Fleiri fréttir

Klinsmann kennt um mistök Kahn

Forráðamenn Bayern Munchen kenna nýráðnum landslisþjálfara Þjóðverja, Jurgen Klinsmann, um mistökin sem Oliver Kahn, markvörður Munchen, gerði í Meistaradeildarleik gegn Juventus í síðustu viku.

Jafnt hjá Boro og Bolton

Middlesbrough og Bolton gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Daninn magnaði Henrik Pedersen kom Bolton yfir á 72. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Þetta var sjöunda mark kappans á tímabilinu. Jussi Jaskelainen, markvörður Bolton, var svo rekinn af velli á 86. mínútu og George Boateng jafnaði metin í uppbótartíma.

Tryggvi bjargvættur Örgryte

Tryggvi Guðmundsson var bjargvættur Örgryte í leik liðsins í umspili um sæti í sænsku úrvalsdeildinni, Allsvenskan. Örgryte mætti Assyriska í síðari leik liðanna í dag en Assyriska, sem lék í 1. deild á nýliðnu tímabili, vann fyrri leikinn 2-1.

Ólafur Örn bikarmeistari

Landsliðsmaðurinn Ólafur Örn Bjarnason varð í dag norskur bikarmeistari með liði sínu Brann. Brann rótburstaði Lyn 4-1 þar sem framherjinn Bengt Sæternes fór á kostum og skoraði þrennu. Úrslit leiksins voru í raun ráðin eftir hálftíma leik en þá var staðan 4-1 fyrir Brann en þeir síðarnefndu skoruðu þrjú af þessum fóru mörkum á fyrstu 13 mínútunum.

Haukar töpuðu stórt

Haukar biðu stóran ósigur þegar þeir sóttu þýska stórliðið Kiel heim í Meistaradeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 39-23 eftir að staðan í háfleik hafði verið 21-9 heimamönnum í vil en þeir voru dyggilega studdir áfram af 5000 áhorfendum. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson voru markahæstir í liði Hauka með fimm mörk.

Markalaust á Old Trafford

Markalaust er í grannaslag Manchester United og Manchester City í hálfleik. Leikurinn byrjaði af miklum krafti og voru heimamenn í United sérstaklega aðgangsharðir upp við mark gestanna og töldu sig tvisvar sinnum eiga að fá vítaspyrnu.

Fulham burstaði Newcastle

Mjög óvænt úrslit litu dagsins ljós á St. James Park, heimavelli Newcastle, í dag þegar Fulham kom í heimsókn. Gestirnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu heimamenn með yfirburðu, 4-1, eftir að hafa komist fjórum mörkum yfir. Collins John, Steed Malbranque (2) og Luis Boa Morte skoruðu fyrir Fulham en Craig Bellamy minnkaði muninn fyrir heimamenn.

Logi með sjö fyrir Lemgo

Logi Geirsson var markahæstur í liði TBV Lemgo sem vann Sandefjord frá Noregi örugglega í næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta í dag. Logi skoraði sjö mörk í 38-29 sigri Lemgo en Þjóðverjarnir leiddu með þremur mörkum í leikhléi.

Knattspyrnumaður skotinn til bana

Brasilíumenn eru harmi slegnir eftir að knattspyrnumaðurinn Claudinei Resende var skotinn til bana á næturklúbbi í heimaborg sinni Belo Horizonte á föstudaginn var.

Timberwolves að slípa sig saman

Þrátt fyrir að menn séu orðnir heilir í herbúðum Minnesota Timberwolves, þá á liðið enn töluvert í land með að ná saman á nýjan leik.

Fyrsti titill Ólafs Arnar

Ólafur Örn Bjarnason og félagar hans í Brann tryggðu sér í gær norska bikarmeistaratitilinn í fótbolta þegar liðið bar sigurorð af Lyn, 4-1, í úrslitaleik á Ulleval-leikvanginum í Osló.

Lést í leik

Sergei Zholtok, leikmaður Nashville Predators í NHL-deildinni, lést á miðvikudagskvöldið en óreglulegur hjartsláttur hafði hrjáð kappann síðustu árin.

Lið Hildar tapaði gegn Luleå

Hildur Sigurðardóttir og félagar hennar í Jämtland Basket máttu sætta sig við 23 stiga tap, 65-88, á heimavelli gegn Luleå Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta á laugardaginn.

Dynamo tapaði sínum fyrsta leik

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Dynamo St. Pétursborg töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir lágu, 76-86, fyrir Unics Kazan á útivelli.

Safin vann í París

Rússinn Marat Safin vann í dag opna Parísa-meistaramótið í tennis í þriðja sinn á ferlinum og jafnaði þar með met Borisar Becker. Safin, sem vann mótið einnig árin 2000 og 2002, sigraði Tékkann Radek Stepanek í þremur settum, 6-3, 7-6 og 6-3. Þetta var 14. stórmótið sem Safin vinnur á ferlinum, en hann er sem stendur í 6. sæti heimslistans.

Tvöfaldur Norðurlandameistari

Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen var í miklum ham á Norðurlandamótinu sem fram fór í Lettlandi um helgina. Guðmundur varð tvöfaldur Norðurlandameistari, bæði í einliðaleik og tvíliðaleik, og er fyrsti Íslendingurinn sem nær þeim áfanga.

Tryggvi hetja Örgryte

Tryggvi Guðmundsson var hetja sænska úrvalsdeildarliðsins Örgryte í gær þegar hann tryggði liðinu áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni.

City náði stigi á Old Trafford

Manchester United og Manchester City gerðu í dag markalaust jafntefli í grannaslag Manchester borgar. City menn geta verið sáttir með úrslit leiksins enda fór hann að mestu fram á vallahelmingi í þeirra og í raun með hreinum ólíkindum að United skyldi ekki ná að skora. United átti ellefu skot á mark City á móti einu skoti gestanna.

Sprewell að deyja úr sjálfselsku

Það vantar ekki loftið í Latrell Sprewell hjá Minnesota Timberwolves. Spree, eins og kappinn er oftast kallaður, hefur farið mikinn í fjölmiðlum varðandi tilboð Timberwolves-liðsins um að framlengja samninginn sem rennur út í vor.

Móður knattspyrnumanns rænt

Ein bjartasta von Brasilíumanna í knattspyrnuheiminum, Robinho, varð fyrir áfalli um helgina þegar móður hans var rænt.

Birgir Leifur komst í gegn

Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn fyrir fjórða og síðasta hringinn á öðru stigi úrtökumótanna fyrir evrópsku mótaröðina í golfi þrátt fyrir að hafa ekki náð sér á strik á þriðja hring. Birgir Leifur þurfti að hætta í miðjum klíðum á þriðja hring í gær vegna óveðurs en hann lauk við hann í morgun og lék á 76 höggum.

Haas efstur eftir tvo hringi

Hinn fimmtugi kylfingur Jay Haas er efstur eftir tvo hringi á Meistaramóti kylfinga á Atlanta þar sem 30 tekjuhæstur kylfingarnir á PGA mótaröðinni berjast á lokamóti ársins. Haas er á sjö höggum undir pari.

Villa að bursta Portsmouth

Einn leikur fer þessa stundina fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Aston Villa tekur á móti Portsmouth og leiðir með þremur mörkum í hálfleik. Peter Whittingham, Juan Pablo Angel og Perúmaðurinn Nolberto Solano skoruðu mörk Villa sem hefur leikið hreint stórkostlega og má mikið vera ef liði bætir ekki fleiri mörkum við áður en yfir lýkur.

Fyrsti sigur Houston

Houston Rockets unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í NBA-deildinni í nótt er liðið sigraði Memphis Grizzlies 89-81. Tracy McGrady, stigakóngur deildarinnar undanfarin tvö tímabil sem gekk til liðs við Houston í sumar, skoraði 30 stig og átti níu stoðsendingar. Spánverjinn Pau Gasol var stigahæstur í liði Memphis með 21 stig.

Viggó sá Massenheim og Düsseldorf

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari fylgdist með leik Wallau Massenheim og Düsseldorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær þar sem Íslendingar voru bestu menn vallarins. Wallau vann 29-28.

Dramatík fyrir norðan

Þór sigraði granna sína í KA 28-27 í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta í gær fyrir framan 700 áhorfendur. Lettneski landsliðsmarkvörðurinn Mareks Skabeikis var hetja Þórs. Auk þess að verja 25 skot varði hann vítakast Halldórs Jóhanns Sigfússonar þegar fjórar sekúndur voru eftir.

Sex leikmenn féllu á lyfjaprófi

Sex knattspyrnumenn sem leika í Seríu A og B á Ítalíu féllu á lyfjaprófi. Brasilíski leikmaðurinn Mozart, fyrirliði Reggína, ásamt fimm leikmönnum í Seríu B voru lyfjaprófaðir í byrjun október. Í sýni þeirra allra greindist Betamethasone.

Öruggur sigur hjá Villa

Aston Villa vann í dag öruggan sigur á Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur urðu 3-0 og skoruðu þeir Peter Whittingham, Juan Pablo Angel og Nolberto Solano mörk Villa. Segja má að Villa hafi klárað leikinn í fyrri háfleik en öll mörk leiksins komu þá. Villa fór með sigrinum í sjöunda sæti með 18 stig en Portsmouth er í því tíunda með 15.

Dýrt að losna við Houllier

Það kostaði Liverpool hvorki meira né minna en 1.400 milljónir króna að losa sig við Gerard Houllier og aðstoðarmenn hans, Phil Thompson, Joe Corrigan og Christian Damiano. Þetta kemur fram í ársuppgjöri félagsins. Liverpool tapaði 2,8 milljörðum á síðustu leiktíð og helminginn af því má rekja til starfslokasamninga hjá fjórmenningunum.

Íslendingar í bikarúrslitum

Grindvíkingurinn Ólafur Örn Bjarnason verður í liði Brann í dag sem mætir Lyn í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar. Hjálmar Jónsson verður í leikmannahópi IFK Gautaborgar sem mætir Djurgården í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar. Sölvi Geir Ottesen er meiddur og verður ekki með Djurgården samkvæmt heimasíðu félagsins.

San Antonio vann Lakers

San Antonio Spurs lögðu Los Angelers Lakers 105-96 í NBA-deildinni í nótt. Tim Duncan skoraði 26 stig fyrir Spurs og hirti 16 fráköst. Kobe Bryant skoraði 28 stig fyrir Lakers. Meistarar Detroit Pistons steinlágu fyrir Toronto Raptors 101-89 í Kanada.

Stirð samskipti við Santini

Talið er að stirð samskipti Jacques Santini, fráfarandi knattspyrnustjóra Tottenham,  og yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu, Danans Frank Arnesen, hafi átt þátt í því að Santini ákvað að hætta í gær. Þjálfarinn franski sagði upp störfum sem af persónulegum ástæðum að því er hann gaf út í gærkvöld.

Keflavík og ÍR mætast

Keflavík og ÍR mætast í Hópbílabikarkeppni KKÍ í dag í Reykjanesbæ klukkan 15. Nick Bradford fékk leikheimild með Keflavík í gær og verður með liðinu í dag.

Barcelona - Deportivo á Sýn

Barcelona mætir Deportivo í spænsku úrvaldeildinni í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 20.30.

Arnesen segir ósætti ekki rétt

Daninn Frank Arnesen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham, neitar því að ósætti milli hans og franska knattspyrnustjórans Jacques Santini hafa valdið brottför hins síðarnefnda frá félaginu. Santini sagði sem kunnugt er starfi sínu lausu í gærkvöldi og kvað það vera af persónulegum ástæðum.

Jafnt á Anfield

Markalaust er í hálfleik í viðureign Liverpool og Birmingham á heimavelli þeirra fyrrnefndu, Anfield Road. Heimamenn hafa verið sterkari aðilinn þar sem af er og átti Spánverjinn Luis Garcia meða annars dauðafæri um miðbik hálfleiksins. Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti spútnikliði Everton en staðan þar er einnig markalaus.

Mörg lið á eftir Mutu

Gheorghe Popescu, umboðsmaður hins umdeilda framherja Adrian Mutu, segir að umbjóðandi sinn muni skrifa undir samning við stórt "vestur-evrópskt" lið innan tveggja vikna. Mutu féll sem kunnugt er á lyfjaprófi í haust og var settur í sjö mánaða bann af enska knattspyrnusambandinu auk þess að Chelsea sagði upp samningi sínum við hann.

Sinclair ekki meira með

Manchester City varð fyrir áfalli í gær þegar ljóst varð að kantmaðurinn Trevor Sinclair yrði ekki meira með á tímabilinu. Í ljós kom að flísast hefur upp úr beini efst á lærlegg kappans en einnig er um skemmd liðbönd að ræða. Enn minnkar því leikmannahópur City en fyrir stuttu kom í ljós að Sun Jihai verður ekki meira með vegna krossbandaslita.

Loks tapaði Liverpool heima

Birmingham varð í dag fyrsta liðið til þess að vinna Liverpool á heimavelli á þessu tímabili. Gamla brýnið Darren Anderton tryggði gestunum sigurinn á 77. mínútu með því að stýra knettinum í markið eftir skalla Matthew Upsons. Chelsea skaust í toppsætið með 29 stig eftir eins marks sigur á Everton. Arjen Robben skoraði markið á 72. mínútu.

Öruggur sigur Bayern

Bayern Munchen kom atlögu sinn að endurheimt þýska meistaratitilsins aftur á rétta braut með sigri gegn Hannover 96 á heimavelli í dag. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn en sigur Bæjara var aldrei í hættu eftir að Claudio Pizzarro hafði komið þeim yfir snemma leiks. Hollendingurinn Roy Maakay og Paulo Guerrero gulltryggðu svo sigurinn.

Heiðar og Brynjar skoruðu

Íslensku landsliðsmennirnir Heiðar Helgusson og Brynjar Björn Gunnarsson björguðu stigi fyrir lið sitt, Watford, er það sótti Derby heim í ensku 1. deildinni í dag. Heiðar kom Watford yfir með skalla á 40. mínútu en Derby menn jöfnuðu og komust yfir með marki Peschisolido á 73. mínútu. Brynjar Björn jafnaði svo leikinn átta mínútum fyrir leikslok.

Nick Bradford byrjar vel

Keflvíkingar unnu ÍR-inga með 19 stiga mun í seinni leik liðanna í átta-liða úrslitum Hópbílabikars karla í dag. Þar með unnu Keflvíkingar samtals með 62 stiga mun og mæta nágrönnum sínum í Njarðvík í undanúrslitum. Nick Bradford skoraði 27 á 23 mínútum í leik sem markar endurkomu hans til Keflvíkur og ljóst er að hann mun styrkja lið þeirra mikið.

Keane sá besti hjá Ferguson

Alex Ferguson, sem hefur verið knattspyrnustjóri Manchester United undanfarin átján ár, segir að Írinn Roy Keane sé besti leikmaðurinn sem hann hefur haft undir sinni stjórn þess átján ár.

Sjá næstu 50 fréttir