Fleiri fréttir

Fangar fá ljósabekki

Fangar í rússneska fangelsinu Butyrskaya í Moskvu hafa löngum búið við heldur frumstæðar aðstæður. Nú verður þó bragarbót gerð þar á því fangarnir fá brátt að sóla sig í ljósabekkjum sem settir verða upp í fangelsinu.

Skaut á samnemendur sína

Að minnsta kosti þrír eru særðir eftir að nemandi í skólanum Gardena High School í Los Angeles hóf skothríð í dag. Talsmaður lögreglunnar segir að einn maður sé í haldi grunaður um verknaðinn.

Sjóræningjar tóku 53 skip

Sjóræningjar tóku tæplega tólfhundruð sjómenn í gíslingu á síðasta ári, nær alla undan ströndum Sómalíu. Sjóránin eru farin að verða harðari og ofbeldisfyllri að sögn Alþjóðlegu siglingamálastofnunarinnar.

Vilja jafnrétti fyrir breskar prinsessur

Breskir þingmenn vilja breyta erfðalögum krúnunnar þannig að dætur sem Vilhjálmur erfðaprins og Kate Middleton hugsanlega eignast njóti jafnréttis á við hugsanlega syni.

Ákærur vegna morðsins á Rafik Hariri

Alþjóðleg rannsóknarnefnd hefur gefið út ákærur vegna morðsins á Rafik Hariri fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons árið 2005. Honum var grandað með bílsprengju.

Segir Júgóslava hafa myrt Olof Palme

Fyrrverandi júgóslavneskur njósari heldur því fram að leyniþjónusta Júgóslavíu hafi fyrirskipað morðið Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar fyrir 25 árum.

Húgó litli gerir allt vitlaust í Venezúela

Yfirvöld í Venezúela hafa hvatt einkarekna sjónvarpsstöð til að hætta að sýna vinsæla sápuóperu frá nágrannaríkinu Kólombíu. Ástæðan er einföld, ein persónan í þættinum heitir Venesúlea og hún á hund sem heitir Húgó litli.

Stálu forsetahjónin gullforðanum?

Franska blaðið Le Monde fullyrðir að forsetahjónin í Túnis, sem flúið hafa land, hafi tekið með sér stóran hluta af gullforða landsins.

Ekkert lát á skálmöldinni í Mexíkó

Sex létust í skotbardaga í mexíkósku borginni Monterrey í nótt. Tvö glæpagengi tókust á í bardaganum en að sögn lögreglu létust tveir vegfarendur einnig en bardaginn var háður á götu í miðbænum.

Berlusconi sakaður um að hafa sofið hjá fleiri unglingsstúlkum

Enn syrtir í álinn hjá Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu en saksóknarar þar í landi hafa sakað hann um að hafa sofið hjá vændiskonu sem var undir lögaldri. Nú segja saksóknararnir að ekki sé aðeins um eina unglingsstúlku að ræða, heldur margar.

Enn flæðir í Ástralíu

Rigningarnar sem ollu hamförunum í Queensland ríki í Ástralíu á dögunum hafa nú færst sunnar og nú rignir eins og hellt sé úr fötu í Victoria ríki. Átta ára dreng er saknað frá því í gær þegar hann hreyfst með straumvatni og nokkrir bæir í ríkinu eru umluktir vatni. Um 3500 manns hafa yfirgefið heimili sín og rafmagnslaust er víða.

Forseti Kína heimsækir Obama

Forseti Kína Hu Jintao hefur í dag fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Hann mun meðal annars sitja formlegt kvöldverðarboð í Hvíta húsinu en þrettán ár eru frá því kínverskur leiðtogi fékk síðast slíkt boð.

Stofnar nýjan þingflokk

Ehud Barak, innan­ríkisráðherra Ísraels, hefur sagt sig úr Verkamannaflokknum og stofnað nýjan þingflokk. Barak verður áfram ráðherra, en búast má við því að Verkamannaflokkurinn segi sig úr stjórnarsamstarfi með Benjamin Netanjahú forsætisráðherra.

Stjórnarandstaðan fær að vera með

Mohammed Ghannouchi verður forsætisráðherra áfram í nýrri þjóðstjórn í Túnis, sem tók við völdum í gær, aðeins fáeinum dögum eftir að Zine al-Abidine Ben Ali forseta var steypt af stóli.

Staðgöngumóðir eignast barn fyrir Nicole Kidman

Leikkonan Nicole Kidman og eiginmaður hennar, Keith Urban, eignuðust dóttir milli jóla og nýárs með hjálp staðgöngumóður. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hjónin sendu frá sér fyrr í kvöld.

Byssumaðurinn frá Arizona sýnir enga iðrun

Byssumaðurinn Jared Loughner, sem skaut bandarísku þingkonuna Gabrielle Giffords í höfuðið á dögunum, er miskunnarlaus morðingi. Þetta segja fangaverðir sem hafa umsjón með Jared þar sem honum er haldið föngnum í Arizona.

