Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vírus sem drepur krabbamein - Lækning sett á ís Ódýr og fljótvirk meðferð við krabbameini er nú geymd í frystikistu sænska erfðafræðingsins Magnus Essand í háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum. Tilraunir á músum hafa gengið vonum framar. Því miður er ólíklegt að rannsóknir á mönnum hefjist á næstu árum. 4.9.2012 12:26
Hugsanlegt að lík sem fannst sé af Sigrid Ekki er útilokað að lík sem fundist hefur í Noregi sé af hinni sextán ára gömlu Sigrid Schjetne, sem leitað hefur verið að í um mánuð. Líkið fannst á bak í skógi á bakvið bensínstöð við Kolbotn. Lögreglan segir að á þessari stundu sé ekkert hægt að segja um kyn eða aldur þess sem líkið er af. 4.9.2012 10:24
Lífrænt ræktuð matvæli ekki hollari en þau hefðbundnu Ný samantekt á vegum vísindamanna við Stanford háskólann sýnir að lífrænt ræktuð matvæli eru ekki hollari mönnum en þau hefðbundnu. 4.9.2012 07:04
Kókaíndrottning Kólombíu skotin til bana í Medellin Griselda Blanco sem kölluð hefur verið kókaíndrottning Kólombíu var skotin til bana á götu úti í borginni Medellin í gærdag. 4.9.2012 06:50
Draugaskip vekur athygli í Bandaríkjunum Brakið úr gömlu strönduðu skipi undan strönd Alabama í Bandaríkjunum hefur vakið töluverða athygli en Bandaríkjamenn kalla þetta skip núna draugaskipið. 4.9.2012 06:36
Norska lögreglan boðar til blaðamannafundar vegna líkfundar Norska lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar vegna líkfundar í úthverfi Oslóar í gærkvöld. Nú eftir hádegið í dag var ekki orðið ljóst hvort umrætt lík er af Sigrid Schjetne sem saknað hefur verið frá því í byrjun ágúst. Jørn Kristian Jørgensen, hjá samskiptamiðstöð norsku lögreglunnar, segir að í dag muni fara fram vinna við að bera kennsl á líkið. 4.9.2012 14:30
Portúgalir biðja ESB um aðstoð vegna skógarelda Stjórnvöld í Portúgal hafa farið fram á aðstoð Evrópusambandsins vegna mikilla skógarelda sem geisa í mið- og norðurhluta landsins. 4.9.2012 06:45
Fleiri námuverkamenn urðu fyrir skotum lögreglu Fjórir námuverkamenn í Suður-Afríku særðust í gær þegar lögregla beitti bæði táragasi og gúmmískotum. Einn þeirra er alvarlega særður. 4.9.2012 03:00
Telur verkið nánast ómögulegt Sýrlenski herinn varpaði í gær sprengjum á bæinn al Bab, sem er skammt frá tyrknesku landamærunum. Árásirnar kostuðu að minnsta kosti 19 manns lífið. Átökin í landinu hafa kostað meira en 23 þúsund manns lífið frá því þau hófust snemma á síðasta ári. 4.9.2012 02:00
Harry grínast með sundlaugarpartíið Harry Bretaprins tekur sjálfan sig augljóslega ekki of hátíðlega því þegar hann kom í dag fram opinberlega í fyrsta sinn síðan myndir af honum berum í sundlaugarpartíi í Las Vegas fóru eins og eldur í sinu um fjölmiðla heimsins gerði hann grín að uppátækinu. 3.9.2012 21:28
Skógareldar við Los Angeles Slökkviliðsmenn í Los Angeles í Bandaríkjunum berjast nú við mikla skógarelda sem blossuðu upp í gær. Rúmlega 1.600 hektara svæði hefur orðið eldi að bráð en slökkviliðsmönnum hefur aðeins tekist að hemja um fimm prósent eldanna. 3.9.2012 16:27
Facebook-morðingi í ársfangelsi Fimmtán ára gamall piltur í Hollandi hefur verið dæmdur til eins árs betrunarvistar fyrir að hafa orðið 14 ára stúlku að bana. Aðdraganda morðsins má rekja til rifrildis á samskiptamiðlinum Facebook. 3.9.2012 15:22
Klettamyndanir á botni Eystrasaltsins - ekki geimskip Fyrirbærið sem hafrannsóknarmenn fundu á botni Eystrasaltsins í maí árið 2011 hefur heillað marga. Sumir halda því fram að aldagamalt geimskip liggi þar á hafsbotni meðan aðrir telja hlutinn vera leynivopn nasista frá seinni heimsstyrjöld. Hluturinn, sem er disklaga, er á stærð við Boeing 747 breiðþotu. 3.9.2012 14:52
