Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kanslarinn greindist með Covid-19 Olaf Scholz Þýskalandskanslari hefur greinst með kórónuveiruna. Hann er með væg einkenni og hefur afboðað sig á fjölda viðburða sem hann hugðist sækja í vikunni. 26.9.2022 14:44
Ellefu börn í hópi hinna fimmtán látnu í Izhevsk Að minnsta kosti fimmtán eru látnir eftir að maður hóf skothríð í grunnskóla í rússnesku borginni Izhevsk í morgun. Ellefu af hinum látnu voru börn, en auk þeirra fórust tveir öryggisverðir og tveir kennarar í árásinni. 26.9.2022 14:17
Saka Bandaríkin um að reyna að veikja Íran í skugga mótmæla Yfirvöld í Íran hafa sakað bandarísk stjórnvöld um að nýta sér mótmælin sem nú standa yfir vegna dauða ungrar konu til að veikja Íran og segjast munu bregðast við. Ekkert lát er á mótmælunum sem hófust um þar síðustu helgi en á fimmta tug hafa látist samkvæmt opinberum tölum. 26.9.2022 12:36
Ian sækir í sig veðrið á leið til Kúbu Hitabeltisstormurinn Ian stefnir nú hraðbyr á Kúbu og sækir í sig veðrið á leiðinni. Óveðrið hefur nú náð fellibylsstyrk en er enn að verða öflugri. Talið er að Ian muni ná landi á vesturhluta Kúbu í nótt og ná landi í Flórída seinna í vikunni. 26.9.2022 11:53
Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu. 26.9.2022 10:24
Norlén áfram forseti sænska þingsins Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í morgun endurkjörinn sem forseti sænska þingsins. Norlén hefur gegnt embættinu frá árinu 2018. 26.9.2022 10:22
Þrettán látnir eftir skotárás í skóla í Rússlandi Að minnsta kosti þrettán eru látnir og fjöldi manns særður eftir að maður hóf skotárás í skóla í rússneska bænum Izhevsk í morgun. 26.9.2022 08:43
Þúsundum stolinna listaverka hefur ekki verið skilað Stærsta listasafn Spánar viðurkennir að á safninu sé að finna meira en 60 listaverk sem einræðisstjórn Francos stal af réttmætum eigendum þeirra. Hundruð stolinna listaverka eru enn á söfnum í eigu ríkisins. 26.9.2022 07:54
Ætluðu sér að ræna dómsmálaráðherranum Lögregla í Hollandi hefur handtekið fjóra vegna gruns um að hafa haft í hyggju að ræna belgíska dómsmálaráðherranum Vincent Van Quickenborne. 26.9.2022 07:48
„Ítalía valdi okkur“ Flokkarnir á hægri vængnum á Ítalíu ættu að vera með meirihluta í báðum deildum þingsins en kosningar þar í landi fóru fram í gær. Giorgia Meloni, leiðtogi Bræðra Ítalíu, fagnaði sigri í sjónvarpsávarpi í nótt en hún gæti orðið fyrsti kvenkyns forsætisráðherrann á Ítalíu og fyrsti öfgahægri ráðherrann frá því að Mussolini var við völd. 26.9.2022 07:22
Allt útlit fyrir mikinn sigur hægri-öfga afla á Ítalíu Útgönguspár gera ráð fyrir því að hægri-öfgakonan Giorgia Meloni og flokkur hennar hafi sigrað í ítölsku þingkosningunum í dag. Allt útlit er fyrir að hún verði fyrsti kvenforsætisráðherra landsins. 25.9.2022 23:30
Rúmlega tvö þúsund handtekin í mótmælum í Rússlandi Mikil ólga er í Rússlandi í kjölfar herkvaðningar Vladímír Pútíns Rússlandsforseta. Rúmlega tvö þúsund manns hafa verið handtekin víðs vegar í Rússlandi síðan mótmæli hófust gegn ákvörðun forsetans um umfangsmikla herkvaðningu. 25.9.2022 15:12
Kosið á Ítalíu í dag: Yfirgnæfandi líkur á öfga-hægri leiðtoga Ítalir ganga til þingkosninga í dag og baráttan hörð milli flokkanna á hægri og vinstri væng. Allt stefnir í að öfgahægriflokkurinn Bræður Ítalíu muni vinna stórsigur og fyrsti öfgahægrimaðurinn sitji á forsætisráðherrastóli frá brotthvarfi einræðisherrans Benito Mussolini. 25.9.2022 13:48
„Algjör eyðilegging“ vegna Fionu Hitabeltisstormurinn Fiona hefur valdið mikilli eyðileggingu á húsum og vegum á Atlantshafsströnd Kanada. smábæjar á Nýfundnalandi segir algjöra eyðileggingu hafa átt sér stað í bænum 24.9.2022 21:48
Geti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að flýja herkvaðningu Pútín tilkynnti rússnesku þjóðinni á miðvikudag að grípa skildi til herkvaðningar til þess að vernda Rússa á „frelsuðum svæðum.“ Lítið virðist vitað um hversu margir verði skikkaðir í herinn og hafa karlmenn haldið á flótta frá landinu vegna þessa. Pútín er sagður hafa gripið til lagabreytinga sem refsi þeim sem flýi herkvaðninguna. 24.9.2022 15:31
Ríki ESB fleygja rúmlega 150 milljónum tonna af mat á ári Ríki Evrópusambandsins sóa meiri mat en þau flytja inn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu umhverfissamtakanna Feedback EU. Stefnt er að því að draga úr matarsóun um helming á næstu 8 árum. 24.9.2022 14:30
Hægriflokkarnir stefna á stórsigur með öfgahægrikonu í fararbroddi Ítalir ganga til þingkosninga á morgun og er baráttan hörð á milli flokkanna á hægri og vinstri vængnum. Væntanleg orkukreppa og stríðið í Úkraínu hafa áhrif á kosningarnar í ár en allt stefnir í að öfgahægriflokkur fái forsætisráðherrastólinn í fyrsta sinn frá því að Mussolini var í embætti. Kona gæti í fyrsta sinn í sögunni orðið forsætisráðherra Ítalíu. 24.9.2022 10:00
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. 23.9.2022 19:59
Japan opnar landamærin í október og styrkir ferðaþjónustu Langt hlé hefur verið á ferðamennsku í Japan vegna kórónuveirufaraldursins en nú er útlit fyrir að varúðarráðstafanir vegna faraldursins verði látnar niður falla og landamærin opnuð á ný. 23.9.2022 18:05
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. 23.9.2022 16:20
Tugir farandfólks fórust undan ströndum Sýrlands Leitarlið hefur fundið 71 lík eftir að bátur með á annað hundrað farandfólks sökk undan ströndum Sýrlands í gær. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en tuttugu manns hafa fundist á lífi til þessa og verið fluttir á sjúkrahús í Sýrlandi. 23.9.2022 14:55
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. 23.9.2022 12:36
Fegurðardrottning föst á flugvelli Mjanmarska fegurðardrottningin Han Lay hefur nú verið föst á flugvellinum í Bangkok í þrjá daga. Hún fær ekki að komast út af flugvellinum nema hún fljúgi til Mjanmar. Hún óttast að hún verði handtekin þar fyrir að hafa mótmælt herstjórninni. 23.9.2022 08:36
Afboðuðu viðtal við forseta Íran vegna slæðukröfu Bandaríski fréttamiðillinn CNN afboðaði viðtal við Ebrahim Raisi, forseta Íran, eftir að hann krafðist þess að sjónvarpskonan Christiane Amanpour klæddist höfuðslæðu í viðtalinu. 23.9.2022 08:28
Riverdale-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á móður sinni Kanadíski leikarinn og fyrrverandi barnastjarnan Ryan Grantham hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt móður sína árið 2020. 23.9.2022 08:06
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. 23.9.2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. 22.9.2022 22:30
Raisi hætti við viðtalið eftir að Amanpour neitaði að bera höfuðklút Forseti Írans, Ebrahim Raisi neitaði að mæta í viðtal við fréttakonu CNN, Christiane Amanpour vegna þess að hún neitaði að bera höfuðklút á meðan á viðtalinu stæði. 22.9.2022 21:14
Telur forseta geta aflétt leynd með huganum einum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, réttlætti vörslu sína á aragrúa leyniskjala með því að forseti gæti aflétt leynd af gögnum með því einu að hugsa um það í sjónvarpsviðtali í gær. Þá kallaði hann málaferli gegn honum í New York pólitískar nornaveiðar. 22.9.2022 11:51
Að minnsta kosti níu látnir í mótmælunum í Íran Ekkert lát er á mótmælunum í Íran en mótmælendur kveiktu í lögreglustöðvum og bílum í höfuðborginni og öðrum borgum í dag. Minnst níu eru sagðir hafa látist eftir að mótmælin brutust út um helgina og hefur ríkisstjórnin lokað á samfélagsmiðla til að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur nái að tala sig saman. 22.9.2022 10:52
Ríkisstjórnin gekk út vegna samsæriskenninga umdeilds þingmanns Samsæriskenningar þar sem ýjað var að því að fjármálaráðherra Hollands væri njósnari á vegum vestrænna ríkja sem viðraðar voru í þingræðu í Hollandi í gær varð til þess að öll hollenska ríkisstjórnin gekk af þingfundi í mótmælaskyni. 22.9.2022 10:44
Kaþólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Fleiri Norður-Írar telja sig nú kaþólikka en mótmælendur í fyrsta skipti samkvæmt nýbirtu manntali. Tölurnar eru taldar verða vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir sameiningu Írlands. 22.9.2022 10:35
Stefna ríkisstjóra fyrir að senda þá á sumardvalareyju Venesúelskir hælisleitendur sem ríkisstjóri Flórída í Bandaríkjunum lét fljúga með frá Texas til lítils sumardvalarstaðar í Massachusetts hafa stefnt honum fyrir blekkingar og mismunun. Lögmaður þeirra sakar ríkisstjórann um notfæra sér þá sem pólitísk peð. 22.9.2022 09:15
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. 22.9.2022 07:23
„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“ Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku. 21.9.2022 23:03
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. 21.9.2022 20:27
Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur höfðað mál gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og þremur elstu börnum hans, þeim Donald Trump yngri, Ivönku Trump og Eric Trump. Þau eru sökuð um umfangsmikil skatt- og bankasvik. 21.9.2022 18:29
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. 21.9.2022 14:55
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. 21.9.2022 12:05
Gagnrýndur fyrir að syngja Bohemian Rhapsody stuttu fyrir jarðarförina Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur verið gagnrýndur síðustu daga fyrir að hafa sungið lag með hljómsveitinni Queen í hótelanddyri í London, tveimur dögum fyrir jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar. 21.9.2022 11:21
Danadrottning greinist með Covid í annað sinn Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna í annað sinn. 21.9.2022 10:40
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. 21.9.2022 10:26
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. 21.9.2022 08:33
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21.9.2022 08:07
Hundruð hvala stranda við Tasmaníu Um 230 grindhvalir hafa strandað á Ocean-ströndinni á Tasmaníu síðustu daga. Um helmingur þeirra er enn á lífi og verið er að vinna í því að koma þeim aftur í sjóinn. 21.9.2022 07:40