Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 4-1 | Öruggur sigur Þórs/KA gegn lánlausi liði Víkings Hjörvar Ólafsson skrifar 21. júní 2025 18:54 Þróttur R. - Þór/
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Þór Akureyri KA
Þór/KA vann sannfærandi 4-1 sigur á móti Víkingi í leik liðanna í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í Boganum á Akureyri í dag. Þór/KA kom sér þar af leiðandi aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð í deildinni gegn toppliðunum tveimur. Sandra María Jessen fékk gott skallafæri eftir góða fyrirgjöf frá Amalíu Árnadóttur en Sandra María Jessen hitti ekki markið. Sonja Björg Sigurðardóttir, framherji Þórs/KA, slapp svo í gegn þegar rúmlega stundarfjórðungur var liðinn af leiknum en Sveinbjörg Katla Sveinbjörndsóttir sá við henni. Freyja Stefánsdóttir var hins vegar aðgangshörðust í liði Víkings og komst í þau færi sem gestirnir sköpuðu sér í fyrri hálfleik án þess að ná að koma boltanum í netið. Agnes Birta Stefánsdóttir kom síðan Þór/KA með fyrsta deildarmarki sínu í sumar en þetta er alls þriðja mark hennar í deildinni í meistaraflokki. Agnes Birta skoraði með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu Karenar Maríu Sigurgeirsdóttur. Karen María var svo nálægt því að tvöfalda forystu norðankvenna þegar rúmlega hálftími var liðinn af leiknum. Sonja Björg skallaði þá boltann fyrir fætur Karenar Maríu sem skaut rétt framhjá. Dagný Rún Pétursdóttir jafnaði metin fyrir Víking með þriðja deildarmarki sínu í sumar. Dagný Rún fékk stungusendingu frá Lindu Líf Boama þegar stutt var eftir af fyrri hálfleiknum. Dagný Rún kláraði færið af yfirvegun og staðan 1-1 í hálfleik. Agnes Birta var var raunar nálægt því að ná forystunni fyrir Þór/KA á nýjan leik á lokaandartökum fyrri hálfleiks en aftur fann Karen María kollinn á Agnesi Birtu eftir fast leikatriði. Að þessu sinni hitti Agnes Birta hins vegar ekki rammann. Seinni hálfleikur var svo einungis hálfrar mínútu gamall þegar Amalía Árnadóttir endurheimti forskot Þórs/KA. Sandra María skallaði þá boltann í þverslána eftir fyrirgjöf Huldu Óskar Jónsdóttur. Amalía fylgdi eftir að skallaði boltann í netið. Amalía var að skora sitt annað deildarmark á þessari leiktíð. Sonja Björg kom svo Þór/KA í 3-1 eftir um það bil klukkutíma leik. Aftur var Sandra María í mixinu en Sonja Björg fylgdi eftir skoti Söndru Maríu sem Sveinbjörg Katla varði og setti boltann í netið. Sonja Björg hefur nú skorað tvö mörk í deildinni á þessu tímabili. Sandra María rak svo síðasta naglann í líkkistu Víkings með sjöunda deildarmarki sínu. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir fann Söndru Maríu á fjærstönginni og eftirleikurinn var næsta auðveldur fyrir markamaskínuna. Þór/KA hefur 18 stig í fjórða sæti deildarinnar eftir þennan sigur. Víkingur er aftur á móti í erfiðri stöðu með sjö stig í næstneðsta sæti. Tindastóll er í sætinu fyrir ofan fallsvæði deildarinnar með 10 stig. Fram undan er svo um mánaðar hlé á deildinni vegna þáttöku Íslands á Evrópumótinu í fótbolta kvenna. Atvik leiksins Þór/KA setti tóninn strax í byrjun seinni hálfleiks en ljóst er að Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari norðanliðsins, hefur náð að mótívera sína leikmenn hressilega fyrir átökin í seinni hluta leiksins. Stjörnur og skúrkar Karen María var iðin við að koma sér í færi og hornspyrna hennar skapaði markið sem heimakonur skoruðu. Sonja Björg hélt boltanum vel í framlínu Þórs/KA og kom boltanum vel frá sér. Sandra María heldur svo áfram að raða inn mörkum fyrir norðankonur. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Jovan Subic, Ásgeir Viktorsson, Svein Þórður Þórðarson og Sveinn Arnarsson gerðu sitt besta til þess að láta leikinn flæða og gripu svo vel inn í leikinn þegar þess þurfti. Dómarateymið fær átta í einkunn. Stemming og umgjörð Létt yfir fólki í hlýjunni í Boganum í kvöld. Þeir sem lögðu leið sína í Bogann fengu nóg fyrir peninginn. Fullt af mörkum, falleg tilþrif og harða baráttu.