Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
36 manns krömdust til dauða Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns krömdust til dauða þegar eldsneytistrukkur rann út af þjóðvegi og inn í mannmergð á markaðstorgi í Nígeríu í dag. Dekk sprakk á bílnum og rakst hann á þrjá kyrrstæða bíla áður en hann lenti á fólkinu. 23.7.2004 00:01
Á hjólabretti á þýskri hraðbraut Þýska lögreglan stöðvaði þrjátíu og átta ára gamlan Svía á hraðbraut, nokkur hundruð kílómetra suðvestur af höfuðborginni Berlín, þar sem hann var á hjólabretti. Svíinn sagðist hafa verið á ferðalagi um Balkanlöndin og að hann væri orðinn svo blankur að hann ætti bara tvær evrur eftir. 23.7.2004 00:01
Hugsanleg hryðjuverk í rannsókn Bandaríska alríkislögreglan FBI tilkynnti í dag að hún væri að rannsaka óstaðfestar upplýsingar um að fremja eigi hryðjuverk á ráðstefnu Demókrataflokksins í Boston í næstu viku. 23.7.2004 00:01
Stjórnvöld sökuð um morð Tyrknesk stjórnvöld sæta harðri gagnrýni eftir lestarslys sem kostaði 36 manns lífið í fyrrakvöld. Stjórnin er sökuð um kæruleysi fyrir að hafa ekki tekið mark á viðvörunum um að lestarkerfi landsins, sem er komið til ára sinna, réði ekki við nýju hraðlestina sem fór út af spori sínu á miklum hraða í fyrrakvöld. 23.7.2004 00:01
Ráðamenn dregnir til ábyrgðar Réttarhöld sem hafin eru yfir tveimur fyrrum ráðamönnum í gamla Austur-Þýskalandi eru talin þau síðustu þar sem ráðamenn eru dregnir til ábyrgðar vegna dauða fólks sem var skotið til bana þegar það reyndi að flýja til Vestur-Þýskalands fyrir lok Kalda stríðsins. 23.7.2004 00:01
Fangar njóti mannréttinda Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja að Bandaríkin eigi aldrei að beita fanga líkamlegum misþyrmingum eða pyntingum samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rúmur helmingur telur að ekki megi heldur beita fanga andlegu ofbeldi. Skoðanakönnunin tekur til nokkurra atriða þar sem Bandaríkin hafa verið sökuð um að brjóta gegn mannréttindum fanga. 23.7.2004 00:01
Eitt versta lestarslys Tyrklands Þrjátíu og sex manns fórust og áttatíu slösuðust í lestarslysi í Tyrklandi í morgun. Þetta er eitt versta lestarslys í sögu Tyrklands. 23.7.2004 00:01
Árásir í Írak Bandaríski flugherinn gerði árás á uppreisnarmenn í borginni Fallujah í Írak í morgun. Að sögn sjónarvotta særðust fimm óbreyttir borgarar í árásinni, þar á meðal börn. Þá létust tveir bandarískir hermenn í sprengingu í morgun nálægt borginni Samarra og Íraki var skotinn til bana í Mósul en hann starfaði fyrir Bandaríkjaher. 23.7.2004 00:01
Þjóðarmorð stunduð í Súdan Bandaríska þingið segir að þjóðarmorð séu stunduð í Darfúr-héraði í Súdan. Þingmenn hafa hvatt alþjóðasamfélagið til að grípa til aðgerða. 23.7.2004 00:01
Vilja lög um eignarhald Hópur ítalskra stjórnmálamanna þrýstir nú á um það innan Evrópusambandsins að sett verði lög eða reglur um eignarhald á fjölmiðlum og eru þar sérstaklega að vísa til umsvifa Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu 23.7.2004 00:01
Ólíkt mataræði Norðmenn eru reglusamastir, Svíar nútímalegastir, Finnar fastheldnastir og Danir félagslyndastir samkvæmt nýrri könnun sem gerð hefur verið á matarvenjum Norðurlandabúa. 23.7.2004 00:01
Dæmdur fyrir ofsóknir Sonur Slobodans Milosevic hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi í Serbíu fyrir að hóta pólitískum andstæðingi sínum með vélsög. Óvíst er þó hvort hann sitji refsinguna nokkurn tíma af sér þar sem hann er flýði til Rússlands um það leyti sem faðir hans hrökklaðist af forsetastóli í því sem þá hét Júgóslavía. 23.7.2004 00:01
Þroskaheftur eftir þrjá áratugi Tæpum þremur áratugum eftir að Walter Bell var fyrst lokaður inni á dauðadeild í fangelsi í Texas hefur hann verið úrskurðaður þroskaheftur. Þar með aukast líkur á því að hann verði ekki tekinn af lífi. 23.7.2004 00:01
Þjóðverjar drekka mestan bjór Þjóðverjar drekka mestan bjór Evrópubúa en hver Þjóðverji drekkur að meðaltali 120 lítra af bjór árlega. Þjóðverjum tókst því að skjóta Bretum ref fyrir rass en hver Breti drekkur rétt rúmlega hundrað lítra á ári samkvæmt nýrri evrópskri markaðskönnun. 23.7.2004 00:01
Solana fastur fyrir Javier Solana, sem fer með utanríkismál ESB, segir að sambandið muni ekki halda sig frá friðarviðræðum í Mið-Austurlöndum þrátt fyrir að Ísraelsmenn segist ekki treysta þjóðum sambandsins til að koma að þeim. 23.7.2004 00:01
Kynskiptingar mega ekki giftast Kynskiptingar mega ekki ganga í hjónaband í Flórída, nema þeir hneigist að eigin kyni. Þetta kom í ljós þegar yfirvöld neituðu að staðfesta hjónaband Michaels Kantaras og unnustu hans. Þau sögðu að þar sem Kantaras hefði fæðst sem kona væri hann enn kona þrátt fyrir kynskiptaaðgerðina. 23.7.2004 00:01
Sendimaður í gíslingu Vígamenn tóku egypskan sendimann í gíslingu og kröfðust þess að egypsk stjórnvöld lýstu því yfir að þau myndu ekki senda herlið til Íraks til að styðja bráðabirgðastjórnina. 23.7.2004 00:01
Stöðvaðir á flugvellinum 11. sept. Fjórir af flugræningjunum sem tóku þátt í hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin 11. september 2001 voru stöðvaðir við öryggishlið á flugvelli í Washington-borg fyrr um morguninn hinn örlagaríka dag. Á myndbandi úr eftirlitsmyndavélum sést hvar mennirnir eru skoðaðir nánar eftir að málmleitartæki hafði gefið frá sér viðvörunarhljóð. 22.7.2004 00:01
Cruz kominn til Filippseyja Filippseyski gíslinn, Angelo dela Cruz, kom til síns heim í gærkvöldi og var honum ákaft fagnað á flugvellinum í Manilla á Filippseyjum. Hann kom til Bagdad fyrr í gær eftir að hafa verið látinn laus úr haldi mannræningja í Írak. 22.7.2004 00:01
Vafasamar upplýsingar um vopnaeign Ástralska leyniþjónustan treysti á litlar og vafasamar upplýsingar í mati sínu á hættu af gereyðingavopnaeign Íraka. Þetta er niðurstaða óháðrar rannsóknarnefndar sem kynnt var í morgun og er hún sú sama og í sams konar skýrslum um upplýsingar sem stjórnvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum studdust við í aðdraganda stríðsins í Írak. 22.7.2004 00:01
Börn getin til varahluta? Yfirvöld í Bretlandi ætla að slaka á reglum varðandi það að fólki verði leyft að geta börn í þeirri von að líkamsvefir úr fóstrinu geti hjálpað veiku systkini. Hingað til hefur aðeins verið leyfilegt að skoða fósturvísa til að athuga hvort um erfðagalla sé að ræða hjá fóstrinu. 22.7.2004 00:01
25 féllu og 31 særðist Bandaríski herinn felldi 25 írakska uppreisnarmenn í hörðum bardögum í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í gærkvöld. Sautján Írakar og fjórtán bandarískir hermenn eru sárir eftir bardagana sem stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. 22.7.2004 00:01
Bretar samþykkja stjórnarskrá ESB Evrópumálaráðherra Bretlands, dr. Denis MacShane, er þess fullviss að Bretar samþykki stjórnarskrá Evrópusambandsins þegar hún verður lögð fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. 22.7.2004 00:01
16 létust í sprengingu í Jemen Sextán manns létust í sprengingu í Jemen í morgun þegar eldur kom upp í búð sem selur sprengiefni og byssupúður. Efnið var geymt í kjallara á fjögurra hæða íbúðarblokk sem jafnaðist við jörðu í sprengingunni. 22.7.2004 00:01
Með byssukúlu í höfðinu í 8 ár Þrettán ára gömul stúlka frá Afganistan, sem hefur verið með byssukúlu í höfðinu í átta ár, er komin til Japans til að fara í skurðaðgerð. Fatema Safar var skotin í höfuðið í skotárás, stuttu eftir að talíbanar náðu völdum í Afganistan, en faðir hennar lést í árásinni. Safar missti sjón á vinstra auga og þjáist af slæmum höfuðverkjum. 22.7.2004 00:01
Ísraelsmenn treysta ekki ESB Ísraelsmenn segjast ekki geta treyst Evrópusambandinu í friðarferlinu í Miðausturlöndum eftir að sambandið studdi ályktun gegn Ísrael á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Ísrael funduðu með Javier Solana, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, í morgun. 22.7.2004 00:01
Gíslar grátbiðja um miskunn Sjö gíslar eru enn í haldi mannræningja í Írak. Myndband með gíslunum sýnir þá grátbiðja mannræningjana um að sýna sér miskunn. 22.7.2004 00:01
Barroso kosinn forseti ESB Fyrrverandi forsætisráðherra Portúgal, hinn 48 ára gamli Jose Manuel Duraou Barroso, verður næsti forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Barroso vann meirihluta atkvæða á þingi Evrópusambandsins í Strassborg í morgun. Barroso tekur við af Romano Prodí frá Ítalíu. 22.7.2004 00:01
400 látnir í flóðum á Indlandi Hátt í 400 manns hafa látið lífið í miklum flóðum í héraðinu Hihar á Indlandi síðustu daga. Óttast er að kólerufaraldur kunni að brjótast út í kjölfarið. Herinn er í viðbragðsstöðu í borginni Gauhati í Assam-héraði en þar hafa ár flætt yfir bakka sína. Óttast er að flytja þurfi yfir tvær milljónir borgarbúa á brott. 22.7.2004 00:01
Skýrsla um 11. sept. gerð opinber Bandarískum stjórnvöldum og leyniþjónustum mistókst árum saman að gera sér grein fyrir umfangi þeirrar ógnar sem stafaði af íslömskum öfgamönnum, og þau þjáðust af sameiginlegum skorti á ímyndunarafli. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sérstakrar rannsóknarnefndar vestan hafs sem rannsakar hryðjuverkaárásirnar 11. september árið 2001. 22.7.2004 00:01
Bann gegn ruslpósti virkar Bann á ruslpósti í Ástralíu virðist bera árangur en yfirvöld bönnuðu ruslpóst fyrir þremur mánuðum síðan. Mörg netfyrirtæki hafa látið af óumbeðnum ruslpóstsendingum, sérstaklega hefur póstur sem inniheldur hvers kyns klám snarminnkað 22.7.2004 00:01
Herinn vill aukafjárveitingu Bandaríska varnarmálaráðuneytið þarf aukafjárveitingar í september að andvirði um 873 milljarða króna til að standa straum af kostnaði vegna veru hersins í Írak og Afganistan.Það er þrisvar sinnum meira en yfirmenn hersins gerðu ráð fyrir í apríl síðastliðnum. 22.7.2004 00:01
Serbar leita stríðsglæpamanns Yfirvöld í Serbíu-Svartfjallalandi hafa gefið út handtökuskipun á hendur meints stríðsglæpamanns sem flúði fyrir viku síðan. 22.7.2004 00:01
Solana gagnrýnir Ísrael Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í heimsókn sinni til Ísrael í gær að aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum bryti í bága við alþjóðalög. Solana fullyrti þetta á blaðamannafundi sem hann og Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, sátu báðir 22.7.2004 00:01
Súdanir gagnrýna Vesturlönd Utanríkisráðherra Súdan segir afskipti Bandaríkjanna og Bretlands af ógnaröldinni í Darfur-héraði vera óeðlileg og minna um margt á framkomu þeirra gagnvart Írak áður en ráðist var inn í landið. 22.7.2004 00:01
Milljón Rúmena meinað að ferðast Tæplega milljón Rúmenum hefur verið meinað að yfirgefa landið það sem af er árinu. Flesta skortir fé til ferðalaga vegna reglna ESB. 22.7.2004 00:01
Hundrað tilfelli pyntinga Bandarískir hermenn hafa gerst sekir um að misþyrma föngum í Írak og Afganistan í að minnsta kosti 94 tilfellum síðan haustið 2001. Þetta eru niðurstöður rannsóknar bandaríska hersins sem var gerð eftir að upp komst um stórfelldar misþyrmingar á föngum í Írak í vor. 22.7.2004 00:01
Myrkrahöfðinginn til Brussel Maðurinn sem eitt sinn var nefndur myrkrahöfðinginn vegna áhrifa sinna í breskum stjórnmálum kann að vera á leiðinni til Brussel til starfa hjá Evrópusambandinu. 22.7.2004 00:01
Stoppuðu flugræningja og slepptu Fjórir flugræningjar voru stöðvaðir á flugvellinum skömmu áður en þeir flugu farþegavél á bandaríska varnarmálaráðuneytið. Þeim var hleypt í gegn og þannig fór síðasti möguleikinn til að stöðva þá út um þúfur. Stjórnvöld vanmátu hættuna sem stafaði af al-Kaída og gátu því ekki varist henni. 22.7.2004 00:01
Kveðst sleppa stjórn öryggissveita Jasser Arafat, Palestínuforseti, er sagður hafa lofað því að veita ríkisstjórn Ahmed Qureia forsætisráðherra aukin völd, þess á meðal full yfirráð yfir öryggissveitum Palestínumanna. Þetta sagði palestínski þingmaðurinn Imad Falloyuji eftir að Arafat ræddi við þingmenn. Fallouji sagði Qureia hafa lofað að skoða tilboð Arafats. 22.7.2004 00:01
Flugræningjarnir stoppaðir 11.9. Myndir úr eftirlitsmyndavélum á Dulles-flugvelli í Washington sýna að flugræningjarnir sem grönduðu flugvélunum þann 11. september 2001 voru teknir til hliðar við málmleitarhliðin en var síðan leyft að halda áfram, án frekari athugunar. 22.7.2004 00:01
Tsjernóbil verður ferðamannastaður Úkraínumenn reyna nú að lappa upp á ferðamannaiðnaðinn í landinu og hafa brugðið á það ráð að breyta Tsjernóbil-kjarnorkuverinu í ferðamannastað. Átján ár eru liðin frá því að kjarnorkuslys varð í Tsjernóbil en verinu var ekki lokað fyrr en árið 2000. Geislavirkni í verinu er 200 sinnum hærri en leyfilegt er en ferðamenn geta gist í verinu í nokkra daga án þess að veikjast. 22.7.2004 00:01
Á annað hundrað létust Á annað hundrað manns létu lífið þegar háhraðalest fór út af spori sínu á leiðinni milli Istanbúl og Ankara. Yfirvöld sögðu að 139 manns hefðu látið lífið og 57 til viðbótar hefðu særst en 243 voru um borð í lestinni. 22.7.2004 00:01
Ísraelsmenn hunsa ályktun Sþ Ísraelsmenn ætla að halda framkvæmdum áfram við öryggismúr á Vesturbakkanum, þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi samþykkt ályktun í gærkvöldi þar sem þess er krafist að hann verði rifinn niður. Raanan Gissin, einn af ráðgjöfum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, segir það vera rétt Ísraelsmanna að verja sig gegn Palestínumönnum. 21.7.2004 00:01
Háir bílaskattar úreltir Háir bílaskattar í Danmörku eru úrelt fyrirbæri segir skattasérfræðingurinn Flemming Lind Johansen í samtali við dagblaðið Politiken í dag. Hann bendir á að sum ákvæði laga þessa efnis hafi staðið óbreytt frá 1924 og því sé löngu orðið tímabært að endurskoða þau. 21.7.2004 00:01