Fleiri fréttir Spáir Dagsbrún sigri í dönsku fríblaðastríði 9.10.2006 13:49
Hamas vill reyna til þrautar að mynda stjórn 6.10.2006 16:54 Varst þetta þú ? 6.10.2006 16:33 Búist við kjarnorkusprengingu um helgina Allt eins er búist við því að Norður-Kórea láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju strax nú um helgina. 6.10.2006 15:43 Standa vörð um Íran 6.10.2006 15:07 Unglingafæla fær friðarverðlaun Ig Nobels Tæki sem fælir unglinga frá hefur unnið friðarverðlaun Ig Nobels í ár en verðlaunin eru skopútgáfa hinna viðurkenndu Nobel verðlauna. Tækið er hannað af Howard Stapleton og það framleiðir hátíðnihljóð sem fullorðnir nema ekki, en hefur truflandi áhrif á unglinga. 6.10.2006 13:45 Þúsundir flýja eld í efnaverksmiðju Rúmur helmingur íbúa í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum hefur í dag þurft að yfirgefa heimili sín vegna bruna í efnaverksmiðju. Íbúar í bænum Apex, þar sem verksmiðjan er staðsett, eru 28 þúsund og hafa um 16 þúsund þeirra orðið að flytja sig á öruggari svæði. Töluvert af hættulegum efnum og efnaúrgangi er að finna í verksmiðjunni sem stendur nú í ljósum logum. 6.10.2006 12:39 Carl Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 12:30 Bakkað út úr óbyggðunum Ökumaður á ferð um óbyggðir Ástralíu á leið til borgarinnar Perth lenti í vandræðum þegar gírkassinn fyrir áfram-gírana bilaði. Maðurinn átti tæplega 500 kílómetra eftir á áfangastað þegar hann ákvað að í staðinn fyrir að hringja á bifvélavirkja, myndi hann bakka á leiðarenda. Hinn 22ja ára ökumaður hafði keyrt um 20 km afturábak þegar hann var stöðvaður af lögreglu á 60 km hraða. 6.10.2006 12:11 Carl Bildt verður utanríkisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra, verður utanríkisráðherra. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 11:42 Rússar vísa 130 Georgíu mönnum úr landi Rússar ætla að vísa 130 Georgíu mönnum úr landi fyrir að hafa bortið innflytendalög í Rússlandi, að sögn Interfax fréttastofunnar. Spennan á milli ríkjanna virðist síst í rénun. 6.10.2006 11:21 AerLingus hafnar tilboði Rayanair Eigendur meirihluta í flugfélaginu AerLingus, meðal annarra írska ríkið, höfnuðu í gær yfirtökutilboði lággjaldafélagsins Rayanair upp á 130 milljarða íslenskra króna. Rayanair á 16 prósent í félaginu og vildi eignast það allt. 6.10.2006 10:59 Sjá næstu 50 fréttir
Njósnarar í mýflugu mynd Breskir hermálavísindamenn eru að þróa vélflugu sem nýta má til að njósna um staðsetningu óvina. Verkefnisstjórinn, Dr. Rafal Zbikowski, segir að fyrstu flugurnar gætu verið tilbúnar innan sjö til tíu ára. Hann hefur nú þegar hannað frumgerð ófleygrar vélflugu sem hermir eftir vængslætti venjulegrar flugu. 9.10.2006 13:45
Sprengingin fordæmd alls staðar Þjóðarleiðtogar hafa fordæmt kjarnorkutilraun N-Kóreu. Sprengjan sprakk hálftíma áður en forsætisráðherra Japan lenti í Seoul , þar sem hann ræðir við forsætisráðherra Suður Kóreu um málið. Kallað hefur verið til neyðarfundar hjá þjóðaröryggisráði Suður Kóreu og herafli landsins settur á hæsta viðbúnaðarstig. 9.10.2006 11:47
Fordæmdi þá sem teiknuðu skopmyndir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, fordæmdi í dag þá flokksmeðlimi Danska þjóðarflokksins sem teiknuðu skopmyndir af Múhameð spámanni. 8.10.2006 20:16
Leitað að fórnarlömbum flugslys Brasilísk stjórnvöld sendu í dag áttatíu hermenn til viðbótar til að taka þátt í leit á Amazon svæðinu að fórnarlömbum flugslys. Slysið er versta fluglslys í sögu landsins en 154 létu lífið þegar flugvéli hrapaði á svæðinu 29. september síðastliðinn. 8.10.2006 20:00
Múslimar reiðir Dönum Ný Múhameðsmyndadeila gæti verið í uppsiglingu eftir að fréttir bárust af því að ungliðar í Danska þjóðarflokknum hefðu haft spámanninn að háði og spotti. Formaður flokksins segir að um saklaust grín hafi verið að ræða en múslimar í Arabaheiminum hóta aðgerðum. 8.10.2006 18:52
Fjórir létust í sprengingu í Bagdad Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja sprakk við vegkant nálægt Tíkrit í Írak í dag. Þeir slösuðu vrou fluttir á Tæknisjúkrahúsið í Tíkrit. Sprengjan sprakk um hundrað og þrjátíu kílómetra norður af Bagdad. 8.10.2006 18:39
Litháar vísa grunuðum njósnara úr landi Litháísk stjórnvöld eru sögð hafa rekið hátt settan starfsmann rússneska sendiráðsins úr landi í dag vegna gruns um njósnir. 8.10.2006 17:57
Íranar vanir hótunum Utanríkisráðherra Írana sagði í dag Írana vana hótunum um refsiaðgerðir og að þær hefðu engin áhrif á áform þeirra um að auðga Úran. 8.10.2006 17:15
Harðir bardagar í Diwaniya Bandarískar og íraskar hersveitir felldu tuttugu liðsmenn úr herflokki sjíaklerksins Muqtada al-Sadr í hörðum bardaga í borginni Diwaniya í nótt. 8.10.2006 11:30
Abe kominn til Kína Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er staddur í Kína í fyrstu opinberu heimsókn japansks leiðtoga þangað í fimm ár. Frá Kína mun Abe svo halda til Suður-Kóreu. 8.10.2006 11:00
Í óformlegum viðræðum við ETA Fulltrúar aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA, og spænsku ríkisstjórnarinnar hafa átt í leynilegum könnunarviðræðum að undanförnu í Noregi. 8.10.2006 10:41
Kalvitis lýsir yfir sigri Ríkisstjórnin í Lettlandi hélt velli í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær, þeim fyrstu frá því ríkið gekk í Evrópusambandið fyrir rúmum tveimur árum. 8.10.2006 10:30
Kyssti nítján baneitraðar gleraugnaslöngur Taílendingurinn Khum Chaibuddee freistaði þess í dag að komast í Heimsmetabók Guinness fyrir óvenjulegt en lífshættulegt uppátæki (LUM). Hann gerði sér lítið fyrir og kyssti nítján baneitraðar gleraugnaslöngur í beinni útsendingu frá Pattaya-ströndinni í Taílandi. 7.10.2006 17:52
Politkovskaya ráðin af dögum Rússneska blaðakonan Anna Politkovskaya var skotin til bana fyrir utan heimili sitt fyrr í dag. 7.10.2006 14:34
25 sjómanna saknað í Japan Sextán skipverja á japönskum fiskibát er saknað eftir að hann sökk í ofviðri norðaustur af landinu. 7.10.2006 14:00
Blaðamenn drepnir í Afganistan Tveir þýskir blaðamenn létu lífið í skotárás í norðurhluta Afganistan fyrr í dag. 7.10.2006 13:17
Mannfall á Srí Lanka Á sjötta tug Tamíl-tígra hafa fallið í bardögum við stjórnarherinn á norðan- og austanverðri Srí Lanka undanfarinn sólarhring. 7.10.2006 13:15
Tóku saklausan borgara af lífi Bandarískur herlæknir vitnaði fyrir herdómstól í gær hvernig landgönguliðar í herdeild hans tóku íraskan borgara af lífi. 7.10.2006 13:00
Spennan magnast á Kóreuskaga Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum að hermönnum frá Norður-Kóreu sem fóru yfir landamærin á milli ríkjanna í morgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á næstu dögum. 7.10.2006 12:30
Karlar sofa betur einir Karlar sem sofa einir í rúmi eru hressari á morgnanna og heilastarfsemi þeirra er öflugri en þeirra sem deila rúmi með maka. 7.10.2006 11:45
Sjálfsmorðsárás í Tal Afar Átta létust og sex særðust í bílsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í morgun. Árásin var gerð á eftirlitsstöð lögreglu en engu að síður voru fjórir óbreyttir borgarar í hópi þeirra sem dóu. 7.10.2006 11:30
Líkir aðgerðum við þjóðernishreinsanir Gela Bezhuasvhili, utanríkisráðherra Georgíu, segir að framganga Rússa undanfarna daga gegn Georgíu jaðri við þjóðernishreinsanir. 7.10.2006 11:15
Dæmdur fyrir morð í Írak Bandarískur herlæknir, sem átti þátt í að ræna Íraka og myrða hann, var í kvöld dæmdur í 10 ára fangelsi en mun aðeins afplána eitt ár þar sem hann mun bera vitni gegn félögum sínum, sem ákærðir eru fyrir morðið. 6.10.2006 23:52
Engin leynifangelsi í Þýskalandi Stjórnvöld í Þýskalandi hafa neitað fréttum frá í dag þess efnis að háttsettir liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, þar á meðal einn höfuðpauranna á bak við hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001, hafi verið í haldið í fangelsi á herstöðvum Bandaríkjahers í Þýskalandi án vitneskju yfirvalda. Það voru bresk samtök sem sérhæfa sig í að veita lögfræðiaðstoð sem greindu frá þessu. Samtökin annast mál margra þeirra sem eru í haldi Bandríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum að Kúbu. 6.10.2006 23:00
Vélmenni sem læknar skalla Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja til jafnvirði tæplega 240 milljóna íslenskra króna til rannsókna hjá fyrirtæki í Cambridge sem er að þróa vélmenni sem mun vinna gegn skallamyndun. 6.10.2006 22:33
Geimrusl gerði gat á geimferju Geimrusl gerði gat á bandarísku geimferjuna Atlantis þegar hún var á ferð um geiminn í 12 daga. Á leið sinni fóru geimfararnir um borð í Alþjóðlegum geimstöðina og hófu á ný framkvæmdir við hana. Fulltrúar Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, greindu frá því í dag að rusl sem komst nærri flauginni á leið hennar til jarðar hafi gert gat á hlífar á kæli. 6.10.2006 22:15
Bætur fyrir brottnám Þýskur lögfræðingur hefur ákveðið að fara nýstárlega leið til að afla fleiri viðskiptavina. Hann ætli að sækja fébætur til þýska ríkisins fyrir þá borgara sem geimverur hafi numið á brott. Lögfræðingurinn, Jens Lorek, segirl ljóst að hér sé þörf á lögfræðiaðstoð en fólk veigri sér við því að leita hjálpar af ótta við að það geri sig að fífli fyrir dómstólum. 6.10.2006 22:07
Ekki fengu allir Nyhedsavisen Nýja danska fréttablaðið Nyhedsavisen, sem hóf göngu sína í morgun, stendur ekki undir hástemmdum loforðum stjórnenda um byltingarkennt dagblað, að mati lektors í danska blaðamannaháskólanum. Erfiðleikar hrjáðu blaðið á fyrsta degi, því vegna bilunar í prentvél tókst aðeins að koma helmingi upplagsins í umferð. 6.10.2006 20:45
Stóð af sér vantrauststillögu Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, baðst í dag afsökunar á því að hafa ekki tekist á við alvarlegt ástand efnahagsmála í landinu fyrir þingkosningar í apríl. Ríkisstjórn forsætisráðherrans stóð af sér vantrauststillögu. 6.10.2006 19:45
Enn logar í eiturefnaverksmiðju Búið er að flytja um 17 þúsund manns frá heimilum sínum í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum í dag vegna stórbruna í efnaverksmiðju í bænum. Efnaúrgangur er brotinn niður í verksmiðjunni og urðu á bilinu 20 til 30 sprengingar í henni í nótt. 18 slösuðust, þar á meðal lögreglu- og slökkviliðsmaður. 6.10.2006 19:30
Reinfeldt forsætisráðherra, Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 19:15
Sprengi fyrr en síðar Allt eins er búist við því að Norður-Kóreumenn láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju nú um helgina. Í gegnum njósnahnetti hefur sést óvenjuleg umferð á nokkrum stöðum í landinu, sem talin er benda til þess að verið sé að undirbúa tilraunasprengingu. 6.10.2006 19:00
Haniyeh hné niður Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hné niður þar sem hann flutti ræðu á fjöldafundi í Gaza-borg í dag. Haniyeh, sem er 46 ára, þagnaði í miðri setningu og féll í fang aðstoðarmanna sinna sem stóðu á bak við hann. 6.10.2006 17:56
Búist við kjarnorkusprengingu um helgina Allt eins er búist við því að Norður-Kórea láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju strax nú um helgina. 6.10.2006 15:43
Unglingafæla fær friðarverðlaun Ig Nobels Tæki sem fælir unglinga frá hefur unnið friðarverðlaun Ig Nobels í ár en verðlaunin eru skopútgáfa hinna viðurkenndu Nobel verðlauna. Tækið er hannað af Howard Stapleton og það framleiðir hátíðnihljóð sem fullorðnir nema ekki, en hefur truflandi áhrif á unglinga. 6.10.2006 13:45
Þúsundir flýja eld í efnaverksmiðju Rúmur helmingur íbúa í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum hefur í dag þurft að yfirgefa heimili sín vegna bruna í efnaverksmiðju. Íbúar í bænum Apex, þar sem verksmiðjan er staðsett, eru 28 þúsund og hafa um 16 þúsund þeirra orðið að flytja sig á öruggari svæði. Töluvert af hættulegum efnum og efnaúrgangi er að finna í verksmiðjunni sem stendur nú í ljósum logum. 6.10.2006 12:39
Carl Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 12:30
Bakkað út úr óbyggðunum Ökumaður á ferð um óbyggðir Ástralíu á leið til borgarinnar Perth lenti í vandræðum þegar gírkassinn fyrir áfram-gírana bilaði. Maðurinn átti tæplega 500 kílómetra eftir á áfangastað þegar hann ákvað að í staðinn fyrir að hringja á bifvélavirkja, myndi hann bakka á leiðarenda. Hinn 22ja ára ökumaður hafði keyrt um 20 km afturábak þegar hann var stöðvaður af lögreglu á 60 km hraða. 6.10.2006 12:11
Carl Bildt verður utanríkisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra, verður utanríkisráðherra. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 11:42
Rússar vísa 130 Georgíu mönnum úr landi Rússar ætla að vísa 130 Georgíu mönnum úr landi fyrir að hafa bortið innflytendalög í Rússlandi, að sögn Interfax fréttastofunnar. Spennan á milli ríkjanna virðist síst í rénun. 6.10.2006 11:21
AerLingus hafnar tilboði Rayanair Eigendur meirihluta í flugfélaginu AerLingus, meðal annarra írska ríkið, höfnuðu í gær yfirtökutilboði lággjaldafélagsins Rayanair upp á 130 milljarða íslenskra króna. Rayanair á 16 prósent í félaginu og vildi eignast það allt. 6.10.2006 10:59