Erlent

Rændi hann Madeleine?

Foreldrar Madeleine McCann hafa sent frá sér teikningu af manni sem gæti verið viðriðnn hvarf telpunnar.

Það var sérfræðingur frá bandarísku alríkislögreglunni sem teiknaði myndina eftir lýsingu Jane Tanner, sem er vinkona McCann fjölskyldunnar.

Hún sagði strax við upphaf málsins frá því að hún hefði séð karlmann með barn í fanginu kvöldið sem Madeleine hvarf. Önnur vinkona, Gail Cooper, lýsti ókunnum karlmanni á svipaðan hátt og Tanner.

Hann hefði verið á aldrinum 38-45 ára, með slétt dökkt hár, stórar tennur og sérkennilegt lafandi yfirskegg.

Hún hefði séð hann á rölti um svæðið og hann hefði jafnvel barið að dyrum hjá henni og sagst vera að safna peningum fyrir munaðarleysingjahæli. Maðurinn hefði talað bjagaða ensku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×