Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einvígi Davíðs og Golíats á Sýn í kvöld Síðari undanúrslitaleikur Chelsea og Wycombe í enska deildarbikarnum verður sýndur beint sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Öskubuskulið Wycombe náði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli sínum og leitast við að gera hið ómögulega á Stamford Bridge í kvöld. 23.1.2007 16:15
Norðmenn afar óhressir með dómgæsluna Norsku landsliðsmennirnir voru mjög ósáttir við störf þýsku dómarana sem dæmdu leik þeirra við Dani í gær, en tap norska liðsins þýddi að liðið sat eftir og komst ekki í milliriðil á mótinu. 23.1.2007 15:37
Nistelrooy hættur að gefa kost á sér Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy gaf það út í gær að hann væri hættur að gefa kost á sér í hollenska landsliðið á meðan Marco Van Basten réði þar ríkjum. Nistelrooy á að baki 54 landsleiki en hefur ekki verið í liðinu síðan hann lenti í deilum við Van Basten í sumar, en Nistelrooy var ekki sáttur við að eiga ekki fast sæti í liði Hollendinga. 23.1.2007 15:30
Tapið fyrir Íslandi eins og köld sturta Franskir miðlar fara hörðum orðum um frammistöðu Frakka í landsleiknum gegn Íslendingum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gær. Þar segir að fall Evrópumeistaranna hafi verið hátt enda tapaði liðið með átta mörkum fyrir Íslandi. Frakkarnir hafi einfaldlega verið of sigurvissir eftir stórsigra á Áströlum og Úkraínumönnum. 23.1.2007 15:23
Wenger hefur fulla trú á kjúklingunum Arsene Wenger ætlar ekki að breyta út af vananum annað kvöld þegar Arsenal sæki granna sína í Tottenham heim á White Hart Lane í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins, en þar mun Arsenal tefla fram svipuðu liði og burstaði Liverpool í keppninni á dögunum. 23.1.2007 14:08
Tilboði West Ham neitað 1. deildarlið Birmingham neitaði í dag nýju og endurbættu 6 milljón punda tilboði West Ham í varnarmanninn Matthew Upson. Steve Bruce knattspyrnustjóri er staðráðinn í að halda í Upson til loka leiktíðar, en Birmingham er í ágætri aðstöðu til að komast upp um deild í vor. 23.1.2007 14:03
Tyson lýsir yfir sakleysi sínu Hnefaleikarinn Mike Tyson lýsti yfir sakleysi sínu í gær þegar hann kom fyrir dómara í Arizona í Bandaríkjunum, en hann er ákærður fyrir fíkniefnavörslu og að hafa ekið undir áhrifum þann 29. desember sl. 23.1.2007 13:54
Tottenham kaupir Ricardo Rocha Tottenham gekk í dag frá kaupum á portúgalska landsliðsmanninum Ricardo Rocha frá Benfica. Rocha er 28 ára gamall miðvörður og fréttir herma að hann hafi kostað enska félagið um 4 milljónir punda. 23.1.2007 13:51
Milan kaupir Massimo Oddo frá Lazio AC Milan gekk í dag frá kaupum á ítalska landsliðsmanninum Massimo Oddo frá Lazio, sem fær miðjumanninn Pasquale Foggia í staðinn og 7,75 milljónir evra. Oddo er þrítugur og er uppalinn í yngri flokkum Milan, en hefur unnið sér inn landsliðssæti síðan hann gekk í raðir Lazio árið 2002. Oddo er hægri bakvörður og mun keppa um sæti í liði Milan við gamla brýnið Cafu. 23.1.2007 13:40
Snjóflóðanámskeið LÍV-Reykjavík og Motormax standa fyrir verklegu námskeiði í snjóflóðaleit nk. miðvikudagskvöld 24.jan í Bláfjöllum / Framskálanum. Farið verður yfir helstu atriði í noktkun snjóflóðaýla og snjóflóðastanga við leit í snjóflóði. Námskeiðið er öllum opið og er ókeypis. Munið að koma með snjóflóðaýlu, snjóflóðastöng og skóflu. Aukabúnaður verður til staðar á staðnum fyrir þá sem ekki eiga, en eru menn hvattir til að kaupa slíkan búnað. 23.1.2007 13:33
Íslendingar áberandi í helstu töfræðiþáttum á HM Ólafur Stefánsson hefur gefið flestar stoðsendingar allra leikmanna til þessa á HM ásamt Króatanum magnaða Ivano Balic en þeir eru báðir með 16 stoðsendingar. Logi Geirsson er í 12. sæti með 11 stoðsendingar. 23.1.2007 12:35