Lést í sjóslysi á leið frá Íslandi Tæplega sjötugur karlmaður lést eftir að hann féll af skútu sinni vestur af strönd Nýfundnalands á laugardag. Maðurinn, sem var skurðlæknir og prófessor við Harvard háskóla, var á siglingu frá Íslandi til Bandaríkjanna þegar slysið varð, að því er fram kemur á vef CBC fréttastofunnar. Stormur og mikill öldugangur var þegar slysið varð. Fjölskylda mannsins, sem hét Ned Cabot, segir að hann hafi verið vanur siglingamaður og hafi oft ferðast milli Norður Ameríku og Evrópu og hafi þekkt strendur Nýfundnalands og Labrador mjög vel. 3.9.2012 14:01
Russell Crowe bjargað af strandgæslunni Strandgæsla Bandaríkjanna kom Íslandsvininum Russell Crowe til bjargar um helgina. Leikarinn var á kajaksiglingu ásamt félaga sínum við Long Island í New York þegar þeir villtust af leið. 3.9.2012 13:48
Átök harðna í Sýrlandi Að koma á friði milli stríðandi fylkinga í Sýrlandi er gífurlega erfitt verkefni. Þetta segir Lakhdar Brahimi, nýr erindreki Sameinuðu Þjóðanna og Arabandalagsins í Sýrlandi. Hann heimsækir landið á næstu dögum mun þá reyna að miðla málum milli uppreisnarmanna og stjórnvalda í Sýrlandi. 3.9.2012 13:09
Bruce Willis íhugar málshöfðun gegn Apple Bandaríski stórleikarinn Bruce Willis íhugar nú að höfða mál á hendur tæknirisanum Apple og vefversluninni iTunes. Willis, sem er mikill tónlistarunnandi, krefst þess að hann fái að ánafna fjölskyldu sinni tónlistarsafni sínu þegar hann geispar loks golunni. 3.9.2012 11:23
Harry Bretaprins og súludansmeyjan í Las Vegas Enn eru að berast fréttir úr hinni villtu veislu Harry Bretaprins á lúxushóteli í Las Vegas nýlega. Nú hefur rúmlega þrítug súludansmey stigið fram og segir að hún hafi eytt 15 til 20 mínutum með Harry í svefnherbergi hans á hótelinu. 3.9.2012 10:27
Ritstjóri Ekstra Bladet segist standa einn í forinni Poul Madsen aðalritstjóri Ekstra Bladet í Danmörku viðurkennir að blaðið hafi gert mistök í að birta upplýsingarnar um skattamál Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra landsins. 3.9.2012 07:21
Sviku loforð um að frysta eignir Mubaraksfjölskyldunnar Bresk stjórnvöld hafa svikið loforð sín um að frysta eigur Mubarak fyrrum forseta Egyptalands og fjölskyldu hans í Bretlandi. 3.9.2012 07:16
Sun Myung Moon er látinn Sun Myung Moon leiðtogi Einingarkirkjunnar í Suður Kóreu er látinn 92 ára að aldri. Banamein hans var lungnabólga. 3.9.2012 07:13
Nýr sendifulltrúi í Sýrlandi segir verkefni sitt nær ómögulegt Lakhdar Brahimi hinn nýi sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi segir að verkefni sitt sé nánast ómögulegt. 3.9.2012 07:11
Grindhvölum bjargað af skoskri strönd Mikill fjöldi fólks fylgdist með björgun grindhvala við austurströnd Skotlands í gærdag. 3.9.2012 07:00
Handtóku þekktan ungverskan glæpaforingja á Spáni Spænska lögreglan segir að hún hafi handtekið hinn rúmlega fertuga Robert Magyar leiðtoga ungversku glæpasamtakanna Fekete Sereg eða Svarta hersins. 3.9.2012 06:53
Það gerist varla krúttlegra - tvíburar slá í gegn á netinu Þessi ellefu mánaða gömlu tvíburar eru aðeins of krúttlegir. Myndskeið af þeim dansa við gítarspila föður síns tröllríður nú internetinu. Yfir sjö milljónir hafa horft á þá á tæplega mánuði. Sjón er sögu ríkari, eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði. 2.9.2012 13:58
Ekki verið að kjósa um aðskilnað ríkis og kirkju Ekki er verið að kjósa um aðskilnað ríkis og kirkju í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, segir lögfræðimenntaður stjórnlagaráðsmaður. Ef meirihluti kjósenda vill ákvæði um þjóðkirkju úr stjórnarskrá, þýðir það einfaldlega að kirkjan missir stjórnarskrárvernd sína. 2.9.2012 19:15
Fá að snúa aftur heim Um fjögur þúsund íbuar í bænum Marbella á Costa Del Sol, sem flúðu heimili sín vegna mikilla skógarelda í síðustu viku, hafa nú snúið aftur til síns heima. Slökkviliðsmenn náðu töku um á eldinum í gær en eldur logaði á tólf kílómetrasvæði. Miklir þurrkar hafa verið á svæðinu undanfarnar vikur og hefur hitinn verið gríðarlega. Um fjögur hundruð slökkviliðsmenn hafa barist við eldana með flugvélum og þyrlum síðustu vikur. 2.9.2012 17:27
