Fleiri fréttir Verður að vara við þunglyndislyfjum Matvæla- og lyfjanefnd Bandaríkjanna ákvað í kvöld að þunglyndislyf skuli merkt með viðvörunum þess efnis að notkun þeirra geti aukið sjálfsvígshugsanir hjá notendum undir 25 ára aldri. Fyrir stendur á pakkningum lyfjanna að börnum og unglingum sé hættara við slíkum hugleiðingum með notkun lyfsins. Lyfin sem um ræðir eru meðal annarra Zoloft og Prozac. 13.12.2006 23:15 Brúðkaupsplönin að bráðna Brúðkaupsplönin hafa verið sett á ís hjá nýsjálensku pari sem langar að gifta sig á ísjaka undan ströndum Nýja-Sjálands. Í fyrsta lagi er of hættulegt að lenda á ísjaka nógu lengi til að gifta hjónaleysin, þeir kollsteypast ótt og títt. Önnur hindrunin er lagaleg: væntanlegur lendingarstaður verður að vera innan við 12 sjómílur frá strönd landsins. 13.12.2006 23:02 Kastró í þátíð Kúbverjar tala nú æ oftar um leiðtogann veika Fídel Kastró í þátíð, enda hefur hann ekki sést opinberlega frá því í júlílok. Þjóðin hefur ekki fengið að vita hvað ami að leiðtoga hennar eða hvar hann dveljist. Kastró, sem hefur verið við völd í tæplega hálfa öld, sá sér ekki fært að koma fram opinberlega við hátíðarhöld vegna síns eigin áttræðisafmælis nýverið. 13.12.2006 22:41 Guantanamo-fangi tapaði máli Salim Ahmed Hamdan, fangi í Guantanamo-fangabúðunum, sem vann mikilvægan dómssigur fyrir hæstarétti Bandaríkjanna í júní, tapaði í dag máli sínu gegn ríkinu. Alríkisdómari vísaði frá kröfunni um að varðhald hans í Guantanamo væri ólöglegt. Dómarinn vísaði í nýlega undirrituð lög um hryðjuverkamenn. 13.12.2006 21:41 Fangelsisdyrnar lokast á eftir Skilling Fyrrum framkvæmdastjóri bandaríska orkufyrirtækisins Enron, sem fór á hausinn með háum hvelli árið 2001, hóf fangavist sína í dag í alríkisfangelsinu í Waseca í Minnesota. Hann er dæmdur í 24ra ára fangelsi fyrir hlut sinn í bókhaldssvindli og lygum að hluthöfum fyrirtækisins sem margir áttu allt sitt sparifé í Enron-bréfum. 13.12.2006 21:20 Danskur ráðherra segir af sér Lars Barfoed hefur sagt af sér sem fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur, stuttu eftir að Danski þjóðarflokkurinn lýsti andstöðu við hann sem ráðherra og þar með er meirihluti þingmanna andsnúinn honum. Hann tilkynnti afsögn sína á blaðamannafundi sem hann boðaði til í kvöld. 13.12.2006 20:54 Forseti Kenía afþakkar launahækkun Forseti Kenía, Mwai Kibaki, hafnaði í dag launahækkun sem þingið hafði boðið honum sem hefði nær þrefaldað launaupphæð hans. Kibaki á fyrir umfangsmiklar eignir og viðskiptafyrirtæki og er margfaldur milljónamæringur, í þjóðfélagi þar sem margir þegna hans draga fram lífið á minna en einum Bandaríkjadal á dag. 13.12.2006 20:14 Verðlaunafé boðið fyrir upplýsingar Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á tæpum mánuði. Blaðið News of the World hefur heitið jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna íslenskra króna í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku og hafa um tvö þúsund ábendingar þegar borist lögreglu. 13.12.2006 19:45 Ísraelar brjóta vopnahlé á Gaza Ísraelskir hermenn drápu palestínskan byssumann í dag, í fyrsta skipti síðan vopnahlé á Gaza milli Palestínumanna og Ísraela var samþykkt þann 26. nóvember síðastliðinn. Maðurinn var skotinn rétt við landamæragirðingu sjálfstjórnarsvæðisins. Hann var meðlimur í Fatah-hreyfingu Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palestínumanna. 13.12.2006 19:16 Samkynhneigðir njóti verndar í Færeyjum Færeyska lögþingið samþykkti í dag að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Frumvarpið fer til þriðju umræðu í næstu viku þar sem fastlega er búist við að það verði samþykkt. Sams konar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári. Færeyingar hlutu bágt fyrir þá afgreiðslu og málið var meðal annars tekið upp á síðasta þingi Norðurlandaráðs. 