Reyna á heimleið Claudio Reyna, fyrirliði bandaríska landsliðsins, hefur verið leystur undan samningi sínum við Manchester City og er á leið til heimalandsins. Reyna hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið og hefur ekki náð að vinna sér sæti í liði City í vetur. Hann er 33 ára gamall og gekk í raðir City frá Sunderland í ágúst árið 2003 fyrir 2,5 milljónir punda. 23.1.2007 12:14
Federer í undanúrslitin Tenniskappinn Roger Federer tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum opna ástralska meistaramótsins með því að vinna tilþrifalítinn en öruggan sigur á Spánverjanum Tommy Robredo 6-3, 7-6 (7-2) og 7-5. Þetta var ellefta stórmótið í röð sem Federer kemst í undanúrslit og hefur hann enn ekki tapað setti á opna ástralska. 23.1.2007 12:09
Kawasaki kemur með 450cc endurohjól Kawasaki hefur kynnt nýtt enduro hjól sem er væntanlegt til landsins í apríl 2007. Þetta hjól er nánast það sama og Kawasaki kxf450 nema þetta er enduro. Það er ekkert sparað í þessari hönnun og er hjólið glæsilegt í alla staði. Miklar líkur eru á því að hjólið muni fá götuskráningu en það mun skýrast innan tíðar. 23.1.2007 11:46
Sigur í fyrsta leik Anthony og Iverson með Denver Carmelo Anthony spilaði í nótt sinn fyrsta leik með Denver Nuggets eftir 15 leikja bann og þetta var jafnframt fyrsti leikur hans með Allen Iverson. Lengi hafði verið beðið eftir því að þeir Anthony og Iverson spiluðu sinn fyrsta leik saman og þeir ollu ekki vonbrigðum og tryggðu Denver sigur á Memphis. 23.1.2007 11:37
Þetta gerist ekki á hverjum degi Feðgarnir Bjarki Sigurðsson og Örn Ingi Bjarkason spiluðu saman síðasta föstudag þegar Afturelding lék gegn Gróttu í 1. deild karla í handbolta. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir feðgar leika saman en Bjarki er þjálfari Aftureldingar, sem situr í toppsæti deildarinnar. 23.1.2007 00:01
Ronaldo fer ekki frítt Spænska félagið Real Madrid segir það alveg ljóst að brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo fari ekki frá félaginu nú í janúar án þess að það fái greiðslu fyrir. Ronaldo hefur verið orðaður sterklega við ítalska liðið AC Milan. 23.1.2007 00:01
Liðið spilaði frábærlega „Mér gekk miklu betur í dag en í þessum hörmulega leik í gær. Ég ákvað að láta boltann rúlla og ráðast gegn frönsku vörninni og liðið spilaði hreint frábærlega," sagði Ólafur Stefánsson, sem gekk svo út að hliðarlínunni og tók í höndina á félaga sínum Degi Sigurðssyni, fyrrum landsliðsfyrirliða eins og sést hér á myndinni. 22.1.2007 21:10
Þetta var eina leiðin Eftir gærdaginn var aðeins ein leið fær, þessi," sagði Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins eftir stórsigur Íslendinga á Evrópumeisturum og heimsmeistaraefnum Frakka á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Þýskalandi. „Okkur tókst að snúa við því sem í gær virtist vera vonlaust," sagði Guðjón enn fremur í samtali við Þorstein J., fréttamann Stöðvar 2. 22.1.2007 21:05
Ísland burstaði Evrópumeistara Frakka Íslenska landsliðið í handknattleik vann í kvöld frábæran 32-24 sigur á Evrópumeisturum Frakka í lokaleik sínum í B-riðli. Íslenska liðið hafði yfirburði allan leikinn og sýndi einhvern besta leik sinn á síðustu árum. Liðið fer því áfram í milliriðil með tvö stig í farteskinu ásamt Frökkum, sem hafa ekkert stig. 22.1.2007 20:27
Tindastóll lagði ÍR í framlendum leik Tveir leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í körfubolta. Tindastóll lagði ÍR fyrir norðan 103-97 eftir framlendan leik og Snæfell burstaði Hauka í Hólminum 96-71. Þá var einn leikur í kvennaflokki þar sem Keflavík vann öruggan sigur á ÍS 83-65 á útivelli. 22.1.2007 21:59
Úrslit dagsins á HM Það var mikið um dýrðir á lokadegi riðlakeppninnar á HM og frækinn sigur Íslendinga á Frökkum stendur þar klárlega uppúr. Norðmenn þurftu að bíta í það súra epli að missa af sæti í milliriðli eftir tap fyrir frændum sínum Dönum 27-25. 22.1.2007 21:31
Leikjaniðurröðun í milliriðla klár Riðlakeppni HM lauk í kvöld og því er ljóst hvaða lið fara í milliriðla á mótinu. Íslenska liðið tryggði sér góða stöðu í milliriðli með frábærum sigri á Frökkum í kvöld en á meðan tryggðu Danir sér sæti í milliriðli með sigri á Norðmönnum, sem sitja eftir með sárt ennið. Hér fyrir neðan má sjá stöðu og leikjaniðurröðun í milliriðlunum sem hefjast á miðvikudag. 22.1.2007 21:20
