Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný bóluefni gegn delta eru okkar helsta von Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, segir óvíst hvort og þá hvenær hægt verði að líta kórónuveiruna sömu augum og venjulega inflúensuveiru, eins og menn höfðu vonast eftir að yrði staðan eftir að bólusetningum hjá meirihluta þjóðarinnar væri lokið. 29.7.2021 12:27
Málefni Menntamálstofnunnar til skoðunar og litin alvarlegum augum Málefni Menntastofnunar eru til skoðunar í menntamálaráðuneytinu og er staðan litin mjög alvarlegum augum. Minnihluti starfsmanna Menntamálastofnunar ber traust til forstjórans og þrettán prósent starfsmanna hafa orðið fyrir einelti á vinnustað. Starfsmenn lýsa stjórnunarvanda á vinnustaðnum og segjast vinna undir ógnarstjórnun og hótunum um brottrekstur. 29.7.2021 12:10
Inga Sæland krefst þess að Alþingi komi saman vegna faraldursins Inga Sæland formaður Flokks fólksins krefst þess að Alþingi verði þegar kallað saman vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kórónuveirufaraldrinum. Neyðarástand ríki í samfélaginu og styrkja þurfi sóttvarnaráðstafanir og heilbrigðiskerfið. 29.7.2021 12:08
Sjálfstæðisflokkur vinsælastur hjá körlum en VG hjá konum Sjálfstæðisflokkurinn nýtur yfirburða fylgis meðal karla en Vinstri græn meðal kvenna samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis. Samfylkingin hefur mesta fylgið hjá yngstu kjósendunum en elstu kjósendurnir kjósa flestir Sjálfstæðisflokkinn. 29.7.2021 11:50
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum og heyrum af fundi Landlæknis og almannavarna sem fram fór í morgun. 29.7.2021 11:38
Ísland er appelsínugult á nýju korti Ísland er appelsínugult á nýútgefnu korti Sóttvarnarstofnunar Evrópu sem gefið var út rétt í þessu. 29.7.2021 11:31
Klappað og fagnað þegar sex ára stúlka fann móður sína aftur Innilegir og fallegir fagnaðarfundir urðu hjá móður og sex ára dóttur hennar á Óðinstorgi í Þingholtunum í gær eftir að stúlkan hafði týnst í um klukkustund. Hún var í heimsókn í hverfinu, ókunnug því og villtist því þegar hún ráfaði í burtu. 29.7.2021 11:31
Kona handtekin við bólusetningaröð: „Það er eitur í þessum sprautum!“ Kona var handtekin fyrir utan bólusetningaröðina á Suðurlandsbraut nú í morgun. Konan mótmælti og lét illum látum þar sem óléttar konur stóðu í röð og biðu eftir bólusetningu. 29.7.2021 11:29
Tíu á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu Tíu sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæsludeild. Þrír hafa verið lagðir inn frá því snemma í gær og fjölgaði um einn á gjörgæslu. 29.7.2021 11:09
Minnst 118 greindust innanlands Í gær greindust minnst 118 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 34 óbólusettir og fjórir hálfbólusettir. 67 eða rúmur helmingur var utan sóttkvíar við greiningu. 29.7.2021 10:43
Svona var 186. upplýsingafundur almannavarna Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar klukkan ellefu í dag, fimmtudaginn 29. júlí. 29.7.2021 10:31
Óska eftir fólki án heilbrigðismenntunar vegna álags í sýnatöku Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar nú eftir liðsinni fólks sem getur aðstoðað við sýnatöku á Keflavíkurflugvelli og á Suðurlandsbraut. Ekki er gerð krafa um menntun á sviði heilbrigðisvísinda. 29.7.2021 10:14
Enginn jarðskjálfti að stærð 5,0 í morgun Athygli vakti að jarðskjálfti að stærð 5,0 var skráður á vef Veðurstofunnar norðaustur af Flatey klukkan 6:25 í morgun. Ekki var um raunverulegan skjálfta að ræða heldur námu jarðskjálftanemar bylgjur frá öflugum skjálfta sem mældist í Alaska um tíu mínútum fyrr. 29.7.2021 08:50
Kosningar 2021: Veðrabrigði í íslenskum stjórnmálum Skjótt skipast veður í lofti í íslenskum stjórnmálum. 29.7.2021 08:00
Minnihluti starfsmanna Menntamálastofnunar ber traust til forstjórans Mikil óánægja er meðal starfsmanna Menntamálastofnunar ef marka má könnun sem gerð var innan stofnunarinnar í vor. 29.7.2021 06:44
„Það er bara þannig að akstur utan vega er bannaður á Íslandi“ Forstjóri Umhverfisstofnunar segir það misskilning að leyfi landeigenda dugi til að fólk megi aka utan vega. Til þess þurfi alltaf leyfi Umhverfisstofnunar eða annarra yfirvalda. 28.7.2021 21:16
Tjaldsvæði á Suðurlandi eru að fyllast af fólki Tjaldsvæði á Suðurlandi eru við það að fyllast af fóki enda spáir góðu veðri þar næstu daga. Strangar sóttvarnarreglur munu gilda á tjaldsvæðunum. 28.7.2021 21:07
Halda tónlistarhátíð þrátt fyrir allt Það styttist í Verslunarmannahelgi og vegna faraldurs kórónuveirunnar er ýmist búið að aflýsa eða fresta bæjarhátíðum um land allt. Þrátt fyrir það ætla veitingamenn á Skuggabaldri við Pósthússtræti að halda uppi fjöri í miðbæ Reykjavíkur. 28.7.2021 20:36
Margir ætla að tjalda á Suðurlandi um helgina þar sem sólin skein í dag Margir ætla að elta góða veðrið og tjalda á suðurlandi um Verslunarmannahelgina. Þar verður sólskin - en líka í höfuðborginni þar sem sjaldséð sólin skein í dag. 28.7.2021 20:01
Eldur logaði glatt í bíl við Rauðavatn Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út laust eftir klukkan sex vegna elds sem kom upp í bíl sem var á ferð við Rauðavatn. 28.7.2021 19:08
Mengun frá skemmtiferðaskipum minnki um allt að helming Faxaflóahafnir stefna á að ljúka uppbyggingu fyrir raftengingu farþegaskipa í höfnum allra hafna fyrirtækisins innan fimm ára. Þannig verður dregið úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og loftgæði almennt bætt í borginni. 28.7.2021 19:00
Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Maskínu Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Vinstri græn eru í lykilstöðu og gætu tekið þátt í ríkisstjórnum bæði til hægri og vinstri. 28.7.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum birtum við nýja könnun Maskínu sem sýnir að stjórnarflokkarnir hafa misst meirihlutann. Við tölum við stjórnmálafræðiprófessor um mögulegar meirihlutastjórnir. 28.7.2021 18:00
Lýsir dvöl á skemmtiferðaskipi eftir að smit kom upp: „Eftir hávaðarifrildi á íslensku snerum við aftur í skipið“ „Við vorum búin að keyra í nær klukkustund í fyrstu ferðinni þennan dag – gönguferð þar sem við áttum að læra um íslenskar þjóðsögur um álfa, huldufólk og tröll – þegar leiðsögumaðurinn tilkynnti að við þyrftum að snúa aftur í höfn. Covid-19 hafði greinst um borð í skipinu.“ 28.7.2021 17:46
Landspítali hættir við að krefja starfsfólk um neikvætt PCR-próf Landspítalinn hefur fallið frá þeirri kröfu að starfsfólk sem snýr til baka eftir orlof innanlands skuli skila inn PCR-prófi fyrir Covid-19 áður en það snýr aftur til starfa. Það er þó hvatt til þess að fara í sýnatöku finni það fyrir minnstu einkennum eða hafi verið á stöðum þar sem smit hefur komið upp. 28.7.2021 17:10
Lokatölur: 122 greindust innanlands Alls greindust 122 með kórónuveiruna í gær. Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, í samtali við fréttastofu. 28.7.2021 16:29
Vill upplýsingar beint af kúnni Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar, hefur farið fram á það að nefndin komi saman í miðju sumarfríi þingmanna til að fara yfir stöðu mála í nýrri bylgju faraldursins. Hún segir mikilvægt að nefndarmenn fái tækifæri til að bera spurningar undir helstu sérfræðinga landsins. 28.7.2021 15:23
Töf á birtingu þrátt fyrir að engin sýni hafi verið eftir í morgun Annan daginn í röð var ekki greint frá endanlegum fjölda nýgreindra innanlandssmita klukkan 11 í dag líkt og til stóð. Metfjöldi Covid-sýna kom inn til sýkla- og veirufræðideildar Landspítala í gær en greiningu þeirra lauk í gærkvöldi. 28.7.2021 14:53
Vísitölufjölskylda á Vesturlandi vann 80 milljónir Hjón með tvö börn duttu heldur betur í lukkupottinn í síðustu viku þegar þau hrepptu 80 milljóna króna 2. vinning í Eurojackpot. 28.7.2021 14:40
Boða til upplýsingafundar á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00, fimmtudaginn 29. júlí. 28.7.2021 12:36
Skipuleggjendur Reykjavíkurmaraþonsins liggja undir feldi Stjórnendur Íþróttabandalags Reykjavíkur skoða nú hvernig mögulegt sé að útfæra Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka með tilliti til hertra sóttvarnaaðgerða. Reykjavíkurmaraþonið var ekki haldið á síðasta ári vegna þágildandi sóttvarnaráðstafana. 28.7.2021 11:52
Yfirlæknir á von á miklu lægra hlutfalli alvarlegra veikra 115 greindust með kórónuveiruna í gær, sem er næstmesti smitfjöldi sem greinst hefur á einum degi frá upphafi faraldurs. Óbólusettur Íslendingur, yngri en 60 ára, er kominn í gjörgæslu á Landspítalanum vegna Covid-sýkingar. 28.7.2021 11:51
„Nú væri gott ef þessir ferðamenn gætu verið annarsstaðar en hjá okkur“ Undanfarið hefur fólki í sóttkví og einangrun hjá farsóttarhúsum fjölgað mikið. Forstöðumaður húsanna segir óbólusetta ferðamenn farna að valda vandræðum, og gott væri ef þeir gætu haldið til annars staðar, þar sem lausum einangrunarplássum fari fljótt fækkandi. 28.7.2021 11:50
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Að minnsa kosti 115 greindust með kórónuveiruna í gær, sem er næstmesti smitfjöldi sem greinst hefur á einum degi frá upphafi faraldurs en greiningu er enn ekki lokið. 28.7.2021 11:36
Enginn kemst um borð hjá Play án neikvæðs Covid-19 prófs Frá og með fimmtudeginum 29. júlí mun Play ekki fljúga með farþega til Íslands sem ekki geta framvísað vottorði um neikvætt Covid-19 próf við innritun. 28.7.2021 11:12
Loksins 20 gráðu hiti í Reykjavík? Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að nú séu kaflaskil í veðráttunni á Íslandi. Einmuna tíð hefur verið fyrir norðan og austan en höfuðborgarbúar fá nú loksins smjörþef af sumarveðri. 28.7.2021 11:05
Minnst 115 greindust innanlands í gær Í gær greindust minnst 115 einstaklingar innanlands með Covid-19. Af þeim voru 24 óbólusettir og tveir hálfbólusettir. 89 voru utan sóttkvíar við greiningu. 28.7.2021 10:44
Líklega umgangspest en ekki Covid-19 um borð í Kap Áhöfnin á Kap II VE er laus úr sóttkví í Grundarfjarðarhöfn eftir að niðurstöður skimunar á áhöfninni fyrir Covid-19 reyndust neikvæðar. Umgangspest er líkleg skýring veikindaeinkenna nokkurra skipverja. 28.7.2021 10:14
Telja John Snorra hafa náð toppi K2 Leitarmenn sem fundu lík John Snorra Sigurjónssonar og Ali Sadpara fyrir ofan fjórðu búðir á K2 á mánudag telja að þeir félagar hafi náð toppi fjallsins áður en þeir létust. Frá þessu er greint á minningarreikningi Sadpara á Twitter. 28.7.2021 09:50
Tveir heimilismenn á Grund greindust smitaðir Tveir heimilismenn Grundar að Hringbraut hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Smitið má rekja til starfsmanns heimilisins sem var í vinnu í síðustu viku. 28.7.2021 09:29
Óbólusettur Íslendingur á gjörgæsludeild Átta sjúklingar eru nú á Landspítala með Covid-19 og þar af einn á gjörgæsludeild. Sjúklingarnir eru á aldrinum 40 til 70 ára og voru fimm þeirra lagðir inn á spítalann í gær. 28.7.2021 09:10
Metfjöldi sjúkraflutninga í gær „Svei mér þá ef ekki enn eitt metið sé fallið,“ þetta segir í tilkynningu sem Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook í dag. Slökkviliðið sinnti alls 186 sjúkraflutningum í gær. 28.7.2021 09:04
Halldóru verði falið að leiða stjórnarmyndunarviðræður Halldóru Mogensen, þingflokksformanni Pírata, hefur verið falið að leiða stjórnarmyndunarviðræður flokksins eftir komandi alþingiskosningar. 28.7.2021 08:34
ÍBV íhugar að sækja um ríkisstyrk Formaður þjóðhátíðarnefndar segir nefndina íhuga að sækja um ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV af því að fresta þurfi Þjóðhátíð annað árið í röð. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun. 28.7.2021 07:55
Velti bíl undir áhrifum og smitaður af Covid-19 Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi var tilkynnt um bílveltu á Bústaðavegi. Ökumaður bílsins er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá er ökumaðurinn smitaður af Covid-19 og hefði átt að vera í einangrun. 28.7.2021 06:35