Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögur svæði líklegust og öll fjarri íbúabyggð Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands greinir frá því að eftir síðasta sólarhring hafi elduppkomunæmissvæði breyst nokkuð. Nú séu fjögur meginsvæði. Frá vestri til austurs eru þau Eldvörp, Sýlingafell, Fagradalsfjallssvæðið og Móhálsadalur, milli Djúpavatns og Trölladyngju. 8.3.2021 10:58
Um 1300 manns skráðir í skimun Von er á að minnsta kosti um 1300 manns í skimun fyrir kórónuveirunni í dag hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 8.3.2021 10:58
Þrír hafa greinst með veiruna innanlands síðan á föstudag Þrír hafa greinst með veiruna innanlands síðan á föstudag. Einn á föstudag, tveir á laugardag, en enginn í gær, sunnudag. Sá sem greindist á föstudag var utan sóttkvíar. Annar þeirra sem greindist á laugardag var utan sóttkvíar, en hinn ekki. 8.3.2021 10:52
Enn á ný vandræði með samræmdu prófin Nemendur í 9. bekk víða um land eiga í erfiðleikum með að þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku. Forstjóri Menntamálastofnunar sem sér um framkvæmd prófsins segir málið í skoðun. Það tengist þjónustuaðila erlendis. Svo virðist sem vandamálið sé í sumum skólum en öðrum ekki. 8.3.2021 10:27
Níu konur kæra íslenska ríkið Níu íslenskar konur hafa ákveðið að kæra íslenska ríkið til Mannréttindadómsstóls Evrópu vegna þeirrar niðurstöðu að fella niður mál þeirra sem þær höfðu kært til lögreglu en um er að ræða kynferðisbrot og heimilisofbeldi. 8.3.2021 09:57
Fólki fæddu 1942 eða fyrr boðin bólusetning Fólki á höfuðborgarsvæðinu sem fætt er 1942 eða fyrr verður boðin bólusetning gegn Covid-19 í Laugardalshöllinni í Reykjavík á morgun. 8.3.2021 09:04
Öll sýni gærdagsins reyndust neikvæð Öll sýni sem tekin voru í gær vegna tveggja innanlandssmita sem greindust utan sóttkvíar um helgina reyndust neikvæð. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. 8.3.2021 08:16
Tíu Covid-tengd verkefni hjá slökkviliði síðasta sólarhringinn Alls voru tíu svokallaðir Covid-flutningar skráðir hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu síðasta sólarhringinn. Helgin var mjög erilsöm hjá slökkviliðinu, og þá sérstaklega síðastliðinn sólarhringur. 8.3.2021 07:39
Tveir í haldi lögreglu vegna líkamsárása Tveir eru í haldi lögreglu vegna líkamsárása eftir gærkvöldið og nóttina. Annars vegar var maður handtekinn í Vogahverfi vegna líkamsárásar sem tilkynnt var um þar og hins vegar í Breiðholti. 8.3.2021 07:25
Þorbjörg áfram formaður Samtakanna '78 Þorbjörg Þorvaldsdóttir var í dag kjörinn formaður Samtakanna '78 í þriðja sinn. Þorbjörg tók við formennsku árið 2019 af Maríu Helgu Guðmundsdóttur sem hafði verið formaður frá árinu 2016. 7.3.2021 23:54
Vill að fólk borgi fyrir dvölina að fullu ef það getur Forstjóri Grundarheimilanna segir íslenska ríkið ekki geta staðið undir rekstri hjúkrunarheimila um ókomna tíð. Taka eigi fyrirkomulag sem viðhaft er víða á Norðurlöndum til fyrirmyndar, þar sem greiðsluþátttaka sjúklinganna sjálfra er meiri en hér á landi. 7.3.2021 23:05
Ekkert sýni jákvætt hingað til Búið er að skima meirihluta þeirra starfsmanna Landspítalans sem gætu hafa verið útsettir fyrir smiti eftir að starfsmaður á göngudeild lyflækninga A3 greindist með kórónuveirusmit. Hingað til hefur ekkert sýni verið jákvætt. 7.3.2021 21:24
Samhengi sóttvarna og jarðhræringa Ástæðan fyrir því að ekki þykir ráðlegt að slaka á sóttvarnaraðgerðum á meðan jarðhræringar standa yfir er fyrst og fremst sú að ef til náttúruhamfara kemur getur reynst erfiðara að koma í veg fyrir smit ef aukin smithætta er í samfélaginu. Tilslakanir geti haft í för með sér aukna smithættu og ef smit er í samfélaginu kynnu fleiri að vera útsettir ef bregðast þyrfti við náttúruhamförum, til dæmis með því að safna fólki saman í fjöldahjálparstöðvum. 7.3.2021 20:30
Lömuð kona fær ekki þjónustu á næturnar: „Hún er logandi hrædd“ Lömuð kona sem er með samning um sambærilega þjónustu og notendastýrða persónulega aðstoð fær ekki þjónustu á næturnar. Systir hennar segir konuna logandi hrædda. 7.3.2021 20:01
Barn flutt á slysadeild eftir að bíll rann á leikvöll Eitt barn var flutt á slysadeild eftir að bíll rann á leikvöll í Áslandshverfi í Hafnarfirði á sjötta tímanum í dag. Bíllinn var mannlaus þegar atvikið átti sér stað. 7.3.2021 18:57
Smitfréttirnar minni á mikilvægi sóttvarna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fréttir dagsins áminningu um að slaka ekki á sóttvörnum. Fjöldi fólks sé kominn í sóttkví og enn fleiri hafi verið boðaðir til sýnatöku. 7.3.2021 18:35
Býður þeim sem vilja að hlaupa með sér síðustu kílómetrana Bjartur Norðfjörð, sem undanfarið hefur hlaupið tugi kílómetra bæði nótt og dag, býður öllum þeim sem vilja að hlaupa með sér frá Ráðhúsinu og umhverfis Tjörnina klukkan átta í kvöld. Bjartur hleypur til styrktar vini sínum Brandi Karlssyni en markmiðið með framtakinu er að safna fé sem nýtt verður í baráttuna fyrir bættu aðgengi fatlaðra. 7.3.2021 18:21
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hópsmit breska afbrigðis kórónuveirunnar gæti verið í uppsiglingu hér á landi, að sögn sóttvarnalæknis. Tugir eru í sóttkví eftir að tvö innanlandssmit greindust um helgina og deild á Landspítala lokað. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 7.3.2021 18:12
Segir mögulegt hópsmit í uppsiglingu og jafnvel ný bylgja Hópsmit covid-19 er mögulega í uppsiglingu innanlands af völdum breska afbrigðis kórónuveirunnar. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna og embættis sóttvarnalæknis í dag. Grunur er um að tvö innanlandssmit sem upp komu á síðustu dögum megi rekja til sameiginlegs snertiflatar í stigagangi fjölbýlishúss. 7.3.2021 17:16
Jarðskjálfti að stærð 4,0 við Fagradalsfjall Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt eftir klukkan fimm. Skjálftinn var 4 að stærð samkvæmt mælingum Veðurstofunnar og átti upptök sín tvo kílómetra norðaustur af Fagradalsfjalli. 7.3.2021 17:15
Tveir greinst utan sóttkvíar og smitrakning teygir sig til tónleika í Hörpu Alls hafa tveir einstaklingar greinst með covid-19 innanlands síðustu daga sem voru utan sóttkvíar. Báðir hinna smituðu tengjast óbeint einstaklingi sem kom frá útlöndum og greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í seinni skimun þann 4. mars. Þá nær smitrakning einnig til tónleika sem fram fóru í Hörpu á föstudaginn. 7.3.2021 16:17
Svona var 167. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar klukkan fimm í dag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn ræddu stöðu kórónuveirufaraldursins eftir að virkt smit kom upp á Landspítala. Alls hafa tveir greinst utan sóttkvíar á síðustu dögum. 7.3.2021 15:52
Gengið út frá því að smit á Landspítala sé breska afbrigðið Um fimmtíu starfsmenn og sjúklingar eru í sóttkví eftir að starfsmaður á göngudeild lyflækninga A3 Landspítalans í Fossvogi greindist með covid-19 í gær. Þetta segir Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans í samtali við Vísi. Málið er litið alvarlegum augum. 7.3.2021 15:36
Útvista dómsmáli menntamálaráðherra gegn Hafdísi Embætti ríkislögmanns útvistaði máli íslenska ríkisins og mennta- og menningarmálaráðherra gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur. Er málið því rekið af lögmanni utan stjórnsýslunnar. 7.3.2021 15:19
Björgunarsveitir kallaðar út að Ingólfsfjalli Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan 14 í dag eftir að tilkynning barst Neyðarlínu frá konu sem er í sjálfheldu ofarlega í Ingólfsfjalli fyrir ofan bæinn Alviðru. 7.3.2021 14:35
Bein útsending: Íbúafundur í Grindavík túlkaður á pólsku Opið hús verður í Kvikunni í dag á milli klukkan 13 og 17 þar sem áhersla er lögð á að koma upplýsingum til pólska samfélagsins vegna jarðhræringanna á Reykjanesi að sögn bæjarstjóra í Grindavík. Fundurinn sjálfur hefst klukkan 14:30 og verður túlkaður á pólsku. Hægt er að horfa á fundinn á Youtube síðu Grindavíkurbæjar og á Vísi í spilaranum hér að neðan. 7.3.2021 14:19
Starfsmaður Landspítala með Covid og deild lokað Starfsmaður Landspítala greindist með kórónuveiruna í gær. Hópur starfsmanna og sjúklinga var sendur í sýnatöku vegna þessa. Deild þar sem smitið kom upp hefur verið lokað. 7.3.2021 14:00
Svona hljómaði stóri skjálftinn í Grindavík í nótt Stór jarðskjálfti reið yfir við Fagradalsfjall um klukkan tvö í nótt. Skjálftinn mældist 5 að stærð, sá stærsti í nokkra daga. Hann fannst vel á suðvesturhorninu, einkum í Grindavík, og varði í nokkrar sekúndur, ef marka má meðfylgjandi hljóðupptöku af skjálftanum. 7.3.2021 13:06
Dæmi um að íbúar hafi leigt hótelherbergi yfir helgina til að frá frí frá skjálftahrinunni Íbúar Grindavíkur leigðu sér hótelherbergi og sumarbústaði yfir helgina til að frá frí frá skjálftahrinunni sem ekkert lát virðist á að sögn bæjarstjóra í Grindavík. Skjálftavirknin færðist í átt að Grindavík í nótt og fundu íbúar vel fyrir snörpum skjálftum. 7.3.2021 12:53
Möguleg gossvæði orðin sjö Sjö svæði eru nú metin möguleg gossvæði á Reykjanesskaga, samkvæmt nýrri eldsuppkomuspá Eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. 7.3.2021 12:39
Mögulega von á áhlaupum næstu vikur „Morguninn er búinn að vera aðeins rólegri heldur en nóttin og síðustu klukkustundir hafa áfram verið að mælast mikið af smærri skjálftum, mest á svæðinu við Fagradalsfjall en áfram einn og einn sem norðan við Grindavík,“ segir Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. 7.3.2021 12:29
Of mikill þungi hafi lent á Seðlabankanum Of mikill þungi í efnahagsaðgerðum hins opinbera hefur lent á Seðlabankanum og fjármagn sem ríkið hefur dælt út í kerfið hefur ekki ratað á rétta staði. Þetta segir Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingar. Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, gagnrýnir sveitarfélög fyrir að ráðast ekki í meiri fjárfestingar. 7.3.2021 12:21
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Skjálfti að stærðinni 5,0 mældist um þrjá kílómetra vestsuðvestur af Fagradalsfjalli í nótt. Skjálftinn er sá stærsti í nokkra daga. Bæjarstjóri Grindavíkur segir að nokkrir íbúar hafi leigt sér hótelherbergi eða sumarbústað yfir helgina til að fá frí frá skjálftahrinunni sem ekkert lát virðist á. 7.3.2021 11:32
Hundur féll af svölum á fimmtu hæð á Laugavegi Vegfarendum sem áttu leið um Laugaveg síðdegis í gær brá nokkuð í brún þegar þeir sáu hund sem lá illa slasaður í blóði sínu. Hundurinn hafði fallið niður af svölum á fimmtu hæð og niður á götu. Hundurinn mun hafa lifað fallið af en dáið síðar um daginn af sárum sínum. 7.3.2021 10:22
Botnar í Meðallandi urðu eyja í Eldhrauni Jörðin Botnar í Meðallandi hlaut einna sérkennlegust örlög í átta mánaða hamförum Skaftárelda á árunum 1783 til 1784 þegar hraunið frá Lakagígum flæddi ofan af hálendinu, um farvegi Skaftár og Hverfisfljóts, og yfir láglendissveitir. Botnar eru í dag nánast eins og eyja umgirt úfnum hraunum á alla kanta. 7.3.2021 09:53
Leiðin úr kreppunni, staðan á Reykjanesi og skimun fyrir leghálskrabbameini á Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til tólf líkt og aðra sunnudaga. Þá er hægt að hlusta á þáttinn í beinni hér á Vísi. 7.3.2021 09:31
Skilinn eftir í lífshættulegu ástandi Tæplega fimmtugur karlmaður búsettur í Kópavogi hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás fimmtudagskvöldið 23. apríl í fyrra. Árásin átti sér stað utan við og inni í húsnæði í bæjarfélaginu þar sem fórnarlambið bjó. 7.3.2021 09:01
Órói í tuttugu mínútur og stóru skjálftarnir fylgdu í kjölfarið Í gærkvöldi jókst jarðskjálftavirkni í Fagradalsfjalli umtalsvert og stóð sú aukna virkni yfir frá um klukkan 18 til 23. Um klukkan 00:22 hófst svo órói sem stóð yfir í um 20 mínútur. Í framhaldi af því jókst skjálftavirkni á Reykjanesi enn frekar og var mikil virkni í nótt með snörpum jarðskjálftum. 7.3.2021 07:16
Fimm hlaup búin og sjö eftir Bjartur Norðfjörð hefur nú hlaupið rúma sex kílómetra fimm sinnum frá því klukkan fjögur í nótt og á eftir að hlaupa sjö sinnum til viðbótar. Sjálfur segist hann vera nokkuð góður eins og er, en mesta áskorunin sé að koma sér aftur af stað í næsta hlaup. 6.3.2021 22:57
Um tvö þúsund skjálftar frá miðnætti Enn er mikil virkni á skjálftasvæðinu á Reykjanesi og ekki sér fyrir endann á henni. Minna er um stóra skjálfta en þó hafa stærri skjálftar mælst í kvöld en mældust í dag. 6.3.2021 22:02
Loðnuvertíðin á lokametrunum: „Ævintýralegt fiskerí“ „Þetta er eiginlega búið að vera ævintýralegt fiskerí,“ sagði fréttamaðurinn Kristján Már Unnarsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem hann var staddur um borð í Beiti NK-123. Veiðin hefur gengið vel og er Beitir kominn með næstum 1.500 tonn. 6.3.2021 21:00
Sjáðu MAX-inn fljúga í fyrsta sinn eftir tveggja ára kyrrsetningu Boeing 737 Max-flugvél Icelandair var flogið í fyrsta sinn í dag eftir tveggja ára kyrrsetningu. Vélinni var lent í Reykjavík klukkan tíu í morgun. 6.3.2021 21:00
Áfengissalan gekk áfallalaust fyrir sig í Hlíðarfjalli Áfengissala hófst í Hlíðarfjalli um helgina og gátu gestir því fengið sér áfengan drykk í veitingasölunni. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður segir daginn hafa gengið þokkalega heilt yfir þrátt fyrir örlitla byrjunarörðugleika. 6.3.2021 20:08
Búin að prjóna sjötíu lopapeysur á Flúðum í Covid Hanna Lára Bjarnadóttir á Flúðum hefur ekki látið sér leiðast í Covid því hún hefur prjónað sjötíu lopapeysur. Þá vekja púðarnir hennar sérstaka athygli en þá saumaði hún í rútu yfir Kjöl þegar hún var ráðskona. 6.3.2021 19:33
Telur skynsamlegt að fjölga leiðum út úr höfuðborginni Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra veltir upp þeirri spurningu hvort nægilegt tillit sé tekið til öryggissjónarmiða þegar samgöngumál eru rædd. Það sé ekki spurning hvort heldur hvenær eldgos verði og fleiri leiðir út úr höfuðborginni gætu tryggt öryggi borgarbúa betur. 6.3.2021 19:28