Ákærurnar felldar niður Saksóknarar í Suður-Afríku hafa fellt niður ákærur á hendur tvö hundruð og sjötíu námuverkamönnum í landinu. Mennirnir voru ákærðir á dögunum fyrir að bera ábyrgð á dauða þrjátíu og fjögurra samstarfsfélaga sinna sem lögreglan skaut til bana um miðjan mánuðinn. 2.9.2012 15:29
Stofnandi Pirate Bay handtekinn í Kambódíu Gottfrid Svartholm, einn af stofnendum skráarsíðunnar Pirate Bay, var handtekinn í Kambódíu á dögunum. Alþjóðleg handtökuskipun var gefin út á hendur honum í apríl síðastliðnum. 2.9.2012 14:16
Draga ætti Bush og Blair fyrir Alþjóðaglæpadómstólinn Draga ætti Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Brertlands, og George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag vegna innrásar Breta og Bandaríkjamanna í Írak. 2.9.2012 10:35
Engin mótmæli vegna Ísaks Vegna fellibylsins Ísaks urðu mótmælin sem skipulögð voru fyrir utan landsþing Repúblikanaflokksins í Tampa í Flórída aldrei að veruleika. Á landsþingi Demókrataflokksins í Charlotte sem hefst í þessari viku er hins vegar búist við miklum mótmælum. 2.9.2012 10:33
Bílsprengja í Damaskus Fimmtán létust þegar bílsprengja sprakk í nágrenni við palestínskar flóttamannabúðir í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, seint í gærkvöldi. Nokkrir eru særðir eftir sprenginguna en hún olli miklum skemmdum á byggingum. Ríkisfréttastöð landsins segir vopnaða hryðjuverkamenn hafa verið að verki og vísar þar til andstæðinga Bashar Assad Sýrlandsforseta. 2.9.2012 10:29
Handtekin fjórum sinnum eftir að hafa hlustað á AC/DC Bandarísk kona var handtekin fjórum sinnum á rúmlega sólarhring eftir að mikill hávaði barst frá íbúð hennar í bænum Epping í New Hampshire á dögunum. Það var ekki vegna partýhalda sem lögreglan var kölluð á heimili hennar heldur var konan, sem heitir Joyce Coffey, að hlusta á lagið Highway To Hell með hljómsveitinni AC/DC í öll skiptin. Eftir þrjár heimsóknir handtók lögreglan hana en sleppti henni fljótlega. Stuttu síðar barst tilkynning um að nú væru lög með hljómsveitinni Guns N' Roses byrjuð að hljóma. Hún var svo handtekin eftir að frændi hennar reyndi að nálgast eigur sínar í íbúðinni en var laminn með pönnu í höfuðið. Hún var þá handtekin. Coffey ku hafa verið undir áhrifum áfengis. Dómari ráðlagði henni að nota heyrnatól næst þegar hún hlustaði á rokkið. Málið hennar verður tekið fyrir 15. október næstkomandi. 1.9.2012 14:17
Mun ræða Clint Eastwood hjálpa Mitt Romney? Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum velta því nú fyrir sér hvernig ræða leikstjórans Clint Eastwood, á flokksþingi Repúblikana á dögunum, falli í kramið hjá kjósendum. 1.9.2012 11:31
Harður árekstur strætisvagna Að minnsta kosti tuttugu og níu létust þegar tveir strætisvagnar skullu saman á þjóðvegi í norðausturhluta Nígeríu í gærkvöldi. Eldur kom upp í strætisvögnunum og brunnu margir farþeganna inni. Þjóðvegir í Nígeríu eru á meðal þeirra hættulegustu í heimi, samkvæmt alþjóðlegu heilbrigðisstofnuninni. Lögreglan rannsakar nú áreksturinn, en ekki hefur verið hægt að bera kennsl á alla þá látnu. 1.9.2012 14:38
Ekkert mark tekið á Berezovskíj í London "Mér þykir fyrir því að segja það en niðurstaða greiningar minnar á trúverðugleika herra Berezovskíjs er að hann myndi segja nánast hvað sem er til að styðja mál sitt,“ sagði Elizabeth Gloster, dómari í London, þegar hún kvað upp dóm í deilumáli tveggja rússneskra auðkýfinga. 1.9.2012 01:00
25 milljónir manna án atvinnu Atvinnuleysi eykst lítillega í ríkjum Evrópusambandsins, samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu Evrópusambandsins. Rúmlega 25 milljónir manna voru án atvinnu í júlí. 1.9.2012 00:00