Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Biður Merkel um lengri frest Angela Merkel Þýskalandskanslari ítrekaði í gær að hún teldi að Grikkland ætti ekki að yfirgefa evrusvæðið, þrátt fyrir alvarlegan skuldavanda sem hefur valdið evrusvæðinu öllu verulegu tjóni. 25.8.2012 07:00
Flóðhesturinn Solly drapst Flóðhesturinn Solly, sem hafði setið fastur í sundlaug í Limpopo í Suður-Afríku í þrjá daga, drapst í gær áður en björgunarsveitir gátu náð honum upp úr. 25.8.2012 02:00
Breivik reyndi að ávarpa öfgamenn Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Behring Breivik. Hann sjálfur ítrekar að hann viðurkenni ekki dómstólinn og neitar að áfrýja. Dómararnir telja litlar líkur á að hann verði hættuminni með árunum. 25.8.2012 00:15
Cecília tjáir sig um misheppnaðar endurbætur Gamlan konan í spænska smábænum Zaragoza, Cecilia Giménez að nafni, vakti heimsathygli á dögunum eftir að hún afskræmdi aldagamla fresku. Myndin er á kalkvegg í kirkju bæjarins. Cecilia, sem á níræðisaldri, ákvað að lífga upp á myndina enda var hún illa farin eftir rakaskemmdir. 24.8.2012 23:15
Leyndardómar Curiosity opinberaðir Verkfræðingar NASA hafa svipt hulunni af leyndardómum vitjeppans Curiosity sem nú dólar sér í auðninni á Mars. Nú hefur komið í ljós að Curiosty fékk vasapening með í för. 24.8.2012 22:30
Myrti fyrst yfirmanninn sinn Skotmaðurinn sem var skotinn til bana í New York í morgun, eftir að hafa myrt tvo og sært níu, skaut fyrst yfirmanninn sinn sem hafði rekið hann úr vinnu á síðasta ári.. Þetta kemur fram á fréttavef New York Post þar sem einnig er rætt við sjónarvotta og særða. 24.8.2012 15:16
Skotmaður drepinn - minnsta kosti tveir látnir Óður skotmaður virðist hafa skotið að minnsta kosti tíu einstaklinga fyrir utan Empire State bygginguna í New York samkvæmt fréttastofunni CNN. Meðal annars skaut maðurinn gangandi vegfaranda í höfuðið sem hann elti uppi. Óvopnaður öryggisvörður elti manninn þegar hann ætlaði að flýja af vettvangi. Síðar kom lögreglan og virðist hún hafa skotið manninn til dauða. 24.8.2012 14:12
Fimm skotnir við Empire state bygginguna Minnsta kosti fimm einstaklingar hafa verið skotnir fyrir utan Empire State bygginguna í New York en samkvæmt fréttastofunni CNN átti árásin sér stað fyrir um klukkan eitt í dag að íslenskum tíma, eða rúmlega níu um morguninn í New York. 24.8.2012 13:42
Erfiðum réttarhöldum lokið Skiptar skoðanir virðast vera á dómnum yfir Breivik í dag. Aðstandendur hafa margir hverjir fagnað niðurstöðunni og lýst yfir ánægju sinni með að málið hafi nú loks verið leitt til lykta. Aðrir eru þó á öðru máli og segja dóminn vera vægan. 24.8.2012 12:30
Grænfriðungar ganga um borð í olíuborpall Hópur grænfriðunga gekk um borð í rússneskan olíuborpall við Grænland í morgun. Borpallurinn er á vegum olíufélagsins Cairn Energy en hann hefur leitað að olíu við vesturströnd Grænlands undanfarið. 24.8.2012 10:00
Breivik sakhæfur - lífstíðar fangelsi Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur verið dæmdur sakhæfur og að hann hafi ekki verið haldinn geðrofi þegar hann framdi ódæðisverk sín á síðasta ári. Þetta tilkynnti dómari í máli hans í Ósló nú fyrir skömmu. 24.8.2012 08:07
