Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm mánaða fangelsi fyrir að sviðsetja hótanir og hatursorðræðu gegn sjálfri sér Kona á fertugsaldri í Osló hefur verið dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir að falsa hatursorðræðu og sviðsetja hótanir gegn sjálfri sér. Konan er meðal annars dæmd fyrir að hafa krotað rasísk skilaboð á glugga íbúðarinnar þar sem hún býr og fyrir að kveikja eld fyrir utan heimili sitt. 9.12.2020 22:53
Skattamál Hunters Biden til rannsóknar Saksóknari í Delaware fer nú fyrir rannsókn á skattamálum Hunters Biden, sonar Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseta. Sjálfur segist Hunter Biden líta rannsóknina „mjög alvarlegum“ augum en kveðst fullviss um að „hlutlaus úttekt“ muni leiða í ljós að hann hafi staðið skil á sköttum og gjöldum „samkvæmt lögum og með viðeigandi hætti,“ að því er fram kemur í frétt BBC nú í kvöld. 9.12.2020 21:46
Tölvuþrjótar stálu gögnum um bóluefni Pfizer Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hefur orðið fyrir netaárás og hefur gögnum sem tengjast Covid-19 bóluefni verið stolið. 9.12.2020 21:02
Svartsýni ríkir í Brussel Ólíklegt virðist að Bretar nái saman við Evrópusambandið um viðskiptasamning fyrir árslok en þá renna núgildandi samningar út í kjölfar ákvörðunar Breta um að ganga út úr sambandinu. 9.12.2020 16:39
Mæla gegn bólusetningu þeirra sem þjást af alvarlegum ofnæmum Bresk lyfjaeftirlitsyfirvöld hafa varað einstaklinga sem þjást af alvarlegum ofnæmum frá bólusetningu með bóluefni Pfizer og BioNTech gegn Covid-19. 9.12.2020 15:03
Meintur njósnari sængaði hjá minnst tveimur borgarstjórum Kínversk kona, sem grunuð um að vera njósnari á vegum leyniþjónustu ríkisins, sængaði hjá minnst tveimur bandarískum borgarstjórum og myndaði tengsl við aðra stjórnmálamenn á vesturströnd Bandaríkjanna á árunum 2011 til 2015. 9.12.2020 14:53
Gjörgæsluplássin nær öll í notkun á sjúkrahúsum í Stokkhólmi Ástandið á sjúkrahúsum í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi er mjög alvarlegt og segir forstjóri heilbrigðisþjónustunnar þar að þörf sé á frekari aðstoð. 99 prósent sjúkrahúsplássa á gjörgæsludeildum sjúkrahúsa borgarinnar eru nú í notkun og er það í fyrsta sinn frá upphafi faraldursins sem hlutfallið er svo hátt. 9.12.2020 14:11
Kórónuveiran, WAP og Tom Hanks toppa vinsældalista Google Kórónuveiran trónir á toppi Google yfir þau orð sem mest var leitað að árið 2020 en í öðru sæti voru „kosningaúrslit“, Kobe Bryant, Zoom og IPL, sem skilar niðurstöðum um indversku úrvalsdeildina í krikket. 9.12.2020 14:10
Merkel kallar eftir hertum sóttvörnum Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir hertum sóttvarnaraðgerðum í Þýskalandi í aðdraganda jólanna. Í ræðu á þýska þinginu í morgun lýsti Merkel yfir stuðningi við tillögur sóttvarnalæknis Þýskalands sem fela meðal annars í sér að loka verslunum strax eftir jól, að sem flestir vinni að heiman og að jólafrí skóla verði lengd, svo eitthvað sé nefnt. 9.12.2020 13:36
Þingmenn sjá ekki hag í því að standa upp í hárinu á Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins ætla sér ekki að viðurkenna sigur Joe Bidens í forsetakosningunum fyrr en í næsta mánuði og jafnvel ekki fyrr en eftir að hann tekur embætti. 9.12.2020 10:52
