Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Páfi messar í München Hópur fólks safnaðist saman í útjaðri München í morgun til að hlýða á messu Benedikts páfa sextánda úti undir berum himni. Páfi er nú í heimsókn í Þýskalandi, nánar tiltekið á heimaslóðum í Bæjaralandi. 10.9.2006 11:30
Ekki fleirum bjargað úr gullnámu í Síberíu 25 námamenn hafa nú fundist látnir í gullnámu í Síberíu. Eldur kviknaði í námunni á fimmtudaginn og við það losnuðu eiturgufur. Eldurinn var slökktur nokkrum klukkustundum eftir að hann kviknaði en þá sátu 33 námamenn fastir í námunni. 8 var bjargað í gær. 10.9.2006 11:00
Blair hittir Olmert og Abbas Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, er í Jerúsalem til viðræðan um friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. Hann átt í gærkvöldi fund með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og í morgun ræddi hann við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Olmert segist tilbúinn til viðræðna við Abbas jafnvel þótt ísraelskur hermaður, sem hefur verið í haldi herskárra Palestínumanna síðan snemma í sumar, verði ekki látinn laus. fyrir þann tíma. 10.9.2006 10:30
Farmurinn vegur 17,5 tonn Geimskutlunni Atlantis var loksins skotið á loft í gær með sex geimfara innanborðs. Leiðangurinn heldur til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar en þetta er fyrsta geimskotið þangað frá því að geimskutlan Columbia fórst á leið þaðan til jarðar í febrúar árið 2003. Sjö geimfarar fórust í slysinu sem átti sér stað sextán mínútum fyrir áætlaðan lendingartíma. 10.9.2006 08:00
Barði konu með dauðum hundi Kona á fertugsaldri hefur verið fundin sek um að slá aðra konu ítrekað í höfuðið með dauðum chihuahua-hundi. Konan, Lisa Hopfer, gæti átt yfir höfði sér allt að átján mánaða fangelsisdóm fyrir árásina. Þetta kemur fram á vef bandaríska dagblaðsins St. Lois Today. 10.9.2006 07:45
Hræðsla við íslamska trú Tveir glæpir voru framdir með hryðjuverkaárárunum á Bandaríkin þann 11. september árið 2001 að sögn Mohammads Khatami, fyrrverandi Íransforseta. Þúsundir almennra borgarar voru myrtir og glæpurinn síðan sagður framinn í nafni múhameðstrúar. 10.9.2006 07:30
Tveir glæpir framdir 11. september 2001 Tveir glæpir voru framdir með hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin þann 11. september 2001. Mörg þúsund almennir borgarar voru myrtir og glæpurinn síðan sagður framinn í nafni múhameðstrúar. Þetta segir Mohammad Khatami, fyrrverandi Íransforseti, sem er í heimsókn í Bandaríkjunum. 9.9.2006 20:30
Kjarnakljúf í Noregi lokað vegna leka Loka þurfti litlum kjarnakljúf í Noregi vegna leka sem vart varð við í dag. Kjarnakljúfurinn er notaður til rannsókna og því ekki bannaður samkvæmt lögum. 9.9.2006 20:00
Fjögurra námamanna enn saknað Átta rússneskir námamenn voru fegnir frelsinu þegar þeim var bjargað úr prísund sinni, tæplega fimm hundruð metrum ofan í gullnámu í Síberíu. Þar festust þeir þegar eldur kviknaði í námunni á fimmtudaginn. Tuttugu og einn vinnufélagi þeirra eru látinn og fjögurra er enn saknað. 9.9.2006 19:30
Olmert vill ræða við Abbas Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, er tilbúinn til formlegra viðræðna við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Ísraelskir fjölmiðlar segja Olmert hafa greint frá þessu á fundi sínum með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í Jerúsalem síðdegis. 9.9.2006 19:00
Blair í Ísrael Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, virðist ekki láta vandræði heima fyrir slá sig út af laginu og hélt í heimsókn til Ísraels í dag. Skömmu áður flutti hann ræðu í Lundúnum þar sem hann hvatti til einingar innan Verkamannaflokksins. 9.9.2006 18:45
Atlantis skotið á loft Geimferjunni Atlantis var skotið á loft frá Canaveral-höfða í Flórída í Bandaríkjunum í dag. Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, hafði frestað geimskotinu nokkrum sinnum. Hefði ekki verið hægt að skjóta Atlantis á loft í dag hefði þurft að bíða fram í október. 9.9.2006 15:32
Blair hvetur til einingar Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu fyrir utan fundarstað í Lundúnum í morgun. Þar inni flutti Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sína fyrstu ræðu eftir að hann tilkynnti fyrir helgi að hann myndi víkja sem formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra innan árs. 9.9.2006 12:15
Ringulreið í Írak Töluverð ringulreið skapaðist þegar bílsprengja sprakk nálægt mosku sjía í Haswan, fimmtíu kílómetra suður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Engan sakaði í sprengingunni sjálfri en þegar vegfarendur þustu að skall sprengja úr sprengjuvörpu nærri mannfjöldanum. 9.9.2006 10:11
Varð sem lömuð þegar hún reyndi að flýja Tvær og hálf vika eru nú liðnar frá því Natascha Kampusch strauk frá ræningja sínum, Wolfgang Priklopil, eftir átta og hálft ár í nánast algerri einangrun. Viðtölin sem birtust nú í vikunni, bæði í austurríska ríkissjónvarpinu og tveimur austurrískum blöðum, hafa vakið gríðarmikla athygli um heim allan. 9.9.2006 07:45
Flug- og hafnbanni aflétt Ísraelar hafa aflétt bæði flug- og hafnbanni í Líbanon en það hefur verið í gildi frá því átök milli ísraelskra hermanna og skæruliða Hizbollah hófust í suðurhluta landsins í júlí. Flugbanninu var aflétt í gær en Ísraelar vildu bíða með að aflétta hafnbanninu þar til floti á vegum friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna væri kominn á svæðið. 8.9.2006 23:15
Mannskæð árás í Kabúl Að minnsta kosti 16 manns féllu og fjölmargir særðust þegar bílsprengja sprakk nálægt sendiráði Bandaríkjamanna í Kabúl, höfuðborg Afganistans í morgun. Skömmu síðar komu herforingar Atlandshafsbandalagsins saman til fundar í Póllandi til að ræða fjölgun í fjölþjóðlegu herliði í Afganistan. 8.9.2006 23:00
Friðhelgi aflétt af Pinochet Hæstiréttur í Chile hefur aflétt friðhelgi af Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, þannig að hægt verður að ákæra hann fyrir morð, pyntingar og mannréttindabrot í einu alræmdasta fangelsi landsins á valdatíð hans. Um er að ræða Villa Grimaldi fangelsið þar sem margir máttu sæta pyntingum á árunum 1974 til 1977, þar á meðal Michelle Bachelet, núverandi forseti Chile. 8.9.2006 22:45
Engin tengsl við al Qaeda Engin gögn fyrirfinnast sem styðja þær fullyrðingar að tengsl séu á milli Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og leiðtoga al Qaed hryðjuverkasamtakanna í Írak fyrir upphaf Íraksstríðsins 2003. Þetta kemur fram í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem unnin var í fyrra og Öldungadeild Bandaríkjaþings birti í dag. 8.9.2006 22:30
Ólæti í Þessalóníku Stuðningsmenn nær gjaldþrota knattspyrnuliðs á Grikklandi ruddust inn á leikvöll liðsins í Þessaloníku í kvöld þar sem forsætisráðherra landsins var að flytja árlega ræðu sínum um efnahagsástandið í landinu. 8.9.2006 22:20
Grunaðir um undirbúning hryðjuverka Belgíska lögreglan hefur handtekið ellefu hermenn sem eru grunaðir um að hafa safnað vopnum til hryðjuverkaárásar. Hermennirnir eru sagðir hallir undir nýnasista. 8.9.2006 21:06
Útgöngubann eftir sprengingar Minnst þrjátíu týndu lífi og rúmlega eitt hundrað og tuttugu særðust í tveimur sprengingum í vesturhluta Indlands í morgun. Minnst tuttugu eru sagðir í lífshættu. 8.9.2006 21:01
Engin gögn um tengsli milli Saddams og al Kaída Engin gögn fyrirfinnast sem styðja þær fullyrðingar að tengsl hafi verið á milli Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og al Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak fyrir upphaf Íraksstríðsins 2003. 8.9.2006 20:57
Útgöngubanni komið á eftir sprengingar Minnst tuttugu og fimm týndu lífi og rúmlega hundrað og tuttugu særðust í tveimur sprengingum í Malegaon á vesturhluta Indlands í morgun. Minnst tuttugu eru sagðir í lífshættu. Ekki er fullvíst hvað olli sprengingunum en grunur leikur á að um sprengjuárásir hafi verið að ræða. Útgöngubann hefur verið sett á í hluta borginni sem er fjármálamiðstöð Indlands. 8.9.2006 15:45
Geimskoti Atlantis frestað aftur Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, hefur enn á ný frestað geimskoti geimferjunnar Atlantis. Áætlað var að skjóta henni á loft um klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Sú ástæða er gefin að vandræði hafi verið í eldsneytisnemum ferjunnar. 8.9.2006 15:30
Fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna hryðjuverkasamsæris Dómstóll í Danmörku hefur úrskurðað fimm menn í gæsluvarðhald í fjórar vikur en þeir voru handteknir í Vollsmose fyrr í vikunni, grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk. 8.9.2006 15:00
Biðst afsökunar á netþjófnaði Þjóðarflokksins Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins í Svíþjóð, baðst í gærkvöldi afsökunar á því að nokkrir háttsettir flokksmenn hefðu brotist inn á lokaða vefsíðu Jafnaðarmannaflokksins í aðdraganda þingkosninganna eftir rúma viku. 8.9.2006 13:45
Staðfest að Ísraelar hafi aflétt hafnbanni Fulltrúar friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Líbanon staðfestu í dag að Ísraelar hefðu aflétt hafnbanni sínu á landið í morgun. Flugbanni var aflétt í gær. 8.9.2006 13:30
Undirbýr kæru vegna handtöku meintra hryðjuverkamanna Íslamskur trúarleiðtogi í Danmörku segir dönsku lögregluna ekki hafa neinar sannanir gegn meintum hryðjuverkamönnum sem hún handtók í Vollsmose fyrr í vikunni. Hann undirbýr kæru á hendur lögreglunni. 8.9.2006 12:45
Yfir 50 námamenn létust á Indlandi Enginn þeirra fimmtíu og fjögurra námamanna, sem sátu fastir í námu á Austur-Indlandi eftir sprengingu, sluppu lifandi úr prísund sinni. 8.9.2006 10:30
Óttast að tugir hafi látist í sprengingum á Indlandi Óttast er að minnst tuttugu og fimm hafi týnt lífi og fjölmargir særst í fjórum sprengingum á vestur hluta Indlands í morgun. Ekki er fullvíst hvað olli sprengingunum en grunur leikur á að um sprengjuárásir sé að ræða. 8.9.2006 10:00
Tæplega áttræð kona handtekin fyrir tilraun til bankaráns 79 ára gömul kona var handtekin í Chicago í Bandaríkjunum og á nú von á ákæru fyrir að hafa reynt að ræna útibú Ameríkubankans. Að sögn vitna gekk hún upp að gjaldkeraborði og sýndi gjaldkeranum byssu og krafðist 30 þúsund dollara, eða rúmlega tveggja milljóna króna. 8.9.2006 09:30
Sprenging við mosku á Indlandi Tugir manna eru sagðir hafa slasast í sprengingu fyrir utan mosku í bæ í Maharashtra-ríki á Vestur-Indlandi í morgun. Engar fregnir hafa borist af dauðsföllum en fram kemur í fréttaskeyti Reuters að þúsundir manna hafi safnast saman við moskuna fyrir föstudagsbænir. Orsakir sprengingarinnar eu óþekktar. 8.9.2006 09:15
Undirbúa kæru á hendur lögreglunni í Vollsmose Ímaminn Abu Hassan í Vollsmose í Danmörku, þar sem níu voru handteknir fyrir skipulagningu hryðjuverka, segir lögregluna ekki hafa neinar sannanir í málinu og að allt sé þetta gert til að þóknast Bandaríkjunum. Hann ætlar að safna saman fjölskyldum hinna grunuðu í dag og undirbúa kæru á hendur lögreglunni fyrir framgöngu hennar við handtökuna. 8.9.2006 09:00
Geimskot Atlantis reynt í dag Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun reyna að skjóta geimskutlunni Atlantis á loft klukkan tuttugu mínútur í fjögur í dag ef aðstæður leyfa. Vegna árekstra við dagskrá rússnesku geimferðastofnunarinnar reyndist ekki hægt að fresta skotinu til þess að skipta mætti um bilaða ljósavél sem hefur verið til vandræða. 8.9.2006 08:45
Kosningabaráttan heldur áfram að loknum kosningum Kosningabarátta forsetaframbjóðanda heldur áfram í Mexíkó þó að rúmir tveir mánuðir séu liðnir frá kjördegi. Forsetaframbjóðandi vinstri manna, Lopez Obrador, segist ætla að halda ráðstefnu á sjálfstæðisdag Mexíkó, þann 16. september, til þess að mynda aðra ríkisstjórn til höfuðs ríkisstjórn Felipe Calderons. 8.9.2006 08:30
Hönnun nýrra turna í stað Tvíburaturnanna kynnt Bandarískir arkitektar kynntu í gær hönnun sína að þremur nýjum skýjakljúfum sem munu rísa við hliðina á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu í New York. Sá hæsti turnanna verður 78 hæðir og verður þakið á þeim turni skorið í fjóra tígla sem verða lýstir upp að næturlagi. 8.9.2006 07:43
Nýtt myndband með bin Laden Arabíska fréttastöðin Al Jazeera hefur sýnt myndband sem sagt er vera af fundi Osama Bin Laden, leiðtoga al Kaída hryðjuverkasamtakanna, með nokkrum þeirra sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin ellefta september 2001. 7.9.2006 22:19
Lægir ekki öldurnar í Verkamannaflokknum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að afsala sér ráðherraembætti og leiðtogahlutverki í Verkamannaflokknum innan árs en vill ekki tímasetja brotthvarf sitt nánar að sinni. Stjórnmálaskýrendur segja yfirlýsingu Blairs ekki lægja öldurnar í flokknum. 7.9.2006 20:34
Barcelona ber merki á treyjunni í fyrsta sinn fyrir UNICEF Fótboltafélagið Barcelona, sem Eiður Smári Guðjohnsen leikur með, og UNICEF kynntu í dag samstarf um að bæta líf barna í þróunarlöndunum sem meðal annars felur í sér að í fyrsta skipti í 107 ára sögu Barcelona skartar félagið merki á treyjum sínum, en það er merki UNICEF. 7.9.2006 17:05
Leita námamanna á Austur-Indlandi Björgunarmenn leita nú fimmtíu og þriggja námamanna sem sitja fasti í kolanámu á Austur-Indlandi. Sprenging varð í göngunum og óttast er að mennirnir hafi allir týnt lífi. Mennirnir eru grafnir um tvö hundruð metra niðri í jörðinni og litlar líkur sagðar á því að þeir finnist lifandi. 7.9.2006 16:15
Næsta flokksþing það síðasta hjá Blair Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti rétt í þessu að næsta flokksþing Verkamannaflokksins, sem verður haldið í lok september verði hans síðasta sem leiðtogi flokksins. Þar með er ljóst að hann mun segja af sér sem forsætisráðherra en Blair vildi ekki gefa hvenær nákvæmlega hann stigi niður úr stól forsætisráðherra. Sagðist hann vilja ráða því sjálfur og tilkynna um það síðar. 7.9.2006 14:04
Yfirtstjórn hermála í hendur Íraka Bandaríkjamenn hafa fært yfirstjórn hermála í Írak í hendur forsætisráðherra landsins, Nouri Maliki. Frá þessu var greint á fréttavef BBC fyrir stundu. Maliki skrifaði undir samkomulag þessa efnis við athöfn í Bagdad í dag. Búist er við að sjóherinn og flugherinn verði fyrst undir stjórn Íraka en ekki liggur endanlega fyrir hversu hratt breytingarnar ganga í gegn. 7.9.2006 12:46
Réttað á ný yfir Guantanamo-föngum Bandarískir saksóknarar segja að réttarhöld yfir föngum sem haldið hefur verið án dóms og laga í Guantanamo-búðunum á Kúbu geti haldið áfram í byrjun næsta árs. Þeirra á meðal eru skipuleggjendur hryðjuverkaárásanna ellefta september. 7.9.2006 12:30
Búist við tilkynningu frá Blair eftir hádegið Tony Blair mun láta af embætti sem forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi innan árs og mun tilkynna um það eftir hádegi. 7.9.2006 11:07