Glee og Social Network sigruðu á Golden Globe - Gervais fór á kostum

Golden Globe hátíðin fór fram í Hollywood í nótt. Á Golden Globe eru bestu kvikmyndir og sjónvarpsþættir ársins verðlaunaðir og eru úrslitin þar oft talin sterk vísbending um hvað koma skal þegar Óskarsverðlaunin verða afhent. Helstu sigurvegarar í þetta skiptið var kvikmyndin The Social Network, sem segir söguna af því þegar samskiptasíðan Facebook varð til, og sjónvarpsþátturinn Glee, sem segir frá söngelskum krökkum í amerískum menntaskóla.

Fleiri finnast látnir í Brasilíu

Á sjöunda hundrað eru látnir eftir flóðin skammt frá Rio de Janiero í Brasilíu í síðustu viku. Yfirvöld segja að minnsta kosti 655 látna og að búist sé við að sú tala eigi eftir að hækka ennfrekar.

Barak stofnar nýjan flokk

Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels, hefur látið af embætti formanns Verkamannaflokksins. Hann hyggst stofna nýjan flokk, miðjuflokk, ásamt fjórum öðrum þingmönnum flokksins.

Giffords á batavegi

Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona á dögunum er á batavegi að sögn lækna. Læknar segja meta ástand hennar nú alvarlegt, en segja hana ekki í lífshættu.

Túnis: Þjóðstjórn sennilega mynduð í dag

Mikil spenna er enn í Túnis þar sem landsmenn bíða eftir því að tilkynnt verði um nýja þjóðstjórn. Stríðsástand hefur verið í landinu allt frá því að forsetinn Ben Ali flúði land fyrir helgi. Stuðningsmenn forsetans hafa barist á götum úti við lögreglu og hermenn en forsætisráðherra landsins segir að eftir samningaviðræður um helgina hafi tekist samkomulag um þjóðstjórn allra flokka. Búist er við því að nýja stjórnin verði kynnt formlega í dag.

Berlusconi á föstu og því óhugsandi að hann hafi keypt vændi

Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu segist hafa verið í föstu sambandi allar götur frá því hann skildi við síðustu eiginkonuna og því séu ásakanir um að hann hafi keypt þjónustu vændiskonu fráleitar. Hann er nú til rannsóknar hjá ítölskum saksóknurum fyrir að hafa keypt þjónustu vændiskonu sem að auki var undir lögaldri. Berslusconi hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir ásakanirnar bull. hann hafi raunar aldrei borgað fyrir kynlífsþjónustu, enda væri slíkt niðurlægjandi að hans mati.

Baby Doc snýr aftur

Fyrrverandi einræðisherra Haítí, "Baby Doc" Duvalier, hefur snúið aftur til heimalands síns eftir 25 ár í útlegð. Fréttavefur BBC segir ástæðu heimkomunna ólósa en Jean Claude Duvalier, eða Baby Doc, hann kom frá Frakklandi þar sem hann hefur búið frá því honum var steypt af stóli í byltingu árið 1986.

Vill bæta ímynd flokksins

Marine Le Pen var í gær kjörin leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi eftir öruggan sigur í leiðtogakjöri flokksins. Hún tekur við af föður sínum, Jean-Marie Le Pen sem stofnaði flokkinn árið 1972.

Skref á leiðinni í dýrlingatölu

Benedikt páfi XVI. hefur formlega staðfest að forveri hans á páfastóli hafi gert kraftaverk. Staðfestingin er fyrsta skrefið í að koma Jóhannesi Páli páfa II. í dýrlingatölu, að því er BBC segir frá.

Allir taki þátt í uppbyggingu

Viðræður um myndun þjóðstjórnar hófust í gærmorgun milli forystumanna helstu stjórnmálaflokka í Túnis.

Reykingar skaða á 30 mínútum

Það tekur ekki 30 ár fyrir reykingar að skaða heilsuna, heldur aðeins 30 mínútur. Þetta kemur fram í rannsókn sem háskólinn í Minnesota birti nýverið. Rannsóknin tók til 12 sjúklinga og beindist að því hversu hratt ákveðin krabbameinsvaldandi kolefnissameindir í sígarettum hafa áhrif á líkamann.

Nýr forseti tekinn við í Túnis

Nýr forseti sór embættiseið í Túnis í gær eftir að forsetinn Zín al-Abi-dín Ben Alí flúði óeirðir og mótmæli í landinu fyrir helgi. Nýi forsetinn, Fúed Mebaza að nafni, var áður forseti þingsins, en hann hefur beðið forsætisráðherra landsins að mynda þjóðstjórn.

Forseti Túnis yfirgaf landið - 23 ára valdatíð lokið

Zín al-Abidín Ben Alí, forseti Túnis, kom ásamt fjölskyldu sinni til Sádi Arabíu í gærkvöld eftir að hafa flúið miklar óeirðir í landinu. Þannig lauk 23 ára valdatíð forsetans, en forsætisráðherra landsins hefur tekið við forsetaembættinu tímabundið.

Flóð á flóð ofan úti um allan heim

Um 200 manns, sem fórust í flóðunum í Brasilíu á miðvikudag, voru jarðsettir í gær í bænum Teresopolis. Búist er við að tugir manna verði jarðsettir í viðbót í dag, og svo er reiknað með að á morgun verði um 300 manns jarðsungnir í þessum 150 þúsund manna bæ í fjallahéruðunum fyrir ofan Rio de Janeiro.

Hundrað pílagrímar tróðust undir

Indversk stjórnvöld fullyrða að rúmlega hundrað pílagrímar hafi látist í suðurhluta landsins í dag. Fólkið tróðst undir í lok árlegrar trúarhátíðar hindúa við helgidóminn í Sabarimala í héraðinu Kerala.

Úrhelli torveldar björgunarstarf í Brasilíu

Úrhellisrigning í Brasilíu hefur torveldað björgungarstarf á þeim svæðum sem orðið hafa einna verst úti í hamförunum undanfarna daga. Um er að ræða einhverjar verstu náttúruhamfarir í marga áratugi í landinu

Forsetinn flúinn úr landi

Forseti Túnis er flúinn er landi. Hann hefur stjórnað landinu með harðri hendi í um 23 ár.

Konunglegu tvíburarnir komnir heim

Hinir konunglegu dönsku tvíburar sáust í fyrsta sinn opinberlega í dag þegar Friðrik Danaprins og Mary prinsessa héldu heim af Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn með nýjustu meðlimi konungsfjölskyldunnar.

Skoðið myndbandið -og tárist

Elísabet Hughes er aðeins átta ára gömul. Hún hefur því sjálfsagt verið dálítið taugóstyrk þegar hún steig fram til þess að syngja bandaríska þjóðsönginn fyrir tólfþúsund áhorfendur fyrir íshokkíleik í Virginíu.

Þingkonan er tvöfalt kraftaverk

Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords hefur opnað augun og er farin að anda sjálf. Ef stutt er við hana getur hún setið á rúmstokknum og dinglað fótunum.

Hreinsunarstarf að hefjast í Brisbane

Íbúar Brisbane í Ástralíu eru nú byrjaðir að hreinsa til eftir flóðin miklu. Vatnsborðið er farið að lækka í sumum hverfum borgarinnar en að minnsta kosti 30 þúsund byggingar í borginni voru umluktar vatni.

Goodluck nær öruggur um forsetakjör

Forseti Nígeríu, Goodluck Jonathan, vann í gær forkosningar í flokki sínum um hvern eigi að bjóða fram í næstu forsetakosningum sem fram fara í apríl. Það þýðir að það er næsta öruggt að hann sitji áfram á forsetastóli því flokkur hans hefur ráðið lögum og lofum í landinu frá árinu 1999 og unnið hverja einustu kosningu sem þar hefur farið fram síðan lýðræð var komið á.

Talíbanar skipta um skoðun varðandi menntun kvenna

Talíbanar í Afganistan hafa skipt um skoðun í menntamálum og eru ekki lengur andsnúnir því að konur gangi í skóla. Þegar Talíbanar réðu ríkjum í stærstum hluta landsins var konum bannað að stunda vinnu eða nám. Nú segjast þeir hins vegar vera á því að það sé í lagi að konur og stúlur gangi menntaveginn að því er fram kemur á vefsíðu BBC.

Rúmlega fimm hundruð fórust í Brasilíu

Nú er ljóst að rúmlega fimm hundruð manns hafa látist í miklum flóðum í suðurhluta Brasilíu og er um að ræða verstu náttúruhamfarir í marga áratugi í landinu. Miklar rigningar urðu þess valdandi að aurskriður féllu á nokkra bæi og eru þúsundir Brasilíumanna nú heimilislausins. Enn er leitað að látnum og slösuðum og óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka. Árið 1967 féllu aurskriður í landinu sem drógu 430 til dauða og því ljóst að um meiri hamfarir er að ræða nú.

Stúlkan borin til grafar

Stúlkan sem var meðal þeirra sex sem létu lífið lífið í skotárás í Arizona á laugardag var borin til grafar í dag. Minningarathöfn um hana fór fram í kaþólskri kirkju í borginni Tucson. Christina Taylor Green var níu ára gömul en hún fæddist fáeinum klukkstundum eftir að fyrri flugvélinni var flogið á annan turn World Trade Center í New York 11. september 2001.

Yfir 420 látnir í Brasilíu

Að minnsta kosti 420 hafa látist í flóðunum skammt frá Rio de Janiero í Brasilíu en þeim hafa fylgt stórar aurskriður. Mikil flóð hafa verið í Brasilíu það sem af er ári og eru þúsundir heimilislausar vegna þeirra. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir. Fjölda fólks er saknað svo óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka ennfrekar.

Sjá næstu 50 fréttir