Hættu við tilraunaskot á síðustu stundu Hætt var við tilraunaskot nýs geimfars fyrirtækisins SpaceX á síðustu stundu í gær. Sjálfvirkur skynjari í einni af eldflaugum geimskipsins stöðvaði geimskotið einungis rúmri sekúndu áður en það átti að hefjast. 9.12.2020 08:31
Fimm látnir eftir þyrluslys í Frakklandi Fimm fórust þegar þyrla hrapaði til jarðar nærri bænum Bonvillard í Savoja-héraði í frönsku Ölpunum í gær. Einn komst lífs af úr slysinu, en hann er á sjúkrahúsi og ástandið sagt alvarlegt. 9.12.2020 08:01
Reyna að ná samningi yfir kvöldverði í Brussel Boris Johnson forsætisráðherra Breta mun síðar í dag fljúga til Brussel í Belgíu til fundar við Ursulu von der Leyen forseta framvkæmdastjórnar Evrópusambandsins. 9.12.2020 06:58
Hæstiréttur hafnar því að ógilda atkvæði í Pennsylvaníu Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað beiðni um að koma í veg fyrir að Pennsylvanía, sem var eitt af lykilríkjunum sem færðu Joe Biden sigur í bandarísku forsetakosningunum í síðasta mánuði, muni staðfesta sigur Bidens. 8.12.2020 23:35
Stefnir á að bólusetja 100 milljónir á sínum fyrstu 100 dögum í embætti Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, stefnir á að 100 milljón Bandaríkjamenn verði bólusettir fyrir kórónuveirunni á fyrstu hundrað dögum hans í embætti. 8.12.2020 22:46
Boris Johnson fer til Brussel vegna Brexit Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fer til Brussel á morgun til þess að funda með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, um Brexit. 8.12.2020 21:25
Fjórtán reknir úr bandaríska hernum eftir dauða Guillen Bandaríski herinn hefur ákveðið að reka eða víkja fjórtán hermönnum frá Fort Hood herstöðinni frá störfum. Um er að ræða bæði yfirmenn í hernum og lægra setta hermenn. Að sögn hersins hafa þeir verið reknir vegna ítrekaðs ofbeldis, þar á meðal morða og kynferðisbrota, á stöðinni. 8.12.2020 20:54
Húsleit gerð hjá fyrrum starfsmanni sem sakaði ráðuneytið um að falsa veirutölur Lögreglan í Flórídaríki í Bandaríkjunum gerði í dag húsleit hjá tölfræðingnum Rebekuh Jones, en hún kom að gerð gagnagrunns sem heldur utan um framgang kórónuveirufaraldursins í ríkinu. 8.12.2020 19:10
Virknin 70% en skammtastærðinni mögulega breytt Bóluefni AstraZeneca og vísindamanna við Oxford-háskóla hefur 70% virkni ef horft er til heildarniðurstaða prófana. Virknin reyndist 90% hjá litlum hluta þátttakenda sem fékk óvart ranga skammtastærð en hjá meirihlutanum reyndist virknin 62%. 8.12.2020 16:59
Fjarskiptabúnaði stolið úr rússneskri „dómsdagsvél“ Þjófum tókst að brjótast inn í herflugvél á flugvelli í Rostov-héraði í Rússlandi fyrir helgi, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema um var að ræða eina af fjórum „dómsdagsvélum“ rússneska hersins. 8.12.2020 16:11
Segja Tarrant hafa misheppnast ætlunarverk sitt með árásinni í Christchurch Þrátt fyrir að nefnd sem rannsakað hefur hina mannskæðu hryðjuverkaárás í Christchurch í Nýja-Sjálandi, hafi fundið galla á reglugerðum og áherslu, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hið opinbera hefði ekki getað komið í veg fyrir árásina ef þessir gallar og önnur mistök hefðu ekki verið til staðar. 8.12.2020 15:31
Pfizer-bóluefnið virðist veita góða vörn eftir fyrsta skammt Fyrstu athuganir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna á virkni bóluefnis Pfizer benda til þess að það veiti góða vörn gegn kórónuveirunni á innan við tíu dögum frá fyrsta skammti. 8.12.2020 14:07
