Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Alþingi sett eftir langt hlé Nýtt löggjafarþing verður sett í dag og hefst þingsetningarathöfn klukkan 13:30 með guðþjónustu í Dómkirkjunni. 23.11.2021 13:02
Telur rétt að endurvekja vistheimilisnefnd vegna ásakana um illa meðferð á börnum Umsjónamaður sanngirnisbóta segir að nýjar ásakanir um illa meðferð barna á vistheimilum komi sífellt fram og því rétt að endurvekja störf vistheimilinefndar. Málin hafi ekki verið kláruð á sínum tíma. Hann hefur áránna rás fengið kvartanir um Hjalteyrarheimilið. 23.11.2021 13:00
Meðferðin til háborinnar skammar en leggur ekki mat á hvort hætta þurfi blóðtökunni Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra segir meðferð á íslenskum hryssum við blóðtöku vera til háborinnar skammar. Hann vill þó ekki leggja mat á það hvort hætta þurfi þessari starfsemi. 23.11.2021 12:45
Guðlaugur Þór í sóttkví Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra er kominn í sóttkví. Það er eftir að starfsmaður utanríkisráðuneytisins greindist smitaður af Covid-19 í gær. 23.11.2021 12:26
Launamunurinn geti vel skýrst af hálaunastörfum Formaður BSRB harmar gagnrýni innan úr röðum Starfsgreinasambandsins og segir ekki hægt að þá staðreynd í efa að opinberir starfsmenn séu lægra launaðir að meðaltali. Hún útilokar þó ekki að þetta eigi aðallega við hálaunastörf en þau þurfi þá að hækka hjá hinu opinbera. 23.11.2021 12:07
Notkun „hvíldarherbergja“ í grunnskólum samræmist ekki grunnskólalögum Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur sent frá sér úrskurð um notkun „hvíldarherbergja“ í grunnskólum. Fram kemur í úrskurðinum að notkun slíkra herbergja samræmist ekki grunnskólalögum og farið fram á að notkun slíkra herbergja verði hætt þegar í stað. 23.11.2021 11:55
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Flokkur fólksins mynda meirihluta í undirbúningskjörbréfanefnd Búist er við að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins myndi meirihluta í undirbúningskjörbréfanefnd um að leggja til að niðurstaða seinni talningar í kosningunum í Norðvesturkjördæmi verði látin gilda. Stjórnarflokkarnir verða því ekki samferða í málinu. 23.11.2021 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum heyrum við álit landbúnaðarráðherra á blóðmerarhaldi og þeirri meðferð sem sést í nýrri heimildamynd. Hann segir meðferðina til háborinnar skammar en vill ekki leggja mat á hvort hætta þurfi starfseminni hér á landi. 23.11.2021 11:37
Fimm hundruð milljóna króna deila í óvígðri sambúð Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir fjárslitamál á milli tveggja einstaklinga í óvígðri sambúð, þar sem meðal annars er tekist á um hvort að annar aðilinn hafi átt hálfan milljarð á erlendum bankareikningum. 23.11.2021 10:57
194 greindust innanlands 194 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þetta er næsthæsti fjöldi sem greinst hefur á einum degi frá upphafi faraldursins, en mesti fjöldinn var 206 þann 15. nóvember síðastliðinn. 23.11.2021 10:17
Viðmiðum um biðtíma eftir aðgerðum aðeins náð í fjórum aðgerðaflokkum af átján Samkvæmt viðmiðum Embættis landlæknis um ásættanlegan biðtíma eftir aðgerðum eiga 80 prósent sjúklinga að komast í aðgerð innan 90 daga. Þessum viðmiðum er aðeins náð í fjórum aðgerðaflokkum af átján. 23.11.2021 08:01
