Strengurinn var tekinn úr rekstri á áttunda tímanum síðasta mánudagskvöld en fyrstu greiningar bentu til að bilun væri í tengimúffu í landi nokkrum kílómetrum frá Rimakoti. Eftir bilanagreiningu hefur nú komið í ljós að bilunin hafi verið í sjó, um einum kílómetra frá Landeyjarsandi.
„Ljóst er að fram undan er umfangsmikil, flókin og tímafrek viðgerð,“ segir í tilkynningu frá Landsneti í dag.
Vestmannaeyjastrengur 1 var tekinn í rekstur í kjölfar bilunarinnar og verður hann áfram keyrður ásamt varaafli meðan á viðgerð stendur. Þá mun Landsnet flytja auka varaaflsvélar til Vestmannaeyja til að tryggja rafmagn ef eitthvað skyldi koma upp á.
„Unnið er í nánu samstarfi við bæjaryfirvöld og almannavarnir í Vestmannaeyjum og höfum við nú þegar virkjað viðbragðsáætlanir og undirbúningur fyrir viðgerð er hafinn. Ekki er vitað á þessu stigi hvað olli því að strengurinn bilaði né hvað viðgerðin mun taka langan tíma,“ segir í tilkynningunni.
Líkt og áður segir er þó viðbúið að viðgerðin verði tímafrek en kalla þarf út sérhæft viðgerðarskip fyrir viðgerð sem þessa og fá sérfræðinga til landsins. Veðurskilyrði þurfa þá að vera hagstæð.
Strengurinn var upprunalega lagður árið 2013, framleiddur í verksmiðju í Svíþjóð og prófaður samkvæmt stífustu kröfum að framleiðslu lokinni í verksmiðju, að því er segir í tilkynningunni.