Ætla að skjóta stærðarinnar geimskipi í tólf kílómetra hæð og lenda því aftur Starfsmenn SpaceX stefna að því að taka stórt skref í dag með því að skjóta nýrri frumgerð af geimskipinu Starship í um tólf kílómetra hæð og lenda því aftur. Til stendur að skjóta geimskipinu á loft frá Texas, þar sem Starship hefur verið til þróunar. 8.12.2020 12:57
Biður grænlensku börnin afsökunar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið 22 Grænlendinga, sem voru sem börn teknir af fjölskyldum sínum og fluttir nauðugir til Danmerkur árið 1951, opinberlega afsökunar. 8.12.2020 12:36
Dularfull veikindi á Indlandi ekki útskýrð enn Rúmlega 500 hafa nú verið lagðir inn á sjúkrahús vegna dularfullra veikinda í Andhra Pradesh á Indlandi. Minnst einn hefur dáið en á fjögur hundruð hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. 8.12.2020 10:58
Fjörutíu ár liðin frá andláti Johns Lennon Fjörutíu ár eru í dag liðin frá því John Lennon var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York í Bandaríkjunum. Hann hefur því verið látinn jafn lengi og hann lifði en hann varð fertugur hinn 9. október 1980. 8.12.2020 10:33
Opinber hæð Everest hækkar um nærri metra Kínversk og nepölsk yfirvöld hafa náð samkomulagi um opinbera hæð Everest, hæsta fjalls í heimi. Opinber hæð fjallsins er nú 8.848,86 metrar. 8.12.2020 09:17
Fyrsti maðurinn til að rjúfa hljóðmúrinn fallinn frá Bandaríski flugmaðurinn Chuck Yeager, sem var fyrsti maðurinn til að rjúfa hljóðmúrinn, er látinn 97 ára að aldri. Eiginkona Yeager, Victoria Yeager, greindi frá andlátinu á Twitter. 8.12.2020 08:27
Níræð kona í Coventry sú fyrsta sem er bólusett gegn Covid-19 Hin níræða Margaret Keenan varð í dag fyrsta manneskjan til þess að vera bólusett gegn Covid-19 í skipulagðri bólusetningu fyrir almenning. 8.12.2020 08:20
Vill Austin sem varnarmálaráðherra Joe Biden hefur valið herforingjann fyrrverandi, Lloyd Austin, til að gegna embætti varnarmálaráðherra í ríkisstjórn sinni. Frá þessu greina bandarískir fjölmiðlar þó að hvorki Biden né Austin hafi enn staðfest fréttirnar. 8.12.2020 08:11
Mæla ekki með landamæraskimun þar sem veiran er útbreidd Sóttvarnastofnun Evrópu mælir gegn því að ráðamenn í Evrópu beiti sóttkví og skimun á landamærum fyrir flugfarþega í löndum þar sem kórónuveiran er útbreidd og í núverandi faraldsfræðilegu ástandi. 8.12.2020 07:44
Bretar hefja bólusetningu gegn Covid-19 Bretar hefjast handa við það í dag, fyrstir þjóða, að bólusetja þjóðina gegn kórónuveiru. Um sjötíu spítalar í landinu eru nú í startholunum. 8.12.2020 06:36
Flýgur til Brussel eftir að 90 mínútna símtal skilaði engu Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands mun fljúga til Brussel í vikunni til fundar við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, í von um að viðskiptasamningar náist. Johnson og von der Leyen ræddu saman í 90 mínútur í síma í kvöld en án árangurs. 7.12.2020 23:16
Kristján Danaprins smitaður af veirunni Kristján Danaprins greindist með kórónuveiruna í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni. 7.12.2020 19:08
