Fleiri
21.9.2004 00:01 Vilja 20 þúsund milljarða bætur Mál bandaríska ríkisins gegn stærstu tóbaksfyrirtækjum Bandaríkjanna hefst fyrir rétti í dag. Tóbaksfyrirtækin er sökuð um að hafa blekkt almenning og reynt að leyna því hvaða hættur fylgja reykingum þótt þau hefðu vitneskju um þær. 21.9.2004 00:01 Hundruð látnir á Haítí Nú er talið að tæplega 700 manns hafi látist eftir að fellibylurinn Jeanne gekk yfir Haítí um helgina. Jeanne hafði áður kostað nokkra lífið í Dóminíska lýðveldinu og Púertó Ríkó. 21.9.2004 00:01 Óskar eftir fundi um innrásina Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálanefnd, hefur sent Sólveigu Pétursdóttur, formanni nefndarinnar, bréf þar sem óskað er eftir fundi í nefndinni við fyrsta hentugleika til að ræða stuðning Íslands við innrásina í Írak og aðdraganda hennar. 21.9.2004 00:01 Hátt í þúsund manns létust Hátt í eitt þúsund manns týndu lífi í gríðarmiklum flóðum í kjölfar fellibylsins Jeanne á Haíti. Þetta mikla manntjón er rakið til gróðureyðingar landsins sem aftur er rakin til fátæktar og pólitískrar óstjórnar. 21.9.2004 00:01 Vill að fleiri hjálpi til í Írak "Lýðræðislegt Írak á sér miskunnarlausa óvini," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Hann hvatti þjóðir heims til að aðstoða við uppbyggingu Íraks og varði þá ákvörðun sína að gera innrás í Írak þrátt fyrir að deilt væri um lögmæti hennar. 21.9.2004 00:01 Flestum KGB-skýrslum eytt Lettar munu eyða stærstum hluta þeirra skýrslna sem sovéska leynilögreglan, KBG, skildi eftir þegar Sovétmenn héldu frá Lettlandi eftir að Eystrasaltsríkin fengu sjálfstæði. Einu skýrslurnar sem verða gerðar opinberar eru þær sem fjalla um fólk sem hefði ljóstrað upp um andóf við Sovétríkin. 21.9.2004 00:01 Varað við sýkingu Gera má ráð fyrir að um það bil sex þúsund Bretum hafi brugðið þegar þeir lásu bréf frá heilbrigðisyfirvöldum þar sem þeir voru varaðir við því að þeir hefðu hugsanlega þegið blóð sem væri sýkt af Creutzfeldt-Jakob sjúkdómnum. Sjúkdómurinn er það afbrigði kúariðu sem leggst á menn. 21.9.2004 00:01 Kaupa sprengjur á kostnað kana Bandaríkjamenn ætla að selja Ísraelum nær 5.000 háþróaðar sprengjur og greiða sjálfir fyrir þær með peningum sem ætlaðir eru til hernaðaraðstoðar við Ísraela. Að sögn ísraelska dagblaðsins Haaretz er kaupverð sprengjanna tæpir 23 milljarðar króna. 21.9.2004 00:01 Breyta sprengjum í rafmagn Frakkar ætla að breyta plútóni úr bandarískum kjarnorkusprengjum í eldsneyti fyrir kjarnakljúfa. Kjarnorkueldsneytið verður síðan flutt aftur til Bandaríkjanna þar sem það verður notað til að framleiða rafmagn fyrir bandarísk heimili. 21.9.2004 00:01 Enn neyðarástand í Darfur "Þetta er neyðarástand sem er enn í gangi. Enn er verið að myrða fólk, nauðga og hrekja það frá heimilum sínum í Darfur," sagði Irene Khan, framkvæmdastjóri Amnesty International þegar samtökin kynntu niðurstöður rannsóknarnefndar sem kannaði ástandið í Darfur-héraði í Súdan. 21.9.2004 00:01 Tveir bandarískir gíslar aflífaðir Myndband sem sýnir þegar írakskir öfgamenn taka bandarískan gísl af lífi var í dag birt á Netinu. Mennirnir hótuðu í morgun að drepa tvo aðra gísla innan sólarhrings og létu verða af því að drepa annan þeirra rétt fyrir fréttir, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera. 21.9.2004 00:01 Bush varði stefnu sína í Írak George Bush Bandaríkjaforseti varði stefnu sína í Írak í ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. 