Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tæplega 1.000 rangar yfirlýsingar um ógnina frá Írak George Bush forseti Bandaríkjanna og nánustu samstarfsmenn hans gáfu út tæplega eitt þúsund ósannar yfirlýsingar um hættuna sem stafaði af Írak eftir 11. September árið 2001. 23.1.2008 09:23
Tíu menn rændu póstflokkunarstöð í Gautaborg Mikil skelfing greip um sig í Gautaborg í Svíþjóð í dag þegar bíræfið póstrán var framið þar. 22.1.2008 16:43
Trevor Rees fyrir réttarrannsókn Díönu á morgun Trevor Rees, eini maðurinn sem komst lífs af úr bílslysinu sem tók líf Díönu prinsessu mun bera vitni við réttarrannsóknina á dauða prinsessunnar á morgun. Auk Díönu lést Dodi Fayed ástmaður hennar og Henri Paul bílstjóri. 22.1.2008 16:10
Medvedev heldur fast í stefnu Pútíns Dímítrí Medvedev, frambjóðandi Sameinaðs Rússlands til forseta, sagði í dag að hann myndi halda fast í þá stefnu sem Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefði markað fyrir þjóðina. 22.1.2008 16:08
Kosið um hvort Prodi njóti trausts Kosið verður um það á ítalska þinginu hvort Romano Prodi forsætisráðherra landsins njóti trausts eftir afsögn samstarfsmanns hans í stjórninni í síðustu viku. Með honum hverfur meirihluti samsteypustjórnar forsætisráðherrans sem var einungis upp á einn mann. 22.1.2008 14:18
Clinton og Obama takast harkalega á Hillary Clinton og Barack Obama sem berjast um útnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, tókust harkalega á í kappræðum fyrir forkosningarnar í Suður-Karólínu. Obama sakaði Clinton um að segja hvað sem er til að fá atkvæði. 22.1.2008 13:16
Þjóðverjar skila Nokia símum Þýskir stjórnmálamenn keppast um að skila Nokia símunum sínum eftir að finnski símaframleiðandinn ákvað að færa verksmiðju sína í Þýskalandi til Rúmeníu. 22.1.2008 12:32
Sir Edmund Hillary borinn til grafar Ævintýramaðurinn Sir Edmund Hillary var borinn til grafar í Auckland, höfuðborg Nýja Sjálands í morgun. Ísöxin sem hann notaði við að komast á toppinn á Evrest-fjalli var grafin með kistunni. Mörg hundruð manns fylgdu Sir Edmund til grafar. 22.1.2008 12:28
Tannlæknir býður þjónustu í gegnum netið Jerry Watson tannlæknir í London sinnir eftirliti á sjúklingum sínum í gegnum internetið. Hann skoðar tennur þeirra í gegnum vefmyndavél og ákveður þannig hvort hann þurfi að hitta þá í eigin persónu eða ekki. Þetta gerist á læknastofu á vegum tannlæknisins þar sem myndir eru teknar og tennurnar hreinsaðar á sama tíma. Kostnaðurinn er um sex þúsund krónur. 22.1.2008 11:31
Kaupskip knúið af risastórri fallhlíf Fyrsta kaupskip í heimi sem siglt er með aðstoð risastórrar fallhlífar er nú á leiðinni frá Þýsklandi til Venesúela. 22.1.2008 10:07
Ísraelar slaka örlítið á einangrun Gaza Ísraelsstjórn hefur ákveðið að gefa aðeins eftir í einangrun sinni á Gaza-svæðinu eftir mikinn alþjóðlegan þrýsting. Leyft hefur verið að flytja eldsneyti og lyf inn á Gazasvæðið og dugir eldsneytið til að keyra raforkuverin á Gaza á 30% afköstum í eina viku. 22.1.2008 09:38
Krefst rannsóknar á forsetaframboði Kasyanov Embætti ríkissaksóknara í Rússlandi hefur hafið rannsókn á forsetaframboði Mikhail Kasyanov fyrrverandi þingmanns og komandi andstæðings Dmitry Medevede. Rannsóknin beinist að því hvort Kasyanov hafi falsað undirskriftir á stuðningslista fyrir framboði sínu. 22.1.2008 09:28
Miklar vetrarhörkur í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn glíma nú við einar mestu vetrarhörkur í manna minnum víða um landið. Snjókoman hefur náð allt suður í Silikon-dalinn í Kaliforníu en afar sjaldgæft er að þar snjói. 22.1.2008 09:18