Segir Fakhrizadeh hafa verið skotinn af gervigreind með fjarstýrðri vélbyssu Ráðamenn í Íran segja að kjarnorkuvísindamaðurinn Mohsen Fakhrizadeh hafi verið skotinn til bana með fjarstýrði vélbyssu. Fjölmiðill í Íran hefur eftir herforingjanum Ali Fadavi að vélbyssunni hafi verið stýrt með gerivgreind. 7.12.2020 15:26
Drykkjafyrirtækin mestu plastsóðarnir en einnota plastbréf stærsta vandamálið Fyrirtækin Coca-Cola, PepsiCo og Nestlé hafa verið útnefnd verstu plastsóðar heims þriðja árið í röð og sökuð um að hafa gert lítið til að bæta ráð sitt. 7.12.2020 14:58
Jafnaðarmenn stærstir en áframhaldandi stjórn Orban líklegust Jafnaðarmannaflokkurinn, sem hefur verið í stjórnarandstöðu, fékk flest atkvæði í rúmensku þingkosningunum sem fram fóru um helgina. 7.12.2020 14:15
Bretar mæla gegn bólusetningu ef þungun er fyrirhuguð innan þriggja mánaða Engar rannsóknaniðurstöður liggja fyrir um öryggi bóluefna gegn Covid-19 hjá þunguðum konum og því hafa bresk heilbrigðisyfirvöld ákveðið að bólusetja ekki þann hóp. 7.12.2020 13:25
Trump-liðar reyna að troða sem flestum málum í gegn fyrir embættistöku Bidens Ráðgjafar Donald Trumps, forseta, og starfsmenn Hvíta hússins segja hann virðast þungan á brún og að hann hafi engan áhuga á vinnunni. Það er þrátt fyrir að faraldur nýju kórónuveirunnar hafi náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum. 7.12.2020 12:56
Ákærður fyrir morð á finnskri ferju fyrir 33 árum Lögregla í Finnlandi hefur ákært danskan karlmann vegna morðs sem framið var um borð í ferjunni Viking Sally árið 1987. 7.12.2020 10:51
Minnst 300 lagðir inn vegna dularfullra veikinda á Indlandi Minnst einn hefur dáið og minnst 300 hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna dularfullra veikinda sem herja á íbúa borgarinnar Eluru, í Andhra Pradesh á Indlandi. Einkenni þeirra sem hafa veikst eru margvísleg og hafa þar verið nefnd meðvitundarleysi, slög og ógleði. 7.12.2020 10:42
Veitingastaðir og barir loki og elstu grunnskólabörnin send heim Danska ríkisstjórnin kynnir hertar takmarkanir sem ætlað er að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar á fréttamannafundi klukkan 11 að íslenskum tíma. Heimildir danskra fjölmiðla herma að aðgerðirnar snúist meðal annars um að senda öll grunnskólabörn í 5. bekk og á eldri stigum. Þá verði öllum veitingastöðum, börum, kvikmyndahúsum og leikhúsum gert að loka. 7.12.2020 09:11
Barr ekki lengur í náðinni og sagður íhuga að hætta William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, íhugar að hætta sem ráðherra, áður en kjörtímabild Donald Trumps, forseta, rennur út í næsta mánuði. Trump brást mjög reiður við þegar Barr sagði nýverið í viðtali að starfsmenn ráðuneytisins hefðu ekki fundið neinar sannanir fyrir þeim umfangsmiklu kosningasvikum sem forsetinn segir að hafa kostað sig sigur í kosningunum í síðasta mánuði. 7.12.2020 09:00
Ná loks saman um opinbera hæð Everest Stjórnvöld í Kína og Nepal hafa lengi verið ósammála um hæð Everest-fjalls, hæsta fjalls heims, sem er að finna á landamærum ríkjanna. Samkomulag hefur hins vegar nú náðst milli ríkjanna um opinbera hæð fjallsins. 7.12.2020 08:22
Segja Maduro hafa unnið þingmeirihluta í umdeildum kosningum Kjörstjórn í Venesúela segir að frambjóðendur sem styðja Nicolás Maduro, forseta, hafi fengið 67,6% atkvæða í þingkosningum sem voru haldnar í gær. Stærsta kosningabandalag stjórnarandstöðuflokkanna tók ekki þátt í kosningunum þar sem það taldi brögð í tafli. 7.12.2020 08:18