21.9.2004 00:01 Nýr forseti í Indónesíu? Allt bendir til þess að Megawati Sukarnuputri, forseti Indónesíu, hafi beðið lægri hlut í forsetakosningum sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur benda til þess að hún hafi hlotið tæplega fjörutíu og sjö prósent greiddra atkvæða en að keppinauturinn, Susilo Bambang Yudhoyono, hafi hlotið ríflega fimmtíu og þrjú prósent atkvæða. 20.9.2004 00:01 Sprengja sprakk á popptónleikum Sprengja sprakk undir lögreglubíl á popptónleikum í Tyrklandi í gær og særðust í það minnsta fjórtán, þar af tveir mjög alvarlega. Enginn hefur gengist við tilræðinu en vinstrisinnaðir skæruliðar, kúrdískir aðskilnaðarsinnar og öfgafullir múslímar hafa áður látið til sín taka á sama svæði. 20.9.2004 00:01 Lifði eins og ormur í viku Breskur listamaður hefur nýlokið við fremur óvenjulegan gjörning. Hann ákvað að fara úr fötunum og vefja sig inn í plast til þess að geta lifað eins og ormur í rúma viku. Hann skreið á maganum út um allt og hélt sig að mestu í holum í jörðinni. 20.9.2004 00:01 Norska prinsessan ólétt Norska konungsfjölskyldan tilkynnti í morgun að norska prinsessan Martha Louise eigi von á barni með eiginmanni sínum, Ara Behn. Von er á hinni nýju konunglegu viðbót um miðjan apríl á næsta ári. Prinsessan hafði hug á að flytja til Bandaríkjanna í haust en nú verða einhverjar breytingar á þeirri ætlan. 20.9.2004 00:01 Hægriöfgaflokkur sigurvegari Hægriöfgaflokkurinn NPD og fyrrverandi kommúnistaflokkurinn PDS eru sigurvegarar kosninga sem fóru fram í Þýskalandi í gær. Stjórnmálamenn segja kjósendur vera að mótmæla en virðast vanmeta hversu útbreitt útlendingahatur er orðið. 20.9.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Heimsmet í sporðdrekasambúð Kona frá Malasíu, hefur slegið heimsmet í sambýli með sporðdrekum. Nur Malena Hassan, sem kölluð er sporðdrekadrottningin hefur dvalið 33 daga í glerbúri ásamt 6 þúsund sporðdrekum. Þrátt fyrir að hafa ítrekað verið bitin af drekunum ætlar Hassan sér að dvelja þrjá daga til viðbótar í félagsskap skridýranna. 22.9.2004 00:01
Enn ein árásin í Írak Enn á ný varð gerð sjálfsmorðsárás í miðborg Bagdad í morgun, en í þetta skipti virðist skotmarkið hafa verið röð umsækjenda um störf hjá öryggissveitum Íraks. Þeir stóðu í röð til að láta ljósrita skilríki sín þegar bílsprengja sprakk. Fólk þeyttist í loft upp og tíu bílar brunnu til ösku. Ellefu fórust og fjöldi særðist. 22.9.2004 00:01
Jeanne aftur til Bandaríkjanna? Fellibylurinn Jeanne gæti lagt leið sína aftur til Bandaríkjanna um helgina að mati veðurfræðinga vestanhafs. Veðurfræðingar í Miami hafa varað íbúa frá Florida að Maryland við því að bylurinn, sem geysist um með 90 km hraða á klukkustund, gæti náð Suðurströnd Bandaríkjanna um helgina. 22.9.2004 00:01
11 Afgönum sleppt 11 Afgönum var í dag sleppt úr fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu, eftir að hafa verið þar í haldi í þrjú ár. Grunur lék á að þeir tengdust Talibönum, en svo reyndist ekki vera. Fangarnir fyrrverandi sögðust við komuna til Afganistans telja að bæta ætti þeim skaðann. Þeir sögðust ekki hafa sætt illri meðferð. 22.9.2004 00:01