Átök á Nörrebro Lögreglan í Kaupmannahöfn skilgreindi svæði á innrihluta Nörrebro sem sérstakt átakasvæði í nótt. Það þýðir að sjúkra- og slökkvibílar geta ekki sinnt útköllum á svæðinu nema í fylgd með lögreglubíl. Ákvörðun lögreglunnar kemur í kjölfar margra vikna óláta við Folkets park í Stengade þar sem unglingar halda oft til. Kastað hefur verið með grjóti á lögreglubíla sem aka um svæðið. En þegar slökkvibíll í útkalli lenti í grjótkasti frá unglingunum var lögreglunni nóg boðið. 22.1.2008 09:03
Ríkisstjórn Prodi riðar til falls Ríkisstjórn Romano Prodi á Ítalíu riðar nú til falls. Flestir reikna með að hann verði að segja af sér nú þegar í vikunni og boða til nýrra kosninga. 22.1.2008 08:54
Omar bin Laden: Pabbi hættu þessu ofbeldi Omar bin Laden sonur mest eftirlýsta manns í heimi vill að faðir hans Osama bin Laden snúi við blaðinu og hverfi frá ofbeldi. Omar segist síðast hafa séð föður sinn árið 2000 í Afghanistan þegar hann ákvað að hætta í al Qaeda. 21.1.2008 14:24
Tugir ábendinga um mannræningja Madeleine Tugir ábendinga hafa borist rannsóknarlögreglumönnum á vegum McCann hjónanna eftir að teikningar af meintum mannræningja Madeleine voru birtar í gær. Nú er verið að rannsaka upplýsingarnar sem hafa borist. 21.1.2008 13:31
Mubarak varar Ísraela við afleiðingum á Gaza Hosni Mubarak forseti Egyptalands hringdi í forsætisráðherra Ísraels til að vara hann við afleiðingum þess að setja Gaza strönd í herkví. Samkvæmt heimildum Mena fréttastofunnar lagði Mubarak áherslu á að stöðva yrði yfirgang Ísraela gegn palestínsku þjóðinni. 21.1.2008 13:08
Þjóðernissinni leiðir forsetakosningar í Serbíu Tomislav Nikolic róttækur þjóðernissinni er sigurvegari fyrstu umferðar forsetakosninga í Serbíu. Samkvæmt könnun mun þó koma til úrslitaumferðar þar sem kosið verður milli þeirra tveggja sem fá flest atkvæði. 21.1.2008 11:32
Þrír túlkar Dana í Írak voru einnig njósnarar Þrír írakskir túlkar, sem unnu fyrir dansaka herinn í Írak, unnu jafnframt sem njósnarar fyrir uppreisnarmenn í landinu. Þessu heldur fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu danska hersins fram í Nyhedsavisen 21.1.2008 11:16
Oprah sökuð um að taka kynþátt fram yfir kyn Harðar deilur hafa spunnist á heimasíðu bandarísku spjallþáttadrottningarinnar Opruh Winfrey vegna stuðnings hennar við Barack Obama í forvali demókrata fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum. Þykir mörgum sem Oprah hafi svikið kynsystur sína, Hillary Clinton, sem fyrst kvenna eigi raunverulegan möguleika á að verða forseti Bandaríkjanna. 21.1.2008 10:27
Abbas kallar eftir aðstoð umheimsins Forseti Palestínu Mahamoud Abbas hefur kallað eftir aðstoð umheimsins vegna þess að Ísraelar hafa sett bann á orkuflutning til Gaza-svæðisins. 21.1.2008 09:29
Obama sigrar líklegast í Suður-Karólínu Næstu tvær forkosningar hjá Demókrötum og Repúblikönum verða í Suðurríkjunum, nánar tiltekið í Suður-Karólínu og Flórída, á næstu tíu dögum. Hvað Suður-Karólínu hjá demókrötum varðar er talið að Barack Obama eigi meiri líkur og sigri en Hillary Clinton þar sem stór hluti íbúa í fylkinu er blökkumenn. 21.1.2008 09:24
Kaffidrykkja eykur hættu á fósturláti Ný rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum sýnir að barnshafandi konur ættu að varast kaffidrykkju meðan á meðgöngunni sendur. Jafnvel hófleg neysla á kaffi yfir meðgöngutímann eykur hættuna á fósturlátum. 21.1.2008 09:24
Enn eitt gagnahneykslið í Bretlandi Stjórnvöld í Bretlandi þurfa nú að glíma við enn eitt gagnahneykslið. Í ljós hefur komið að fartölva með upplýsingum um 600.000 starfsmenn breska hersins er horfin. 21.1.2008 09:19
Musharraf í opinberri heimsókn í Evrópu Musharraf forseti Pakistan er kominn í átta daga opinbera heimsókn til Evrópu en þetta er fyrsta opinbera heimsókn forsetans frá því að Benazir Bhutto var myrt á síðasta ári. 21.1.2008 09:19
Obama ræðst harkalega á Bill Clinton Barack Obama hefur ráðist harkalega á Bill Clinton eiginmann Hillary eftir að Obama tapaði fyrir henni í Nevada um helgina. 21.1.2008 09:15
Chavez hótar bændum og bönkum þjóðnýtingu Hinn litríki forseti Venesúela Hugo Chavez er aftur kominn í sviðsljós fjölmiðla. Að þessu sinni eru það deilur sem hann á í við bændur og banka landsins 21.1.2008 09:10
Gaza ströndin myrkvuð - neyðarástand Óttast er að hörmungarástand muni skapast á Gaza ströndinni innan fárra daga vegna skorts á matvælum og rafmagni. 20.1.2008 21:15
Hillary aftur á sigurbraut Hillary Clinton virðist vera komin aftur á sigurbrautina eftir að hafa lent í þriðja sæti í forkosningum demókrata í Iowa í byrjun mánaðarins. Hún sigraði í New Hampshire í þar síðustu viku og svo aftur í Nevada í gær. 20.1.2008 19:53
Lýsa yfir stuðningi við Páfa Þúsundir manna söfnuðust saman á Péturstorginu í Róm í dag til að lýsa yfir stuðningi við Benedict Páfa. 20.1.2008 18:55
Tennur dregnar úr Al Kæda -en ekki nógu margar Bandaríska herstjórnin í Írak hefur gert upp baráttuna við Al Kæda á síðasta ári. Bandaríkjamenn líta á hryðjuverkasamtökin sem mestu ógn við frið í Írak. Hér á eftir eru helstu punktar úr bandarísku skýrslunni. 20.1.2008 17:46
Fidel Castro í framboði til þings á Kúbu Fidel Castro, hinn aldni leiðtogi Kúbu, er meðal þeirra sem bjóða sig fram til þings í kosningum sem fram fara í landinu í dag. 20.1.2008 16:09
Við munum beita kjarnorkuvopnum Yfirmaður rússneska herráðsins segir að Rússar geri fyrirbyggjandi árás með kjarnorkuvopnum, ef veruleg ógn steðji að föðurlandinu. 20.1.2008 15:45
Rændi hann Madeleine? Foreldrar Madeleine McCann hafa sent frá sér teikningu af manni sem gæti verið viðriðnn hvarf telpunnar. 20.1.2008 15:04
Landstjórn Færeyja hélt velli Þjóðveldisflokkurinn sigraði í þingkosningunum í Færeyjum í gær en flokkurinn fékk rúmlega 23 prósent fylgi og átta þingsæti. 20.1.2008 10:28
Úps Kanadiska utanríkisráðuneytið ætlar að breyta handbók fyrir diplomata sína, þar sem Bandaríkin og Ísrael eru talin meðal ríkja þar sem hætta sé á að fangar séu pyntaðir. 19.1.2008 20:39
Við erum með höfuð hermanna ykkar Hizbolla leiðtogi sagði Ísraelum í dag að þeir hefðu í fórum sínum líkamshluta ísraelskra hermanna sem féllu í stríðinu árið 2006. 19.1.2008 16:30
Mannskæðar friðargöngur Stjórnarandstaðan í Kenya hefur boðað nýjar mótmælaaðgerðir í næstu viku. Nýlokið er þriggja daga mótmælafundum þar sem 23 létu lífið. 19.1.2008 14:29
Egyptar sárlega móðgaðir Egyptar hafa aflýst fundi með hátt settum embættismönnum Evrópusambandsins, eftir að Evrópuþingið gagnrýndi mannréttindamál í landinu. Egypska utanríkisráðuneytið tilkynnti um þetta í 19.1.2008 13:42
Fimmtíu látnir í átökum sjía og lögreglu í Írak Að minnsta kosti 50 manns hafa látið lífið í átökum milli síjamúslima og lögreglu í borgunum Basra og Nasiría í Írak síðasta sólarhring. 19.1.2008 13:18
Norðmenn banna síldveiðar við Svalbarða Norðmenn hafa bannað veiðar á norsk-íslensku síldinni við Svalbarða á yfirstandandi ári. Bannið gildir um öll veiðiskip, jafnt norsk skip sem skip erlendra ríkja. 19.1.2008 11:49
Islamistar handteknir á Spáni Lögreglan í Barcelona á Spáni handtók í umfangsmikilli aðgerð í morgun 14 menn grunaða um hryðjuverkastarfsemi. 19.1.2008 11:21
Ekki vitað af hverju hreyflarnir svöruðu ekki eldsneytisgjöf Ekki hefur fundist nein skýring á því enn, af hverju hreyflar Boeing 777 þotu British Airways svöruðu ekki eldsneytisinnfjöf við lendingu á Heathrow flugvelli í gær. 19.1.2008 09:58
Tveir Þjóðverjar og hollensk kona grunuð um að vera hryðjuverkamenn Tveir þýskir karlmenn og hollensk kona hafa verið handtekin í Kenía vegna gruns um að þau séu hryðjuverkamen, þau neita og segjast eingöngu vera blaðamenn. Lögregla handtók þremenningana eftir að grunsamlegar myndir fundust í fórum þeirra af hernarlega mikilvægum skotmörkumí landinu. 18.1.2008 21:30