Aldagömul ráðgáta leyst í Noregi Aldagömul ráðgáta verður leyst í Noreg í dag. Þá mun Kjell Volheim, safnvörður í Guðbrandsdal, opna böggul sem hefur verið lokaður í heila öld. Saga og dulúð pakkans hefur heillað Norðmenn um áraraðir en forsögu hans má rekja til Johans nokkurs Nygaard, fyrsta bæjarstjóra í Sel í Upplöndum. 24.8.2012 07:59
Reyndu að smygla sæhestum úr landi Lögreglan í Perú lagði hald á sextán þúsund þurrkaða sæhesta í nótt. Smyglarar höfðu reynt að koma þeim úr landi en talið er að farmurinn hafi verið á leið til Kína og Japan. 24.8.2012 07:16
Fundu gleymdar útrýmingarbúðir Hópur fornleifafræðinga hefur fundið sextíu og níu ára gamlar útrýmingarbúðir í austur-Póllandi. Nasistar jöfnuðu búðirnar við jörðu og reyndu að eyða öllum ummerkjum um þau voðaverk sem þar voru framin. 24.8.2012 07:14
Hitabeltisstormurinn Isaac nálgast Yfirvöld á Haiti og í Dómíníska lýðveldinu undirbúa sig nú fyrir komu hitabeltisstormsins Isaac. Óttast er að Isaac muni sækja í sig veðrið á næstu dögum og verði orðin að fellibyl þegar hann nálgast strendur landanna. 24.8.2012 06:33
Dómur yfir Breivik í dag Dómur verður kveðinn upp yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivk í dag. Búist er við fjölmenni við dómshúsið í miðborg Ósló en aðstandendur fórnarlamba Breiviks verða viðstaddir dómsuppkvaðninguna. 24.8.2012 06:29
Romney reynir að bjarga sér Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins, reynir nú að beina athygli kjósenda að efnahagsmálunum og lofar þremur milljónum nýrra starfa, meðal annars með því að heimila boranir eftir olíu á fleiri svæðum út af strönd Virginíu og Norður-Kaliforníu. 24.8.2012 04:00
Vill reyklausa Kaupmannahöfn Ný áætlun borgarstjórnar Kaupmannahafnar gerir ráð fyrir því að borgin verði svo gott sem reyklaus árið 2025, eftir þrettán ár. Tíu milljónir danskra króna hafa verið lagðar í verkefnið. 24.8.2012 03:00
Zuma hvetur til friðsemdar Meira en þúsund manns komu saman á minningarathöfn um 34 námuverkamenn, sem féllu fyrir hendi lögreglumanna í síðustu viku. 24.8.2012 02:00
Dómurinn kveðinn upp á morgun Spurningunni um sakhæfi norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik verður svarað á morgun. Breivik hefur ítrekað lýst því yfir að hann sé sakhæfur á meðan saksóknari í máli hans krefst þess að hann verði vistaður á geðdeild um ókomin ár. 23.8.2012 23:28
Mark David Chapman synjað um reynslulausn Skilorðsnefnd fangelsismálastofnunar í New York hafnaði í dag í sjöunda skiptið að sleppa Mark David Chapman lausum, en hann myrti tónlistarmanninn John Lennon í desember árið 1980. 23.8.2012 14:52
Sonur Gaddafis fyrir rétt í september Réttarhöld yfir Saif al-Islam Gaddafi, syni og erfingja fyrrverandi einræðisherra Líbíu, Mumars Gaddafi, fara fram í Líbíu í september. 23.8.2012 14:39
Svifhjólið úr Star Wars í prufukeyrslu Bandaríska tæknifyrirtækið Aeorfex hefur opinberað nýstárlegt svifhjól sem minnir óneitanlega á þau sem notuð voru í Stjörnustríðsmyndinni Return of the Jedi. 23.8.2012 13:53
