Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir líklegra að Félagsdómur telji verkfallsaðgerðir ólögmætar Sérfræðingur í vinnurétti telur líklegt að Félagsdómur muni komast að þeirri niðurstöðu að þær vinnustöðvanir sem boðaðar hafa verið af hálfu Eflingar séu ólögmætar. 1.2.2023 20:03
Borðaði ekkert í mánuð og rauf föstuna í fréttatímanum Íslenskur karlmaður sem fastaði allan janúarmánuð léttist um rúm tuttugu kíló á meðan föstunni stóð. Honum leið vel allan tímann, að eigin sögn, og langaði aldrei í hamborgara. Við hittum kappann í dag og fylgdumst með honum brjóta föstuna. 1.2.2023 19:31
Ekki innistæða fyrir gagnrýni á Seðlabankann Fjármálaráðherra segir ekki hægt að kenna gjaldahækkunum ríkissjóðs um áramótin um aukna verðbólgu eins og Neytendasamtökin og fleiri hafa gert. Allir þurfi að horfast í augu við raunveruleikann og standa með Seðlabankanum og öðrum sem gripið hafi til aðgerða til að ná verðbólgunni niður. 1.2.2023 19:22
Óskað eftir vitnum að umferðarslysi á Reykjanesbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærmorgun, þriðjudaginn 31. janúar. 1.2.2023 19:21
45 töskur urðu eftir á flugvellinum á Tenerife 45 töskur voru skildar á TFS flugvellinum á Tenerife þegar vél á vegum Niceair hélt til Akureyrar síðastliðinn miðvikudag. 1.2.2023 19:08
Leitin að Modestas stendur enn yfir Enn hefur ekkert spurst til Modestas Antanavicius, en síðast var vitað af ferðum hans þann 7.janúar síðastliðinn. 1.2.2023 18:46
Stjórnarandstaðan vill sjá á spilin: „Mér er gjörsamlega misboðið“ Önnur umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra stendur nú yfir á Alþingi en ákveðið var að lengja þingfundinn í dag. Þingmenn Pírata og Samfylkingarinnar vildu að hlé yrði gert á umræðunni þar sem meirihlutinn hefur boðað breytingar. Einn þingmaður Pírata sagði þau eiga skilið að sjá á spilin og annar sagði stjórnarliðum ekki treystandi. Fjármálaráðherra sagði minnihlutann snúa öllu á hvolf. 1.2.2023 18:35
Fækka beygjuakreinum og takmarka hraða Til stendur að bæta umferðaröryggi á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar/Skeiðarvogs. Það verður meðal annars gert með því að fækka vinstribeygjuakreinum af Kleppsmýrarvegi, breikka gönguleið sunnan vegarins og bæta götulýsingu. 1.2.2023 18:31
Píratar vilja þrýsta útlendingafrumvarpi aftur til nefndar Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um útlendingalög í þrjátíu og eina klukkustund frá því Alþingi kom saman eftir áramót. Þingflokksformaður Pírata segir frumvarpið meingallað og brjóta á mannréttindum flóttafólks. Stjórnarflokkarnir gætu lokið umræðunni með því að kalla málið aftur til nefndar til lagfæringar. 1.2.2023 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra segir ekki hægt að kenna gjaldahækkunum ríkissjóðs um áramótin um aukna verðbólgu eins og Neytendasamtökin og fleiri hafa gert. Allir þurfi að vinna saman að því með Seðlabankanum og ríkissjóði að draga úr þenslu. 1.2.2023 18:01
Lítur út fyrir að tvö nefndarálit verði rituð um skýrslu Ríkisendurskoðunar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis lauk í morgun umfjöllun um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandsbankamálið. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður nefndarinnar telur líklegt að tvö nefndarálit verði rituð og lögð fyrir þingið. 1.2.2023 16:24
Nýtur aðstoðar Íslendinga við að góma þjóf á flugvellinum á Tenerife Harpa Rós Júlíusdóttir hefur síðustu vikur reynt að koma upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í því að munum sé stolið úr töskum þeirra á flugvellinum. Hún segir atvik þegar jólagjöfum var rænt af íslenskri fjölskyldu á flugvellinum hafi verið það sem kom henni af stað. 1.2.2023 16:14
Rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar hætt í hagræðingarskyni Rekstri TF-SIF, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar, verður hætt á árinu vegna hagræðingar. Dómsmálaráðuneytið tilkynnti gæslunni þetta fyrr í vikunni og hefst söluferli á næstunni. 1.2.2023 15:35
„Ég hélt bara að klakastykkin ætluðu í gegnum bílinn” Þorkell Þorkelsson var að keyra á Suðurlandsvegi klukkan rétt rúmlega 16 í gær þegar hann mætti stærðarinnar snjóruðningstæki sem var að keyra á hinni akreininni. Bíll Þorkels varð fyrir skemmdum og hann leitar nú að ökumanni tækisins. 1.2.2023 15:16
