Fleiri fréttir Óheppni bensínþjófurinn Þegar Tom Fischer, í Seattle, sá að bíllinn hans var að verða bensínlaus, ákvað hann að spara sér peninga og stela bensíni af öðrum bíl. Hann valdi sér stóran húsbíl i, læddist að honum og smeygði slöngu ofan í tankinn. Svo saug hann fast, til að fá bensínið til að renna. 20.12.2006 11:23 Gefur pening í stað jólakorta Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið að senda ekki hefðbundin jólkort þetta árið en gefa andvirði þess kostnaðar til fátækra barna á Íslandi og erlendis. Mæðrastyrksfnefnd og SOS barnaþorp njóta góðs af jólakortapeningum Samfylkingarinnar þetta árið. 20.12.2006 10:39 Nýtt vopnahlé samþykkt á Gaza Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tilkynnti í kvöld að náðst hefði nýtt samkomulag um vopnahlé milli Fatha-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gaza. 19.12.2006 23:51 Bush vill efla bandaríska herinn George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að stækka bandaríska herinn til að geta betur tekist á við þá ógn sem stafar af hryðjuverkum. Frá þessu er greint á heimasíðu The Washington Post. 19.12.2006 22:41 Dauðadómur í Líbíu Dómstóll í Líbíu hefur dæmt fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og palestínskan lækni til dauða fyrir að myrða rúmlega fjögur hundruð líbönsk börn. Þeim er gefið að sök að hafa sýkt börnin viljandi með HIV-vírusnum sem veldur alnæmi. 19.12.2006 19:15 Bjart er yfir beljunum Þýskir lögregluþjónar gripu til skotvopna þegar þeir komu á bóndabæ suður af Frankfurt, til þess að framfylgja lögum um að kýr skuli hafa dagsbirtu í fjósum sínum. Viðkomandi bóndi geymdi kýr sínar í gluggalausu útihúsi. 19.12.2006 17:02 Stóri bróðir snýr aftur Bretar ætla að skylda alla innflytjendur sem ekki eru frá Evrópulöndum til þess að skrá líffræðileg auðkenni eins og fingraför og augna-skann, frá árinu 2008. Útlendingar verða að sækja um slík skilríki ef þeir sækja um áritanir til langdvalar í Bretlandi. 19.12.2006 16:40 Þrettán hengdir í Írak Þrettán menn voru teknir af lífi í Írak, í dag, fyrir morð, nauðganir og pyntingar. Í tilkynningu frá stjórnvöldum sagði að einn mannanna hefði viðurkennt að hafa myrt tíu manns, og annar að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu. 19.12.2006 16:18 Vel launað framhjáhald Tæplega þrítugur lagermaður í vöruhúsi fékk sér dæmdar 400 milljónir króna bætur í Lundúnum í dag, fyrir að halda tvisvar framhjá konunni sinni og elta vændiskonur út um alla móa. 19.12.2006 15:47 Myndir af morðum Saddams 19.12.2006 15:02 Bandarískir demókratar innleiða tæpast Kyoto Ólíklegt er talið að Bandaríkjamenn undirgangist Kyoto bókunina, jafvel þótt Demókratar komist til valda í landinu. Stuart Eizenstat, aðal samningamaður Bills Clintons, í Kyoto, segir að breytingar séu fyrirsjáanlegar í Bandaríkjunum, en Kyoto sé ennþá eins og blótsyrði. 19.12.2006 14:29 Faðir Flintstones látinn 19.12.2006 14:12 Finnar hafna rússnesku rafmagni 19.12.2006 13:59
Sjá næstu 50 fréttir
Óheppni bensínþjófurinn Þegar Tom Fischer, í Seattle, sá að bíllinn hans var að verða bensínlaus, ákvað hann að spara sér peninga og stela bensíni af öðrum bíl. Hann valdi sér stóran húsbíl i, læddist að honum og smeygði slöngu ofan í tankinn. Svo saug hann fast, til að fá bensínið til að renna. 20.12.2006 11:23
Gefur pening í stað jólakorta Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið að senda ekki hefðbundin jólkort þetta árið en gefa andvirði þess kostnaðar til fátækra barna á Íslandi og erlendis. Mæðrastyrksfnefnd og SOS barnaþorp njóta góðs af jólakortapeningum Samfylkingarinnar þetta árið. 20.12.2006 10:39
Nýtt vopnahlé samþykkt á Gaza Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tilkynnti í kvöld að náðst hefði nýtt samkomulag um vopnahlé milli Fatha-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gaza. 19.12.2006 23:51
Bush vill efla bandaríska herinn George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að stækka bandaríska herinn til að geta betur tekist á við þá ógn sem stafar af hryðjuverkum. Frá þessu er greint á heimasíðu The Washington Post. 19.12.2006 22:41
Dauðadómur í Líbíu Dómstóll í Líbíu hefur dæmt fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og palestínskan lækni til dauða fyrir að myrða rúmlega fjögur hundruð líbönsk börn. Þeim er gefið að sök að hafa sýkt börnin viljandi með HIV-vírusnum sem veldur alnæmi. 19.12.2006 19:15
Bjart er yfir beljunum Þýskir lögregluþjónar gripu til skotvopna þegar þeir komu á bóndabæ suður af Frankfurt, til þess að framfylgja lögum um að kýr skuli hafa dagsbirtu í fjósum sínum. Viðkomandi bóndi geymdi kýr sínar í gluggalausu útihúsi. 19.12.2006 17:02
Stóri bróðir snýr aftur Bretar ætla að skylda alla innflytjendur sem ekki eru frá Evrópulöndum til þess að skrá líffræðileg auðkenni eins og fingraför og augna-skann, frá árinu 2008. Útlendingar verða að sækja um slík skilríki ef þeir sækja um áritanir til langdvalar í Bretlandi. 19.12.2006 16:40
Þrettán hengdir í Írak Þrettán menn voru teknir af lífi í Írak, í dag, fyrir morð, nauðganir og pyntingar. Í tilkynningu frá stjórnvöldum sagði að einn mannanna hefði viðurkennt að hafa myrt tíu manns, og annar að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu. 19.12.2006 16:18
Vel launað framhjáhald Tæplega þrítugur lagermaður í vöruhúsi fékk sér dæmdar 400 milljónir króna bætur í Lundúnum í dag, fyrir að halda tvisvar framhjá konunni sinni og elta vændiskonur út um alla móa. 19.12.2006 15:47
Bandarískir demókratar innleiða tæpast Kyoto Ólíklegt er talið að Bandaríkjamenn undirgangist Kyoto bókunina, jafvel þótt Demókratar komist til valda í landinu. Stuart Eizenstat, aðal samningamaður Bills Clintons, í Kyoto, segir að breytingar séu fyrirsjáanlegar í Bandaríkjunum, en Kyoto sé ennþá eins og blótsyrði. 19.12.2006 14:29
Ísraelar fallast á liðsauka frá Jórdaníu Ísraelar hafa fallist á að palestinsk hersveit sem er staðsett í Jórdaníu, verði flutt til Gaza strandarinnar, til þess að styrkja Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í sessi. Ehud Olmer, forsætisráðherra Ísraels, kom í óvænta heimsókn til Jórdaníu, í dag. 19.12.2006 13:31
48 ára karlmaður handtekinn í Ipswich Breska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna morða á fimm vændiskonum í Suðaustur-Englandi. Þrjátíu og sjö ára karlmaður var handtekinn vegna málsins í gær. 19.12.2006 12:22
Fá að áfrýja í Líbíu Fimm búlgarskir hjúkrunarfræðingar og palestínskur læknir sem voru dæmd til dauða í Líbíu í dag fá að áfrýja, samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra landsins. Fólkið var dæmt fyrir að hafa viljandi smitað 426 börn af HIV-veirunni. Aðrir segja að fólkið sé blórabögglar, því sé kennt um bágar hreinlætisaðstæður á sjúkrahúsinu. 19.12.2006 11:56
Beðið eftir konunglegu brúðkaupi Breska slúðurpressan bíður með öndina í hálsinum eftir að Vilhjálmur prins biðji unnustu sína, Kate Middleton, að giftast sér. Hún hefur hingað til fengið frið frá ljósmyndurum en eftir að hún var við útskrift hans frá Sandhurst herskólanum byrjaði kjaftagangurinn. Nú telja slúðurfréttamenn, rithöfundar og jafnvel minjagripasmiðir að brúðkaup sé í nánd. 19.12.2006 11:29
Hamas ætla að sniðganga kosningar Hamas samtökin ætla að sniðganga kosningar sem haldnar verða fyrr en kjörtímabilinu lýkur. Kahled Meshaal, einn af leiðtogum Hamas-samtakanna, segir aðgerðir forseta Palestínu þess efnis að boða til kosninga innan skamms ólöglegar. 18.12.2006 22:32
Samruni Statoil og Norsk Hydro kynntur Norski olíurisinn Statoil og orkufyrirtækið Norsk Hydro ætla að sameinast um olíu- og gasborun á grunnsævi. Nýja fyrirtækið verður stærst allra á þeim vettvangi. Samningurinn er sagður jafnvirði rúmlega tvö þúsund milljarða íslenskra króna. 18.12.2006 20:00
Grunaður um morð á 5 vændiskonum Breska lögreglan handtók í dag 37 ára karlmann sem grunaður er um að hafa myrt 5 vændiskonur í Suðaustur-Englandi. Morðingjans hefur verið leitað síðan í síðustu viku og rannsóknin er ein sú viðamesta í Bretlandi um áraraðir. 18.12.2006 18:45
Silfurhafi í 800 m hlaupi kvenna var karl Komið hefur í ljós að indverski silfurverðlaunahafinn í 800 metra hlaupi kvenna á Asíuleikunum í frjálsum íþróttum er karlmaður. Hlauparinn, sem heitir Santhi Soundarajan og er 25 ára, hafði verið beðinn um að taka kynferðispróf vegna þess að úrslit hlaupsins þóttu koma á óvart. Niðurstöðurnar komu óneitanlega á óvart líka því samkvæmt þeim uppfyllti Soundarajan ekki skilyrði þess, að geta kallast kona. 18.12.2006 15:45
Efnið sem banaði Litvinenko kostaði nær 700 milljónir Það magn pólons-210 sem þurfti til að ráða fyrrverandi njósnarann Alexander Litvinenko af dögum kostar um 680 milljónir króna á markaði. Frá þessu greinir breska blaðið The Times og hefur eftir lögreglu. 18.12.2006 14:49
Jólasveinar handteknir í Magasin fyrir að deila út vörum Lögregla í Kaupmannahöfn handtók í dag í það minnsta þrjá jólasveina í verslun Magasin á Strikinu eftir að þeir reyndu að taka vörur úr hillum og deila þeim út til viðskiptavina Magasin. 18.12.2006 14:18
Fjölmiðlar höfðu rætt við grunaðan raðmorðingja 37 ára karlmaður var handtekinn í morgun vegna morðanna á fimm vændiskonum á Suðaustur-Englandi. Breskir fjölmiðlar greina frá að hann heiti Tom Stephens og hafi unnið í stórmarkaði. 18.12.2006 13:50
Skotbardagi þrátt fyrir vopnahlé Til skotbardaga kom í miðri Gaza-borg snemma í morgun þrátt fyrir að fulltrúar Hamas- og Fatah-hreyfinga Palestínumanna hefðu samið um vopnahlé. Abbas forseti stendur við yfirlýsingu sína um að boðað verði til kosninga á næsta ári, og það þó viðræður um skipan þjóðstjórnar verði haldið áfram í vikunni. 18.12.2006 12:30
Réttarhöld yfir Hussein halda áfram Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, vegna ákæru um þjóðarmorð á Kúrdum seint á níunda áratug síðustu aldar héldu áfram í morgun eftir 11 daga hlé. 18.12.2006 11:38
Skothríð þrátt fyrir vopnahlé Skothríð heyrðist nærri byggingu utanríkisráðuneytisins á Gaza í morgun, að sögn vitna. Hamas- og Fatahhreyfingarnar sömdu um vopnahlé í gærkvöldi en friðurinn virðist brothættur og ekki vitað hvenær skotin þagna. Að sögn Hamas-samtakanna stóð skothríðin milli liðs Fatah og öryggisvarða innanríkisráðuneytisins. 18.12.2006 11:23
Sleppt úr haldi í Bagdad 17 af þeim 30 sem var rænt á skrifstofu Rauða hálfmánans í Bagdad í gær hefur verið sleppt úr haldi, heilum á húfi. Þeim var sleppt á víð og dreif um borgina í gær og í dag. Flestir þeirra eru starfsmenn Rauða hálfmánans. 18.12.2006 11:17
Hamas og Fatah friðmælast Fulltrúar Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, hafa ákveðið að taka höndum saman til að og stilla til friðar á Gaza-svæðinu. Átök milli stuðningsmanna fylkinganna tveggja hafa blossað upp síðustu daga. Fulltrúar samtakana munu ætla að funda í vikunni og reyna að koma viðræðum um myndun þjóðstjórnar aftur af stað. 17.12.2006 20:45
Loftið lævi blandið Sú ákvörðun Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, að boða til kosninga til að binda enda á valdabaráttuna á milli Fatah og Hamas virðist hafa verkað sem olía á þann ófriðareld sem nú brennur í Palestínu. 17.12.2006 19:00
Ætla ekki að gefast upp Miðborg Kaupmannahafnar logaði í óeirðum í gærkvöld og varð lögregla að beita táragasi til að dreifa hundruðum manna sem mótmæltu lokun félagsmiðstöðvar. Íslensk kona sem var á vettvangi átakanna fylgdist með þegar bensínsprengjum var kastað í allar áttir. 17.12.2006 18:45
Berlusconi undir hnífinn í Bandaríkjunum Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er á leið til Bandaríkjanna þar sem hann mun gangast undir hjartaaðgerð. Berlusconi, sem er sjötugur, leið útaf á fundi með stuðningsmönnum sínum í síðasta mánuði og kom þá hjartakvilli í ljós. 17.12.2006 16:00
30 starfsmönnum Rauða hálfmánans rænt í Írak Byssumenn rændu 30 starfsmönnum Rauða hálfmánans í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Mannræningjarnir óku í ofboði að höfuðstöðvum hjálparsamtakana, réðust inn og rændu karlkyns starfsmönnum og gestkomandi. 17.12.2006 15:45
Sprengingar við skrifstofu Abbas Tvær sprengingar heyrðust nærri skrifstofum Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, á Gaza-svæðinu í dag. Reuters-fréttastofan greinir frá og segir að nokkrir hafi særst. Ekki er vitað hvort nokkur hafi týnt lífi í sprengingunum. Abbas var fjarverandi en hann er staddur á Vesturbakkanum. 17.12.2006 15:30
Almennur borgari féll í skotbardaga Almennur borgari féll í skotbardaga á Gaza í dag. Til átaka kom milli stuðningmanna Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, og Hamas-liða. 19 ára stúlka varð fyrir skoti og lét lífið. 17.12.2006 15:00
Nágrannar styðji Íraka Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti í dag breska hermenn í Írak. Í ræðu sem Blair flutti við það tækifæri hét hann Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, stuðningi og sagði mikilvægt að leiðtogar í nágrannalöndum Íraks styddu við bakið á honum og kæmu í veg fyrir að grafið væri undan honum. 17.12.2006 14:45
Fatah hefði betur Hamas-samtökin ætla ekki að taka þátt í kosningum sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatha, hefur boðað til. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra í heimastjórn Hamas, greindi frá þessu í dag. Hann sagði ræðu forsetans frá í gær, þar sem hann tilkynnti um kosningar, aðeins hafa helt olíu á eldinn. Ný könnun sýnir að Fatah-hreyfingin hefði betur ef kosið yrði nú. 17.12.2006 14:30
Dæmdir til dauða fyrir að bjarga ekki konu Dómstóll á Srí Lanka hefur dæmt tvo menn til dauða fyrir að valda dauða konu þegar flóðbylgjan mikla skall á eynni annan dag jóla 2004. Myndbandsupptaka sýnir þegar þeir slíta af henni hálsfesti og skilja svo eftir í vatnsflaumnum. 17.12.2006 13:30
300 handteknir í Kaupmannahöfn Á þriðja hundrað manns voru handtekin þegar til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Grjóti og flöskum var kastað að lögreglu sem svaraði með því að skjóta táragasi á mannfjöldann. 17.12.2006 13:00
Lögðu undir sig landbúnaðarráðuneytið Loftið er lævi blandið á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna eftir að liðsmenn Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas lögðu undir sig landbúnaðarráðuneyti heimastjórnarinnar í morgun. Áhlaup Fatah kom í kjölfar árásar grímuklæddra byssumanna á æfingasvæði lífvarða Abbas í morgun en einn lét þar lífið. Abbas býr skammt frá ráðuneytinu og því segjast Fatah-menn hafa verið að tryggja öryggi hans með því að taka það yfir. 17.12.2006 12:45
Felldur eftir að hafa traðkað 14 til bana í ár Indverskir fílaveiðimenn felldu í gær stóran fílstarf sem sagður er hafa traðkað 14 manns til bana síðastliðið ár. Tarfurinn, sem heimamenn kalla Osama bin Laden, var orðinn sannkallaður ógnvaldur í Assam-héraði og því þótti ekki annað fært en að drepa hann. 17.12.2006 12:15
Time: Internetið gjörbylt fjölmiðlun Bandaríska tímaritið Time hefur valið "þig" sem mann ársins 2006 fyrir framlag þitt til að gerbylta allri fjölmiðlun í heiminum með hjálp internetsins. Að mati blaðsins hafa bloggsíður og vefsvæði á borð við You-tube breytt valdajafnvæginu í fjölmiðlun á kostnað stóru fyrirtækjanna. 17.12.2006 12:00
Eldsvoði í brúðkaupsveislu Í það minnsta 22 konur og börn týndu lífi í eldsvoða í brúðkaupsveislu í austanverðu Pakistan í gær, brúðurin þar á meðal. Eldurinn kviknaði í tjaldi þar sem veislan var haldin en karlkyns gestirnir voru í öðru tjaldi, eins og siður er á þessum slóðum, og sakaði því ekki. 17.12.2006 11:30
Vesturveldin styðja Abbas Sú ákvörðun Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, að boða til kosninga á heimastjórnarsvæðunum hefur almennt mælst vel fyrir á Vesturlöndum. Abbas boðaði til kosninga í gær eftir stigvaxandi átök liðsmanna Fatah og Hamas. Leiðtogar Hamas segja ákvörðun forsetans jafngilda valdaráni. 17.12.2006 10:45
Ákvörðun Abbas kölluð valdarán Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur boðað til þing- og forsetakosninga í þeirri von að þar með verði endi bundinn á valdabaráttu stríðandi fylkinga á heimastjórnarsvæðunum. Leiðtogar Hamas eru æfir yfir ákvörðuninni og kalla hana valdarán. 16.12.2006 18:30