Sport

Tvöfaldur Norðurlandameistari

Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen var í miklum ham á Norðurlandamótinu sem fram fór í Lettlandi um helgina. Guðmundur varð tvöfaldur Norðurlandameistari, bæði í einliðaleik og tvíliðaleik, og er fyrsti Íslendingurinn sem nær þeim áfanga. Guðmundur bar sigurorð af Eistanum Aleksandrs Smirnov í úrslitum einliðaleiksins, 4-1. Guðmundur vann fyrstu þrjár loturnar, 11-5, 11-6 og 11-7 en tapaði fjórðu lotunni, 9-11. Hann vann síðan fimmtu lotuna, 11-5, og tryggði sér sigurinn. Guðmundur varð einnig Norðurlandameistari í tvíliðaleik ásamst Eistanum Vitel Vainula. Þeir unnu par frá Lettlandi í úrslitum, 3-1. Íslensku karla- og kvennaliðin riðu ekki feitum hesti frá liðakeppninni. Karlaliðið hafnaði í fimmta sæti af fimm þjóðum og kvennaliðið í því fjórða af fjórum. Karlaliðið tapaði öllum sínum leikjum, 2-3, og vann Guðmundur Stephensen alla sína átta leiki en enginn annar í íslenska liðinu náði að vinna. Kvennaliðið tapaði öllum sínum leikjum, 3-0.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×