Enn ein árásin í Írak 22. september 2004 00:01
Enn á ný varð gerð sjálfsmorðsárás í miðborg Bagdad í morgun, en í þetta skipti virðist skotmarkið hafa verið röð umsækjenda um störf hjá öryggissveitum Íraks. Þeir stóðu í röð til að láta ljósrita skilríki sín þegar bílsprengja sprakk. Fólk þeyttist í loft upp og tíu bílar brunnu til ösku. Ellefu fórust og fjöldi særðist. Talið er að hryðjuverkahópur Abus Musabs al-Zarqawis beri ábyrgð á árásinni, eins og ráninu á þremur vestrænum verktökum í vikunni. Tveir þeirra hafa nú verið drepnir, þar sem ekki hefur verið orðið við kröfum þeirra um að kvenföngum í haldi Bandaríkjamanna verði sleppt. Talsmenn herliðsins í Írak segja einungis tvær konur í haldi, báðar vísindamenn sem áttu þátt í gjöreyðingavopnaáætlun Saddams Hússeins. Íröksk yfirvöld sögðu í morgun að öðrum fanganum, Rihab Taha, sem þekkt er sem doktor sýkill, yrði sleppt í dag í kjölfar þess að mál hennar var endurskoðað. Ekki er vitað hvort að mannræningjarnir sækjast sérstaklega eftir því að þessar tvær konur sleppi, eða hvort þeir vita ekki að fleiri konur eru ekki í haldi. Talsmenn hersetuliðsins, sem hafa bæði Taha og hinn sérfræðinginn, Huda Ammash, betur þekkt sem fröken miltisbrandur, í haldi, segja ekki koma til greina að sleppa þeim. Því er alls óvíst um þriðja gísl mannræningjanna, sem þeir hótuðu að skera á háls innan sólarhring.
Erlent Fréttir Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Sjá meira