13.12.2006 19:00 Curbishley nýr þjálfari West Ham Alan Curbishley hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins West Ham sem er í eigu Eggerts Magnússonar og Björgólfs Guðmundssonar. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. 13.12.2006 15:40 Saka Frakka um ódæðisverk í Rúanda Stjórnvöld í Rúanda hafa sakað franska hermenn um nauðganir og pyntingar í þjóðarmorðinu sem þar var framið árið 1994. Þau fullyrða einnig að Frakkar hafi þjálfað stjórnarherinn og lagt honum til stórskotalið. Frakkar segja hermenn sína ekkert rangt hafa gert. 13.12.2006 15:37 Lögregla í Ipswich hefur fengið yfir 2000 símtöl vegna morða Lögregla í Suffolk á Englandi hefur fengið hefur yfir 2000 símtöl frá almenningi í kjölfar þess að hún fann tvö lík í gær sem talin eru af tveimur vændiskonum sem saknað hefur verið. Talið er að raðmorðingi gangi laus í landinu en á skömmum tíma hafa fimm vændiskonur fundist látnar nærri Ipswich. 13.12.2006 14:58 Rosaleg stýrivaxtahækkun í Noregi 13.12.2006 14:45 800 þúsund Írakar í Sýrlandi Sýrland hefur tekið á móti meira en 800 þúsund flóttamönnum frá Írak, síðan innrásin var gerð í landið árið 2003. Flóttamennirnir fá dvalarleyfi sín endurnýjuð árlega ef þeir hafa fastar tekjur, eiga eignir í Sýrlandi eða hafa skráð börn sín í sýrlenska skóla. 13.12.2006 14:30 Berlingske Officin segir upp 350 manns Útgáfufyrirtækið Berlingske Officin hyggst segja upp 350 starfmönnum á næstu tveimur árum en það jafngildir áttunda hverjum starfsmanna. Þetta er gert vegna fjárhagsvanda félagsins. 13.12.2006 14:16 Mikill áhugi á lýtalækninganámi í Danmörku Umsóknum læknanema um framhaldsnám í lýtalækningum hefur fjölgað mikið í Danmörku undanfarin ár sem meðal annars má rekja til góðra atvinnuhorfa. Frá þessu greinir Nyhedsavisen. 13.12.2006 13:37 Góðar löggur Níu af hverjum tíu kvörtunum um framferði breskra lögregluþjóna, sem bornar voru fram á síðasta ári voru tilefnislausar, að mati sjálfstæðrar rannsóknarnefndar sem fær slíkar kvartanir til meðferðar. Kvörtunum fjölgar þó sífellt, og eru lögregluþjónum þyrnir í augum. 13.12.2006 13:15 Samkynhneigðir unnu sigur á færeyska lögþinginu Færeyska lögþingið hefur samþykkt, með 17 atkvæðum gegn 13, að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Samskonar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári. 13.12.2006 13:08 Gagnrýnir fjölgun í öryggissveitum Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, gagnrýndi í dag Mahmoud Abbas, forseta, fyrir að fjölga í liði öryggissveita á Gaza ströndinni. Hann sagði að rétta leiðin til þess að koma í veg fyrir ofbeldi væri að virða sigur Hamas í þingkosningunum, sem skiluðu þeim til valda. 13.12.2006 13:00 Stefnir í stríð í Sómalíu Allt stefnir í alvarleg stríðsátök í Sómalíu eftir að íslamskir skæruliðar umkringdu borgina Baidoa í suð-vestur Sómalíu í morgun. Þar hefur bráðabirgðastjórn landsins hreiðrað um sig. Stjórnvöld í Eþíópíu viðurkenna að þau hafa flutt hergögn til stjórnvalda síðustu daga auk þess sem liðsmenn í eþíópíska hernum eru sagðir bíða átekta, tilbúnir til átaka ef látið verði sverfa til stáls. 13.12.2006 12:30 Leitar logandi ljósi að raðmorðingja Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á Englandi. Óttast er að ódæðismaðurinn fremji annað morð áður en lögregla hefur hendur í hári hans. 13.12.2006 12:15 Að minnsta kosti 17 fallnir í árásum í Írak í morgun Að minnsta kosti sautján hafa fallið í tveimur bílsprengjuárásum í Írak í morgun. Tíu létust og 25 særðust þegar bílsprengja sprakk í úthverfi sjía í Bagdad-borg í morgun nærri stað þar sem verkamenn koma saman og leita vinnu. 13.12.2006 11:04 Morðingi Hariris var ekki líbanskur Rannsóknarlögreglumenn á vegum Sameinuðu þjóðanna telja sig hafa dregið upp nokkuð grófa mynd af sjálfsmorðssprengjumanni sem myrti Rafik Hariri í gífurlegri sprengingu, út frá einni tönn og 33 ofurlitlum, skaðbrunnum húðflipum. Rannsóknarnefndin segir hann hafa verið á þrítugsaldri og að hann hafi ekki verið líbanskur. 12.12.2006 23:23 Ísraelar virða enn vopnahléð á Gaza Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í kvöld að Ísraelar hefðu ekki í hyggju að svara fyrir sig þó að Palestínumenn hafi skotið um 20 eldflaugum frá Gaza eftir að vopnahlé komst á þar þann 26. nóvember. Vopnaðir hópar á Gaza segja nýlegar árásir Ísraelshers gegn skæruliðum á Vesturbakka Jórdanar brot á vopnahlénu, þó það sé einungis í gildi á Gaza. 12.12.2006 22:38 Fuglesang á geimgöngu Fyrsti Svíinn sem hefur komið út í geiminn er nú á leið í spásértúr í geimgalla á 28 þúsund kílómetra hraða á sporbaug um jörðu. Christer Fuglesang, fer í kvöld við annan mann út fyrir geimstöðina, til að halda áfram að byggja hana, sem er megintilgangur ferðar geimskutlunnar Discovery. 12.12.2006 22:20 Annan gagnrýnir allsherjarþingið Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi meðlimi allsherjarþings S.þ. í kvöld fyrir að bregðast ekki við vaxandi ofbeldi í átökum Ísraela og Palestínumanna. Hann flutti sitt síðasta ávarp um Miðausturlönd fyrir öryggisráðið í kvöld, þar sem hann lætur af störfum sem framkvæmdastjóri um áramótin. 12.12.2006 22:05 Öflugur jarðskjálfti á miklu dýpi nærri Indónesíu Öflugur neðansjávarjarðskjálfti hreyfði við norðausturhluta Indónesíu í kvöld en engin hætta er á flóðbylgju vegna þess hve djúpur sjórinn er þar sem skjálftinn á upptök sín. Skjálftinn mældist 6,5 á Richter-kvarðanum og átti upptök sín um 252 kílómetra norðaustur af eyjunni Sulawesi, á 237 kílómetra dýpi undir yfirborði sjávar og jarðskorpunnar. 12.12.2006 21:27 Þrýstihópur um Lónsheiðargöng innan Samstöðu Baráttuhópur um göng undir Lónsheiði í stað núverandi vegstæðis um Hvalnes- og Þvottárskriður hefur verið stofnaður undir verndarvæng regnhlífarsamtakanna Samstöðu, að sögn fréttavefjarins horn.is. Samtökin sameina marga þrýstihópa sem berjast fyrir bættu umferðaröryggi á landinu. Þau voru upphaflega stofnuð til að berjast fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar. 12.12.2006 21:08 Rabbíinn vildi ljósastiku í jólaskreytingarnar Flugvallaryfirvöld í Seattle í Bandaríkjunum tóku niður 14 jólatré eftir að rabbíi í borginni fór fram á risastórri sjö arma ljósastiku yrði bætt við jólaskreytingarnar. Trén voru sett upp aftur í gær eftir að rabbíinn fullvissaði flugvallarstjórnina um að hann myndi ekki þröngva gyðinglegum áhrifum inn í jólaljósin með dómsúrskurði. 12.12.2006 20:38 Forseti Chile fylgdi Pinochet ekki til grafar Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, var borinn til grafar í höfuðborginni, Santiago, í dag. Hann lést á sunnudaginn, 91 árs að aldri. 12.12.2006 19:25 Orð Olmerts sögð rangtúlkuð Ísraelskt stjórnmálalíf er á öðrum endanum eftir að Ehud Olmert, forsætisráðherra landsins, nefndi Ísrael í hópi kjarnorkuvelda í sjónvarpsviðtali sem birt var í gær. Stjórnarliðar segja orð hans rangtúlkuð en stjórnarandstæðingar segja forsætisráðherrann hins vegar vanhæfan í varnarmálum og vilja að hann víki. 12.12.2006 18:45 Morðið á Hariri tengist 14 öðrum árásum Rannsóknin á morðinu á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, hefur leitt í ljós tengsl milli morðsins á Hariri og 14 annarra árása sem gerðar hafa verið í Líbanon síðan þá. Rannsóknarlögreglumenn á vegum Sameinuðu þjóðanna halda áfram viðtölum og rannsóknum og segja að Sýrlendingar sýni "almennt ásættanlegan" samstarfsvilja. 12.12.2006 17:48 Elsta kona í heimi látin Elísabet Bolden, sem talið er að hafi verið elsta kona í heimi, lést í gær, 116 ára að aldri. Héraðsfjölmiðlar í Tennesse í Bandaríkjunum greina frá þessu í dag. Hún var dóttir frelsaðra þræla, fædd þann 15. ágúst 1890. Hún lætur eftir sig 554 afkomendur, þar af 75 barnabarnabarnabarnabörn. 12.12.2006 17:38 Lögregla í Suffolk finnur tvö lík til viðbótar Lögreglan í Suffolk á Englandi hefur fundið tvö lík til viðbótar nærri Ipswich og óttast er að þau séu af tveimur vændiskonum sem saknað hefur verið undanfarna daga. Ef rétt reynist hafa fimm vændiskonur verið myrtar nærri Ipswich á skömmum tíma. 12.12.2006 17:11 Pinochet jarðsunginn í dag Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, var í dag jarðsunginn í herskóla landsins í höfuðborginni Santiago. Pinochet lést á sunnudaginn var og eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum fékk hann ekki viðhafnarútför. 12.12.2006 16:47 Fáránlegt að leysa upp íraska herinn Breskir hermálasérfræðingar eru hvassyrtir í fordæmingum sínum á Bandaríkjamönnum, eftir að í ljós kom að breska ríkisstjórnin gerði allt sem hún gat til þess að fá þá ofan af því að leysa upp Íraska herinn, og reka nánast alla opinbera starfsmenn. 12.12.2006 16:24 Bush bíður með Írak 12.12.2006 16:23 Eru Ísraelar að senda frá sér aðvörun um árás? Fréttaskýrendur velta því fyrir sé hvort Ísraelar hafi verið að senda frá sér aðvörun, þegar Ehud Olmert forsætisráðherra ýjaði að því að Ísrael væri kjarnorkuveldi. Þeir velta því einnig fyrir sér hvort það hafi verið gert í samráði við Bandaríkjamenn. 12.12.2006 15:45 Ekki ástæða til þess að framlengja gæsluvarðhald 12.12.2006 15:32 Fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu dæmdur fyrir þjóðarmorð Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu, hefur verið sakfelldur fyrir þjóðarmorð eftir tólf ára réttarhöld. Mengistu hefur hins vegar verið í útlegð í Simbabve í fimmtán ár og því óvíst hvort dómi yfir honum verður framfylgt en hann á hugsanlega yfir höfði sér dauðadóm. 12.12.2006 15:23 Hvetja morðingja vændiskvenna til að gefa sig fram Lögreglan í Ipswich sem rannsakar morð á þremur vændiskonum í borginni hvetur morðingja þeirra til að gefa sig fram. „Þú átt augljóslega við vanda að stríða. Hringdu í mig og við tökumst á við málið," sagði yfirmaður rannóknarinnar í ákalli til morðingjans í breskum fjölmiðlum. 12.12.2006 15:06 Interpol kemur að rannsókn á morði KGB njósnarans Alþjóðalögreglan Interpol hefur verið beðin um aðstoð við rannsókn á morðinu á KGB njósnaranum Alexander Litvinenko, sem lést úr geislaeitrun í Lundúnum í síðasta mánuði. Talsmaður skrifstofu Interpol í Rússlandi, segir að þeir hafi verið beðnir um að samræma upplýsingaflæði milli Bretlands, Rússlands og Þýskaland, en öll þessi lönd eru að rannsaka morðið. 12.12.2006 14:40 Mitt popp Bandarísk móðir í Oregon fylki hefur verið handtekin fyrir að særa son sinn á andliti og höndum, með stórum búrhníf. Sonurinn er tuttugu og eins árs gamall, en móðirin fjörutíu og níu. Syninum tókst að hringja í neyðarlínuna, og hjálpin barst áður en móðirin gat alveg gengið frá honum. 12.12.2006 14:15 Búið að slökkva eldinn í Gamla Stan í Svíþjóð Búið er að slökkva að mestu eldinn sem kom upp í fjölbýlishúsi í Gamla Stan, einu elsta hverfi Stokkhólms, í morgun. Mikill eldur kom upp og voru 40 slökkviliðsmenn að störfum þegar mest lét en nærliggjandi hús voru rýmdi vegna ótta við að eldurinn kynni að berast þangað. 12.12.2006 13:40 Sjá næstu 50 fréttir
Verður að vara við þunglyndislyfjum Matvæla- og lyfjanefnd Bandaríkjanna ákvað í kvöld að þunglyndislyf skuli merkt með viðvörunum þess efnis að notkun þeirra geti aukið sjálfsvígshugsanir hjá notendum undir 25 ára aldri. Fyrir stendur á pakkningum lyfjanna að börnum og unglingum sé hættara við slíkum hugleiðingum með notkun lyfsins. Lyfin sem um ræðir eru meðal annarra Zoloft og Prozac. 13.12.2006 23:15
Brúðkaupsplönin að bráðna Brúðkaupsplönin hafa verið sett á ís hjá nýsjálensku pari sem langar að gifta sig á ísjaka undan ströndum Nýja-Sjálands. Í fyrsta lagi er of hættulegt að lenda á ísjaka nógu lengi til að gifta hjónaleysin, þeir kollsteypast ótt og títt. Önnur hindrunin er lagaleg: væntanlegur lendingarstaður verður að vera innan við 12 sjómílur frá strönd landsins. 13.12.2006 23:02
Kastró í þátíð Kúbverjar tala nú æ oftar um leiðtogann veika Fídel Kastró í þátíð, enda hefur hann ekki sést opinberlega frá því í júlílok. Þjóðin hefur ekki fengið að vita hvað ami að leiðtoga hennar eða hvar hann dveljist. Kastró, sem hefur verið við völd í tæplega hálfa öld, sá sér ekki fært að koma fram opinberlega við hátíðarhöld vegna síns eigin áttræðisafmælis nýverið. 13.12.2006 22:41
Guantanamo-fangi tapaði máli Salim Ahmed Hamdan, fangi í Guantanamo-fangabúðunum, sem vann mikilvægan dómssigur fyrir hæstarétti Bandaríkjanna í júní, tapaði í dag máli sínu gegn ríkinu. Alríkisdómari vísaði frá kröfunni um að varðhald hans í Guantanamo væri ólöglegt. Dómarinn vísaði í nýlega undirrituð lög um hryðjuverkamenn. 13.12.2006 21:41
Fangelsisdyrnar lokast á eftir Skilling Fyrrum framkvæmdastjóri bandaríska orkufyrirtækisins Enron, sem fór á hausinn með háum hvelli árið 2001, hóf fangavist sína í dag í alríkisfangelsinu í Waseca í Minnesota. Hann er dæmdur í 24ra ára fangelsi fyrir hlut sinn í bókhaldssvindli og lygum að hluthöfum fyrirtækisins sem margir áttu allt sitt sparifé í Enron-bréfum. 13.12.2006 21:20
Danskur ráðherra segir af sér Lars Barfoed hefur sagt af sér sem fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur, stuttu eftir að Danski þjóðarflokkurinn lýsti andstöðu við hann sem ráðherra og þar með er meirihluti þingmanna andsnúinn honum. Hann tilkynnti afsögn sína á blaðamannafundi sem hann boðaði til í kvöld. 13.12.2006 20:54
Forseti Kenía afþakkar launahækkun Forseti Kenía, Mwai Kibaki, hafnaði í dag launahækkun sem þingið hafði boðið honum sem hefði nær þrefaldað launaupphæð hans. Kibaki á fyrir umfangsmiklar eignir og viðskiptafyrirtæki og er margfaldur milljónamæringur, í þjóðfélagi þar sem margir þegna hans draga fram lífið á minna en einum Bandaríkjadal á dag. 13.12.2006 20:14
Verðlaunafé boðið fyrir upplýsingar Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á tæpum mánuði. Blaðið News of the World hefur heitið jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna íslenskra króna í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku og hafa um tvö þúsund ábendingar þegar borist lögreglu. 13.12.2006 19:45
Ísraelar brjóta vopnahlé á Gaza Ísraelskir hermenn drápu palestínskan byssumann í dag, í fyrsta skipti síðan vopnahlé á Gaza milli Palestínumanna og Ísraela var samþykkt þann 26. nóvember síðastliðinn. Maðurinn var skotinn rétt við landamæragirðingu sjálfstjórnarsvæðisins. Hann var meðlimur í Fatah-hreyfingu Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palestínumanna. 13.12.2006 19:16
Samkynhneigðir njóti verndar í Færeyjum Færeyska lögþingið samþykkti í dag að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Frumvarpið fer til þriðju umræðu í næstu viku þar sem fastlega er búist við að það verði samþykkt. Sams konar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári. Færeyingar hlutu bágt fyrir þá afgreiðslu og málið var meðal annars tekið upp á síðasta þingi Norðurlandaráðs. 13.12.2006 19:00
Curbishley nýr þjálfari West Ham Alan Curbishley hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins West Ham sem er í eigu Eggerts Magnússonar og Björgólfs Guðmundssonar. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. 13.12.2006 15:40
Saka Frakka um ódæðisverk í Rúanda Stjórnvöld í Rúanda hafa sakað franska hermenn um nauðganir og pyntingar í þjóðarmorðinu sem þar var framið árið 1994. Þau fullyrða einnig að Frakkar hafi þjálfað stjórnarherinn og lagt honum til stórskotalið. Frakkar segja hermenn sína ekkert rangt hafa gert. 13.12.2006 15:37
Lögregla í Ipswich hefur fengið yfir 2000 símtöl vegna morða Lögregla í Suffolk á Englandi hefur fengið hefur yfir 2000 símtöl frá almenningi í kjölfar þess að hún fann tvö lík í gær sem talin eru af tveimur vændiskonum sem saknað hefur verið. Talið er að raðmorðingi gangi laus í landinu en á skömmum tíma hafa fimm vændiskonur fundist látnar nærri Ipswich. 13.12.2006 14:58
800 þúsund Írakar í Sýrlandi Sýrland hefur tekið á móti meira en 800 þúsund flóttamönnum frá Írak, síðan innrásin var gerð í landið árið 2003. Flóttamennirnir fá dvalarleyfi sín endurnýjuð árlega ef þeir hafa fastar tekjur, eiga eignir í Sýrlandi eða hafa skráð börn sín í sýrlenska skóla. 13.12.2006 14:30
Berlingske Officin segir upp 350 manns Útgáfufyrirtækið Berlingske Officin hyggst segja upp 350 starfmönnum á næstu tveimur árum en það jafngildir áttunda hverjum starfsmanna. Þetta er gert vegna fjárhagsvanda félagsins. 13.12.2006 14:16
Mikill áhugi á lýtalækninganámi í Danmörku Umsóknum læknanema um framhaldsnám í lýtalækningum hefur fjölgað mikið í Danmörku undanfarin ár sem meðal annars má rekja til góðra atvinnuhorfa. Frá þessu greinir Nyhedsavisen. 13.12.2006 13:37
Góðar löggur Níu af hverjum tíu kvörtunum um framferði breskra lögregluþjóna, sem bornar voru fram á síðasta ári voru tilefnislausar, að mati sjálfstæðrar rannsóknarnefndar sem fær slíkar kvartanir til meðferðar. Kvörtunum fjölgar þó sífellt, og eru lögregluþjónum þyrnir í augum. 13.12.2006 13:15
Samkynhneigðir unnu sigur á færeyska lögþinginu Færeyska lögþingið hefur samþykkt, með 17 atkvæðum gegn 13, að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Samskonar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári. 13.12.2006 13:08
Gagnrýnir fjölgun í öryggissveitum Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, gagnrýndi í dag Mahmoud Abbas, forseta, fyrir að fjölga í liði öryggissveita á Gaza ströndinni. Hann sagði að rétta leiðin til þess að koma í veg fyrir ofbeldi væri að virða sigur Hamas í þingkosningunum, sem skiluðu þeim til valda. 13.12.2006 13:00
Stefnir í stríð í Sómalíu Allt stefnir í alvarleg stríðsátök í Sómalíu eftir að íslamskir skæruliðar umkringdu borgina Baidoa í suð-vestur Sómalíu í morgun. Þar hefur bráðabirgðastjórn landsins hreiðrað um sig. Stjórnvöld í Eþíópíu viðurkenna að þau hafa flutt hergögn til stjórnvalda síðustu daga auk þess sem liðsmenn í eþíópíska hernum eru sagðir bíða átekta, tilbúnir til átaka ef látið verði sverfa til stáls. 13.12.2006 12:30
Leitar logandi ljósi að raðmorðingja Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á Englandi. Óttast er að ódæðismaðurinn fremji annað morð áður en lögregla hefur hendur í hári hans. 13.12.2006 12:15
Að minnsta kosti 17 fallnir í árásum í Írak í morgun Að minnsta kosti sautján hafa fallið í tveimur bílsprengjuárásum í Írak í morgun. Tíu létust og 25 særðust þegar bílsprengja sprakk í úthverfi sjía í Bagdad-borg í morgun nærri stað þar sem verkamenn koma saman og leita vinnu. 13.12.2006 11:04
Morðingi Hariris var ekki líbanskur Rannsóknarlögreglumenn á vegum Sameinuðu þjóðanna telja sig hafa dregið upp nokkuð grófa mynd af sjálfsmorðssprengjumanni sem myrti Rafik Hariri í gífurlegri sprengingu, út frá einni tönn og 33 ofurlitlum, skaðbrunnum húðflipum. Rannsóknarnefndin segir hann hafa verið á þrítugsaldri og að hann hafi ekki verið líbanskur. 12.12.2006 23:23
Ísraelar virða enn vopnahléð á Gaza Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í kvöld að Ísraelar hefðu ekki í hyggju að svara fyrir sig þó að Palestínumenn hafi skotið um 20 eldflaugum frá Gaza eftir að vopnahlé komst á þar þann 26. nóvember. Vopnaðir hópar á Gaza segja nýlegar árásir Ísraelshers gegn skæruliðum á Vesturbakka Jórdanar brot á vopnahlénu, þó það sé einungis í gildi á Gaza. 12.12.2006 22:38
Fuglesang á geimgöngu Fyrsti Svíinn sem hefur komið út í geiminn er nú á leið í spásértúr í geimgalla á 28 þúsund kílómetra hraða á sporbaug um jörðu. Christer Fuglesang, fer í kvöld við annan mann út fyrir geimstöðina, til að halda áfram að byggja hana, sem er megintilgangur ferðar geimskutlunnar Discovery. 12.12.2006 22:20
Annan gagnrýnir allsherjarþingið Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi meðlimi allsherjarþings S.þ. í kvöld fyrir að bregðast ekki við vaxandi ofbeldi í átökum Ísraela og Palestínumanna. Hann flutti sitt síðasta ávarp um Miðausturlönd fyrir öryggisráðið í kvöld, þar sem hann lætur af störfum sem framkvæmdastjóri um áramótin. 12.12.2006 22:05
Öflugur jarðskjálfti á miklu dýpi nærri Indónesíu Öflugur neðansjávarjarðskjálfti hreyfði við norðausturhluta Indónesíu í kvöld en engin hætta er á flóðbylgju vegna þess hve djúpur sjórinn er þar sem skjálftinn á upptök sín. Skjálftinn mældist 6,5 á Richter-kvarðanum og átti upptök sín um 252 kílómetra norðaustur af eyjunni Sulawesi, á 237 kílómetra dýpi undir yfirborði sjávar og jarðskorpunnar. 12.12.2006 21:27
Þrýstihópur um Lónsheiðargöng innan Samstöðu Baráttuhópur um göng undir Lónsheiði í stað núverandi vegstæðis um Hvalnes- og Þvottárskriður hefur verið stofnaður undir verndarvæng regnhlífarsamtakanna Samstöðu, að sögn fréttavefjarins horn.is. Samtökin sameina marga þrýstihópa sem berjast fyrir bættu umferðaröryggi á landinu. Þau voru upphaflega stofnuð til að berjast fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar. 12.12.2006 21:08
Rabbíinn vildi ljósastiku í jólaskreytingarnar Flugvallaryfirvöld í Seattle í Bandaríkjunum tóku niður 14 jólatré eftir að rabbíi í borginni fór fram á risastórri sjö arma ljósastiku yrði bætt við jólaskreytingarnar. Trén voru sett upp aftur í gær eftir að rabbíinn fullvissaði flugvallarstjórnina um að hann myndi ekki þröngva gyðinglegum áhrifum inn í jólaljósin með dómsúrskurði. 12.12.2006 20:38
Forseti Chile fylgdi Pinochet ekki til grafar Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, var borinn til grafar í höfuðborginni, Santiago, í dag. Hann lést á sunnudaginn, 91 árs að aldri. 12.12.2006 19:25
Orð Olmerts sögð rangtúlkuð Ísraelskt stjórnmálalíf er á öðrum endanum eftir að Ehud Olmert, forsætisráðherra landsins, nefndi Ísrael í hópi kjarnorkuvelda í sjónvarpsviðtali sem birt var í gær. Stjórnarliðar segja orð hans rangtúlkuð en stjórnarandstæðingar segja forsætisráðherrann hins vegar vanhæfan í varnarmálum og vilja að hann víki. 12.12.2006 18:45
Morðið á Hariri tengist 14 öðrum árásum Rannsóknin á morðinu á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, hefur leitt í ljós tengsl milli morðsins á Hariri og 14 annarra árása sem gerðar hafa verið í Líbanon síðan þá. Rannsóknarlögreglumenn á vegum Sameinuðu þjóðanna halda áfram viðtölum og rannsóknum og segja að Sýrlendingar sýni "almennt ásættanlegan" samstarfsvilja. 12.12.2006 17:48
Elsta kona í heimi látin Elísabet Bolden, sem talið er að hafi verið elsta kona í heimi, lést í gær, 116 ára að aldri. Héraðsfjölmiðlar í Tennesse í Bandaríkjunum greina frá þessu í dag. Hún var dóttir frelsaðra þræla, fædd þann 15. ágúst 1890. Hún lætur eftir sig 554 afkomendur, þar af 75 barnabarnabarnabarnabörn. 12.12.2006 17:38
Lögregla í Suffolk finnur tvö lík til viðbótar Lögreglan í Suffolk á Englandi hefur fundið tvö lík til viðbótar nærri Ipswich og óttast er að þau séu af tveimur vændiskonum sem saknað hefur verið undanfarna daga. Ef rétt reynist hafa fimm vændiskonur verið myrtar nærri Ipswich á skömmum tíma. 12.12.2006 17:11
Pinochet jarðsunginn í dag Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, var í dag jarðsunginn í herskóla landsins í höfuðborginni Santiago. Pinochet lést á sunnudaginn var og eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum fékk hann ekki viðhafnarútför. 12.12.2006 16:47
Fáránlegt að leysa upp íraska herinn Breskir hermálasérfræðingar eru hvassyrtir í fordæmingum sínum á Bandaríkjamönnum, eftir að í ljós kom að breska ríkisstjórnin gerði allt sem hún gat til þess að fá þá ofan af því að leysa upp Íraska herinn, og reka nánast alla opinbera starfsmenn. 12.12.2006 16:24
Eru Ísraelar að senda frá sér aðvörun um árás? Fréttaskýrendur velta því fyrir sé hvort Ísraelar hafi verið að senda frá sér aðvörun, þegar Ehud Olmert forsætisráðherra ýjaði að því að Ísrael væri kjarnorkuveldi. Þeir velta því einnig fyrir sér hvort það hafi verið gert í samráði við Bandaríkjamenn. 12.12.2006 15:45
Fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu dæmdur fyrir þjóðarmorð Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu, hefur verið sakfelldur fyrir þjóðarmorð eftir tólf ára réttarhöld. Mengistu hefur hins vegar verið í útlegð í Simbabve í fimmtán ár og því óvíst hvort dómi yfir honum verður framfylgt en hann á hugsanlega yfir höfði sér dauðadóm. 12.12.2006 15:23
Hvetja morðingja vændiskvenna til að gefa sig fram Lögreglan í Ipswich sem rannsakar morð á þremur vændiskonum í borginni hvetur morðingja þeirra til að gefa sig fram. „Þú átt augljóslega við vanda að stríða. Hringdu í mig og við tökumst á við málið," sagði yfirmaður rannóknarinnar í ákalli til morðingjans í breskum fjölmiðlum. 12.12.2006 15:06
Interpol kemur að rannsókn á morði KGB njósnarans Alþjóðalögreglan Interpol hefur verið beðin um aðstoð við rannsókn á morðinu á KGB njósnaranum Alexander Litvinenko, sem lést úr geislaeitrun í Lundúnum í síðasta mánuði. Talsmaður skrifstofu Interpol í Rússlandi, segir að þeir hafi verið beðnir um að samræma upplýsingaflæði milli Bretlands, Rússlands og Þýskaland, en öll þessi lönd eru að rannsaka morðið. 12.12.2006 14:40
Mitt popp Bandarísk móðir í Oregon fylki hefur verið handtekin fyrir að særa son sinn á andliti og höndum, með stórum búrhníf. Sonurinn er tuttugu og eins árs gamall, en móðirin fjörutíu og níu. Syninum tókst að hringja í neyðarlínuna, og hjálpin barst áður en móðirin gat alveg gengið frá honum. 12.12.2006 14:15
Búið að slökkva eldinn í Gamla Stan í Svíþjóð Búið er að slökkva að mestu eldinn sem kom upp í fjölbýlishúsi í Gamla Stan, einu elsta hverfi Stokkhólms, í morgun. Mikill eldur kom upp og voru 40 slökkviliðsmenn að störfum þegar mest lét en nærliggjandi hús voru rýmdi vegna ótta við að eldurinn kynni að berast þangað. 12.12.2006 13:40