Fleiri fréttir Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. 12.10.2006 16:39 Loftslagsbreytingar eru ekki okkur að kenna 12.10.2006 16:16 Amish-skóli jafnaður við jörðu 12.10.2006 15:37 Blaðberar grunaðir um innbrot 12.10.2006 15:23 Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. 12.10.2006 15:20 Skoðana hvað ? 12.10.2006 14:59 Viðurkenndi undirbúning árása 12.10.2006 13:43 Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. 12.10.2006 13:03 Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. 12.10.2006 12:30 Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. 12.10.2006 11:56 Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. 12.10.2006 11:03 Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. 11.10.2006 19:10 Danir bíða föstudagsins með kvíða 11.10.2006 16:53 Spilaði tölvuleik með hugarorku 11.10.2006 16:36 Morðingja Lennons synjað um reynslulausn 11.10.2006 16:06 Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. 11.10.2006 16:01 Engin árás á Norður-Kóreu segir Bush 11.10.2006 15:27 Yfir 650 þúsund Írakar hafa fallið 11.10.2006 15:03 Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna. 11.10.2006 14:24 Geislavirkir sniglar á Spáni þar sem bandarísk sprengjuflugvél fórst 11.10.2006 13:56 Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. 11.10.2006 13:15 10 létust í lestarslysi í Frakklandi Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á. 11.10.2006 12:16 Önnur kjarnorkusprengja Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka. 11.10.2006 11:56 Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. 11.10.2006 11:33 Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. 11.10.2006 11:01 Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. 10.10.2006 19:13 Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. 10.10.2006 19:11 Opnað aftur á Heathrow 10.10.2006 16:52 Putin fordæmir morð á blaðakonu 10.10.2006 16:16 Playboykóngurinn minnkar við sig 10.10.2006 15:02 Vond eiginkona -og móðir 10.10.2006 14:49 Álma rýmd á Heathrow flugvelli 10.10.2006 14:36 Annað stóra flugslysið á Stord 10.10.2006 13:53 Múslimar ráðast á danskar vefsíður 10.10.2006 13:43 Neyðarástand vegna flóða í Grikklandi Miklar rigningar hafa orsakað skyndiflóð víða í Grikklandi síðasta sólarhringinn. Gríska ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi, en hundruð húsa hafa eyðilagst í flóðunum. Brýr og vegir í mörgum héruðum norður og miðhluta landsins hafa eyðilagst og járnbrautarteinar skolast burt og einangrað þannig fjölda íbúa við borgina Volos. 10.10.2006 11:57 Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir vegna ákvörðunar franskra stjórnvalda um að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í fyrradag að reykingar yrðu bannaðar í Frakklandi á flestum opinberum stöðum frá febrúar á þessu ári og á börum, veitingastöðum og næturklúbbum ellefu mánuðum síðar. 10.10.2006 11:00 Utanríkisráðherra Qatar og forseti Palestínu hittast Utanríkisráðherra Qatar fundaði með yfirvöldum í Palestínu í gær í von um að sætta andstæðar fylkingar í forystu stjórnarinnar. Sjeik Hamad Bin Jasseem hitti forseta Palestínu og yfirmann Fatah flokksins, Mahmoud Abbas, í þeirri von að með samvinnu verði aðstoð vesturlanda á Gaza og vesturbakkanum komið á aftur. 10.10.2006 10:45 Rútuslys í Guatemala Að minnsta kosti fjörtíu og tveir eru látnir, þar af sex börn, eftir rútuslys í norðurhluta Guatemala í dag. Rútan gjöreyðilagðist þegar hún fór út af veginum og rann niður 300 metra fjallshlíð. Hún var á leið frá borginni Huehuetenango, sem er nálægt landamærunum að Mexíkó, til Barillas. Fjórtíu og sjö farþegar voru í rútunni en aðeins fimm komust lífs af. 9.10.2006 23:04 Kjarnorkutilraunir höfðu ekki áhrif á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum hélst stöðugt í dag, á meðan gengi hlutabréfa og gjaldmiðla á mörkuðum í Evrópu og Asíu lækkaði nokkuð vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. 9.10.2006 22:15 Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir ákvörðun franskra stjórnvalda að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. 9.10.2006 21:03 Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. 9.10.2006 20:27 Vilja banna sölu vopna til Norður-Kóreu Bandaríkin hafa lagt til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Tillagan felur meðal annars í sér vopnasölubann á Norður-Kóreu. Ekki er enn ljóst hvort að Rússar og Kínverjar styðji tillöguna. 9.10.2006 20:03 Ekki ber á geislavirkum leka Norður-Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnorkusprengju í nótt. Norður-kóreska ríkisfréttastofan sagði sprenginguna hafa gengið að óskum og að ekki bæri á neinum geislavirkum leka. Sprengjan virðist ekki hafa verið mjög stór, en ýmislegt varðandi hana er enn á huldu. 9.10.2006 19:20 700 fluttir á sjúkrahús 9.10.2006 16:51 Palestínumenn vígbúast - hverjir gegn öðrum 9.10.2006 16:34 Sjá næstu 50 fréttir
Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. 12.10.2006 16:39
Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. 12.10.2006 15:20
Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. 12.10.2006 13:03
Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. 12.10.2006 12:30
Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. 12.10.2006 11:56
Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. 12.10.2006 11:03
Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. 11.10.2006 19:10
Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. 11.10.2006 16:01
Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna. 11.10.2006 14:24
Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. 11.10.2006 13:15
10 létust í lestarslysi í Frakklandi Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á. 11.10.2006 12:16
Önnur kjarnorkusprengja Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka. 11.10.2006 11:56
Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. 11.10.2006 11:33
Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. 11.10.2006 11:01
Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. 10.10.2006 19:13
Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. 10.10.2006 19:11
Neyðarástand vegna flóða í Grikklandi Miklar rigningar hafa orsakað skyndiflóð víða í Grikklandi síðasta sólarhringinn. Gríska ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi, en hundruð húsa hafa eyðilagst í flóðunum. Brýr og vegir í mörgum héruðum norður og miðhluta landsins hafa eyðilagst og járnbrautarteinar skolast burt og einangrað þannig fjölda íbúa við borgina Volos. 10.10.2006 11:57
Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir vegna ákvörðunar franskra stjórnvalda um að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í fyrradag að reykingar yrðu bannaðar í Frakklandi á flestum opinberum stöðum frá febrúar á þessu ári og á börum, veitingastöðum og næturklúbbum ellefu mánuðum síðar. 10.10.2006 11:00
Utanríkisráðherra Qatar og forseti Palestínu hittast Utanríkisráðherra Qatar fundaði með yfirvöldum í Palestínu í gær í von um að sætta andstæðar fylkingar í forystu stjórnarinnar. Sjeik Hamad Bin Jasseem hitti forseta Palestínu og yfirmann Fatah flokksins, Mahmoud Abbas, í þeirri von að með samvinnu verði aðstoð vesturlanda á Gaza og vesturbakkanum komið á aftur. 10.10.2006 10:45
Rútuslys í Guatemala Að minnsta kosti fjörtíu og tveir eru látnir, þar af sex börn, eftir rútuslys í norðurhluta Guatemala í dag. Rútan gjöreyðilagðist þegar hún fór út af veginum og rann niður 300 metra fjallshlíð. Hún var á leið frá borginni Huehuetenango, sem er nálægt landamærunum að Mexíkó, til Barillas. Fjórtíu og sjö farþegar voru í rútunni en aðeins fimm komust lífs af. 9.10.2006 23:04
Kjarnorkutilraunir höfðu ekki áhrif á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum hélst stöðugt í dag, á meðan gengi hlutabréfa og gjaldmiðla á mörkuðum í Evrópu og Asíu lækkaði nokkuð vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. 9.10.2006 22:15
Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir ákvörðun franskra stjórnvalda að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. 9.10.2006 21:03
Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. 9.10.2006 20:27
Vilja banna sölu vopna til Norður-Kóreu Bandaríkin hafa lagt til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Tillagan felur meðal annars í sér vopnasölubann á Norður-Kóreu. Ekki er enn ljóst hvort að Rússar og Kínverjar styðji tillöguna. 9.10.2006 20:03
Ekki ber á geislavirkum leka Norður-Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnorkusprengju í nótt. Norður-kóreska ríkisfréttastofan sagði sprenginguna hafa gengið að óskum og að ekki bæri á neinum geislavirkum leka. Sprengjan virðist ekki hafa verið mjög stór, en ýmislegt varðandi hana er enn á huldu. 9.10.2006 19:20