Fleiri fréttir

Sóttu slasaðan fjórhjólamann
Síðdegis í dag var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna fjórhjólamanns sem slasast hafði við fjallið Strút á Mælifellssandi.

Landsréttur þyngir dóm vegna kynferðisbrots gegn þroskaskertum manni
Landsréttur hefur þyngt dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem dæmdur var í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart þroskahömluðum manni. Maðurinn var sóttur til saka fyrir að hafa í tvö skipti haft kynferðismök við manninn en nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart manninum, sem er með þroskahömlun og gat ekki skilið þýðingu verknaðarins.

Dómar fyrir að smygla inn kókaínfylltri jólastyttu mildaðir
Landsréttur dæmdi tvo karlmenn í tíu og tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnainnflutnings, með því að hafa sótt jólastyttu fulla af kókaíni á pósthús, í dag. Mennirnir höfðu áður verið dæmdir í átján og 21 mánaðar fangelsi.

Stappar stálinu í félagsmenn VG í formannsræðu í skugga úrsagna
Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs fer fram um helgina í skugga úrsagna hátt í þrjátíu VG liða, vegna samþykktar umdeilds útlendingafrumvarps dómsmálaráðherra í vikunni.

Segir sýknudóm vonbrigði
Framkvæmdastjóri Frigusar segir dóm í máli gegn ríkinu og Lindarhvoli koma gríðarlega á óvart og vera vonbrigði. Íslenska ríkið og Lindarhvoll voru í dag sýknuð af kröfu félagsins vegna sölu á eignarhaldsfélaginu Klakka.

Undanþágur á reglum aðeins hugsaðar til skamms tíma
Barnamálaráðherra segir að það eigi að vera undantekning en ekki regla að sveitarfélög nýti sér heimild til að víkja frá reglu um lágmarksfjölda íbúa í umdæmi hverrar barnaverndarþjónustu. Faðir stúlku sem hefur slæma reynslu af barnaverndarnefnd í litlum bæ segir lögin ekki virka sem skyldi en lögin eru sett til að tryggja faglega og óháða þjónustu við börn.

Sakar lögregluna um að nota nafn Birnu í annarlegum tilgangi
Móðir Birnu Brjánsdóttur, sem myrt var árið 2017, óskar eftir áheyrn og virðingu gagnvart sér og dóttur sinni heitinni frá lögreglunni. Hún segir að sér hafi fallist hendur þegar hún las viðtal við aðstoðarlögreglustjóra í Reykjavík, þar sem hann notaði nafn dóttur hennar í „annarlegum tilgangi.“

Greip fram í fyrir Katrínu: „Ég get ekki hlustað á þessar helvítis lygar“
Einn viðstaddra á landsfundi Vinstri grænna, sem settur var á Akureyri í dag, var ekki sáttur með ávarp formanns VG og forsætisráðherra. „Ég get ekki hlustað á þessar helvítis lygar,“ sagði maðurinn og bætti við að Katrín Jakobsdóttir ætti að skammast sín. Maðurinn er þó ekki félagi í Vinstri grænum.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladímír Pútín Rússlandsforseta, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu og vegna þess fjölda úkraínskra barna sem fluttur hefur verið með ólögmætum hætti frá Úkraínu. Við fjöllum um málið í beinni útsendingu.

Bein útsending: Ræða Katrínar á landsfundi VG
Landsfundur VG verður haldinn í Hofi á Akureyri um helgina. Fundurinn hefst síðdegis í dag og mun Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins og forsætisráðherra, flytja opnunarræðu fundarins klukkan 17.30.

Þrjú sóttu um stöðu skólastjóra í Melaskóla
Alls sóttu þrír einstaklingar um að verða skólastjóri í Melaskóla samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Einn þessara einstaklinga dró umsókn sína þó til baka og því eru umsækjendur tveir.

Framlengja gæsluvarðhald yfir byssumanninum
Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars.

Lögreglan lýsir eftir manni sem framselja á til Lettlands
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Harijs Graikste. Fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.

Öskjuvatn hefur lagt á ný eftir kuldatíð síðustu vikna
Öskjuvatn hefur lagt aftur eftir kuldatíð síðustu vikna og sýnir það hversu síbreytilegt umhverfið við Öskju er. Áfram er fylgst náið með eldstöðinni.

„Óásættanlegt að yfir hundrað lögreglumenn slasist við störf á ári hverju“
Landssamband lögreglumanna segir í ályktun að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi lögreglumanna í starfi. Starfsstéttin búi við flest vinnuslys. Ályktunin kemur í kjölfar fréttar Vísis sem birtist í morgun, kom þar fram að fullyrðingar dómsmálaráðherra um að slysum lögreglumanna hafi fjölgað verulega standist ekki.

Bjartur Steingrímsson einn af þrjátíu sem hafa kvatt VG
Þrjátíu manns hafa skráð sig úr Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á síðustu tveimur dögum, eða frá því að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt.

Styrkja Matvælaáætlun SÞ vegna hamfaranna í Malaví
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að verja hálfri milljón Bandaríkjadala, jafnvirði 71 milljón króna, til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna vegna neyðarástandsins sem skapast hefur í Malaví af völdum hitabeltisstormsins Freddy.

Í gæsluvarðhald eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tilraun til manndráps ytra
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem handtekinn var hér á landi vegna evrópskrar handtökuskipunar. Til grundvallar handtökuskipuninni lá fyrir dómur útlensks áfrýjunardómstóls þar sem maðurinn var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til 7. apríl næstkomandi.

„Alltaf mjög leitt þegar leiðir skilja í stjórnmálum“
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, segir að það sé mjög leitt að sjá á eftir nokkrum félagsmönnum úr flokknum vegna óánægju með ný samþykkt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Hún telur þó að þingmenn flokksins hafi unnið að málinu af heilindum og í samræmi við stefnu flokksins.

Opinbert starfsfólk færist úr lokuðum skrifstofum
Samkvæmt viðmiðum fjármálaráðuneytis frá árinu 2019 eiga skrifstofurými hins opinbera að færast frá lokuðum skrifstofum og yfir í verkefnamiðaða vinnuaðstöðu. Upplýsingafulltrúi Framkvæmdasýslunnar segir þessa aðstöðu taka allt inn í jöfnuna, líðan starfsfólks, skilvirkni og kostnað.

Teitur Björn mun taka sæti Haraldar: „Nokkuð óvænt“
Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, mun taka sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi eftir að sá síðarnefndi tekur við stöðu bæjarstjóra Akraness á næstu vikum. Teitur Björn segist spenntur fyrir verkefninu.

Þingmaður ráðinn bæjarstjóri Akraness
Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Hann tekur við stöðunni af Sævari Frey Þráinssyni sem nýverið var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

Stór bústaður við Apavatn var alelda þegar slökkviliðið mætti
Brunavörnum Árnessýslu barst tilkynning um að kviknað væri í sumarbústað norðaustan við Apavatn klukkan rétt rúmlega sjö í morgun. Þá var bústaðurinn þegar alelda.

Fullyrðingar ráðherra um verulega fjölgun slysa standast ekki skoðun
Fullyrðingar Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að slysum á lögreglumönnum hafi fjölgað verulega á síðustu árum fást ekki staðist samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu. Ráðherra hefur ítrekað vísað til þessa til að réttlæta að heimila lögreglu að bera rafbyssur.

Skiptar skoðanir um að loka grunnskólanum
Fundur var haldinn í vikunni með foreldrum barna sem stunda nám í Grunnskólanum austan Vatna á Hólum. Á fundinum var ræddur sá möguleiki að leggja niður starfsemi í skólanum þar sem einungis níu börn stunda þar nám núna.

Tæpar 160 milljónir í sekt fyrir skattsvik
Karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik. Honum ber að greiða 158 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs fyrir glæpinn innan fjögurra vikna, ella sæta fangelsi í 360 daga.

Slagsmál, eldur og innbrot
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna slagsmála í Kópavogi í gærkvöldi. Tveir einstaklingar voru handteknir og vistaðir í fangageymslum vegna rannsóknar málsins.

CERT-IS varar við vefveiðum í gegnum smáskilaboð
Netöryggis- og viðbragðsteymi CERT-IS segir ástæða til að vara við vefveiðum í gegnum smáskilaboð, sem teymið segir hafa færst í aukana á síðustu vikum. Nýmæli er að nú virðist svindlið beinast gegn rafrænum skilríkjum fólks.

Um 132 milljörðum af séreignarsparnaði verið ráðstafað í húsnæði
Um 81 þúsund manns hafa frá 2014 notað einhvern hluta séreignarsparnaðar síns til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána. Samtals hafa 132 milljarðar af séreignarsparnaði verið nýttir til að greiða inn á lán eða vegna kaupa á fyrsta húsnæði.

Veðrið veldur því að fleiri fá straum en áður
Þurrt og kalt veður veldur því að fólk fær í miklu mæli straum þegar það snertir málma eða raftæki þessa dagana. Rakastiginu fer hækkandi um helgina að sögn veðurfræðings.

Beinlínis hættulega lítill raki á sumum heimilum
Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirbergs segir að það versta fyrir loftgæði heimilisins sé að loka öllum gluggum og hækka ofna í botn. Of lítill raki á heimilinu geti beinlínis verið hættulegur heilsu.

„Því miður er ekkert sérstaklega bjart yfir mér“
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist vonsvikin yfir því að staðan í leikskólamálum sé jafnslæm og raun beri vitni. Hún vill fjölga leikskólaplássum og lagði fram tillögu í borgarráði í dag um daggæslu fyrir börn starfsmanna á stærri vinnustöðum.

„Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur“
Fjögurra manna fjölskylda neyddist til að flytja úr íbúð sinni og leigja hana út til að ná endum saman, þar sem yngsta barnið kemst ekki inn á leikskóla. Foreldrar segja nóg komið af innantómum yfirlýsingum og krefjast tafarlausra aðgerða. Mótmæli hafa verið boðuð á ný í næstu viku.

Elva Hrönn hættir í VG
Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi meðlimur stjórnar Vinstri grænna og varaformaður þeirra í Reykjavík, sagði sig úr flokknum fyrr í dag. Hún segist ekki geta kennt sig við hreyfingu „sem samþykkir þau mannréttindabrot sem nýsamþykkt útlendingafrumvarp felur í sér.“

Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi
Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður

Krefjast breytinga og skaðabóta: „Þetta eru ár sem ég fæ ekki til baka“
Ung kona sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur ásamt föður sínum höfðað skaðabótamál á hendur bænum. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu til að koma í veg fyrir að fleiri börn „verði rænd æskunni,“ líkt og feðginin komast að orði.

Forsætisráðherra ítrekar ágreining við dómsmálaráðherra um rafbyssur
Forsætisráðherra er sammála umboðsmanni Alþingis um að það hefði verið betri stjórnsýsla hjá dómsmálaráðherra að ræða rafbyssuvæðingu lögreglunnar á ríkisstjórnarfundi, áður en hann gaf út reglugerð sem heimilaði notkun þessara vopna.

Seðlabankinn segir þjóðaröryggi kalla á íslenska greiðslumiðlun
Seðlabankinn segir það varða þjóðaröryggi að koma upp innlendri greiðslumiðlun fyrir kortagreiðslur sem allra fyrst. Bregðist bankarnir ekki við því þurfi að óska eftir lagasetningu um málið. Seðlabankastjóri segir að tryggja verði öryggi og hagkvæmni í þessum viðskiptum.

Skilur ekki hvernig Persónuvernd komst að niðurstöðunni
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir úrskurð Persónuverndar sem héraðsdómur felldi úr gildi í dag vera furðulegan. Fyrirtækið hafi einungis verið að sinna því verkefni sem sóttvarnalæknir fól þeim.

Staðnir að verki grunaðir um innbrotin
Þrír voru handteknir í Gerðunum í dag grunaðir um innbrot í geymslur á svæðinu. Einstaklingarnir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Meintu þýfi hefur verið skilað til eigenda.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ung kona sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur ásamt föður sínum höfðað skaðabótamál á hendur bænum. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu til að koma í veg fyrir að fleiri börn „verði rænd æskunni,“ eins og feðginin orða það.

Fiskur þakti Suðurlandsveg
Farmur sem innihélt fisk féll af vörubíl á Suðurlandsvegi við Svínahraun á fimmta tímanum í dag. Lögregla segir að hreinsun hafi gengið vel á vettvangi.

Snjóflóð á Austfjörðum
Nokkur snjóflóð hafa fallið á Austfjörðum síðustu daga, þau stærstu nálægt Eskifirði. Veik lög eru í snjónum vegna skafrennings og kuldakasts síðustu daga. Veðurstofa biður fólk um að fylgjast vel með.

Kári lagði Persónuvernd
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19.

„Meiriháttar trúnaðarbrestur“ innan ríkisstjórnarinnar
Umboðsmaður Alþingis mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag vegna samráðsleysis dómsmálaráðherra um rafbyssur. Annar varaformaður nefndarinnar segir að um sé að ræða meiriháttar trúnaðarbrest milli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.