Orsök bilunarinnar óljós og tímafrek viðgerð fram undan Bilunin á Vestmannaeyjastreng 3 sem kom upp í vikunni reyndist ekki vera á landi eins of fyrst var talið heldur á sjó. Landsnet segir umfangsmikla, flókna og tímafreka viðgerð fram undan. Ekki liggur fyrir hvað olli biluninni en fyrir viðgerðina þarf að kalla inn sérhæft viðgerðarskip og sérfræðinga til landins. 1.2.2023 14:34
Fær bætur eftir að hafa fræst á sér handlegginn Rafiðnaðarmaður, sem slasaðist illa þegar fræsari hrökk í handlegg hans við vinnu, fær greiddar bætur úr ábyrgðartryggingu Sjóvár. Sjóvá hafnaði ábyrgð og bar fyrir sig að um óhappaatvik hafi verið að ræða. 1.2.2023 12:54
Sólveig krefst fundar með forsætisráðherra Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með forsætisráðherra og gerir athugasemd við málflutning hennar um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara standist skoðun. Fyrirtæki sem frekari verkfallsaðgerðir Eflingar gætu haft áhrif á eru að fara yfir stöðuna en vinnustöðvun gæti til dæmis sett innanlandsflug úr skorðum. 1.2.2023 12:10
Ekki við mótmælendur að sakast hvernig fór við brottvísun Hussein Embætti ríkislögreglustjóra hafnar því að þau kenni mótmælendum um hvernig fór þegar flóttamanninum Hussein Hussein var vísað úr landi. Áætlanir hafi breyst eftir að boðað var til mótmæla, sem hefðu getað verið fjölmennari en raun bar vitni. Embættið beri ábyrgð og ekki sé við mótmælendur að sakast. 1.2.2023 11:57
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, málþóf á Alþingi og sameiningu ríkisstofnana svo nokkuð sé nefnt. 1.2.2023 11:35
Íslenskum föður gert að skila börnum sínum til móðurinnar Landsréttur hefur úrskurðað að faðir með íslenskt ríkisfang skuli skila tveimur börnum sínum á lögheimili þeirra erlendis, þar sem þau búa með erlendri móður sinni. 1.2.2023 10:53
Tíu stofnanir verða að þremur Áform eru um að sameina tíu stofnanir sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í þrjár stofnanir. Ráðherra segir að markmiðið með sameiningunni sé að efla stofnanir ráðuneytisins. 1.2.2023 10:51
Mikil vonbrigði hjá Votlendissjóði og Einar hættir störfum Stjórn Votlendissjóðs og framkvæmdastjóri hafa ákveðið að draga úr rekstri sjóðsins. Ástæðan er sögð skortur á jörðum til endurheimtar votlendis og áhrif krafna um vottun á fjármögnun verkefna. Þar til alþjóðleg vottun kolefniseininga sjóðsins er í höfn verður dregið úr rekstrinum. 1.2.2023 10:31
Krummi í lagi en alls ekki Kisa Nýr úrskurður mannanafnanefndar, sem hafnaði nafninu Kisa, styrkir þingmann Sjálfstæðisflokksins enn frekar í þeirri trú sinni að leggja eigi nefndina niður. Við kynntum okkur hinn umdeilda úrskurð og íslensk dýranöfn, sem þykja mishentug á menn. 1.2.2023 09:40
Segir landsmenn eyða of miklu Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir alla hafa áhyggjur af verðbólgunni sem nú mælist tæp 10 prósent. Hún segir rétt að hafa huga í allri umræðu að tekjustofnar ríkisins hafi rýrnað á sama tíma og verið sé að kallað eftir auknu fé í ýmis verkefni. Hún segir einnig vera ljóst að landsmenn séu að eyða of miklu. 1.2.2023 08:59
Verkjalyf í verslanir: Fín hugmynd eða „alger óþarfi“? Rætt var við borgarbúa á förnum vegi í Íslandi í dag og þeir spurðir hvernig þeim hugnaðist sú tillaga að leyfa lausasölulyf í almennum verslunum, líkt og lagt er til í nýlegu frumvarpi á Alþingi. 1.2.2023 08:46
Landasali fyrir norðan talinn hafa hagnast um margar milljónir Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært tvo einstaklinga fyrir nokkuð umfangsmikla sölu á sígarettum og tóbaki. Annar einstaklinganna er einnig ákærður fyrir landasölu. Er viðkomandi talinn hafa hagnast um 5,6 milljónir vegna málsins. 1.2.2023 08:25
Appelsínugular og rauðar viðvaranir aldrei verið fleiri Veðurstofa Íslands gaf út 456 veðurviðvaranir á síðasta ári samkvæmt samantekt Veðurstofunnar. 1.2.2023 07:33
Fyrirtæki áhugasöm um að byggja á Hólmsheiði Borginni bárust 56 erindi eftir að hafa auglýst eftir fyrirtækjum sem væru áhugasöm um að byggja á Hólmsheiði. Heildarþörfin á svæðinu er 978 þúsund fermetrar lands undir atvinnuhúsnæði á 239 þúsund fermetrum. 1.2.2023 06:44
Sema segir ríkislögreglustjóra „ljúga upp á almenna borgara“ Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris og baráttukona fyrir réttindum flóttafólks, sakar ríkislögreglustjóra um að ljúga opinberlega upp á almenning í svörum sínum við erindi umboðsmanns Alþingis. 1.2.2023 06:24
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent