Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Myndband frá Talíbönum Fréttastofa AP hefur komist yfir myndband sem sagt er tekið af Talíbönum í Afganistan og veitir sjaldgæfa svipmynd af þeim átökum sem orðið hafa í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan. Á myndbandinu má sjá fjölmarga hópa vopnaðra andspyrnumanna ganga um þau svæði þar sem hefur komið til átaka og árásarþyrlur skjóta að þeim. 13.9.2006 09:15
Fjandvinir Bandaríkjamanna funda á Kúbu Fundur leiðtoga þeirra ríkja sem standa utan bandalaga hófst í Havana á Kúbu í gær. Forsetar Írans, Sýrlands og Venesúela, auk næstráðandi í Norður-Kóreu, sækja fundinn. 13.9.2006 08:45
Stjórnvöld á Srí Lanka ekki til viðræðna Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Yfirlýsing eftir fund um friðarferlið í Brussel í Belgíu í gær hafi verið röng. 13.9.2006 08:15
Stórt vopnabúr gert upptækt í Kent Lögreglan í Bretlandi telur sig hafa komið upp um umfangsmikið vopnasmygl milli Bretlands og Bandaríkjanna. Lögreglumenn gerðu samræmt áhlaup á þrjú hús í Kent í Bretlandi og í einu þeirra fundust mörg hundruð byssur, bæði sjálfvirkar og hálfsjálfvirkar. 13.9.2006 07:57
Sjö fórust í sprengingu í Tyrklandi Sjö létust og sautján særðust í sprenging sem varð í suðausturhluta Tyrklands í kvöld. Á meðal látinna eru fimm börn. Þrír þeirra sem særðust eru taldir í lífshættu. Sprengingin varð í borginni Diyarbakir og hefur enginn enn lýst yfir ábyrð á árásinni. Kúrdar eru í meirihluta í borginni. Tólf hafa látist í sprengingum í Tyrklandi á síðustu vikum og tugir slasast. 12.9.2006 22:30
Baulað á Blair Fjölmargir verkalýðsforkólfar gengu út af ársfundi sambands verkalýðsfélaga í Bretlandi í dag. Þetta gerðist um leið og Tony Blair tók þar til máls í síðasta sinn sem leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra landsins. 12.9.2006 20:15
Réð menn til að misþyrma kærustunni sinni Sænskur forstjórasonur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að leigja tvo óbótamenn til þess að misþyrma kærustu sinni, til þess að hún missti fóstur. Kærastan hafði neitað að fara í fóstureyðingu. Óbótamennirnir réðust á hana á skógarstíg í einu úthverfa Stokkhólms. Þar héldu þeir henni fastri og börðu hana í kviðinn, með barefli, þartil hún þóttist missa meðvitund. Stúlkan gat skreiðst eftir hjálp, og það tókst að bjarga barni hennar. Árásarmennirnir tveir voru einnig dæmdir til fangelsisvistar. 12.9.2006 20:00
Hryðjuverkaárásirnar seinkuðu inflúensufaraldri í BNA Hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september seinkuðum árlegum inflúensufaraldri í landinu um tvær vikur, árið eftir, að sögn lækna við Barnasjúkrahúsið í Boston. Þeir hafa birt niðurstöður sínar í læknatímariti. Læknarnir rekja þetta til þess að stórfelld minnkun varð á flugi eftir árásirnar og það tók því flensuvírusinn lengri tíma að dreifa sér. Læknarnir telja að þetta sé til marks um að dreifing smitsjúkdóma með flugi sé meiri en áður var talið, og að sú vitneskja geti hugsanlega gagnast ef þurfi að verjast alvarlegum smitsjúkdómum, eins og fuglaflensu. 12.9.2006 20:00
Þriðja hver stúlka misnotuð kynferðislega Þriðja hver stúlka á Grænlandi hefur verið misnotuð kynferðislega áður en hún nær fimmtán ára aldri, samkvæmt könnun sem grænlenska heimastjórnin lét gera. 12.9.2006 19:35
Þýðingarmikið skref stigið á Srí Lanka Stjórnvöld á Srí Lanka og uppreisnarmenn Tamíltígra hafa samþykkt að setjast niður til friðarviðræðna án nokkurra skilyrða. Upplýsingafulltrúi vopnaeftirlitsins á Srí Lanka segir þetta þýðingarmikið skref í átt til friðar. 12.9.2006 19:02
Bandaríkjamenn þakka Sýrlendingum skjót viðbrögð Herskáir múslimar, vopnaðir handsprengjum og byssum, reyndu að brjóta sér leið inn í sendiráð Bandaríkjamanna í Damaskus á Sýrlandi í morgun. Öryggissveitum tókst að hrinda árásinni. Fjórir féllu í átökum, þrír árásarmenn og sýrlenskur öryggisvörður. 12.9.2006 18:45
Samþykkja skilyrðislausar friðarviðræður Stjórnvöld á Srí Lanka og uppreisnarmenn Tamíltígra hafa samþykkt að setjast niður til friðarviðræðna án nokkurra skilyrða. Þetta var staðfest eftir fund um átökin í landinu sem haldinn var í Brussel í Belgíu í dag. 12.9.2006 14:50
Hefnd gegn stingskötunum Að minnsta kosti 10 stingskötur hafa fundist dauðar og illa leiknar á austurströnd Ástralíu. Tvær skatanna fundust með afskorinn hala og óttast dýraverndunarsinnar að stingsköturnar hafi verið drepnar í eins konar hefndaraðgerð fyrir dauða sjónvarpsmannsins vinsæla Steve Irwin sem lést þegar stingskata stakk hann í hjartastað á mánudaginn í síðustu viku. 12.9.2006 14:30
Gæsluvarðhald yfir þingmönnum framlengt Gæsluvarðhald yfir tveimur háttsettum þingmönnum Hamas-samtakanna hefur verið framlengt samkvæmt ákvörðun dómara í Ísrael. Einhverjir þingmenn sem eru í haldi verða þó látnir lausir á næstunni. Flestir þeirra voru teknir höndum skömmu eftir að herskáir Palestínumenn rændu ísraelskum hermanni á Gaza-svæðinu. 12.9.2006 13:31
Háttsettir Hamas-liðar verði látnir lausir Dómstóll í Ísrael hefur fyrirskipað að nokkrir háttsettir liðsmenn Hamas-samtakanna, sem hafa verið í haldi Ísraela, verði látnir lausir. Mennirnir voru handteknir eftir að herskáir Palestínumenn rændu ísraelskum hermanni á Gaza-svæðinu í júní. Meðal hinna handteknu eru ráðherrar í heimastjórn Palestínumanna. 12.9.2006 12:30
Komu í veg fyrir alvarlega árás Öryggissveitarmenn komu í veg fyrir alvarlega hryðjuverkaárás á sendiráð Bandaríkjamanna í Damascus í Sýrlandi í morgun. Þeir felldu þrjá hryðjuverkamenn sem höfðu sprengt bifreið fyrir utan bygginguna í loft upp. Fjórði árásarmaðurinn særðist í átökunum. 12.9.2006 12:00
Ókeypis hárskurður á Vesturbakkanum Rakarar og hárskerar í Ramallah og Betlehem á Vesturbakkanum hafa gripið til þess ráðs að bjóða ókeypis hárskurð í einn sólahring. Þetta var gert í gær til að styðja við bakið á opinberum starfsmönnum heimastjórnar Palestínumanna sem ekki hafa fengið laun sín greidd í marga mánuði. 12.9.2006 11:45
Sprengingar á flugeldamarkaði í Mexíkó Eldur olli töluverðum sprengingum á stærsta flugeldamarkaðinum í Mexíkó í gærkvöldi. Fjölmargir sölubásar í Tultepec, skammt utan við Mexíkó-borg eyðilögðust þegar flugeldarnir fuðruðu upp. 12.9.2006 10:45
Felldu þrjá árásarmenn í Damascus Sýrlenskar öryggissveitir felldu þrjá hryðjuverkamenn sem sprengdu bíl í loft upp fyrir utan bandaríska sendiráðið í Damascus í Sýrlandi í morgun. Innanríkisráðherra Sýrlands segir fjórða árásarmanninn hafa særst í átökum en ekki fallið eins og ranglega hafi verið hermt. Minnst tveir sýrlenskir öryggisverðir féllu í átökum við árásarmennina. 12.9.2006 10:19
Kveikt á minningarljósum í New York Kveikt var á minningarljósum í gærkvöldi þar sem Tvíburaturnarnir stóðu í New York til minningar um hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin fyrir fimm árum. Hér má sjá ljósgeislum beint til himins til minningar um turnana og þá sem fórust þegar þeir hrundu. 12.9.2006 10:15
Hótar frekari árásum Ayman Al-Zawahri, næstráðandi hjá al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, varar við árásum á þau ríki við Persaflóann sem styðji Bandaríkjamenn. Þetta kemur fram á nýju myndbandi með honum sem birt var í gærkvöldi. Hann segir Bandaríkjamenn ekki hafa viljað semja um vopnahlé. 12.9.2006 10:00
Fleiri Frakkar til Líbanons Um 100 franskir friðargæsluliðar komu til Líbanons í morgun. Þeir bætast í hóp friðargæsluliða sem eru þar fyrir á vegum Sameinuðu þjóðanna. 13 skriðdrekar og önnur hergögn voru einnig flutt til Líbanons. 12.9.2006 09:30
Atlantis tengd við geimstöðina Geimferjan Atlantis tengdist alþjóðlegu geimstöðinni í gær. Ferjunni var skotið á loft frá Flórída í Bandaríkjunum um liðna helgi. Verkefni geimfara þar um borð verður að byggja við stöðina en ekki hefur verið bætt við hana í þrjú og hálft ár. 12.9.2006 09:00
Hryðjuverkaárás hrundið Einn sýrlenskur öryggisvörður féll þegar fjórir hryðjuverkamenn, vopnaðir handsprengjum og byssum, réðust á sendiráð Bandaríkjamanna í miðborg Damascus í Sýrlandi í morgun. Árásarmennirnir voru allir felldir. Engan bandarískan sendiráðsstarfsmann sakaði. 12.9.2006 08:38
25 fastir í jarðgöngum Um 230 slökkviliðs- og byggingaverkamenn reyna nú hvað þeir geta til að bjarga 25 vegavinnumönnum sem sitja fastir eftir að gögn hrundu í suð-vestur Kína í gær. Göngin liggja á fjölfarinni leið millin Guangnan og Yansjan í Yunnan-kantónu. 12.9.2006 08:30
Stríðinu ekki lokið Bush Bandaríkjaforseti hvatti í gærkvöldi Bandaríkjamenn til dáða í baráttunni við hryðjuverkamenn og sagði hann stríðinu gegn þeim ekki lokið. Bush ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi í tilefni þess að fimm ár voru í gær liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin. 12.9.2006 08:15
Hryðjuverkaárás á sendiráð Bandaríkjamanna í Damascus All bendir til þess að hryðjuverkaárás hafi verið gerð á sendiráð Bandaríkjamanna í miðborg Damascus í Sýrlandi í morgun. Sýrlenskar öryggissveitir hafa umkringt bygginguna og að sögn Reuters fréttastofunnar má sjá svartan reyk leggja frá byggingunni auk þess sem heyra megi skothríð í næsta nágrenni við hana. 12.9.2006 08:00
Framkvæmdir á geimstöðinni hafnar Byggingarframkvæmdir á alþjóðlegu geimstöðinni hófust í dag. Tveir hugaðir geimfarar vörðu lunganum úr deginum í geimnum utan við geimstöðina í að byggja við hana. Óhætt er að segja að verk þeirra hafi verið töluvert flókið og jafnvel tafsamt. 12.9.2006 19:07
Segir stríðinu gegn hryðjuverkum ekki lokið Bush Bandaríkjaforseti hvatti í kvöld Bandaríkjamenn til dáða í baráttunni við hryðjuverk og sagði hann stríðinu ekki lokið. Bush sagði í ræðu sinni, sem hann hélt í tilefni þess að fimm ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin, að Bandaríkjamenn þyrftu að setja ágreiningsmál sín til hliðar til að geta einbeitt sér að sigri í baráttunni gegn hryðjuverkum. Bush sagði stríðinu ekki lokið og sigur myndi krefjast þess að Bandaríkjamenn legðust á eitt. 11.9.2006 22:50
Páfinn heimsækir fæðingabæ sinn Benedikt páfi sextándi kom í dag til fæðingabæjar síns Marktl í Þýsklandi. Páfi hóf heimsókn sína um Þýskaland um helgina og fagnaði fjöldi fólks honum þegar hann kom í fæðingarbæ sinn í dag. Páfinn tók sér góðan tíma í að heilsa þeim sem safnast höfðu saman. Fyrr í dag messaði páfi í Altoetting þar sem sjötíu þúsund manns hlýddu á hann. Við messuna sagði hann mikilvægt almenningur gleymdi ekki kristilegum gildum. Ferð páfa um Þýskaland stendur í sex daga. 11.9.2006 22:45
Skip ferst með 30 manns í Indlandshafi Yfir þrjátíu manns er saknað eftir að skip fórst milli Madagaskar og Comros í Indlandshafi. Yfirvöld á Madagaskar segja að yfir fimmtíu manns hafi verið um borð í skipinu og tekist hafi að bjarga um tuttugu. Áhöfn á frönsku skipi var sú fyrsta á staðinn en björgunaraðgerðir standa yfir. 11.9.2006 22:24
Fimm ár frá hryðjuverkunum 11. september 2001 Þess var minnst í fjórgang með mínútu þögn í dag þegar farþegavélarnar skullu á Tvíburaturnunum í New York fyrir 5 árum með þeim afleiðingum að þeir hrundu til grunna. Tæplega 3000 manns af hátt í 40 þjóðernum fórust í árásunum og heimurinn hefur ekki verið samur eftir það. 11.9.2006 18:59
Samkomulag um myndun þjóðstjórnar Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, segir samkomulag hafa tekist við Hamas-samtökin um skipan eins konar þjóðstjórnar Palestínumanna. Fulltrúar Hamas hafa staðfest þetta en ekki er vitað með vissu hvað felst í samkomulaginu utan þess að fulltrúar bæði Hamas og Fatah-fylkingar forsetans munu eiga sæti í heimastjórninni. 11.9.2006 14:45
Sex látnir eftir sprengingu í jarðarför í Afganistan Að minnsta kosti sex lögreglumenn týndu lífi og sextán særðust í sjálfsvígssprengjuárás á syrgjendur við jarðarför í Suðvestur-Afganistan í dag. Verið var að bera heraðsstjóra til grafar en hann féll í annarri sjálfsvígssprengjuárás í gær. 11.9.2006 13:15
Hvatt til óhæfuverka gegn Bandaríkjamönnum Næstráðandi hjá al Kaída hryðjuverkasamtökunum hvetur til óhæfuverka gegn Bandaríkjamönnum og bandarískum hagsmunum í nýju myndbandi sem birt var í dag. Upptaka af leiðtoga samtakanna, Osama bin Laden, sem sögð er tekin skömmu fyrir hryðjuverkárásirnar ellefta september 2001 var einnig birt í dag. 11.9.2006 13:00
Flugvél BA nauðlent í Brussel vegna gruns um eld Nauðlenda varð flugvél British Airways flugfélagsins, sem var á leið frá Lundúnum til Frankfurt í Þýskalandi, í Brussel í Belgíu í gærkvöldi þar sem grunur lék á að eldur hefði kviknað um borð. 11.9.2006 11:30
Önnur réttarhöld yfir Hussein hafin Önnur réttarhöldin yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta, hófust á ný í Bagdad í morgun. Í þessu máli er Hussein, ásamt sex öðrum, ákærður fyrir þjóðarmorð á Kúrdum í Norður-Írak á níunda áratug síðustu aldar. 11.9.2006 11:00
Vonir um skipan samsteypustjórnar Ismail Haniyeh, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna, tilkynnti í morgun að hann gerði sér vonir um að innan skamms yrði hægt yrði að mynda samsteypustjórn. Sú stjórn yrði skipuð bæði Hamas-liðum og fulltrúum Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna. 11.9.2006 10:30
Mótmælendur gripu til ofbeldis í Santiago Lögregla í Chile þurfti að grípa til táragass til að dreyfa hópi mótmælenda í höfuðborginni Santiago í gær. Fólk hafði safnast þar saman til að minnast þess að í gær voru 33 ár liðin frá valdatöku einræðisherrans Augusto Pinochets. 11.9.2006 10:15
Blair kominn til Líbanons Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom í morgun til Líbanons. Þar átti hann fund með Fuad Saniora, forsætisráðherra Líbanons. Þingforseti landsins, sem er náinn bandamaður Hizbollah, átti að funda með Blair, en fór frá Beirút skömmu áður, að því er virðist til að snupra Blair. 11.9.2006 09:47
Nýtt myndband frá al Qaeda Tvær myndbandsupptökur sem birtar voru á netinu í gærkvöldi eru sagðar sýna Osama bin Laden, leiðtoga al Qaeda hryðjuverkasamtakanna, þar sem hann hittir aðra stjórnendur í fjallahéraði í óþekktu landi. Svo virðist sem verið sé að leggja á ráðin um árásirnar á New York og Washington fyrir fimm árum. 11.9.2006 09:30
Ferjuslys í Helsingør Fjórir slösuðust lítils háttar þegar tvær ferjur rákust saman í höfninni í Helsingør í Danmörku í morgun. Þétt þoka lá yfir höfninni í morgun og sáu skipstjórar ferjanna hvorugur hina ferjuna. Ferjurnar sigla báðar milli Danmerkur og Svíþjóðar en minni ferjan er mikið skemmd. 11.9.2006 09:30
Staðfest sprengiefni í Vollsmose Efnafræðirannsókn hefur staðfest að efni sem fannst við húsleit í Vollsmose í Danmörku, þegar níu menn voru handteknir, er heimatilbúið sprengiefni. Berlingske Tidende segir frá því í dag að skýrsla dönsku Efnafræðirannsóknastofnunarinnar um sprengiefnið hafi fundist á fjúki í Háskólagarðinum fyrir utan stofnunina. 11.9.2006 09:00
Bráðabirgðastjórnin sögð hafa haldið velli Milo Djukanovic, forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn Svartfjallalands, lýsti í gærkvöldi yfir sigri í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, þeim fyrstu frá því landið hlaut sjálfstæði fyrr í sumar. 11.9.2006 08:45
Þriðjungur trúir samsæriskenningum Rúmur þriðjungur Bandaríkjamanna trúir á samsæriskenningar um að hryðjuverkaárásin á tvíburaturnana hafi verið skipulögð af Bandaríkjamönnum en ekki hryðjuverkamönnum, að því er fram kemur í rannsókn háskólans í Ohio. 11.9.2006 08:15
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent