið settur á sölulista, en hann var aðens fimm sinnum í byrjunarliði Barca á síðustu leiktíð. Honum var gefið frí frá æfingum í vor eftir að hann viðurkenndi að hann hefði ekki nauðsynlegt sjálfstraust til að spila.

Mauresmo hefur titilvörnina með stæl

Ameli Mauresmo var í miklu stuði í dag þegar hún vann öruggan sigur á Jamea Jackson í fyrstu umferðinni á Wimbledon mótinu í dag 6-1 og 6-3. Mauresmo vann leikinn á rétt rúmri klukkustund og vann nokkuð átakalítinn sigur gegn Jackson sem er í 158. sæti á heimslistanum.

Sonur Zinedine Zidane er efnilegur (Myndband)

Sonur knattspyrnugoðsagnarinnar Zinedine Zidane heitir Enzo Alan Martinez og notar ekki föðurnafnið til að vekja ekki á sér óþarfa athygli. Hann er 12 ára og leikur með unglingaliði Real Madrid. Drengurinn þykir kippa hressilega í kynið eins og sést í myndbrotinu sem fylgir fréttinni.

Serenko fer frá Fram

Framarar hafa ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Úkraínumanninn Sergiy Serenko og því mun hann ekki leika með liðinu í DHL-deildinni á næstu leiktíð. Serenko kom til Fram haustið 2005 og átti þá frábæra leiktíð, en náði sér ekki á strik síðasta vetur. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.

Samningaviðræðunum um Henry var hætt 15 sinnum

Ákvörðun Thierry Henry um að ganga í raðir Barcelona var leikmanninum mjög þungbær ef marka má fregn Daily Mail um málið í dag, en þar er haft eftir varaforseta Barcelona að 15 sinnum hafi slitnað upp úr viðræðunum í samningaferlinu.

Mayweather sagður tilbúinn að mæta Hatton

Talsmaður hins ósigraða Floyd Mayweather segir að Ricky Hatton sé ofmetnasti boxari í heiminum á síðasta áratug og segir að Mayweather sé tilbúinn að taka hanskana niður af hillunni bara til að kenna Hatton lexíu í hringnum. Hatton skoraði á Mayweather að snúa aftur og mæta sér eftir að hann sigraði Jose Luis Castillo með glæsibrag um helgina.

Klose skrifar undir hjá Bayern

Bayern Munchen sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að félagið hafi nú loks fest kaup á landsliðsmanninum Miroslav Klose frá Werder Bremen. Klose var markakóngur á HM í Þýskalandi í fyrra og hefur lengi verið orðaður við Bayern. Klose hefur þegar undirritað samning við Bayern sem sagður er gilda til ársins 2011. Kaupverðið er um 12 milljónir ef marka má frétt Kicker um málið, en formlegt kaupverð var ekki gefið upp.

Heitustu tenniskonur heims

Wimbledon mótið í tennis stendur nú sem hæst og í tilefni af því er ekki úr vegi að skoða myndir af nokkrum af heitustu spilurunum í kvennaflokki í gegn um árin. Þær hafa náð mislangt á tennisvellinum en vekja athygli ljósmyndara hvar sem þær koma. Smelltu á myndirnar í albúminu hér fyrir neðan til að sjá þessa huggulegu spilara í essinu sínu.

Einn lést í óeirðum í Argentínu

Fertugur karlmaður lét lífið og fjörutíu slösuðust í uppþoti sem varð á knattspyrnuleik í Buenos Aires í Argentínu í fyrrakvöld. Til átaka kom á leik Nueva Chicago og Tigres sem léku síðari leik sinn um laust sæti í efstu deild og réði lögreglulið sem kallað var út ekkert við óeirðaseggina. Átökin brutust út í kjölfar þess að stuðningsmenn réðust inn á völlinn og bárust átökin út fyrir leikvanginn.

Þriðjudagsslúðrið á Englandi

Íslenskir leikmenn koma við sögu í slúðurpakkanum í bresku blöðunum í morgun. Daily Mirror segir Manchester United vera á höttunum eftir Eiði Smára Guðjohnsen og þá segir The Times að Heiðar Helguson gæti verið á leið aftur til fyrrum félaga sinna í Watford.

Recoba tæpur í kvöld

Framherjinn Alvaro Recoba frá Inter Milan er tæpur í kvöld þegar lið hans Úrúgvæ mætir Perú í opnunarleik Copa America. Recoba er tognaður á vöðva aftan í hægri fæti en ekki verður tekin ákvörðun um þáttöku hans fyrr en rétt fyrir leik. Strax á eftir leik Úrúgvæ og Perú verður svo á dagskrá leikur heimamanna í Venesúela og Bólivíu. Báðir leikir eru sýndir beint á Sýn.

