Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Crouch: Við erum að toppa á réttum tíma Peter Crouch skoraði þriðja og síðasta mark Liverpool í kvöld þegar liðið burstaði PSV Eindhoven 3-0 í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og komst í mjög vænlega stöðu fyrir síðari leikinn. Crouch sagði sína menn hafa virkað mjög ferska í kvöld og telur liðið vera að toppa á hárréttum tíma, en fyrirliðinn Steven Gerrard vill ekki fara að hugsa um næstu umferðina strax. 3.4.2007 21:37
Dramatík í Mílanó AC Milan og Bayern Munchen skildu jöfn 2-2 í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Daniel van Buyten sem var hetja gestanna þegar hann skoraði jöfnunarmark liðsins nokkrum sekúndum áður en flautað var af. Hann skoraði bæði mörk þýska liðsins í kvöld eftir að Pirlo og Kaka höfðu tvisvar komið Milan í vænlega stöðu. 3.4.2007 20:37
Auðveldur sigur Liverpool á PSV Liverpool er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir fádæma öruggan 3-0 útisigur á hollenska liðinu PSV Eindhoven í kvöld. Steven Gerrard, John Arne Riise og Peter Crouch skoruðu mörk enska liðsins og var sigurinn aldrei í hættu. Síðari leikur liðanna á Anfield ætti því að vera formsatriði fyrir Liverpool eftir þennan frábæra sigur í kvöld. 3.4.2007 20:31
Aurelio er með slitna hásin Fabio Aurelio, leikmaður Liverpool, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið á tímabilinu. Hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í leiknum við PSV í Hollandi í kvöld og var honum skipt sárþjáðum af velli. Grunur lék strax á um að hann væri með slitna hásin og sá grunur hefur nú verið staðfestur. Þetta þýðir væntanlega að Brasilíumaðurinn verður frá keppni eitthvað fram á næstu leiktíð. 3.4.2007 22:06
Memphis - Phoenix í beinni á miðnætti Leikur Memphis Grizzlies og Phoenix Suns verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni leikur tveggja sókndjarfra liða sem þó eru á mjög ólíkum stað í deildinni. Phoenix hefur unnið 55 leiki og tapað 18 en Memphis er í neðsta sæti Vesturdeildarinnar með aðeins 19 sigra og 56 töp. 3.4.2007 20:16
Feitur fimmtudagur á Sýn Íþróttaáhugamenn fá svo sannarlega nóg fyrir sinn snúð á rásum Sýnar næstu daga. Í kvöld og annað kvöld verður það Meistaradeild Evrópu sem ber hæst, en á fimmtudaginn verður líka mikið fjör á stöðinni. Þar verður boðið upp á leik í Evrópukeppni félagsliða, úrslitakeppnina í Iceland Express deildinni og svo Masters mótið í golfi. 3.4.2007 19:59
Mourinho: Við erum hættir að spreða Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að það sé liðin tíð að liðið spreði milljörðum í leikmenn eins og tíðkaðist fyrr í stjórnartíð hans. Stjórinn segir að einmitt þess vegna muni félagið ekki kaupa spænska framherjann David Villa frá Valencia í sumar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram. 3.4.2007 19:15
Beckham farinn að æfa á ný David Beckham er nú farinn að æfa með Real Madrid á ný eftir hnémeiðsli sem hann varð fyrir í leik gegn Getafe í byrjun mars. Beckham æfði lyftingar einn síns liðs á meðan hann var meiddur en er nú kominn til liðs við félaga sína á æfingasvæðinu á ný. Ekki er vitað hvort hann verður í leikmannahópi Real þegar liðið tekur á móti Osasuna um helgina. 3.4.2007 18:13
Ferguson: Við verðum að stöðva Totti Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að hans menn verði að finna leið til að halda aftur af Francesco Totti ef þeir ætli sér að leggja Roma í Meistaradeildinni annað kvöld. Þetta er fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitunum og verður hann að sjálfssögðu sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. 3.4.2007 17:11
Agbonlahor fær nýjan samning Enski ungmennalandsliðsmaðurinn Gabriel Agbonlahor hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Aston Villa. Hann er tvítugur og skoraði jöfnunarmark liðsins í 1-1 jafntefli við Everton í gærkvöldi. Agbonlahor er vængmaður og hefur hann komið mjög á óvart með aðalliði Villa í vetur. 3.4.2007 17:03
