

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri fyrir peningaþvætti með því að tekið við og nýtt millifærslur frá erlendum fyrirtækjum, samtals um 13,5 milljónir króna, inn á eigin reikning og tekið upphæðina svo út í reiðufé og afhent óþekktum aðila.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur skipað Karl Gauta Hjaltason, fyrrverandi lögreglustjóra og þingmann Miðflokksins, í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá og með 1. apríl 2023.
Veðurstofan hefur ákveðið að rýma skuli að nýju hús á reit 14 á Seyðisfirði í varúðarskyni frá klukkan 21 í kvöld. Von er á mikilli snjókomu.
Tæplega þrítugur karlmaður sem bjó á miðhæð í húsi við Barðavog í Reykjavík þar sem karlmanni var ráðinn bani í júní í fyrra lýsti því að tvítugur karlmaður, grunaður um morðið, hafi ráðist á sig af engu tilefni tæplega sólarhring fyrr. Hann segir lögreglu hafa talið hann vera að bregðast of hart við þeirri árás og ekki hlustað á áhyggjur hans. Hinn látni hafi verið áberandi góður maður sem hafi viljað öllum vel.
Rýmingar frá í gær í Neskaupstað, á Eskifirði og Seyðisfirði eru enn í gildi og hugsanlegt er að rýma þurfi nýju þau hús sem aflétt var af í gær.
Stjórnarandstaðan íhugar nú hvaða skref verða stigin til að draga dómsmálaráðherra til ábyrgðar eftir að skrifstofa þingsins fjallaði um í minnisblaði að honum væri skylt að afhenda þinginu upplýsingar innan tiltekins frests í máli sem tengist veitingu ríkisborgararéttar. Þingflokksformaður Pírata finnst réttast að ráðherrann stígi til hliðar.
Í hádegisfréttum tökum við stöðuna fyrir austan en veðurspáin versnar þar í kvöld og hætta á frekari snjóflóðum.
Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Reykjavíkurskákmótinu og nú en það verður sett eftir hádegi í dag. Forseti Skáksambands Íslands segir sprengingu hafa átt sér stað í skákáhuga í heiminum og Reykjavíkurskákmótið sé með þekktustu og sterkustu skákmótum heims.
Tuttugu björgunarsveitarmenn verða sendir með flugi til Austfjarða í dag til viðbótar við þá tugi sem þar eru þegar að störfum. Snjóflóðahætta á svæðinu hefur aukist með versnandi veðurspá. Mikil snjókoma er í kortunum í kvöld og úrkomuviðvörun á svæðinu orðin appelsínugul.
Magnús Aron Magnússon sem ákærður er fyrir morð í Barðavogi í fyrra neitaði fyrir við aðalmeðferð málsins fyrir dómi í dag að hafa sparkað ítrekað í höfuð Gylfa Bergmanns Heimissonar sem lést af áverkum sínum. Hann hafði þó lýst slíkum spörkum við lögreglumenn daginn örlagaríka en sú frásögn var tekin upp á búkmyndavél lögreglumanns. Magnús Aron hafði litlar skýringar á því hvers vegna litlir áverkar hefðu verið á honum eftir átökin.
Aðalmeðferð í Barðavogsmálinu svokallaða hófst í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní í fyrra.
Björgunarsveitir vinna nú að því að aðstoða fólk á Fjarðarheiði sem lagði á heiðina í morgun. Meðal þeirra sem eru í vandræðum eru farþegar sem áttu bókað með Norrænu, sem leggur úr höfn í hádeginu.
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt þar sem fjöldi fólks hafði fest bíla sína á þjóðvegi 1 við Pétursey. Ófærð var þá orðin mikil á svæðinu.
Formaður Samfylkingarinnar hefur síðustu daga fundað með fólki á Suðurnesjunum og rætt um heilbrigðismál. Um er að ræða fyrstu fundina í fundaröð fer út um allt land. Formaðurinn segir að mikilvægt sé að heyra hvað fólkinu í landinu finnst um stærstu málaflokkana í pólitíkinni.
Ekki tókst að manna þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar útkall barst í gærmorgun eftir rútuslys á Öræfum.
EFTA-ríkin og Moldóva hafa komist að samkomulagi um fríverslunarsamning sem undirritaður verður á næsta ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein í júní næstkomandi.
Háskóli Íslands er enn á móti því að rekstur spilakassa verði bannaður. Í umsögn um frumvarp þess efnis segir Jón Atli Benediktsson rektor meðal annars að skólinn hafi hreinlega ekki efni á því að kassarnir verði bannaðir.
Formaður heilbrigðisnefndar segist bjartsýnn á að lausn finnist á málunum þannig að sex vinir geti fengið að halda trjákofanum sínum sem þeim hafði verið fyrirskipað að rífa. Drengirnir segja verkefnið hafa styrkt vináttu sína heilmikið.
Hættuástand er enn í gildi fyrir austan vegna snjóflóða. Ekki er víst að því verði aflétt á næstunni sökum þess hve veðurspáin fyrir svæðið er slæm. Ljóst er að snjóflóðavarnagarðar áttu stóran þátt í því að ekki fór verr þegar stærstu snjóflóðin féllu í gær.
Tveggja bíla árekstur varð í Fagradal á Austurlandi fyrr í kvöld. Tveir voru fluttir á slysadeild.
Slökkvilið var kallað til að Bílapartasölunni Austurhlíð, austanmegin við Akureyri fyrr í kvöld eftir að eldur kom fyrir utan húsið.
Eldur kviknaði í bifreið sem lagt var í bílskúr í Breiðholtinu í Reykjavík í dag. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að um tvinnbíl hafi verið að ræða, það er bíl sem gengur fyrir bæði rafmagni og jarðeldsneyti.
Hugvísindafólk er uggandi yfir áherslubreytingu háskólaráðherra sem vill að háskólarnir svari betur kalli atvinnulífsins. Forseti Mála- og menningardeildar Háskóla Íslands segir stefnuna vera í anda nýfrjálshyggju. Háskólarnir megi aldrei verða útungunarstöð fyrir atvinnulífið.
Forseti Íslands lék á alls oddi í Vík í Mýrdal í dag þegar hann brast í söng með nemendum Víkurskóla og svo bauð hann krökkunum að fara í sjómann við sig. Forsetahjónin eru nú í tveggja daga opinberri heimsókn í Mýrdalshreppi.
Fjórir nefndarmenn og áheyrnarfulltrúi allsherjar- og menntamálanefndar báru af sér sakir á Alþingi í dag. Þingmennirnir fundu sig knúna til að gera það eftir að dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn og aðra alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt.
Slökkvilið var kallað út að bílastæðinu við Nettó á Völlunum í Hafnarfirði nú fyrir skömmu eftir að eldur kviknaði í í jeppling.
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína á heimili sínu á Akureyri. Árásin átti sér stað í september 2021.
Ákveðuð hefur að aflétta rýmingu á hluta þeirra húsa sem rýmd voru í Neskaupstað og á Seyðisfirði í gær. Þetta var ákveðið í kjölfar þess sem Veðurstofa Íslans mat aðstæður á Austfjörðum með tilliti til snjóflóðahættu í dag.
Vegurinn um Fagradal sem tengir helstu byggðarlög Austfjarða við Egilstaði opnaði síðdegis í dag eftir tæpa sólarhringslokun. Hvorki viðbragðsaðilar né aðrir höfðu komist um veginn, sem liggur meðal annars í Neskaupstað, vegna snjóflóðahættu. Við förum yfir stöðuna í beinni útsendingu og ræðum meðal annars við Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra Fjarðabyggðar.
Búið er að opna bæði Norðfjarðargöng og Fagradalsveg. Báðum leiðunum var lokað í gær í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Austurlandi.
Gul viðvörun tekur á ný gildi á Austfjörðum á fimmtudaginn vegna snjókomu. Verður hún í gildi í heilan sólarhring.
Dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar og aðra Alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem þingið hefur veitt ríkisborgararétt. Nefndin hefur sakað ráðherrann um að hafa brotið lög með því að koma í veg fyrir að Útlendingastofnun afhendi gögn í tengslum við veitingu á ríkisborgararétt.
Slökkvistarfi er að ljúka eftir að gróðureldur kviknaði við Eldborg í Hnappadal. Verið er að senda björgunarsveitir sem kallaðar voru til til baka.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði.
Rúta með tæplega þrjátíu farþegum valt í Öræfasveit í dag. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til Hafnar í Hornafirði og verða þaðan fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Enginn þeirra slösuðu er með lífshættulega áverka.
Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði fyrr í dag þrátt fyrir að búið sé að rýma fjölda húsa í bænum. Úr skipinu kom fjöldi fólksbíla og rúta sem sumar hverjar lentu í vandræðum á Fjarðarheiði.
Ekki er útlit fyrir að rýmingum verði aflétt á næstunni en rýmingar í Neskaupstað, Seyðisfirði og á Eskifirði eru enn í gildi. Mikil snjóflóðahætta er enn á svæðinu og því útlit fyrir að rýmingar haldi næstu daga. Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Neskaupstað í nótt.
Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað sem gripið var til vegna snjóflóðahættu í bænum í gær. Rýming gærdagsins er að öðru leyti enn í fullu gildi, það er á svæði 4, 6, 16 og 17 í Neskaupstað og sömuleiðis á Seyðisfirði og Eskifirði.
Paul Watson, stofnandi baráttusamtakana Sea Shepherd, hyggst sigla skipinu John Paul Dejoria hingað til lands í apríl og gera allt sem í valdi hans stendur til að stöðva hvalveiðar við Ísland.
Bruninn sem varð í nýbyggingu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish í botni Tálknafjarðar varð líklegast vegna glóðar sem barst frá opnum eldi sem unnið var með í plastteninga sem ekki voru langt frá. Málið telst upplýst en enginn var með stöðu sakbornings við rannsókn málsins.
Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins.
Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi í kvöld. Spáð er austan stormi og snjókomu á báðum landsvæðum.
Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða.
Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt. Ákveðið var að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðanna sem féllu í bænum í gærmorgun.
Snjóathugunarmenn Veðurstofunnar eru byrjaðir að skoða aðstæður á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. Ummerki eru um að fleiri snjóflóð hafi fallið fyrir ofan Neskaupstað en þau sem vart varð við í gær.