Eriksson semur við Manchester City

Manchester City hefur náð samkomulagi við knattspyrnustjórann Sven-Göran Eriksson um að taka við liðinu eftir langar viðræður. Reuters fréttastofan greindi frá þessu rétt í þessu. Eriksson var síðast þjálfari enska landsliðsins en tekur nú við City þar sem reiknað er með að Thaksin Shinawatra verði nýr eigandi innan skamms.

Toure til Barcelona

Barcelona fékk frekari liðsstyrk í morgun þegar liðið gekk frá kaupum á Fílstrendingnum Yaya Toure frá Mónakó í Frakklandi. Kaupverðið er 10 milljónir evra. Toure er yngri bróðir Kolo Toure hjá Arsenal og nú hefur Barcelona varið tæpum þremur milljörðum króna til leikmannakaupa og búist er við því að félagið festi kaup á Rúmenanum Christian Chievu hjá Roma fljótlega.

Ísraelar fá liðsstyrk

Innanríkisráðuneytið í Ísrael kom knattspyrnulandsliðinu þar í landi til hjálpar í gær með því að veita 2 knattspyrnumönnum ríkisborgararétt. Fyrir vikið verða þeir löglegir í byrjun sept. Þegar Ísraelar mæta Englendingum í undankeppni EM. Roberto Colautti (Argentínumaður) og Toto Tamuz (Nígeríumaður).

United að bjóða í Eið Smára?

Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag að Manchester ætli að bjóða 8 milljónir punda eða einn milljarð í landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona. Þó verði ekki af kaupunum fyrr en United klárar að selja Alan Smith til Middlesbrough. Þá segir blaðið að félagið muni selja framherjann Giuseppe Rossi til Parma.

Trezeguet framlengdi við Juventus

Franski framherjinn David Trezeguet framlengdi í gær samning sinn við ítalska liðið Juventus til ársins 2011 og batt þar með enda á sögusagnir um að hann væri á leið til Arsenal á Englandi. Trezeguet hafði lengi verið ósáttur í herbúðum Juventus og lýsti því yfir á dögunum að hann ætlaði ekki að spila aftur með liðinu. Hann dró þó í land þegar honum voru boðin betri kjör. Hann hefur skorað 145 mörk á sjö árum hjá Juve.

Tevez spenntur fyrir Arsenal

Carlos Tevez viðurkennir að hann sé spenntur yfir áhuga Arsenal á sér. Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Arsenal eftir að Thierry Henry var keyptur til Barcelona í gær.

400 kílóa Hatton

Vísindamenn reyndu á dögunum að mæla höggþunga hnefaleikamannsins Ricky Hatton. Hnefahögg Hattons braut hins vegar mælitækin.

Trúi ekki öðru en að þetta hjálpi mér

Akureyringurinn Jónatan Magnússon fór fyrir viku síðan í sína fyrstu aðgerð vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann síðan á síðasta ári. Jónatan hefur lítið getað hreyft sig vegna meiðslanna sem enginn getur sjúkdómsgreint. „Það veit enginn hvað er að mér,” sagði kappinn í nýlegu viðtali við Fréttablaðið en Brynjólfur Jónsson ákvað loks að skera hann upp.

Viðar og Serbi í Fossvoginn

Víkingur hefur gengið frá félagaskiptum við tvo leikmenn fyrir áframhaldandi átök í Landsbankadeild karla. Viðar Guðjónsson skrifaði í gær undir í Fossvoginum og verður hann kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn ÍA í kvöld. Viðar hætti hjá Fram á dögunum en hann leikur iðulega í stöðu miðjumanns.

Liðum fækkað í riðlakeppninni

UEFA hefur tekið þá ákvörðun að breyta fyrirkomulagi undankeppni HM 2010. Alls berjast 53 þjóðir um þrettán laus Evrópusæti á HM í Suður-Afríku. Þjóðunum verður skipt upp í átta riðla þar sem sex þjóðir eru í öllum riðlum nema einum sem telur fimm þjóðir. Efsta þjóðin kemst beint á HM en átta lið fara í umspil.

Fær hærri laun hjá Fylki en í Danmörku

Peter Gravesen kom til Fylkis fyrir tveimur árum síðan og hefur átt sæti í liði félagsins síðan þá. Hann var lykilleikmaður hjá Herfølge í Danmörku áður en hann lenti í slagsmálum við samherja sinn og fékk samning sinn ekki endurnýjaðan í kjölfarið.

Yfirburðir Valsstúlkna í Kópavogi

Valur gerði góða ferð í Kópavogi í brakandi blíðu í gær þar sem þær unnu Breiðablik 4-0. Valsstúlkur sóttu meira til að byrja með og Margrét Lára sýndi strax úr hverju hún er gerð með góðum tilþrifum þar sem hún bæði skapaði færi fyrir stöllur sínar auk þess sem hún kom sér sjálf í góðar stöður.

Blikar komnir í 2-0

Breiðablik hefur náð 2-0 forystu gegn grönnum sínum í HK í Kópavogsslagnum í Landsbankadeildinni. Kristján Óli Sigurðsson skoraði fyrsta mark Blika eftir aðeins 3 mínútur og það var svo Prince Ruben sem bætti við öðru marki liðsins eftir um klukkustundarleik. Staðan er því vænleg hjá þeim grænklæddu í leiknum sem sýndur er beint á Sýn.

Skagamenn 2-0 yfir gegn Víkingi

Skagamenn hafa yfir 2-0 gegn Víkingi þegar flautað hefur verið til leikhlés í leik liðanna á Víkingsvelli. Það var Vjekoslav Svadumovic sem skoraði bæði mörk Skagamanna. Breiðablik hefur yfir 1-0 gegn grönnum sínum í HK á Kópavogsvelli þar sem Kristján Óli Sigurðsson skoraði mark Blika eftir innan við þriggja mínútna leik eftir aukaspyrnu frá Arnari Grétarssyni.

Breiðablik - HK í beinni á Sýn

Grannaslagur Breiðabliks og HK í Landsbankadeild karla í kvöld er í meira lagi sögulegur því þetta er í fyrsta sinn sem liðin eigast við í efstu deild. Leikurinn er sýndur í beinni á Sýn og hefst klukkan 20. Skagamenn náðu forystu gegn Víkingum eftir 26 mínútur með marki Króatans Vjekoslav Svadumovic.

Henry formlega orðinn leikmaður Barcelona

Franski markahrókurinn Thierry Henry er nú formlega genginn í raðir Barcelona á Spáni frá Arsenal. Kaupverðið er 16,1 milljón punda eða 2 milljarðar króna. Henry stóðst læknisskoðun í Barcelona í dag og á myndunum sem fylgja fréttinni má sjá hann taka við treyju sinni ásamt Joan Laporta forseta félagsins.

Valur lagði Breiðablik

Valsstúlkur fóru með sigur af hólmi á Kópavogsvelli í kvöld þegar þær lögðu Blikastelpur með fjórum mörkum gegn engu í Landsbankadeild kvenna. Leik Fylkis og Stjörnunnar lauk með markalausu jafntefli en staðan í leik Fjölnis og ÍR er 2 – 1 fyrir Fjölni og KR stúlkur eru yfir gegn Þór/KA, 5 – 1.

Markalaust á Kópavogsvelli

Heil umferð er leikin í kvöld í Landsbankadeild kvenna eftir langt hlé vegna landsleikja. Stórleikur umferðarinnar er leikur Breiðabliks og Vals á Kópavogsvelli en þar er enn markalaust.

Andy Gray á Íslandi

Skoska knattspyrnugoðsögnin Andy Gray hjá Sky-sjónvarpsstöðinni kemur til Íslands á morgun til að vera viðstaddur sérstakan blaðamannafund sem haldinn verður á miðvikudaginn. Á fundinum verður sjónvarpsstöðin Sýn 2 formlega kynnt til leiks en hún mun gera enska boltanum góð skil á íslandi frá og með upphafi næstu leiktíðar.

Chauncey Billups á markaðnum

Leikstjórnandinn Chauncey Billups hjá Detroit Pistons kaus í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við Detroit Pistons í NBA deildinni og verður því með lausa samninga um mánaðarmótin. Tvö lið eru talin hafa mikinn áhuga á að fá Billups í sínar raðir en Detroit er í bestu aðstöðunni til að bjóða honum góðan samning.

Atletico: Höfum ekkert heyrt í Liverpool

Forseti Atletico Madrid hefur vísað fregnum um brottför framherjans Fernando Torres á bug, en leikmaðurinn hefur verið orðaður við Liverpool. "Við höfum ekki fengið tilboð frá Liverpool eða öðrum í Torres. Hann er í sumarleyfi og kemur aftur til starfa þann 9. júlí," sagði Enrique Cerezo forseti.

Auðvelt hjá Federer

Svisslendingurinn Roger Federer hóf titilvörn sína með tilþrifum á Wimbledon mótinu í tennis í dag þegar hann sgiraði Teimuraz Gabashvili á regnblautum velli í fyrstu umferð mótsins. Federer vann 6-3, 6-2 og 6-4 í sínum fyrsta grasleik á tímabilinu og stefnir á að verða fyrsti maðurinn síðan Björn Borg til að vinna mótið fimm ár í röð.

Myndir af Thierry Henry í læknisskoðun hjá Barcelona

Thierry Henry hefur staðist læknisskoðun hjá Barcelona og búið er að ganga frá öllum smáatriðum í samningi hans við félagið. Hann verður kynntur til leiks með treyju sína í hendi síðar í dag og verður svo kynntur formlega fyrir stuðningsmönnum liðsins. Kaupverðið á Henry er sagt vera 16,15 milljónir punda eða rúmir 2 milljarðar króna.

Hamilton gleymir ekki börnunum

Breska ungstirnið Lewis Hamilton hefur unnið hug og hjörtu allra sem fylgjast með Formúlu 1 í ár og um helgina kom hann fyrst fram opinberlega í heimalandinu síðan hann skaust upp á stjörnuhimininn með McLaren liðinu. 2000 manns fögnuðu honum við sérstaka athöfn eftir hraðahátíðina í Goodwood.

Boxið tók á taugarnar hjá Wayne Rooney

Framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United fylgdi hnefaleikaranum og vini sínum Ricky Hatton inn í hringinn um helgina þegar hann vann glæsilegan sigur á Jose Luis Castillo. Rooney sagðist hafa verið taugaóstyrkari fyrir bardagann en fyrir nokkurn leik með United eða enska landsliðinu.

Mánudagsslúðrið á Englandi

Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Atletico Madrid er heitasta nafnið í bresku slúðurblöðunum í dag og ekki í fyrsta sinn. Vitað er að Liverpool hefur mikinn áhuga á að fá Torres í sínar raðir og Daily Star heldur því fram í dag að Atletico vilji fá Peter Crouch í skiptum fyrir Torres. Daily Telegraph segir að Liverpool muni hinsvegar kaupa hann beint fyrir hvorki meira né minna en 25 milljónir punda.

Getafe ekki tilbúið að missa Schuster

Forseti knattspyrnuliðsins Getafe á Spáni segist ekki ætla að gefast upp fyrr en í fulla hnefana þegar kemur að því að halda þjálfaranum Bernd Schuster áfram hjá félaginu. Schuster hefur verið nefndur sem eftirmaður Fabio Capello hjá Real Madrid.

Playboy-dómari veldur fjaðrafoki í Brasilíu (myndasyrpa)

Nokkuð fjaðrafok er nú í Brasilíu í kjölfar þess að þegar umdeildur knattspyrnudómari þar í landi hefur ákveðið að sitja fyrir nakinn í tímaritinu Playboy. Ana Paula Olivera er 29 ára gömul og komst í fyrirsagnir fyrir stuttu vegna dómgæslu sinnar í bikarkeppninni. Hún hefur nú skvett olíu á eldinn með þessu nýjasta útspili sínu.

Eiður ætlar að berjast fyrir sæti sínu

Eiður Smári Guðjohnsen segist ætla að halda áfram að berjast fyrir sæti sínu í liði Barcelona þó félagið sé við það að ganga frá samningi við framherjann Thierry Henry. Eiður segist ekki hafa heyrt neitt frá forráðamönnum félagsins.

Smith á leið til Boro?

Nokkur bresku blaðanna fullyrða í morgun að enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hafi fengið tilboð sitt í framherjann Alan Smith hjá Manchester United samþykkt. Boro er aðeins eitt fjölda liða sem orðuð hafa verið við kappann á síðustu vikum og talið er að Sunderland, Newcastle og Portsmouth séu öll tilbúin að greiða um 6 milljónir punda fyrir hann.

Warnock: Ég myndi standa mig betur en Eriksson

Neil Warnock, fyrrum þjálfari Sheffield United, segir að hann myndi án efa standa sig betur í starfi en Sven-Göran Eriksson ef hann fengi tækifæri til að taka við Manchester City. Svíinn hefur verið orðaður sterklega við félagið sem er nú á kafi í yfirtöku Thaksin Shinawatra.

Sjá næstu 50 fréttir