Mourinho: Þetta er búið að vera frábært tímabil Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að hann muni alltaf líta til baka á keppnistímabilið sem frábæra leiktíð, jafnvel þó liðið vinni ekki fleiri titla í ár. Hann segist afar stoltur af frammistöðu leikmanna sinna í vetur þar sem meiðsli lykilmanna hafa sett stórt strik í reikninginn hjá tvöföldum Englandsmeisturunum. 3.4.2007 15:30
Tottenham ekki refsað Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham mun ekki þurfa að blæða fyrir atvikið sem varð á leik liðsins gegn Chelsea í enska bikarnum á dögunum, þegar áhorfandi hljóp inn á völlinn og reyndi að kýla Frank Lampard. Enska knattspyrnusambandið lét rannsaka atvikið og ákvað að refsa félaginu ekki fyrir slaka öryggisgæslu. 3.4.2007 14:43
Evrópublak lesbía á Íslandi í fyrsta sinn Um páskahelgina verður Evrópublakmót lesbía haldið á Íslandi í fyrsta sinn. Mótið fer fram í íþróttahöll Fylkis dagana 7.-8. apríl og þar munu etja kappi um 100 konur frá löndum eins og Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi og Íslandi. Það er blaklið KMK sem stendur fyrir mótinu sem er nú haldið í 19. sinn. 3.4.2007 13:45
Florida háskólameistari annað árið í röð Florida-skólinn varð í gærkvöld háskólameistari í körfubolta annað árið í röð eftir sigur á Ohio State í úrslitaleik 84-75. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1992 sem lið vinnur tvö ár í röð í keppninni og í fyrsta sinn í sögunni sem lið vinnur tvö ár í röð með sama byrjunarlið. 3.4.2007 13:29
Stórveldin slást í beinni á Sýn Extra Evrópustórveldin AC Milan og Bayern Munchen mætast í kvöld í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram á San Siro í Mílanó. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. Þetta eru tvö af sigursælustu liðum Evrópuknattspyrnunnar og hafa unnið titilinn tíu sínum samtals. 3.4.2007 12:48
PSV - Liverpool í beinni á Sýn í kvöld Fyrri leikur PSV Eindhoven og Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 18:30. Þetta verður þriðja viðureign liðanna í vetur þar sem þau léku saman í riðlakeppninni. Liverpool ætti að vera klárt í slaginn eftir frábæran sigur á Arsenal um helgina, en hollenska liðinu hefur ekki gengið sérlega vel í deildinni undanfarið. 3.4.2007 12:39
Flamini vill fara frá Arsenal Miðjumaðurinn Mathieu Flamini, sem verið hefur í herbúðum Arsenal frá árinu 2004, segist vilja fara frá félaginu. Leikmaðurinn sagði blaðamönnum í heimalandi sínu að hann vildi reyna fyrir sér hjá öðru liði því hann væri þreyttur á að halda ekki föstu sæti í liði Arsenal. 3.4.2007 12:35
Benitez fær að versla vel í sumar Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að Rafa Benitez, stjóri Liverpool, muni fá allt að 40 milljónir punda til að kaupa leikmenn í sumar. Hann fundaði með eigendum félagsins um síðustu helgi og kom brosandi út af þeim fundi þar sem honum var lofað fjármunum til að styrkja liðið verulega. 3.4.2007 12:31
Kaka kemur Milan yfir á ný Brasilíski miðjumaðurinn Kaka er búinn að koma AC Milan yfir á ný gegn Bayern 2-1 í leik liðanna á San Siro. Markið var það sjöunda hjá Kaka í Meistaradeildinni í vetur, en það skoraði hann úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Vítaspyrnudómurinn var afar strangur og hætt við að Þjóðverjarnir eigi eftir að láta í sér heyra eftir leikinn, enda óttuðust þeir mjög reynsluleysi rússneska dómarans fyrir viðureignina í kvöld. 3.4.2007 20:24
Bayern jafnar í Mílanó Bayern Munchen er búið að jafna metin í 1-1 gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það var Daniel van Buyten sem skoraði þetta gríðarlega þýðingarmikla mark fyrir þýska liðið og ljóst að heimamenn verða að sækja stíft síðustu 10 mínúturnar í leiknum. 3.4.2007 20:21
Crouch klárar dæmið fyrir Liverpool Liverpool er komið í 3-0 gegn PSV í Meistaradeildinni. Markið skoraði Peter Crouch með laglegum skalla eftir fyrirgjöf Steve Finnan frá hægri og nú er útlitið orðið mjög dökkt hjá hollenska liðinu, sem á útileikinn eftir á Anfield. Markið kom á 63. mínútu, en staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 1-0 fyrir Milan. 3.4.2007 20:10
Þrumufleygur frá Riise - Liverpool komið í 2-0 Norðmaðurinn John Arne Riise hefur komið Liverpool í 2-0 gegn PSV í Hollandi. Markið kom í upphafi síðari hálfleiks og var þar á ferðinni dæmigert mark fyrir bakvörðinn knáa - bylmingsskot af löngu færi í bláhornið. 3.4.2007 19:50
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Liverpool hefur yfir 1-0 á útvelli gegn PSV Eindhoven með marki Steven Gerrard og Andrea Pirlo kom AC Milan í 1-0 gegn Bayern Munchen í Mílanó. Leikirnir eru sýndir beint á rásum Sýnar. 3.4.2007 19:30
Pirlo kemur Milan yfir Andrea Pirlo hefur komið AC Milan yfir 1-0 gegn Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Pirlo skoraði með góðum skalla á 40. mínútu, en skömmu áður hefði Milan líklega átt að fá vítaspyrnu þegar Kaka var brugðið í teignum. 3.4.2007 19:26
Gerrard kemur Liverpool yfir Steven Gerrard er búinn að koma Liverpool í 1-0 gegn PSV í Hollandi. Hann skoraði með skalla eftir laglega fyrirgjöf frá Steve Finnan eftir um 27 mínútur. Staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 0-0. Báðir leikir eru í beinni útsendingu á rásum Sýnar, en áskrifendur VefTV geta séð leik Liverpool í beinni útsendingu hér á Vísi. 3.4.2007 19:13
Þrjár breytingar á liði Liverpool Rafa Benitez hefur gert þrjár breytingar á byrjunarliði Liverpool sem sækir PSV heim í Meistaradeildinni í kvöld. Alvaro Arbeloa, Jermaine Pennant og Mark Gonzalez detta út úr liðinu og í stað þeirra koma inn bakverðirnir John Arne Rise, Steve Finnan og framherjinn Dirk Kuyt. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan. 3.4.2007 18:18
Hlynur Bærings: DHL-höllin er okkar heimavöllur Hlynur Bæringsson átti ágætan leik gegn KR í kvöld en það dugði skammt og því þurfa Snæfellingar að mæta í oddaleik í DHL-höllinni á fimmtudaginn um laust sæti í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Hlynur hefur engar áhyggjur af oddaleiknum og segir DHL-höllina vera heimavöll Snæfells í einvíginu. 2.4.2007 22:05
Fannar Ólafs: KR vantar pening í kassann Fannar Ólafsson, miðherji KR, var að vonum kátur með sigur hans manna á Snæfelli í fjórða leik liðanna í Stykkishólmi í kvöld. Hann sagði KR-liðið loksins hafa sýnt sitt rétta andlit í einvíginu og hlakkar til að spila oddaleikinn á fimmtudaginn. 2.4.2007 22:02
Friðrik Stefáns: Er hægt að hafa þetta betra? Friðrik Stefánsson, leikmaður Njarðvíkur, sagði einbeitingarleysi hafa kostað liðið sigur í fjórða leiknum gegn Grindavík í kvöld. Liðin verða að mætast í oddaleik á fimmtudaginn og mæta þar annað hvort Snæfelli eða KR. 2.4.2007 21:57
Grindavík knúði fram oddaleik Grindvíkingar tryggðu sér í kvöld oddaleik gegn Njarðvík í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar með 81-71 sigri í fjórða leik liðanna í Grindavík. Staðan er jöfn í einvíginu 2-2 og því verða þau að mætast í hreinum úrslitaleik í Njarðvík á fimmtudaginn. 2.4.2007 21:27
KR burstaði Snæfell KR-ingar völtuðu yfir Snæfellinga 104-80 í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í Stykkishólmi í kvöld. Ef undan er skilin smá rispa heimamanna í upphafi leiks var aldrei spurning hvoru megin sigurinn lenti í kvöld og ljóst að liðin verða nú að mætast í oddaleik í vesturbænum um sæti í úrslitum. 2.4.2007 21:02
Jackson flaug inn í heiðurshöllina Þjálfarinn Phil Jackson hjá LA Lakers var í dag tekinn inn í heiðurshöllina í NBA deildinni. Hann vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á tíunda áratug síðustu aldar og aðra þrjá með liði LA Lakers í byrjun aldarinnar. Aldrei var spurning hvort Jackson færi inn í heiðurshöllina heldur aðeins hvenær og hann hefur nú fengið þar sæti á fyrsta árinu sem hann kom til greina. 2.4.2007 22:20
Páll Kristins: Við erum ekki hræddir við neitt Páll Kristinsson átti fínan leik í kvöld þegar hans menn í Grindavík lögðu Njarðvík öðru sinni og knúðu fram oddaleik í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Hann segir Grindvíkinga klára í verkefnið á fimmtudaginn. 2.4.2007 21:54
Jafnt hjá Villa og Everton Einn leikur var á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Aston Villa og Everton skildu jöfn 1-1 á Villa Park. Joleon Lescott kom gestunum yfir í upphafi leiks en Gabriel Agbonlahor jafnaði fyrir Villa í lokin. Heimamenn hafa ekki unnið leik síðan í byrjun febrúar en eru að mestu sloppnir við falldrauginn. Everton situr í sjöunda sætinu. 2.4.2007 21:20
Cole stefnir á endurkomu á miðvikudaginn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea hefur sett stefnuna á að vera með liði sínu á ný í Meistaradeildarleiknum gegn Valencia á miðvikudagskvöldið. Cole hefur verið frá keppni í fjóra mánuði og vonast til að fá að spila nokkrar mínútur sem varamaður í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitunum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra. 2.4.2007 20:20
Hetja Snæfellinga spilar ekki í kvöld Fjórði leikur Snæfells og KR er nú að hefjast í undanúrslitum Iceland Express deildinni í körfubolta. Snæfellingar geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í kvöld, en þeir verða að gera það án hetju sinnar Martin Thuesen sem er meiddur. Thuesen skoraði sigurkörfu Snæfells í öðrum leiknum í Stykkishólmi. Leikur Grindavíkur og Njarðvíkur verður sýndur beint á Sýn klukkan 20 í kvöld. 2.4.2007 19:11
Federer íþróttamaður ársins þriðja árið í röð Tenniskappinn Roger Federer var í dag kjörinn íþróttamaður ársins þriðja árið í röð á Laureus hátíðinni. Stangastökkvarinn Yelena Isinbayeva var kjörin íþróttakona ársins. Það er nefnd íþróttafréttamanna frá 128 löndum sem stendur að valinu ár hvert. 2.4.2007 18:38
Rooney hefur ekki áhyggjur af markaskorun Wayne Rooney hjá Manchester United segist ekki hafa stórar áhyggjur af því þó hann hafi aðeins skorað 3 mörk í síðustu 13 leikjum sínum í öllum keppnum. Hann segir mestu máli skipta að liði sínu gangi vel og að það sé í toppsætinu. 2.4.2007 17:57
Rafa: Vanmetum ekki PSV Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til leikmanna sinna að láta ekki blekkjast af slöku gengi PSV Eindhoven í hollensku deildinni undanfarið. Liverpool sækir PSV heim í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. 2.4.2007 16:45
Enginn þorði í framboð gegn Blatter Í dag varð ljóst að Sepp Blatter verður forseti Alþjóða Knattspyrnusambandsins næstu fjögur árin, en þá rann út frestur til mótframboðs til forseta hjá sambandinu. Blatter hefur verið í forsetastóli hjá FIFA síðan 1998 og verður þetta því þriðja kjörtímabil hans í valdastóli. 2.4.2007 15:35
Vidic er viðbeinsbrotinn Nú hefur verið staðfest endanlega að varnarmaðurinn Nemanja Vidic hjá Manchester United er viðbeinsbrotinn eins og óttast var í fyrstu. Þetta þýðir að leikmaðurinn verður frá keppni í að minnsta kosti 4-5 vikur og því verður að teljast ólíklegt að hann geti hjálpað liði sínu mikið á lokasprettinum í vor. 2.4.2007 15:28
Villa: Mitt hlutverk að nýta færin Spænski landsliðsframherjinn David Villa hjá Valencia segir að hann og hans menn séu meira en klárir í slaginn við Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. 2.4.2007 15:23
Rummenigge ósáttur við dómaraval Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, hefur lýst yfir áhyggjum sínum í kjölfar þess að lítt reyndur rússneskur dómari var settur á leik liðsins gegn AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinna. Rummenigge segir rússneska dómara ekki hafa reynst liði sínu vel í keppninni til þessa. 2.4.2007 14:59
Fyrstur til að ná þrisvar sinnum fullkomnum leik Hafþór Harðarson úr Lærlingum varð í gær fyrsti Íslendingurinn til þess að ná þrisvar sinnum fullkomnum leik í keilu, eða 300 stigum, þegar hann sigraði á Sjóvámótinu sem fram fór í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. 2.4.2007 13:51
Inter setur stefnuna á 100 stig Inter Milan hefur 20 stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu og ekkert nema stórslys getur komið í veg fyrir að liðið lyfti bikarnum á ný. Varnarmaðurinn Marco Materazzi segir liðið setja stefnuna á nýtt met í deildinni - 100 stig og ekkert tap. 2.4.2007 13:45