Blanco lánaður til West Ham Framherjinn Kepa Blanco hjá Sevilla hefur verið lánaður til Íslendingaliðsins West Ham á Englandi til loka leiktíðar. Blanco er 23 ára gamall og vitað er að Manchester City, Charlton og Everton voru á höttunum eftir honum. Blanko hefur skorað 3 mörk í 9 leikjum fyrir Sevilla á leiktíðinni. 22.1.2007 18:34
Pólverjar skelltu Þjóðverjum Pólverjar gerðu sér lítið fyrir og lögðu heimamenn Þjóðverja 27-25 í fyrsta leik dagsins á HM. Pólverjar tryggðu sér með þessu sigurinn í C-riðli og fara með tvö stig í milliriðil en Þjóðverjar fara með ekkert stig. 22.1.2007 17:54
Neill til West Ham - Warnock til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn gekk í dag frá sölu á varnarmanninum Lucas Neill til West Ham og hefur nú fyllt skarð hans með kaupum á Stephen Warnock frá Liverpool. Warnock hafði aðeins spilað sjö leiki með Liverpool í vetur og var fyrir aftan þá John Arne Riise og Fabio Aurelio í goggunarröðinni. 22.1.2007 17:39
Parcells hættur Bill Parcells, þjálfari Dallas Cowboys í NFL deildinni, ákvað í dag að hætta að þjálfa liðið og setjast í helgan stein. Dallas datt út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar fyrir tveimur vikum, en hinn 65 ára gamli Parcells getur hætt sáttur eftir að hafa þrisvar komist í úrslitaleikinn um ofurskálina sem þjálfari og unnið tvisvar. 22.1.2007 17:13
Henry er besti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen segir í viðtali við tímarit Sky sjónvarpsstöðvarinnar að Thierry Henry hjá Arsenal sé besti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. "Ég er alltaf jafn gáttaður á hæfileikum Henry," segir Owen í blaðinu sem kemur út í næsta mánuði. Owen hefur sett stefnuna á að snúa aftur úr meiðslum sínum í apríl í vor. 22.1.2007 17:03
Carew á leið til VIlla í skiptum fyrir Baros Eins og greint var frá í morgun er tékkneski landsliðsmaðurinn Milan Baros nú búinn að ganga frá félagaskiptum sínum frá Aston Villa til franska liðsins Lyon. Félögin hafa í hyggju að skipta á leikmönnum og ef allt gengur að óskum mun norski framherjinn John Carew fara til Villa í staðinn. 22.1.2007 16:58
Frumraun Raikkönen á morgun Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen mun á morgun þreyta frumraun sína í Ferrari-bílnum þegar liðið heldur bílprófanir á Vellelungabrautinni í grennd við Róm á Ítalíu. Raikkönen hefur enn ekki ekið Ferraribílnum formlega síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar, en hann mun aka gamla bílnum á morgun á meðan félagi hans Felipe Massa fær að prófa nýja bílinn. 22.1.2007 16:49
Nowotny leggur skóna á hilluna Þýski varnarjaxlinn Jens Nowotny hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Nowotny, sem er 33 ára gamall, hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða undanfarin ár og gerði garðinn frægan með þýska landsliðinu og Bayer Leverkusen. Hann spilaði 48 leiki fyrir þýska landsliðið og var nú síðast á mála hjá liði Dinamo Zagreb. 22.1.2007 15:59
Vélhjól reka á fjörur í Englandi Fólk hefur flykkst á strendur í Branscombe í Englandi í dag og hefur farið þar um ruplandi því sem rekið hefur í land frá flutningaskipinu MSC Napoli, sem strandaði við Englandsstrendur í síðustu viku. Meðal þess sem fólk hefur haft á brott með sér eru BMW-vélhjól. 22.1.2007 15:58
Nadal lagði Murray í æsilegum leik Spánverjinn Rafael Nadal tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis í dag þegar hann lagði Skotann Andy Murray í maraþonleik 6-7 (3-7) 6-4 4-6 6-3 og 6-1. Murray hafði betur framan af viðureigninni en reynsla Nadal og kraftur tryggði honum einvígi við Fernando Gonzalez í átta manna úrslitum mótsins. 22.1.2007 15:38
Strákarnir sjá sjálfir um að gíra sig upp gegn Frökkum Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir íslensku landsliðsmennirnir sjái sjálfir um að gíra sig upp fyrir leikinn stóra gegn Frökkum á HM í kvöld, því þeir séu allir ósáttir við frammistöðu sína gegn Úkraínu í kvöld. Í viðtali við Ríkisútvarpið í hádeginu sagði Alfreð Frakka líklega vera með annað af tveimur bestu liðunum á mótinu. 22.1.2007 15:17
Mikil bjartsýni ríkir meðal stuðningsmanna íslenska liðsins Stuðningsmenn Íslenska landsliðsins í handbolta létu vonbrigði gærkvöldsins ekki hafa áhrif á sig og svo virðist sem eitthvað af anda stuðningsmannasamtakanna Í Blíðu og Stríðu hafi nuddast í landann að þessu sinni. 22.1.2007 14:43
Stutt gaman hjá Pourcel Frakkinn Ungi og efnilegi Christophe Pourcel sem tók sinn fyrsta sigur í Phoenix nú á dögunum er farinn aftur heim til Frakklands. Pourcel, sem hefur verið að keppa í minni flokknum "Lites" og hefur verið að sýna svakalega flottan akstur, meiddist við æfingar og brákaði fót og hönd. 22.1.2007 13:56
Verður sagan á bandi Phoenix? Phoenix Suns varð í nótt aðeins áttunda liðið í sögu NBA deildarinnar til að ná tveimur 13 leikja sigurhrinum á sama keppnistímabilinu, en áður hafði liðið unnið 15 leiki í röð frá 20. nóvember til 19. desember. 22.1.2007 13:24
Farsímabann á opna breska Skipuleggjendur opna breska meistaramótsins í golfi hafa gefið það út að áhorfendum verði bannað að koma með gsm síma á keppnina á þessu ári eftir að keppendur kvörtuðu mikið undan þeim á mótinu á síðasta ári. Toger Woods var einn þeirra sem kvartaði yfir því að áhorfendur væru að taka myndir af sér á meðan hann var að keppa og sagði það trufla sig. 22.1.2007 13:11
Þetta verður gríðarlega jafn leikur Ulrik Wilbek, þjálfari Dana í handbolta, á ekki von á að skoruð verði mörg mörk í kvöld þegar hans menn mæta frændum sínum norðmönnum í leik upp á líf og dauða í E-riðlinum á HM. 22.1.2007 12:53
Brand kallar á gamlan ref Heiner Brand, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta, hefur kallað gamla brýnið Christian Schwarzer frá Lemgo inn í landsliðshóp sinn vegna þeirra miklu meiðsla sem eru á mannskap hans. Schwarzer er 37 ára gamall og lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2004, en hefur alltaf sagt að hann yrði tilbúinn ef til hans yrði leitað. 22.1.2007 12:49
Erfiðast að venjast veðrinu Ekki eru allir útlendingar í ensku úrvalsdeildinni lengi að smella inn í knattspyrnuna þar í landi og á meðan hvorki gengur né rekur hjá framherjanum Andriy Shevchenko hjá Chelsea, hefur Ítalinn Vincenzo Montella farið á kostum í fyrstu leikjum sínum með Fulham. 22.1.2007 12:37
Shay Given verður frá í mánuð Írski markvörðurinn Shay Given verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð eftir að hann tognaði á nára í leiknum við West Ham um helgina sem lauk með jafntefli 2-2. Þetta er í annað sinn sem Given meiðist gegn West Ham á þessari leiktíð. Liðið er þó ekki á flæðiskeri statt, því varamarkvörðurinn Steven Harper hefur þegar náð sér af sínum meiðslum. 22.1.2007 12:29
Anelka vill fara aftur til Arsenal Franski framherjinn Nicolas Anelka viðurkenndi í samtali við fjölmiðla í heimalandi sínu um helgina að hann væri vel til í að fara aftur til Arsenal, þar sem hann hóf feril sinn á Englandi á sínum tíma. Þessi ummæli hans fara eflaust öfug ofan í knattspyrnustjóra hans Sam Allardyce hjá Bolton. 22.1.2007 12:22
Fernandes í læknisskoðun hjá Everton Enska úrvalsdeildarfélagið Everton er nú í viðræðum við miðjumanninn Manuel Fernandes hjá Benfica og gengur væntanlega frá lánssamningi við hann í dag ef hann stenst læknisskoðun sem stendur yfir nú í hádeginu. Fernandes er tvítugur og ef hann stendur sig vel fram á vor mun hann væntanlega ganga formlega í raðir Everton í sumar. Hann var áður hjá Portsmouth og spilaði þar 12 leiki. 22.1.2007 12:18
Baros á leið til Lyon Forráðamenn Lyon í Frakklandi segja að nú sé aðeins klukkutímaspursmál hvenær liðið landi tékkneska framherjanum Milan Baros frá Aston Villa. Félögin hafa verið í viðræðum síðan á föstudag og forseti franska félagsins er mjög bjartsýnn á að ná að klára viðskiptin fljótlega. 22.1.2007 12:15