Kanadískri konu sleppt Kanadískri konu, sem verið hefur í haldi mannræningja í Írak í tvær vikur, var sleppt í dag. Hún er nú í umsjá bandaríska hersins í Írak, að sögn Pierre Pettigrew utanríkisráðherra Kanada. Ekki hafði verið tilkynnt um að henni hefði verið rænt, en að sögn utanríkisráðherrans vissu menn engu að síður af því og hefur verið unnið að frelsun hennar. Hann sagði að ránið á konunni hefði ekki verið gert opinbert, að ósk fjölskyldu hennar. Konan er starfsmaður kanadísks fyrirtækis og var á vegum þess í Írak. 22.9.2004 00:01
Tveir létust í sjálfsmorðsárás Tveir létust þegar kona gerði sjálfsmorðsárás nærri vinsælli stoppistöð ferðalanga í Jerúsalem síðdegis, en skammt þar frá er eftirlitsstöð Ísraelshers. 15 slösuðust, þar á meðal börn. Þetta er fyrsta sjálfsmorðsárásin í Jerúsalem í sjö mánuði. Al-Aksa herdeildin, sem er hluti af Fatah-hreyfingu Jassirs Arafats, lýsti tilræðinu á hendur sér. 22.9.2004 00:01
Úthúðar Evrópusambandinu Bretland, Danmörk og fleiri ríki sætta sig ekki við alræðisvaldið sem ný, evrópsk stjórnarskrá færir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að mati Dans Hannans, bresks þingmanns á Evrópuþinginu. Hann telur líklegt að ríkin kjósi fremur svipuð tengsl við Sambandið og ríkin á Evrópska efnahagssvæðinu. 22.9.2004 00:01
Gísl biðlaði til Blair "Herra Blair. Þér er ég ekkert, bara einn af íbúum Bretlands, ekkert meir, með fjölskyldu eins og þú, eins og fjölskyldan þín, eins og börnin þín, strákarnir þínir og konan þín," sagði Kenneth Bigley, breskur gísl í Írak þegar hann leitaði ásjár Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. "Þú getur hjálpað mér, ég veit þú getur hjálpað mér," sagði hann snöktandi. 22.9.2004 00:01
Erdogan má búast við gagnrýni Búist er við því að Recep Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, fái vænan skammt af gagnrýni þegar hann fundar með forystumönnum Evrópusambandsins í dag. Erdogan ræðir við forystumenn Evrópusambandsins um möguleika Tyrklands á að fá aðild að sambandinu en efasemdir eru uppi um hvort Tyrkir uppfylli skilyrði fyrir aðild. 22.9.2004 00:01
Þrjú létust í sjálfsmorðsárás Tveir ísraelskir landamæraverðir létu lífið og sextán manns særðust þegar nítján ára palestínsk stúlka sprengdi sjálfa sig í loft upp á fjölförnum gatnamótum í Jerúsalem. 22.9.2004 00:01
Síðbúin lausn Egypski klerkurinn Nashaat Ibrahim er laus úr haldi, tveimur árum eftir að dómstóll úrskurðaði hann saklausan af þeim ákærum sem hann var handtekinn fyrir. 22.9.2004 00:01
Fjórir lögreglubílar í árekstri Umferðarteppa myndaðist þegar fjórir lögreglubílar lentu í árekstri á hraðbraut í norðurhluta Englands. Engir fólksbílar eða flutningabílar komu við sögu í árekstrinum utan þeirra hundraða bíla sem stöðvuðust í umferðinni meðan verið var að hreinsa upp á vettvangi og losa einn lögreglumanninn úr bíl sínum með klippum. 22.9.2004 00:01
Heilaskaði banaði Rauða baróninum Tæpum níu áratugum eftir að frægasti flugkappi fyrri heimsstyrjaldar lést telja tveir bandarískir fræðimenn sig hafa fundið orsökina að því að Manfred von Richtofen, sem lengi virtist ósigrandi, lét lífið í bardaga. 22.9.2004 00:01
Æsispennandi kosningar framundan Úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum ráðast af því hvernig kjósendur í Flórída og Arkansas greiða atkvæði, að því er segir í kosningaspá Zogby-fyrirtækisins sem kannar fylgi forsetaframbjóðendanna eftir ríkjum Bandaríkjanna. 22.9.2004 00:01
Þjálfa íraska hermenn nærri Bagdad Ríki Atlantshafsbandalagsins hafa komist að samkomulagi um að senda 300 herforingja til Íraks til að setja á fót og reka herskóla í nágrenni höfuðborgarinnar Bagdad. Fyrir höfðu 40 leiðbeinendur verið sendir til Íraks en ekki var hægt að ráðast í frekari aðgerðir þar sem Frakkar stóðu, þar til í gær, á móti því. 22.9.2004 00:01
Öryggisstofnanir fá aukin völd Stofnanir sem berjast gegn hryðjuverkum fá aukin völd, samkvæmt nýrri og viðamikilli áætlun sem neðri deild rússneska þingsins samþykkti á fundi sínum í gær. Enn fremur verður hægt að refsa embættismönnum sem bregðast í því að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. 22.9.2004 00:01
Fyrsta jarðgasvirkjun Noregs Norsk Hydro og Statkraft ætla að byggja umdeilda raforkuvirkjun sem notar jarðgas við rafmagnsframleiðsluna. Andstæðingar óttast að Noregur standist ekki skuldbindingar sínar gagnvart Kyoto-samkomulaginu vegna virkjunarinnar. </font /></b /> 22.9.2004 00:01
40 miljónir sparast á dag Sveitarfélögin spara um fjörutíu milljónir króna í launagreiðslur á dag vegna verkfalls rúmlega fjögur þúsund kennara. Launakostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólakennara og skólastjóra á þessu ári var áætlaður 16,2 milljarðar króna, en ljóst er að hann lækkar eftir því sem verkfallið dregst á langinn. 21.9.2004 00:01
60 mínútur draga frétt til baka Sjónvarpsstöðin CBS hefur dregið til baka umdeilda frétt sem birt var í fréttaskýringaþættinum 60 mínútur. Þar var fjallað um herþjónustu George Bush Bandaríkjaforseta og sagt að hann hefði komið sér undan herþjónustu í Víetnam og að faðir hans hafi tryggt honum sérmeðferð. 21.9.2004 00:01
Rúmlega 500 látnir á Haítí Fleiri en fimm hundruð hafa týnt lífi á Haítí í kjölfar þess að fellibylurinn Jeanne reið þar yfir og olli miklum flóðum. Óttast er að þessi tala muni hækka. Þriðjungur þeirra sem færðir hafa verið látnir á sjúkrahús í einum hluta landsins eru börn. 21.9.2004 00:01
Bandarískur gísl afhöfðaður Bandarískur gísl írakskra mannræningja var drepinn í nótt. Mannræningjarnir skáru af honum höfuðið og birtu myndband af því á síðu íslamskra öfgamanna. Þeir hótuðu jafnframt að gera slíkt hið sama við tvo aðra gísla sína, yrði ekki orðið við kröfum þeirra innan sólarhrings. 21.9.2004 00:01
Mijailovic ekki lengur sænskur Mijailo Mijailovic, morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er ekki lengur sænskur ríkisborgari. Mijailovic er af serbnesku bergi brotinn og hefur hingað til verið með tvöfaldan ríkisborgararétt. 21.9.2004 00:01
Kaupa sprengjur fyrir 10 milljarða Bandaríkjastjórn hefur lagt blessun sína yfir risa vopnasölu til Ísraels. Alls ætlar Ísraelsstjórn að kaupa bandarískar sprengjur fyrir tæplega tíu milljarða íslenskra króna. Á meðal vopnanna eru um 500 sprengjur sem geta borað sér ofan í jörðina og sprengt upp neðanjarðarbyrgi. 21.9.2004 00:01
Saddam vill búa í Svíþjóð Saddam Hússein, fyrrverandi einræðisherra í Írak, sækir nú fast að fá að búa í Svíþjóð, Austurríki eða Sviss. Hann krefst þess að hann verði náðaður og fái að búa í útlegð í einhverju af þessum þremur löndum. 21.9.2004 00:01
Biðla til Blairs vegna gísls Írakskir öfgamenn tóku bandarískan gísl af lífi í nótt og hóta að myrða tvo til viðbótar verði ekki orðið við kröfum þeirra. Ættingjar Kenneth Bigley, bresks gísls sem er í haldi mannanna, hafa þrábeðið Tony Blair, forsætisráðherra Breta, um að gera allt sem hann getur til að bjarga lífi Bigleys. 21.9.2004 00:01
Þriðji hver 30 ára Dani glæpamaður Þriðji hver Dani um þrítugt er glæpamaður. Ný könnun sem danska dómsmálaráðuneytið hefur látið gera um Dani sem fæddir eru árið 1970 leiðir í ljós að um þrjátíu prósent þeirra hafa komist í kast við lögin. Og þá eru umferðarlagabrot þar sem sektin er undir tíu þúsund krónum og hjólreiðatúrar á ljóslausu hjóli ekki talin með. 21.9.2004 00:01
Tala látinna nálgast 700 Tala látinna í flóðum og aurskriðum á Haítí í kjölfar fellibylsins Jeanne er komin yfir 660 og er búist við að fleiri lík eigi eftir að finnast. Það er aðallega norðurhluti landsins sem varð illa úti og í strandbænum Gonaives sem liggur að mestu undir vatni hafa fundist fimm hundruð lík. 21.9.2004 00:01
Vilja 20 þúsund milljarða bætur Mál bandaríska ríkisins gegn stærstu tóbaksfyrirtækjum Bandaríkjanna hefst fyrir rétti í dag. Tóbaksfyrirtækin er sökuð um að hafa blekkt almenning og reynt að leyna því hvaða hættur fylgja reykingum þótt þau hefðu vitneskju um þær. 21.9.2004 00:01
Hundruð látnir á Haítí Nú er talið að tæplega 700 manns hafi látist eftir að fellibylurinn Jeanne gekk yfir Haítí um helgina. Jeanne hafði áður kostað nokkra lífið í Dóminíska lýðveldinu og Púertó Ríkó. 21.9.2004 00:01
Óskar eftir fundi um innrásina Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálanefnd, hefur sent Sólveigu Pétursdóttur, formanni nefndarinnar, bréf þar sem óskað er eftir fundi í nefndinni við fyrsta hentugleika til að ræða stuðning Íslands við innrásina í Írak og aðdraganda hennar. 21.9.2004 00:01
Hátt í þúsund manns létust Hátt í eitt þúsund manns týndu lífi í gríðarmiklum flóðum í kjölfar fellibylsins Jeanne á Haíti. Þetta mikla manntjón er rakið til gróðureyðingar landsins sem aftur er rakin til fátæktar og pólitískrar óstjórnar. 21.9.2004 00:01
Vill að fleiri hjálpi til í Írak "Lýðræðislegt Írak á sér miskunnarlausa óvini," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Hann hvatti þjóðir heims til að aðstoða við uppbyggingu Íraks og varði þá ákvörðun sína að gera innrás í Írak þrátt fyrir að deilt væri um lögmæti hennar. 21.9.2004 00:01
Flestum KGB-skýrslum eytt Lettar munu eyða stærstum hluta þeirra skýrslna sem sovéska leynilögreglan, KBG, skildi eftir þegar Sovétmenn héldu frá Lettlandi eftir að Eystrasaltsríkin fengu sjálfstæði. Einu skýrslurnar sem verða gerðar opinberar eru þær sem fjalla um fólk sem hefði ljóstrað upp um andóf við Sovétríkin. 21.9.2004 00:01
Varað við sýkingu Gera má ráð fyrir að um það bil sex þúsund Bretum hafi brugðið þegar þeir lásu bréf frá heilbrigðisyfirvöldum þar sem þeir voru varaðir við því að þeir hefðu hugsanlega þegið blóð sem væri sýkt af Creutzfeldt-Jakob sjúkdómnum. Sjúkdómurinn er það afbrigði kúariðu sem leggst á menn. 21.9.2004 00:01
Kaupa sprengjur á kostnað kana Bandaríkjamenn ætla að selja Ísraelum nær 5.000 háþróaðar sprengjur og greiða sjálfir fyrir þær með peningum sem ætlaðir eru til hernaðaraðstoðar við Ísraela. Að sögn ísraelska dagblaðsins Haaretz er kaupverð sprengjanna tæpir 23 milljarðar króna. 21.9.2004 00:01
Breyta sprengjum í rafmagn Frakkar ætla að breyta plútóni úr bandarískum kjarnorkusprengjum í eldsneyti fyrir kjarnakljúfa. Kjarnorkueldsneytið verður síðan flutt aftur til Bandaríkjanna þar sem það verður notað til að framleiða rafmagn fyrir bandarísk heimili. 21.9.2004 00:01
Enn neyðarástand í Darfur "Þetta er neyðarástand sem er enn í gangi. Enn er verið að myrða fólk, nauðga og hrekja það frá heimilum sínum í Darfur," sagði Irene Khan, framkvæmdastjóri Amnesty International þegar samtökin kynntu niðurstöður rannsóknarnefndar sem kannaði ástandið í Darfur-héraði í Súdan. 21.9.2004 00:01
Tveir bandarískir gíslar aflífaðir Myndband sem sýnir þegar írakskir öfgamenn taka bandarískan gísl af lífi var í dag birt á Netinu. Mennirnir hótuðu í morgun að drepa tvo aðra gísla innan sólarhrings og létu verða af því að drepa annan þeirra rétt fyrir fréttir, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera. 21.9.2004 00:01
Bush varði stefnu sína í Írak George Bush Bandaríkjaforseti varði stefnu sína í Írak í ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. 21.9.2004 00:01
Nýr forseti í Indónesíu? Allt bendir til þess að Megawati Sukarnuputri, forseti Indónesíu, hafi beðið lægri hlut í forsetakosningum sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur benda til þess að hún hafi hlotið tæplega fjörutíu og sjö prósent greiddra atkvæða en að keppinauturinn, Susilo Bambang Yudhoyono, hafi hlotið ríflega fimmtíu og þrjú prósent atkvæða. 20.9.2004 00:01
Sprengja sprakk á popptónleikum Sprengja sprakk undir lögreglubíl á popptónleikum í Tyrklandi í gær og særðust í það minnsta fjórtán, þar af tveir mjög alvarlega. Enginn hefur gengist við tilræðinu en vinstrisinnaðir skæruliðar, kúrdískir aðskilnaðarsinnar og öfgafullir múslímar hafa áður látið til sín taka á sama svæði. 20.9.2004 00:01
Lifði eins og ormur í viku Breskur listamaður hefur nýlokið við fremur óvenjulegan gjörning. Hann ákvað að fara úr fötunum og vefja sig inn í plast til þess að geta lifað eins og ormur í rúma viku. Hann skreið á maganum út um allt og hélt sig að mestu í holum í jörðinni. 20.9.2004 00:01
Norska prinsessan ólétt Norska konungsfjölskyldan tilkynnti í morgun að norska prinsessan Martha Louise eigi von á barni með eiginmanni sínum, Ara Behn. Von er á hinni nýju konunglegu viðbót um miðjan apríl á næsta ári. Prinsessan hafði hug á að flytja til Bandaríkjanna í haust en nú verða einhverjar breytingar á þeirri ætlan. 20.9.2004 00:01
Hægriöfgaflokkur sigurvegari Hægriöfgaflokkurinn NPD og fyrrverandi kommúnistaflokkurinn PDS eru sigurvegarar kosninga sem fóru fram í Þýskalandi í gær. Stjórnmálamenn segja kjósendur vera að mótmæla en virðast vanmeta hversu útbreitt útlendingahatur er orðið. 20.9.2004 00:01