Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vorum eins og skólastrákar í fyrri hálfleik Alfreð Gíslason var óánægður með vörn íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik í kvöld en sagði það hafa sýnt sig í þeim síðari hvað markvarslan væri mikilvægur þáttur í leik liðsins. Smellið á fréttina til að sjá viðtal við Alfreð og Guðjón Val Sigurðsson. 24.1.2007 18:38
Túnisbúa vísað úr húsi fyrir að sparka í Íslending Túnisar virtust vera heldur sárir og svekktir með úrslitin gegn Íslendingum, en þeir gerðu miklar væntingar til sinna manna í dag. Einum áhangenda Túnisa varð svo heitt í hamsi að hann sparkaði í stuðningsmann Íslendinga. 24.1.2007 18:30
Engar breytingar fyrirhugaðar hjá Wenger Arsene Wenger var að vonum ánægður með baráttuanda varaliðs síns í kvöld sem var óheppið að fara ekki með öll stigin frá White Hart Lane þegar Tottenham og Arsenal skildu jöfn í fyrri leik sínum í undanúrslitum deildarbikarsins. Hann segir ungliða sína hafa unnið sér inn að spila síðari leikinn á heimavelli. 24.1.2007 23:29
Við vorum þreyttir Martin Jol, stjóri Tottenham, sagði að þreyta leikmanna hefði verið helsta ástæða þess að hans menn misstu niður 2-0 forystu gegn varaliði Arsenal í enska deildarbikarnum í kvöld. Tottenham var yfirspilað á heimavelli í kvöld og mátti þakka fyrir að halda jöfnu gegn spræku liði gestanna. 24.1.2007 23:24
Hasselbaink sektaður fyrir ummæli í ævisögu sinni Hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink hjá Charlton hefur verið sektaður og gefin ströng viðvörun af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín í garð fyrrum félaga sinna í Chelsea í nýútkominni ævisögu sinni. 24.1.2007 23:15
Chicago á höttunum eftir Zidane Forráðamenn bandaríska knattspyrnufélagsins Chicago Fire hafa viðurkennt að þeir hafi gert Frakkanum Zinedine Zidane tilboð um að koma og spila með félaginu, en hann er ekki eini leikmaðurinn sem fengið hefur símtal frá borg vindanna undanfarið. 24.1.2007 23:14
Klitschko snýr aftur Úkraínski hnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að taka hanskana fram að nýju og stefnir á að mæta Rússanum Oleg Maskaev þann 21. apríl nk. Klitschko lagði hanskana á hilluna árið 2005 en segist vilja snúa aftur til að uppfylla æskudraum sinn. 24.1.2007 23:03
Tomasson lánaður til Villarreal Spænska liðið Villarreal gekk í dag frá lánssamningi við danska framherjann Joh Dahl Tomasson frá þýska liðinu Stuttgart. Tomasson, sem er af íslensku bergi brotinn, verður hjá spænska liðinu út leiktíðina. 24.1.2007 22:30
Barcelona varð að sætta sig við jafntefli Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona urðu að sætta sig við eitt stig í kvöld þegar liðið mætti Betis á útivelli í leik sem frestað var í haust. Heimamenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks en Rafael Marquez tryggði Barcelona stig með góðu marki á 61. mínútu. 24.1.2007 21:59
Anaheim II úrslit Nú þegar Ricky Carmichael er ekki lengur með í stigabaráttunni í supercrossinu þá er má segja að James Stewart hafi engan til að leika við. Yfirburðir Stewarts eru það miklir að fyrsta sætið er eiginlega upptekið sem eftir er af tímabilinu. 24.1.2007 21:49
Spánverjar eru ekki með Ivano Balic Lars Christiansen, leikmaður danska landsliðsins, hefur fulla trú á því að liðið geti unnið sigur á heimsmeisturum Spánverja á morgun. Af hverju? Af því þar er enginn Ivano Balic. 24.1.2007 21:37
Wilbek gat ekki leynt gremju sinni út í dómarana Danir þuftu að bíta í það súra epli að tapa fyrir sterku liði Króata í kvöld og voru menn á leiknum sammála um að dómgæslan hefði verið ansi vafasöm á köflum. Danski landsliðsþjálfarinn vildi ekki ganga svo langt að segja að brögð væru í tafli, en annar landsliðsþjálfari var snöggur að gefa sína skýrslu eftir leikinn. 24.1.2007 21:18
Tottenham hefur yfir gegn Arsenal Tottenham hefur yfir 2-0 þegar flautað hefur verið til leiklés í fyrri leik liðsins gegn grönnunum í Arsenal í enska deildarbikarnum. Dimitar Berbatov kom Tottenham yfir snemma leiks og síðara mark liðsins á White Hart Lane var sjálfsmark Julio Baptista. Leikurinn er sýndur beint á Sýn í lýsingu Harðar Magnússonar. 24.1.2007 21:09
Íslendingar eru sigurstranglegastir í riðlinum Stórskyttan Nikola Karabatic hjá franska landsliðinu segir að íslenska landsliðið sé sigurstranglegasta liðið í milliriðlinum eftir sigur liðsins á Túnisum í dag. Þessi orð lét hann falla í samtali við franska fjölmiðla í kvöld. 24.1.2007 20:57
Danir án stiga í milliriðli Frakkar tóku sig heldur betur saman í andlitinu í síðari hálfleik gegn Pólverjum og unnu stórsigur 31-22 eftir að hafa verið undir 12-11 í hálfleik. Danir eru án stiga eftir tap fyrir Króötum 28-26 í æsilegum lokaleik dagsins. 24.1.2007 20:51
Verðum vonandi geðveikir eins og gegn Frökkum Guðjón Valur Sigurðsson var kátur í leikslok en þó jarðbundinn líkt og alltaf. “Við eigum nokkra leiki eftir og við erum ekki á leiðinni heim. Menn verða að ná sér niður og halda sér á jörðinni fyrir Slóveníuleikinn. Ef við vinnum hann þá er ýmislegt hægt,” sagði Guðjón og vonast til að sjá liðið í vígahug gegn Slóvenum. 24.1.2007 20:33
Diaby í liði Arsenal í fyrsta sinn í 8 mánuði Nú er fyrri undanúrslitaleikur Tottenham og Arsenal í enska deildarbikarnum að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Abu Diaby er kominn í byrjunarlið Arsenal eftir átta mánaða fjarveru vegna meiðsla og þeir Didier Zokora og Aaron Lennon koma inn í lið Tottenham á ný. 24.1.2007 20:07
Eiður á bekknum gegn Betis Nú er leikur Real Betis og Barcelona í spænsku deildinni kominn í gang og er hann sýndur beint á Sýn Extra. Þetta er frestaður leikur síðan Barcelona tók þátt í HM félagsliða í haust. Eiður Smári er á varamannabekk Barcelona að þessu sinni. 24.1.2007 20:04
Pólverjar yfir í hálfleik Pólverjar eru einu marki yfir gegn Frökkum í hálfleik í síðasta leik dagsins í milliriðli 1 á HM. Staðan er 12-11 fyrir Pólverjum í Dortmund. Þá er leikur Dana og Króata að hefjast í Mannheim. 24.1.2007 19:08
Höfum ekki unnið neitt enn Snorri Steinn Guðjónsson var með báða fætur á jörðinni eftir sigurinn á Túnisum í kvöld og sagði liðið ekki hafa unnið neitt enn. Guðjón Valur Sigurðsson sagði liðsheildina hafa verið lykilinn að sigri. 24.1.2007 18:59
Spánverjar með öll spil á hendi Spánverjar lögðu Rússa í milliriðli 2 á HM rétt í þessu með fjórum mörkum eftir að jafnt hafði verið á öllum tölum í leiknum. Spánverjar eru með öll spil á hendi í riðlinum með fullt hús stiga sem og Ungverjar sem lögðu Tékka fyrr í dag. Í kvöld mætast svo Danir og Króatar. 24.1.2007 18:41
Þjóðverjar lögðu Slóvena Þjóðverjar sigruðu Slóvena með 35 mörkum gegn 29 í milliriðli 1 á HM í handbolta rétt í þessu. Þjóðverjar vinna sér þar með inn sín fyrstu stig í riðlinum og fara upp að hlið Slóvena og Pólverja. 24.1.2007 18:20
Frábær endurkoma hjá íslenska landsliðinu Íslenska landsliðið vann í kvöld frábæran 36-30 sigur á Túnisum í milliriðli HM í Dortmund eftir að hafa lent fimm mörkum undir í fyrri hálfleik. Túnisar höfðu yfir 19-16 í hálfleik en íslenska liðið náði að komast inn í leikinn á ný með gríðarlegri baráttu. Lokakaflinn var svo eign íslenska liðsins þar sem vörn og markvarsla komu í bland við góð tilþrif í sókninni. 24.1.2007 17:50
Man City á eftir Mido Breska sjónvarpið greinir frá því nú síðdegis að enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City sé að íhuga að bjóða í framherjann Mido hjá Tottenham. Mido er ekki í náðinni hjá Martin Jol knattspyrnustjóra og hefur óstöðugt form hans og vandræði utan vallar orðið til þessa að hann er væntanlega á leið frá félaginu. Mido hefur einnig verið orðaður við félög á Spáni, en verðmiðinn sem settur hefur verið á hann hefur fælt hugsanlega kaupendur frá. 24.1.2007 17:14