Reknir af Ólympíuleikum fatlaðra Þremur Jórdönum sem áttu að keppa í kraftlyftingum á Ólympíuleikum fatlaðra í Lundúnum í næstu viku hefur verið meinuð þátttaka vegna meintra kynferðisafbrota. Tveir mannanna eru grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn börnum. 23.8.2012 11:33
Réttarhöldum í Guantanamo frestað vegna fellibyls Hitabeltisstormurinn Isaac, sem gengur nú fyrir karabískahafið, verður líklega orðinn að fellibyl síðdegis í dag. Þetta er mat veðurfræðinga við veðurathuganarstöð Flórída-ríkis í Bandaríkjunum. 23.8.2012 09:08
Sofnaði um borð og lenti sama stað aftur Frönsk kona sem ætlaði að halda heim á leið eftir frí í Pakistan sofnaði um borð í flugvélinni. Það sem gerðist í kjölfarið er lyginni líkast. 23.8.2012 07:09
Amnesty: Óbreyttir borgarar skotmörk í Aleppo Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa birt skýrslu um átökin í Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands. Uppreisnarmenn og öryggissveitir yfirvalda hafa barist um yfirráð yfir borginni í rúman mánuð en Aleppo er sögð gegna veigamiklu hernaðarlegu hlutverki og gæti ráðið úrslitum um niðurstöðu stjórnarbyltingarinnar í Sýrlandi. 23.8.2012 00:00
Ætlar að selja líf sitt á eBay Tuttugu og níu ára kaupsýslumaður frá Tampa Bay í Flórída hefur sett líf sitt til sölu á uppboðsvefnum eBay. 23.8.2012 08:31
Ísmagn í Norður-Íshafi aldrei minna Ísmagn við norðurheimskautið mun ná sögulegu lágmarki í lok mánaðarins samkvæmt mælingum Cryosat-gervihnattar ESA, evrópsku geimferðastofnunarinnar. 23.8.2012 00:15
Ferðamenn fórust í flugslysi Tveir kenískir flugmenn og tveir þýskir ferðamenn fórust þegar lítil flugvél fórst í grennd við Masai Mara-garðinn í Kenýa í gær. Ellefu farþegar voru um borð í vélinni, fimm Þjóðverjar, fjórir bandaríkjamenn og tveir tjékkar, að því er AFP-fréttastofan greinir frá. Þrír eru alvarlega slasaðir. Vélin var á leið með ferðamennina á einn vinsælasta ferðamannastað Afríku. Ekki er vitað hvað olli slysinu, en vélin hrapaði stuttu eftir flugtak. 23.8.2012 07:26
Nina Bawden látin Rithöfundurinn Nina Bawden er látin áttatíu og sjö ára að aldri en hún er hvað þekktust fyrir skáldsöguna Carrie's War. Bókin náði miklum vinsældum á áttunda áratugnum en hún fjallaði um flótta hennar úr síðari heimstyrjöldinni til suður-Wales. Hún skrifaði yfir fimmtíu bækur fyrir fullorðna og börn. Fyrir tíu árum lenti hún í lestarslysi þar sem eiginmaður hennar lést. Samkvæmt fréttavef BBC lést Bawden á heimili sínu í Lundúnum í gærkvöldi, umvafin fjölskyldu og ástvinum. 23.8.2012 07:24
Tortryggni sem jókst stig af stigi Vantrú Julians Assange á sænsku réttarfari kemur mörgum undarlega fyrir sjónir, en á sér engu að síður aðdraganda og ástæður. Kristinn Hrafnsson segir málið aldrei hætta að koma sér á óvart. 23.8.2012 07:00
Verkföll í fleiri námum í S-Afríku Verkföll suður-afrískra námuverkamanna hafa breiðst út með því að verkamenn í tveimur námum til viðbótar kalla eftir hærri launum. Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, heimsótti í gær námu þar sem lögregla skaut 34 og særði 78 þann 16. ágúst. 23.8.2012 03:00
Curiosity rúntar um yfirborð Mars Vitjeppinn Curiosity fór í sínu fyrstu ökuferð um Mars í dag. Rúnturinn var þó stuttur og tók aðeins sextán mínútur. Síðustu daga hefur Curiosity farið yfir hugbúnað og tækjakost sinn. Fyrr í vikunni notaði hann ChemCam greiningartólið í fyrsta sinn en það rýnir í berg rauðu plánetunnar með leysigeisla. 22.8.2012 23:38
