Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maóistar krefjast afsagnar forseta Nepals Mótmæli héldu áfram í Katmandu, höfuðborg Nepals, í dag þegar maóistar kröfðust afsagnar Ram Baran Yadaf, forseti landsins. 9.5.2009 23:00
Fimm féllu í sprengjuárás í Tyrklandi Þrír óbreyttir borgarar og tveir héraðslögreglumenn féllu þegar sprengja sprakk við vegarkant í suðausturhluta Tyrklands seinnipartinn í dag. Uppreisnarsveitir Kúrda eru taldar bera ábyrgð á ódæðinu en talsmenn Kúrda neita því að vera viðriðnir sprengjutilræðið og segja að tyrkneskir þjóðernissinnar beri ábyrgð á því. 9.5.2009 22:00
Nærri 200 fallið Nærri 200 herskáir Talíbanar og al-Kaída liðar hafa fallið í stórsókn pakistanska hersins gegn þeim sem hófst í norðvestur Pakistan á fimmtudagskvöldið. 9.5.2009 21:00
Maraþonhlaup í hálfan mánuð Phil Packer, major í breska hernum, lauk í dag Lundúnarmaraþoninu hálfum mánuði eftir að það hófst. 9.5.2009 20:00
Tvö staðfest inflúensutilfelli í Noregi Tveir Norðmenn hafa greinst með inflúensu A (H1N1) eða svínaflensu. Þeir eru á batavegi. Frá þessu var greint í norska ríkisútvarpinu í dag. Um er að ræða námsmenn, karl og konu , á þrítugsaldri sem nýkomin eru frá Mexíkó. 9.5.2009 19:12
Einn með 20 milljarða Heppnin var með lottóspilara á Spáni sem fékk ríflega 20 milljarða króna í vinning þegar stóri potturinn í Evrópulottóinu kom á einn miða í gærkvöldi. 9.5.2009 19:00
Varaði Georgíumenn við Rússlandsforseti ræður nágrannaríkjum frá því að leggja upp í hernaðarævintýri gegn Rússlandi. Ummælin lét hann falla á viðamikilli hersýningu á Rauða torginu vegna þess að 64 ár eru í dag frá uppgjöf nasista fyrir bandamönnum í Seinni heimsstyrjöldinni. 9.5.2009 18:45
Bráðabirgðastjórn tekur við í Tékklandi Bráðabirgðastjórn tók við völdum í Tékklandi í dag. Henni verður falið að stjórna landinu fram að snemmbúnum þingkosningum í október. Fyrri stjórn hrökklaðist frá völdum í mars eftir að þing samþykkti vantraust á hana. Stjórnin hafði þá mátt sæta mikilli gagnrýni vegna aðgerða í baráttunni við áhrif alheimskreppunnar í Tékklandi. 9.5.2009 18:04
Heppinn lottóspilari vann 26 milljarða Heppnin var með lottóspilari sem vann 126 milljónir evra, jafnvirði ríflega 26 milljarða króna, í Evrópu lottóinu í gærkvöldi. Vinningurinn kom á miða sem keyptur var í sjoppu í Madríd á Spáni. Vinningshafinn gaf sig fram í dag en nafn hans hefur ekki verið gefið upp. 9.5.2009 16:58
Chavez heldur áfram að þjóðnýta Hugo Chavez, forseti Vensúela, hefur fyrirskipað hernum að taka yfir fyrirtæki sem þjónusta olíufyrirtæki í landinu, en fyrirtækin eru mörg hver í erlendri eigu. Rúm tvö ár síðan að forsetinn þjóðnýtti gas- og olíuframleiðslufyrirtæki Venezúela. 9.5.2009 15:45
Barist við skógarelda í Kaliforníu Slökkviliðsmenn í Kaliforníu gera sér vonir um að hagstæð vindátt auðveldi þeim að ráða niðurlögum kjarr- og skógarelda sem ógna 3500 hundruð heimilum í Santa Barbara og nágrenni. Erfiðlega hefur gengið að slökkva eldana þar sem heitt hefur verið í veðri og vindasamt á svæðinu þar sem þeir brenna. 9.5.2009 14:33
Mótmæltu byggingu bænahúss múslima Rúmlega 1600 manns komu saman í Köln í Þýskalandi fyrr í dag til að mótmæla íslamsvæðingu þýsks samfélags. Hópurinn sem stóð á bak við mótmælin er andsnúinn byggingu nýrrar mosku í borginni og fjölgun múslima í Þýskalandi. Fjölmörgum leiðtogum þjóðernissinnaðra samtaka í Evrópu var boðið að vera viðstaddir fundinn. 9.5.2009 14:15
Mál blaðakonunnar Saberi tekið fyrir Íranskur dómstóll tekur á morgun fyrir áfrýjun á dómi yfir írönsku-bandarísku blaðakonunni Roxana Saberi. Hún var í síðasta mánuði dæmd í átta ára fangelsi fyrir njósnir. Saberi hafði þá um nokkurt skeið starfað í Íran sem fréttaritari fyrir vestræna fjölmiðla. 9.5.2009 10:30