Ballack hefði átt að fara til United Frans "Keisari" Beckhenbauer, forseti Bayern Munchen, hefur aldrei setið á skoðunum sínum og í dag sagði hann að Michael Ballack hefði aldrei átt að fara til Chelsea heldur hefði verið nær fyrir hann að ganga í raðir Manchester United. 24.1.2007 16:22
Fyrsti sigur Grænlendinga á HM Grænlendingar unnu í dag sinn fyrsta leik á HM þegar þeir lögðu Ástrala 34-25 í Kings Cup í dag. Ástralar náðu líka sögulegum áfanga þegar þeir höfðu í fyrsta sinn forystu í leik á mótinu. Grænlendingar höfðu yfir 16-12 í hálfleik og var hinn 18 ára gamli Angultimmarik Kreutzmann markahæstur þeirra með 15 mörk en Darryl McCormack skoraði 11 mörk fyrir Ástrala. 24.1.2007 16:13
Dominikovic klár í slaginn Króatíski landsliðsmaðurinn Davor Dominikovic sem féll á lyfjaprófi fyrir nokkru og var settur út úr hópnum, mun koma aftur inn í landsliðið á morgun eftir að bæði A og B sýni hans voru dæmd neikvæð í dag. Þetta eru góð tíðindi fyrir heimsmeistaraefni Króata. 24.1.2007 15:39
Arnór Atlason í hópinn gegn Túnis Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hefur tekið Arnór Atlason aftur inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Túnis klukkan 16:30 í dag. Arnór kemur inn í stað Ragnars Óskarssonar og þá verður Roland Eradze í markinu í stað Hreiðars Guðmundssonar. Logi Geirsson er í hópnum þrátt fyrir að hafa meiðst á ökkla í leiknum við Frakka. 24.1.2007 15:19
Terry framlengir ef Mourinho verður áfram Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, staðfesti í gærkvöld að verið væri að leggja lokahönd á nýjan samning handa fyrirliðanum John Terry. Nýr samningur hans er talinn verða einhver sá stærsti í sögu úrvalsdeildarinnar, en því er haldið fram að Terry vilji aðeins framlengja ef hann fái tryggingu fyrir því að Jose Mourinho verði áfram knattspyrnustjóri Chelsea. 24.1.2007 15:15
Rocky veitti leikmönnum Watford innblástur Adrian Boothroyd, stjóri Watford í ensku úrvalsdeildinni, segir að það hafi verið nýja myndin um Rocky sem veitti leikmönnum sínum innblástur í gærkvöld þegar liðið vann afar sjaldgæfan og mikilvægan sigur. Boothroyd segist vonast til að lið Watford nái að setja á svið endurkomu á borð við þá sem hnefaleikahetjan Rocky hefur nú boðið áhorfendum á hvíta tjaldinu upp á í þrjá áratugi. 24.1.2007 14:28
Del Piero afþakkaði að fara til Man Utd í sumar Framherjinn Alessandro Del Piero hjá Juventus sagði í viðtali við breska blaðið The Sun í dag að honum hefði boðist að ganga í raðir Manchester United í sumar. "United hafði samband við mig og ég hefði geta farið til Englands, en ég ákvað að vera áfram í Torinu. Ég var upp með mér yfir áhuga United, en ég hef verið 13 ár í Tórínó og hér vil ég ljúka ferlinum, "sagði Del Piero og sagðist búast ivð því að Sir Alex Ferguson myndi skilja ákvörðun sína. 24.1.2007 14:22
Upphitun fyrir Ísland - Túnis í dag Íslendingar mæta Túnisum í fyrsta leik milliriðlakeppninnar á HM í handbolta klukkan 16:30 í dag. Túnisar hafa á að skipa liði sem hefur getu og burði til að fara langt á þessu heimsmeistaramóti, líkt og þeir sýndu þegar þeir lentu í fjórða sæti á heimavelli á HM fyrir tveimur árum. Eins eru Túnisar margfaldir Afríkumeistarar og á undanförnum árum hafa einungis Egyptar getað velgt þeim eitthvað undir uggum í Afríku. 24.1.2007 14:01
Alfreð vorkennir næstu andstæðingum Frakka Alfreð Gíslason hefur fulla trú á að Frakkar séu enn eitt sigurstranglegasta liðið á HM í handbolta, þrátt fyrir stórtap gegn Íslendingum í fyrrakvöld. Hann er jafnframt með skilaboð til næstu andstæðinga franska liðsins. 24.1.2007 13:54
Onesta kennir lélegum undirbúningi um tapið fyrir Íslendingum Claude Onesta, þjálfari franska landsliðsins í handbolta, segir að undirbúningur liðsins fyrir leikinn gegn Íslendingum hafi verið ástæða tapsins stóra. Nikola Karabatic sagði áhorfendur líka hafa spilað stóran þátt í sigri íslenska liðsins. 24.1.2007 13:46
Baros var nálægt því að ganga í raðir Chelsea Tékkneski framherjinn Milan Baros hefur viðurkennt að hann hafi verið hársbreidd frá því að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea á dögunum, en ekkert hafi orðið af viðskiptunum eftir að Shaun Wright-Phillips vildi ekki fara til Aston Villa í skiptum félaganna. 24.1.2007 13:42
Barcelona hefur boðið í Rossi Umboðsmaður framherjans Giuseppe Rossi hjá Manchester United segir að Barcelona hafi fyrir nokkru gert 4,1 milljón punda tilboð í leikmanninn. Rossi er nú sem lánsmaður hjá gamla liðinu sínu Parma á Ítalíu og fór á kostum þar í sínum fyrsta leik um helgina. 24.1.2007 12:58
Simon Davies til Fulham Kantmaðurinn Simon Davies hefur gengið í raðir Fulham frá Everton fyrir óuppgefna upphæð, en Davies hefur ekki átt sæti í liði Everton undanfarið. Hann er 27 ára landsliðsmaður Wales og sló í gegn hjá Tottenham á sínum tíma. 24.1.2007 12:51
Martin Jol ögrar liði sínu Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur nú sent leikmönnum sínum skýr skilaboð í fjölmiðlum fyrir leikina gegn erkifjendunum í Arsenal í enska deildarbikarnum. Fyrri leikur liðanna verður sýndur beint á Sýn í kvöld. 24.1.2007 12:41
Gonzalez burstaði Nadal Chile-maðurinn Fernando Gonzalez kom heldur betur á óvart í morgun þegar hann vann öruggan og glæsilegan sigur á Spánverjanum Rafael Nadal í 8-manna úrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis 6-2, 6-4 og 6-3. Gonzales mætir Þjóðverjanum Tommy Haas í undanúrslitum. Þá er Kim Clijsters komin í undanúrslit í kvennaflokki eftir sigur á Martinu Hingis. 24.1.2007 12:35
Savage fótbrotinn Blackburn varð fyrir miklu áfalli í gær þegar miðjumaðurinn Robbie Savage þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik í tapinu gegn Watford og í ljós kom að hann er fótbrotinn. Líklegt þykir að hann muni því ekki koma meira við sögu á leiktíðinni. 24.1.2007 12:29
Phoenix burstaði Washington Sigurganga Phoenix Suns heldur áfram í NBA deildinni og í dag burstaði liðið Washington á útivelli 127-105 og vann sinn 14. leik í röð. Dallas virðist einnig ósigrandi þessa dagana og skellti Orlando nokkuð auðveldlega á útivelli 111-95. 24.1.2007 12:10
Ísland komið yfir Íslenska liðið er búið að ná yfirhöndinni í leiknum gegn Túnis og er komið í 29-26 þegar rúmar 10 mínútur eru eftir af leiknum með gríðarlegri baráttu. 24.1.2007 17:37
Ísland undir í hálfleik Íslenska landsliðið hefur átt á brattann að sækja í fyrri hálfleik gegn sterku liði Túnisa í leik liðanna í milliriðlinum á HM, en Túnis hefur yfir 19-16 í hálfleik. Varnarleikur íslenska liðsins hefur ekki átt svör við skyttum Túnisa með sleggjuna Hmam í fararbroddi. Snorri Steinn er markahæstur með 5 mörk og þeir Ólafur Stefánsson og Logi Geirs hafa skorað 3 hvor. 24.1.2007 17:05
Casey rekinn frá Minnesota Dwane Casey, þjálfari Minnesota Timberwolves í NBA deildinni, var látinn taka pokann sinn hjá liðinu í kvöld. Liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð, en hefur engu að síður unnið helming leikja sinna í vetur. Casey tók við Minnesota sumarið 2005, en það verður aðstoðarþjálfarinn Randy Wittman tekur við starfi hans. 23.1.2007 22:26
Þriðji sigur Watford í deildinni Watford unnu sér inn geysimikilvæg stig í botnbaráttunni á Englandi með 2-1 sigri á Blackburn á heimavelli í kvöld. Brett Emerton varð fyrir því óláni að skora í eigið mark þegar Watford komust yfir snemma leiks en Suður-Afríkumaðurinn Benny McCarthy jafnaði fyrir Blackburn fyrir hálfleik. Varnarmaðurinn Jay Demerit tryggði hinsvegar Watford sigurinn mikilvæga um miðjan síðari hálfleikinn. Þetta er einungis þriðji sigur Watford í deildinni og sitja þeir áfram á botninum eftir leikinn. 23.1.2007 22:07
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn