Fleiri fréttir

Lifa við stöðugar árásir, hótanir og áreiti: „Það er ekkert gert“
Kona sem hefur mátt þola stöðugar árásir, ógnir, skemmdarverk, hótanir og áreiti af hálfu fyrrum maka segir kerfið hafa brugðist sér. Þrátt fyrir nálgunarbann og fjölda kæra hefur ekkert verið gert. Hún og kærasti hennar óttast hvað maðurinn tekur upp á næst og telja að lögregla sé að bíða eftir því að einhver verði drepinn. Aðgerðarleysið sé algjört.

Leit að Gunnari Svan bar ekki árangur
Leit að Gunnari Svan Björgvinssyni stóð yfir í dag á Eskifirði. Leitað var í fjörum og í sjó sem og í bænum og nágrenni hans. Leit bar ekki árangur.

Féllust í faðma að loknum mótmælum
Mótmælum við Hörpu lauk í kvöld með faðmlögum eftir að óperustjóri Íslensku óperunnar ræddi við mótmælendur.

Listrænir 18 ára tvíburar í Þorlákshöfn með sýningu
Átján ára tvíburar í Þorlákshöfn hafa opnað samsýningu í bæjarfélaginu þar sem þau sýna ólík verk sín. Kennarinn þeirra segir þau ótrúlega hæfileikarík, enda séu þau bæði færir málarar og flinkir teiknarar.

Kynntust á Íslandi og opnuðu saman búð
Þrír vinir frá Írak og Sýrlandi sem búið hafa á Íslandi um nokkurt skeið hafa nú opnað fyrstu matvöruverslunina í Hlíðarendahverfinu. Þeir segja íbúa hverfisins hafa tekið þeim vel.

Vaka kynnir framboðslistana
Framboðslistar Vöku - hagsmunafélags stúdenta við Háskóla Íslands vegna kosninga til Stúdentaráðs Háskóla Íslands voru kynntir í í gærkvöldi. Kosningarnar fara fram 22.-23. mars næstkomandi.

Segir skipstjórnarmenn ekki vera að rjúfa samstöðu sjómanna
Skipstjórnarmenn eru ekki að rjúfa samstöðu sjómanna með því að samþykkja nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Þetta segir formaður Félags skipstjórnarmanna, en niðurstaða atkvæðagreiðslu félagsmanna lá fyrir í gær.

Mótmælendum bannað að mótmæla inni í Hörpu
Þeim mótmælendum, sem hyggjast mótmæla förðun á sýningu Íslensku óperunnar, hefur verið meinað að mótmæla inni í Hörpunni sjálfri. Mótmælin hefjast því fyrir utan Hörpuna klukkan 19.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Skipstjórnarmenn eru ekki að rjúfa samstöðu sjómanna með því að samþykkja nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í Sjávarútvegi, segir formaður Félags skipstjórnarmanna, en niðurstaða atkvæðagreiðslu félagsmanna lá fyrir í gær. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Jarðskjálfti í Mýrdalsjökli
Í morgun kl. 7:02 varð jarðskjálfti af stærðinni 3,1 í vestanverðum Mýrdalsjökli.

800 ný störf í Þorlákshöfn í kringum fiskeldi
Fiskeldi á landi verður langstærsta atvinnugreinin í Þorlákshöfn en þar er gert ráð fyrir sex til átta hundruð nýjum störfum í kringum fiskeldi á næstu árum. Á sama tíma er gert ráð fyrir að verja 180 milljörðum króna til þessara framkvæmda

Mesta frost frá árinu 1998
Mesta frost í Reykjavík í marsmánuði frá árinu 1998 mældist í morgun þegar frost fór niður í - 14,8°C.

Segir tímalengd samningsins hafa setið í sjómönnum
Formaður sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Formaður Sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum.

Gaf sig á tal við lögreglu og sagðist hafa skallað annan mann og rotað hann
Enginn er alvarlega slasaður eftir líkamsárásir næturinnar sem lýst var í dagbók lögreglu sem stórfelldum. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns áttu tvær árásanna sér stað á næturklúbbum í miðborginni en ekkert bendir til þess að þær tengist. Þriðja tilfellið var mögulega slys.

Það fæst nánast allt í Bjarnabúð í Bolungarvík
Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins stendur alltaf fyrir sínu, enda mikið verslað í versluninni, en hún líkist einna helst gömlu kaupfélögum þar sem allt milli himins og jarðar fékkst.

Fluttur á slysadeild eftir sprengingu í potti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti fjölmörgum útköllum síðasta sólarhringinn. Farið var í 130 sjúkraflutninga og þar af 56 forgangsútköll. Þá var einn fluttur á slysadeild eftir sprengingu í potti í heimahúsi.

Segir útskýringar óperustjóra hlægilegar
Maður af asískum uppruna segir notkun á svo kallaðri „yellow face“ förðun hjá Íslensku óperunni kynda undir fordóma og segir útskýringar óperustjóra frá því í gær hlægilegar. Þá hefur leikari lýst því yfir að hann muni ekki fara í gervið í næstu sýningu.

Minnst níu hafa látist í sundlaugum hérlendis
Frá árinu 2000 hafa að minnsta kosti níu manns látist í sundlaugum hér á landi. Þrír hafa látist í sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu þremur mánuðum. Hafþór B. Guðmundsson sérfræðingur á sviði sund og björgunarmála hefur kallað eftir að komið verði á laggirnar sérstakri rannsóknarnefnd sundlaugarslysa.

Þrjár stórfelldar líkamsárásir í nótt
Þrjár stórfelldar líkamsárásir voru á meðal verkefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsvert var um hópasöfnun og slagsmál í miðborginni.

Fólksbíll og flutningabíll í árekstri við Hólmsá
Bílslys varð á brúnni yfir Hólmsá í Reykjavík í kvöld. Fólksbíll og flutningabíll sem var að koma úr gagnstæðri átt skullu þá saman.

Jóhannes og Kristmundur nýir í stjórn Samtakanna '78
Á aðalfundi Samtakanna '78 sem fram fór í dag var kosið í þrjú sæti. Jóhannes Þór Skúlason og Kristmundur Pétursson koma nýir inn í stjórnina en Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir var endurkjörin. Þá var Álfur Birkir Bjarnason endurkjörinn formaður.

Allt frá kúkableyjum til sjónvarpa hent á opin svæði í náttúrunni
Sjónvörpum, kúkableyjum og öllu þar á milli er iðulega hent á opið svæði í hraunið við Straumsvík í Hafnarfirði. Formaður bæjarráðs segir ástandið óþolandi. Kenningar séu um að umhverfissóðar reyni að komast hjá því að greiða gjöld til Sorpu.

Vill ekki deila „kven-bálkesti“ sínum með blásaklausum Ragnari
Formaður Eflingar segir formann VR ekki eiga neinn heiður af ákvarðanatökum hennar eða fyrirætlunum sem formaður félagsins. Sem kvenréttindakona krefst hún þess að hætt verði að reyna að klína ábyrgð hennar á menn úti í bæ.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttum heyrum við í Valmundi Valmundssyni formanni Sjómannasambands Íslands en í dag felldu félagar í öllum sextán aðildarfélögum sambandsins nýgerðan kjarasamning með miklum meirihluta atkvæða. Samningnum var hafnað með 67 prósentum atkvæða en 32 prósent samþykktu samninginn. Hann þótti marka tímamót þótt ekki væri fyrir annað en gildistímann sem var tíu ár. Skipstjórnarmenn í Sjómannafélagi Íslands hafa hins vegar samþykkt samninginn.

Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar hlaut tvenn blaðamannaverðlaun
Blaðamannaverðlaunin voru veitt af Blaðamannafélagi Íslands í dag í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar vann til tveggja verðlauna.

Sjómenn hafna tímamótasamningi: „Mikil vonbrigði“
Öll aðildarfélög innan Sjómannasambands Íslands hafa fellt nýgerðan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Samningurinn var talinn vera tímamótasamningur enda gilti hann til tíu ára.

Skjálfti upp á 3,8 austan Grímseyjar
Jarðskjálfti upp á 3,8 varð fjórtán kílómetra austnorðaustur af Grímsey rétt fyrir klukkan fjögur síðdegis í dag. Skjálftahrina hefur verið á svæðinu síðan í nótt og hafa rúmlega sextíu skjálftar mælst.

Frávísun í hryðjuverkamálinu staðfest með minnsta mun
Landsréttur hefur staðfest frávísun á þeim köflum ákæru á hendur tveimur karlmönnum á þrítugsaldri er fjallar um hryðjuverk, tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Tveir dómarar Landsréttar vildu staðfesta frávísun úr héraðsdómi en einn vildi fella úrskurðinn úr héraði úr gildi. Héraðssaksóknari hefur þrjá mánuði til að gefa út nýja ákæru.

Hótar endurtekið sprengjum, eltir lögmann og hrækir á lögregluþjóna
Þrítugur karlmaður búsettur í Reykjanesbæ sem grunaður er um sprengjuhótanir á dögunum ásamt mikinn fjölda annarra brota hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. mars. Óhætt er að segja að um góðkunningja lögreglu sé að ræða.

Einn á sjúkrahús eftir árekstur rútu og mjólkurbíls
Bílstjóri rútunnar sem lenti aftan á mjólkurbíl á Þjóðvegi 1 við Þverá í Öxnadal fyrr í dag var fluttur á sjúkrahús. Meiðsli hans eru þó ekki talin alvarleg. Þrjátíu manna hópur ungmenna var um borð í rútunni.

Dómari telur ekki forsendur til að refsa blaðamönnum
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur ákveðið að aðhafast ekkert við því að Vísir hafi birt fréttir af stóra kókaínmálinu á meðan fjölmiðlaumfjöllunarbanni dómara stóð. Þetta kemur fram í tölvupósti frá dómaranum til saksóknara og verjenda í stóra kókaínmálinu í dag. Dómari segir ekki forsendur til að aðhafast í málinu.

Nú má heita Chloé og Gleymmérei
Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls þrettán nöfn á mannanafnaskrá í gær. Nefndin hafnaði einu nafni.

Rúta og flutningabíll rákust saman
Þjóðvegur 1 um Öxnadal í Hörgársveit er lokaður eftir árekstur rútu og flutningabíls.

Líklegt að flakið sem fannst sé úr banaslysi fyrir fimmtán árum
Margt bendir til þess að flak og líkamsleifar sem komu upp í togara úti fyrir strendur Reykjaneshryggs séu úr lítilli flugvél sem fórst á leiðinni frá Grænlandi til Íslands í febrúar 2008. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og kennslanefnd munu taka málið til skoðunar þegar togarinn kemur í land eftir tæpar tvær vikur.

Örmagnaðist á göngu
Síðdegis í gær óskuðu tveir ferðamenn eftir aðstoð björgunarsveita. Ferðamennirnir voru á ferð að eða frá íshelli í Kötlujökli þegar annar þeirra örmagnaðist á göngunni.

Söfnun fyrir ungbörn fer vel af stað
Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir söfnun á barnafatnaði og öðrum nauðsynjum fyrir nýbura hafa farið vel af stað. Konur sem hafi fengið hæli hér á landi skorti oft þessa hluti og hafi einnig ekki alltaf áttað sig á veðurfarinu á Íslandi.

Krafði Katrínu og Bjarna um skýr svör
Stúdentar við Háskóla Íslands mótmæltu fyrir utan Ráðherrabústaðinn í dag, vegna þess sem þeir telja vera vanfjármögnun hins opinbera háskólakerfis. Forseti Stúdendaráðs HÍ afhenti forsætis- og fjármálaráðherra áskorun stúdenta og lét ráðherra vinna fyrir kaupinu sínu með krefjandi spurningum.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum heyrum við í stúdentum sem eru ósáttir við fyrirhugaða hækkun á skráningagjöldum Háskóla Íslands.

Umfangsmikið útkall vegna manns sem fannst svo á röltinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kallaði út þyrlu Landhelgisgæslunnar, sérsveit ríkislögreglustjóra og kafarahóp Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna manns sem virtist hafa horfið í sjóinn eftir að hafa gengið út á sker.

31 sótti um starf verkefnastjóra alþjóðamála
Umsækjendur um starf verkefnastjóra alþjóðamála voru 31 en valið var í starfið útfrá hæfni umsækjenda miðað við kröfur í auglýsingu, frammistöðu umsækjenda í viðtölum og umsögnum meðmælenda.

Fengu flugvélabrak og líkamsleifar í trollið
Áhöfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-255 fékk líkamsleifar og flugvélabrak í troll skipsins á miðvikudag, þegar skipið var að veiðum á Reykjaneshrygg.

Leita Gunnars áfram í Eskifirði
Leitin að Gunnari Svan Björgvinssyni í Eskifirði og Reyðarfirði hefur engan árangur boðið. Hans hefur verið leitað frá því á sunnudaginn en í morgun var leitað á þyrlu landhelgisgæslunnar.

„Kjarninn er að í allt of mörg ár höfum við verið of fá“
Umfangsmiklar breytingar verða gerðar á meðferð kynferðisbrota og skipulagðrar brotastarfsemi, samkvæmt nýrri áætlun dómsmálaráðherra. Þörfin sé brýn vegna erfiðra mála sem ítrekað hafi komið upp síðustu misseri. Ráða á tugi nýrra starfsmanna til að bregðast við vandanum. Ríkislögreglustjóri segir þau geta gert betur víða.

Stefna á að fjölga fangelsisrýmum úr fjörtíu í sjötíu
„Það eru fara af stað miklar framkvæmdir í aðstöðubreytingum á Litla Hrauni. Það er tveggja milljarða verkefni sem er að fara af stað þar núna, þessa dagana,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.