Zuma sór eið Jakob Zuma, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, er ný forseti Suður-Afríku. Hann sór embættiseið í Pretoríu, höfuðborg landsins, í morgun fyrir framan fimm þúsund boðsgesti og skara af stuðningsmönnum. 9.5.2009 10:04
Vændi í fangelsi sem Finnar greiddu fyrir Finnska utanríkisráðuneytið rannsakar nú hvort vændi viðgangist í kvennafangelsi í Afganistan sem var reist fyrir finnska peninga. Finnska ríkisútvarpið YLE greindi frá því í vikunni að vændi viðgengist milli kvenfanganna og afganskra starfsmanna sem starfa hjá finnska utanríkisráðuneytinu. 9.5.2009 07:30
Kengúrudrápin vekja mótmæli Ástralíuher hyggst drepa sex þúsund kengúrur á æfingasvæði hersins skammt frá Canberra, höfuðborg Ástralíu. 9.5.2009 07:00
Hundruð þúsunda flýja flóð Verstu flóðin sem orðið hafa í norðanverðri Brasilíu svo áratugum skipti, hafa hrakið nærri 270 þúsund manns að heiman. Nærri fjörutíu manns höfðu látist í gær. 9.5.2009 07:00
Fjórtán milljónir án vinnu Atvinnuleysi mældist 8,9 prósent í Bandaríkjunum í nýliðnum mánuði, samkvæmt upplýsingum bandarísku vinnumálastofnunarinnar í gær. 9.5.2009 06:45
Fjöldi manns innikróaður Talið er að milljón manns muni flosna upp frá heimilum sínum vegna aðgerða stjórnarhersins í Pakistan gegn talibönum í Swat-dalnum og nærliggjandi héruðum norðvestan til í landinu. 9.5.2009 06:45
Segir af sér vegna lágflugs yfir Manhattan Louis Caldera, maðurinn sem er ábyrgur fyrir lágflugi bandarísku forsetavélarinnar, Air Force One, í síðasta mánuði, hefur sagt upp störfum hjá hvíta húsinu. 8.5.2009 23:45
Heimsmet í lottóvinning hugsanlega slegið í kvöld Vinningshafinn í Euromilljóna lottóinu fjölþjóðlegea gæti slegið heimsmet ef hann situr eingöngu einn að vinningnum. Um er að ræða Lotto leik sem sex stórþjóðir taka þátt í. Það er að segja, Írland, Bretland, Frakkland, Spánn, Portúgal, Austurríki, Sviss, Belgíu og svo Luxemburg. 8.5.2009 23:12
Ákærður fyrir að drepa konuna sína - gerði grín í stresskasti Fyrrum lögregluvarðstjórinn Drew Petersson var leiddur fyrir rétt í Illinois í Bandaríkjunum vegna ákæru um að hafa drekkt eiginkonu sinni árið 2004. Athygli vakti að Drew gerði mikið grín við blaðamenn þegar hann var leiddur fyrir dómarann. 8.5.2009 21:00
20 milljarðar í Evrópulottóinu Íbúar í níu Evrópulöndum flykktust í söluturna í dag vegna útdráttar í Evrópulottóinu í kvöld. Potturinn er jafnvirði lítilla 20 milljarða króna. 8.5.2009 19:30
Toyota tapar milljörðum Japanski bílarisinn Toyota, stærsti bílaframleiðan heim, tapaði jafnvirði 500 milljarða króna á síðasta fjárhagsári sem er mesta tap á einu ári í sögu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur aðeins einu sinni áður tapað fé en það var árið 1963. 8.5.2009 19:15
20 þúsund manns flúið heimili sín Um 20 þúsund íbúar í og við Santa Barbara í Kaliforníu hafa yfirgefið heimili sín vegna skógarelda sem brennt hafa um 14 ferkílómetra svæði. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Kaliforníu. 8.5.2009 19:00
Páfi í Mið-Austurlöndum Benedikt páfi XVI. telur að kaþólska kirkjan geti gengt mikilvægu hlutverki í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Heimsókn Páfa til Mið-Austurlanda hófst í Jórdaníu í dag. 8.5.2009 19:00
Vel á annað hundrað herskáir fallið Vel á annað hundrað herskáir Talíbanar og al-Kaída liðar hafi fallið í loftárásum pakistanska stjórnarhersins á norðvestur Pakistan síðasta sólahringinn. Mörg hundruð þúsund íbúar hafa flúið í skelfingu vegna stórsóknar hersins. 8.5.2009 18:45
Heillum snauðir Sumir fóru fyrir jól. fluttust burt úr landi, heillum snauðir heims um ból hús þeir byggja' á sandi. 8.5.2009 16:35