Þing kemur saman eftir óvenjulangt hlé Nýtt löggjafarþing kemur saman í dag, það 152. í röðinni, og hefst að vanda með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13:30, áður en gengið verður yfir í þinghúsið og þingið sett. 23.11.2021 07:52
431 sóttvarnabrot skráð en sektað í 46 prósent tilvika 475 einstaklingar og 73 fyrirtæki koma við sögu í 431 sóttvarnabroti sem lögregla hefur skráð frá 1. mars 2020. Málin varða meðal annars brot á reglum um fjöldatakmarkanir og brot á reglum um lokun skemmtistaða. 23.11.2021 06:34
Forstjóri Eskju segir útgerðina geta stundum borgað hærri kvótaskatt Forstjóri og aðaleigandi Eskju á Eskifirði er opinn fyrir hærri kvótaskatti og segir að vel megi vera að gjaldtaka fyrir fiskveiðiheimildir sé of lág. Sonur Alla ríka, sem seldi hlut sinn í fyrirtækinu, hafnar því að hann hafi verið að taka út kvótagróða. 22.11.2021 23:50
Umdeilt klámbann: Unglingar með, þingmenn á móti Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Pírata leggjast gegn hugmyndum menntamálaráðherra um að loka á klám fyrir ungmenni. Ekki rétta leiðin, segja þeir. Nemendur í Hagaskóla eru aftur á móti margir fylgjandi klámbanni, enda sé það stórskaðlegt. 22.11.2021 23:01
Allt of langt hlé og skaðlegt fyrir lýðræðið Lengsta hlé á störfum þingsins í rúma þrjá áratugi tekur enda á morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn óttast afleiðingar svo langs hlés fyrir lýðræðið en eru langt í frá spenntir að takast á við fyrsta verkefni komandi þings - kjörbréfamálið. 22.11.2021 22:01
„Kerfisbundið og síendurtekið dýraníð“ Formaður Félags hrossabænda segist telja fólk úr sínum röðum vera slegið yfir þeim myndum sem sáust í myndbandi sem birt var í morgun af slæmri meðferð mera við blóðtöku. Félag tamningamanna kallar eftir úrbótum og skorar á MAST að taka sig á í eftirliti. 22.11.2021 21:37
Vill láta rannsaka málefni Hjalteyrarheimilisins Bæjarstjóri Akureyrar telur að rannsaka eigi málefni barnaheimilisins á Hjalteyri eftir að fólk sem þar dvaldi sem börn hefur stigið fram. Þar lýsir fólkið hræðilegu kynferðislegu,líkamlegu og andlegu ofbeldi sem það varð fyrir. 22.11.2021 21:30
„Ég myndi sjálf berja þann sem legði hendur á mín hross“ „Ég er mjög ósátt við þetta myndband. Þarna birtast myndir heiman frá mér, og ekkert af minni starfsemi tengist því sem kemur fram í myndbandinu,“ segir Sæunn Þórarinsdóttir, hrossabóndi um myndband sem birt var í morgun af slæmri meðferð mera við blóðtöku. 22.11.2021 20:00
Rannsaka hvort reynt hafi verið að keyra á börn í Garðabæ Nokkrar kærur hafa borist lögreglu eftir að hópur krakka safnaðist saman fyrir utan heimili í Garðabæ á laugardagskvöld og hafði í hótunum við heimilisfólkið. Heimilisfaðirinn hefur einnig verið kærður en hluti krakkanna sakar hann um að hafa reynt að keyra á sig. 22.11.2021 19:32
Lögreglu borist kvartanir vegna vopnaðra veiðimanna á fjórhjólum Lögreglunni á Vestfjörðum hafa borist kvartanir vegna veiðimanna sem sótt hafi veiðisvæði innan umdæmisins á fjórhjólum. Umræddir veiðimenn hafi verið með skotvopn um hönd á hjólunum, sem brjóti í bága við lög. 22.11.2021 19:21
Barnaverndarráð Íslands sópaði kvörtunum út af borðinu Fyrrverandi félagsmálastjóri Akureyrar segir Barnaverndarráð Íslands ekki hafa tekið kvartanir sínar um barnaheimilið á Hjalteyri alvarlega. Málinu hafi verið sópað út af borðinu. Hefði hann vitað af kynferðislega ofbeldinu sem nú hefur verið greint frá hefði málið alltaf verið kært til lögreglu. 22.11.2021 18:40
Ráðuneytið skoðar áfram mál Hugarafls þvert á yfirlýsingar lögmanns Félagsmálaráðuneytið hefur enn til skoðunar ásakanir fyrrum félagsmanna Hugarafls um eitraða menningu hjá samtökunum. Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðuneytisins til fréttastofu. 22.11.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bæjarstjórar Akureyrar og Garðabæjar telja rétt að starfshættir hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar verði rannsakaðir. Hjónin ráku dagvistun og leikskóla í Garðabæ í tæp 20 ár. Fyrrverandi félagsmálastjóri Akureyrar segir Barnaverndarráð Íslands ekki hafa tekið sína kvörtun alvarlega. 22.11.2021 18:00
Sjö þúsund sprautur í dag og afganginum komið út Vel gekk að koma út þeim fjögur hundruð örvunarskömmtum Pfizer-bóluefnisins sem stóðu afgangs þegar heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu opnaði fyrir bólusetningar þeirra sem ekki höfðu fengið boðun í bólusetningu síðdegis í dag. 22.11.2021 17:37
Handtekinn eftir að hann veittist að samnemanda Nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var handtekinn í skólanum um hádegisbil í dag. Þetta staðfestir Guðlaug Pálsdóttir skólameistari í samtali við Vísi og segir að nemandi hafi veist að samnemanda sínum. 22.11.2021 17:26
Stullarnir sverja af sér svindl við bókun í Golfbox Golfhópurinn Stullarnir, sem í eru margir landsþekktir einstaklingar svo sem Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Hreggviður Jónsson forstjóri, eru sakaðir um svindl við bókun rástíma. Allt logar stafna á milli í golfhreyfingunni vegna málsins. 22.11.2021 15:46
Afgangur af örvunarskömmtum í boði í Laugardalshöll Um fjögur hundruð örvunarskammtar með mRNA bóluefni Pfizer eru eftir í Laugardalshöll og standa fólki til boða til klukkan fjögur í dag. Þetta segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Fimm mánuðir þurfa þó að hafa liðið frá sprautu númer tvö. 22.11.2021 15:23
Garðabær mun rannsaka dagheimili hjónanna frá Hjalteyri Bæjarstjóri Garðabæjar segir að starfsemi hjóna, sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratugnum, við barnagæslu í Garðabæ verði rannsökuð. Bærinn taki frásagnir um ofbeldi af hálfu hjónanna mjög alvarlega og starfsemi þeirra verði rannsökuð af viðeigandi aðilum. 22.11.2021 15:23
„Ég er að reyna að draga úr tíðni þessara brota“ kvartar misskilinn Jón Steinar „Þú talar alltof mikið,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, við Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar, þegar þau tókust á um kynferðisbrot í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 22.11.2021 13:39
Umræða um bólusetningarskyldu eðlilegri ef örvunarskammturinn reynist vel Ef örvunarskammtur af bóluefni veitir verulega vörn gegn smiti eru komnar faglegar forsendur til að ræða bólusetningarskyldu að sögn sóttvarnalæknis. 22.11.2021 13:38
Þriggja bíla árekstur við Sæbraut Þriggja bíla árekstur varð við gatnamót Sæbrautar og Dalbrautar í Reykjavík fyrir stuttu. Þetta staðfestir slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu við fréttastofu. 22.11.2021 13:13
„Þetta var hreinasta helvíti“ Maður sem sætti miklu ofbeldi af hálfu hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar segir stórundarlegt að hjónin hafi áfram fengið leyfi til að gæta barna í Garðabæ. Foreldrar barna sem voru með börn sín í vistun hjá þeim eru ósáttir við að Garðarbær hafi ekki stöðvað hjónin. 22.11.2021 13:01
Konan sem fór í keisaraskurð vegna Covid-19 óbólusett Covid-smituð kona sem undirgekkst keisaraskurð í mánuðinum hafði ekki fengið bólusetningu samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 22.11.2021 12:09
Rannsaka slæma meðferð á fylfullum hryssum við blóðtöku Matvælastofnun hefur til rannsóknar myndband sem sýnir slæma meðferð á fylfullum hryssum við blóðtöku. Dýralæknir hrossasjúkdóma segir að málið sé litið mjög alvarlegum augum, en að meðferðin sé ekki lýsandi fyrir blóðmerarhald á Íslandi. 22.11.2021 12:06
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við mann sem dvaldi sumarlangt á barnaheimilinu að Hjalteyri og sætti þar miklu ofbeldi. 22.11.2021 11:37
BSRB fari fram með áróður sem skaði láglaunafólk Stjórnarmaður í Starfsgreinasambandinu segir BSRB fara með rangfærslur um launamun milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins. Hann óttast að yfirlýsingarnar geti skaðað lægst launaðu umbjóðendur sína. 22.11.2021 11:21
Hanna Katrín áfram þingflokksformaður og Sigmar varaformaður Hanna Katrín Friðriksson mun áfram gegna stöðu formanns þingflokks Viðreisnar. 22.11.2021 11:05
Byssumaðurinn á Egilsstöðum ákærður Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni, sem skaut á hús í Dalseli á Egilsstöðum í ágúst. Maðurinn var skotinn af lögreglu og fluttur á Landspítala þar sem hann lá á gjörgæslu í nokkurn tíma. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. 22.11.2021 11:03
102 greindust innanlands í gær 102 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 62 af þeim 102 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 61 prósent. Fjörutíu voru utan sóttkvíar, eða 39 prósent. 22.11.2021 10:35
Segir Staksteinahöfund hafa alist upp við olíulampa og frábiður sér hrútskýringar „Alþingi mun eiga síðasta orðið og þar við situr. Ef skandallinn fær að standa þá er það endanlegt. Það þarf enginn að hrútskýra það neitt frekar. Það kunna fleiri að lesa sér til gagns en þeir sem ólust upp við olíulampa.“ 22.11.2021 09:16
„Ég held, svona innst inni, að við séum búin að ná toppnum“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ýmis teikn vera um að við séu búin að ná toppnum í þeirri smitbylgju sem nú stendur. Hann segir stöðuna hafa verið nokkuð góða um helgina þó að enn eigi eftir að taka tölurnar almennilega saman. 22.11.2021 08:21
Tvö hundruð Hagskælingar nema á Hótel Sögu Reykjavíkurborg hefur samið við eigendur Hótel Sögu um að leigja af þeim um 1100 fermetra á 2. hæð hótelsins auk aðgangs að sameign. Þar munu um tvö hundruð nemendur í 8. bekk Hagaskóla nema á meðan framkvæmdir fara fram í norðausturálmu skólans hvar myglu hefur orðið vart. 22.11.2021 08:12
Eldur í gardínum í íbúð við Álftamýri Eldur kom upp í blokkaríbúð í Álftamýri í gærkvöldi. Tilkynning barst slökkviliðinu um að gardínur íbúðarinnar stæðu í ljósum logum og var allt tiltækt lið sent á vettvang. 22.11.2021 07:35
Bjóða fyrirtækjum og stofnunum að fá bólusetningarbílinn í heimsókn Heilbrigðisyfirvöld óska eftir samstarfi við fyrirtæki og stofnanir, sem stendur nú til boða að fá bólusetningabílinn í heimsókn. Markmiðið er að ná til þeirra í samfélaginu sem enn eru óbólusettir. 22.11.2021 07:30