Velviljuð kona eyðilagði aldagamla fresku Níræðri konu í smábænum Zaragoza á Spáni tókst að eyðileggja mikil menningarverðmæti á dögunum. Íbúar Zaragoza syrgja nú 120 ára gamla fresku í kirkju bæjarins. Sú gamla ákvað að lífga upp á myndina, viðgerðin gekk þó ekki sem skildi. 22.8.2012 22:47
Madeline prjónaði sex þúsund ungbarnahúfur Hin 89 ára gamla Madeline Umhoefer er orðin að hálfgerðri goðsögn í heimabæ sínum í Bandaríkjunum. Hún var á unglingsaldri þegar hún lærði að prjóna. Síðan þá hefur hún prjónað ungbarnahúfur af miklum móð. 22.8.2012 20:45
Lygilegt langlífi systkina - 818 ára gömul Elstu systkini í heimi eru samanlagt yfir 800 ára gömul og búa þau á eyjunni Sardiníu. 22.8.2012 10:46
Sárasótt skekur klámmyndaiðnaðinn Bandarískt fyrirtæki sem sér um dreifingu á fullorðinsmyndum tilkynnti í gær að framleiðsla á slíkum myndum í Los Angeles yrði hætt tímabundið eftir að einn leikaranna greindist með sárasótt, en það er sjúkdómur sem getur blossað upp eftir að fólk gamnar sér saman. 22.8.2012 08:27
Hákarlar syntu í kringum ömmuna Hin sextíu og þriggja ára Diana Nyad þurfti að játa sig sigraða í gærkvöldi þegar hún reyndi að synda frá Kúbu til Bandaríkjanna eftir að hún var stungin af marglyttu. Auk þess voru nokkrir hákarlar farnir að hringsóla í kringum hana. 22.8.2012 07:12
Skilnaðurinn genginn í gegn Skilnaður Tom Cruise og Katie Holmes er genginn í gegn lögformlega, eftir því sem E! sjónvarpsstöðin greindi frá í gærkvöld. Sjónvarpsstöðin hafði eftir heimildarmanni sem var náinn vinur Cruise að hann væri mjög ánægður og honum væri létt yfir því að nú gæti hann horft fram á veginn. Hann myndi leggja allt kapp á að standa sig í föðurhlutverkinu. 22.8.2012 07:10
Stuðningsmenn Romney gætu verið í hættu Hætta getur stafað af hitabeltisstorminum Isaac, sem nú er að myndast á karabískahafinu, fyrir Flórída-ríki í Bandaríkjunum í næstu viku. Samkvæmt mælingum veðurfræðinga verður stormurinn orðinn að fellibyl á næstu dögum. 22.8.2012 06:56
Hótaði að drepa Obama Bandaríska leyniþjónustan handtók rúmlega þrítugan karlmann í borginni Seattle í gær sem er grunaður um að hafa hótað Barack Obama, bandaríkjaforseta, lífláti í tölvupósti á dögunum. 22.8.2012 06:50
Einbirnum hættara við ofþyngd Börn sem ekki eiga systkini eru í helmingi meiri hættu en önnur börn á að verða feit. Þetta eru niðurstöður alþjóðlegrar könnunar á vegum vísindamanna við háskólann í Gautaborg í Svíþjóð. Norsk rannsókn hafði áður leitt í ljós samband milli ofþyngdar og einbirna, að því er kemur fram á fréttavef Dagens Nyheter. 22.8.2012 07:30
Tugir gengu berserksgang á bráðamóttöku Tugir manna eiga yfir höfði sér ákæru eftir að þeir réðust inn á bráðamóttökuna á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum seint í fyrrakvöld og brutu þar allt og brömluðu. 22.8.2012 03:00
Obama hótar nú hernaði í Sýrlandi Beiti Sýrlandsstjórn efnavopnum í stríði sínu gegn uppreisnarmönnum, þá fer hún yfir strikið að mati Bandaríkjaforseta. Rússar enn andvígir íhlutun. 22.8.2012 02:00