Gömul vinkona slekkur elda Miklir kjarreldar geisa í Arizona fylki í Bandaríkjunum og meðal annars notaðar flugvélar til þess að berjast við þá. 8.5.2009 16:09
Skelfileg meðferð á hundum Dýraverndarsamtök kanna nú hvort einhver leið sé að bjarga fjölda hunda á lítilli eyju undan ströndum Malasíu. 8.5.2009 15:07
Komdu með aurana kvikindið þitt Yfirvöld í Austurríki sendu handrukkara heim til manns sem hafði ekki greitt sorphirðugjald sitt að fullu. 8.5.2009 14:58
Talibanar stráfelldir í Pakistan Pakistanski herinn hefur fellt yfir eitthundrað og fjörutíu talibana í hörðum bardögum í Swat héraði síðasta sólarhringinn, að sögn talsmanns hersins. 8.5.2009 12:59
Neyðarástand í Kaliforníu Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri, hefur lýst yfir neyðarástandi í Kaliforníu vegna skógarelda sem loga þar. 8.5.2009 12:18
Sakaðir um bruðl Brown forsætisráðherra Bretlands varð fyrir enn einu áfallinu í morgun þegar breska blaðið Telegraph birti upplýsingar um endurgreiðslur af opinberu fé til 13 ráðherra í ríkisstjórn Verkamannaflokksins vegna útgjalda sem hægt er að endurgreidd. Brown og fleiri ráðherrar eru sakaðir um að bruðla með almannafé. 8.5.2009 12:07
Stórsókn gegn Talíbönum Mörg hundruð þúsund íbúar hafa lagt á flótta frá átakasvæðum í norðvestur Pakistan. Þarlend stjórnvöld hófu í gær stórsókn gegn Talíbönum nærri landamærunum að Afganistan. Allt stefnir í einn mesta flóttamannastraum heims um leið og miklir og jafnvel langvinnir bardagar eru að hefjast í Pakistan. 8.5.2009 11:55
Pjattaðir morðingjar Yfir tíuþúsund manns hafa fallið í eiturlyfjastríðinu í Mexíkó síðan í desember árið 2006. 8.5.2009 11:10
Þau eru ekki sofandi Tugþúsundir óbreyttra borgara eru ennþá innilokaðir á vígvellinum á Sri Lanka þar sem stjórnarherinn sækir að síðasta vígi Tamíl tígranna. 8.5.2009 11:00
Svínaflensutölvuleikur nær vinsældum Tölvuleikurinn Swinefighter, sem byggir á svínaflensufaraldrinum, hefur náð nokkrum vinsældum á Netinu. 8.5.2009 08:41
Geymdi látna móður í sex ár af hagkvæmnisástæðum Kona í Flórída hefur verið ákærð fyrir að geyma lík móður sinnar í sex ár og þiggja bætur hennar. 8.5.2009 08:16
Gluggalausar þotur og gæsaflug Airbus-verksmiðjurnar standa nú fyrir hugmyndasamkeppni um farþegaflugvélar framtíðarinnar meðal verk- og tæknifræðinema í 82 löndum. 8.5.2009 08:10
Simpson-fjölskyldan á frímerki Í gær komu út frímerki í Bandaríkjunum með Simpson-fjölskyldunni og er það í fyrsta sinn sem persónur úr sjónvarpsþáttum verða efni sjálfstæðs frímerkjaflokks þar í landi. 8.5.2009 08:09
Kóbraslanga í póstsendingu Tollvörðum í Miami í Flórída brá í brún á miðvikudaginn þegar þeir opnuðu póstsendingu frá Taílandi og fundu í henni glerkrukku sem innihélt kóbraslöngu og nokkrar aðrar eitraðar slöngur í áfengisblöndu. 8.5.2009 07:31
Glæsivillur brunnu í skógareldi Skógareldar í Kaliforníu virðast ekki vera í rénun og í gær urðu nokkrar glæsivillur í Santa Barbara eldi að bráð. Á annan tug þúsunda íbúa svæðisins hafa þurft að flýja heimili sín og hafa 5.400 heimili verið rýmd. 8.5.2009 07:28
Gætu eignast kjarnavopn á hálfu ári Íranar gætu verið búnir að koma sér upp efniviði í kjarnorkusprengju eftir um það bil sex mánuði. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem nefnd á vegum öldungadeildar Bandaríkjaþings framkvæmdi. 8.5.2009 07:25
Er þetta Ívan grimmi? Hinum 89 ára gamla John Demjanjuk hefur verið skipað af bandarískum yfirvöldum að gefa sig fram við útlendingastofnun svo hægt sé að flytja hann úr landi. Ástæðan - hann er grunaður um að vera Ívan hinn grimmi - nasisti sem er ábyrgur fyrir dauða 21 þúsund gyðinga í helförinni. 8.5.2009 00:15