Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þessar breytingar á samkomubanni tóku gildi á miðnætti Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins tók gildi á miðnætti en í breytingunum felst meðal annars að krám, skemmtistöðum og spilakassasölum verður heimilt að opna á ný að uppfylltum skilyrðum. 8.2.2021 00:00
Róbert sækist eftir fyrsta sæti á lista Vinstri grænna Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, ætlar að sækjast eftir oddvitasæti í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara í september. 7.2.2021 22:40
„Vonin hefur dvínað“ Umfangsmikil leit að fjallgöngumönnunum John Snorra Sigurjónssyni, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr í dag bar ekki árangur. Um þrír sólarhringar eru nú síðan þeir héldu í ferð sína á toppinn og fer vonin dvínandi að þeir finnist á lífi. 7.2.2021 22:04
Íslenskur prestur hélt minningarathöfn á samskiptavettvangi fyrir tölvuleiki Íslenskur prestur hélt minningarathöfn á samskiptavettvangi fyrir tölvuleiki. Hann hvetur presta til að reyna að ná til ungu kynslóðarinnar með nýjum leiðum þegar kemur að sáluhjálp. 7.2.2021 20:30
Landsréttur neitar að viðurkenna faðerni þrátt fyrir jákvæða erfðafræðirannsókn Áhugaverður dómur féll í Landsrétti á dögunum þar sem niðurstaðan var sú að ekki væri mögulegt að fallast á kröfu systkina um að faðir þeirra hefði verið sonur ákveðins manns, jafnvel þótt mannerfðafræðileg rannsókn hefði leitt í ljós að 99 prósent líkur væru á að hann væri það sannarlega. 7.2.2021 19:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld fjöllum við um leitina að John Snorra Sigurjónssyni og félögum hans. Leitaraðgerðir báru ekki árangur í dag en leitað var á meðan dagsbirtu naut. 7.2.2021 18:00
Sajid Sadpara er vonlítill um að faðir hans og samferðamenn finnist á lífi Sajid Sadpara, sem var með John Snorra á K2 en þurfti að snúa við vegna bilaðs súrefniskútar, segist vonlítill um að Ali faðir hans og samferðamenn finnist á lífi. 7.2.2021 17:55
Vísindasiðanefnd hefur ekki borist umsókn: Um hvernig rannsókn verður að ræða? Vísindasiðanefnd hefur ekki borist umsókn vegna mögulegrar rannsóknar Pfizer á bólusetningu íslensku þjóðarinnar sem nú er í skoðun. Ef erindi berst þarf hins vegar ekki að taka svo langan tíma að afgreiða það, segir formaður nefndarinnar. 7.2.2021 17:05
Leit að mestu lokið í dag Tekið er að rökkva í Pakistan. Klukkan er að ganga níu að kvöldi og því er leit að John Snorra og samferðamönnum hans að mestu lokið í dag. Gert er ráð fyrir að þyrlur muni aftur leita á svæðinu á morgun. 7.2.2021 15:52
Miðflokkurinn hafi lagt fram þingsályktunartillögu án þess að kynna sér aðstæður Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar segir Ólaf Ísleifsson ekki hafa kynnt sér aðstæður hælisleitenda í Grikklandi við gerð þingsályktunartillögu Miðflokksins. 7.2.2021 14:01
Líkaminn byrjaður að hafna handleggjum Guðmundar: „Ekkert til að hafa áhyggjur af“ Líkami Guðmundar Felix Grétarssonar er byrjaður að hafna höndum sem voru ágræddar á hann. Höfnunin er algeng og sætir hann nú lyfjameðverð vegna þessa. 7.2.2021 13:44
Myndir frá leitinni: Víðtæk leit hefur enn engan árangur borið Víðtæk leit að fjallgöngumönnunum John Snorra Sigurjónssyni, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á fjallinu K2 hefur enn engan árangur borið. Stefnt er að því að leita af fullum þunga í dag alveg þar til dimmir. 7.2.2021 12:28
Vilja hjúkrunarheimili í uppsveitir Árnessýslu Mikil þörf er að byggingu hjúkrunarheimilis í uppsveitum Árnessýslu og því hafa sveitarfélögin á svæðinu sett á laggirnar vinnuhóp til að koma málinu í gegn. Horft hefur verið til Laugarvatns hvað varðar staðsetningu heimilisins. 7.2.2021 12:24
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um leitina að John Snorra Sigurjónssyni og félögum hans sem saknað er á fjallinum K2. 7.2.2021 11:44
Katrín Sif vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi formaður kjaranefndar ljósmæðrafélags Íslands vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi. 7.2.2021 11:16
Einn greindist innanlands Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var í sóttkví við greiningu. 7.2.2021 10:22
Skólastjórinn í Áslandsskóla í ótímabundið leyfi Skólastjóri í Áslandsskóla er kominn í ótímabundið veikindaleyfi eftir að frá því var greint að honum hefði verið vikið frá störfum við dómgæslu í körfubolta eftir óviðeigandi skilaboðasendingar til leikmanns í kvennaflokki. Fræðslustjóri Hafnarfjarðarbæjar segir að verið sé að skoða heildarmynd málsins en bærinn hafi fengið viðbrögð frá starfsfólki og foreldrum í skólanum undanfarna daga. 7.2.2021 10:00
Borgarlína, útlendingalög og efnahagsaðgerðir í Sprengisandi Það verður mikið um að vera í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag. Fyrstur á mælendaskrá er Jón Ólafsson sem mun ræða stöðuna í Rússlandi, fangelsisdóm stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní og hvort atburðarásin sé farin að valda Pútín áhyggjum. 7.2.2021 09:30
Neitaði að borga reikninginn á veitingastað og var vistuð í fangageymslu Lögregla var kölluð til á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna konu á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Konan hafði neitað að greiða reikninginn á veitingastaðnum og gaf ekki upp nafn eða kennitölu þegar lögregla kom á vettvang. Var hún vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu. 7.2.2021 07:44
„Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“ Þessi orð eru höfð eftir spænska rithöfundinum Miguel de Cervantes sem var uppi á 16. og 17. öld. Þessi orð valdi John Snorri Sigurjónsson fjallagarpur og birtir á veglegri heimasíðu sinni, johnsnorri.com. 7.2.2021 07:13
Rússar á Íslandi mótmæltu við sendiráðið Rússar sem búsettir eru á Íslandi komu saman við rússneska sendiráðið í Reykjavík í dag til að mótmæla brotum gegn mannréttindum og tjáningarfrelsi í Rússlandi. 6.2.2021 23:59
Leit heldur áfram í birtingu Enn hefur ekkert spurst til Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans sem leitað hefur verið að á K2 í dag. Leit pakistanska hersins verður haldið áfram í dögun en um ríflega tveir sólarhringar eru liðnir síðan síðast heyrðist frá þeim. Aðstæður í fjallinu eru gríðarlega erfiðar og hefur frost farið vel yfir fjörutíu gráður í dag. 6.2.2021 23:18
Freista þess að leysa bílastæðavanda með því að bólusetja í Laugardalshöll Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir undirbúning að opnun fjöldabólusetningarmiðstöðvar í Laugardalshöll ekki tengjast mögulegum samningi við Pfizer um bólusetningu allrar þjóðarinnar. Hann býst við að bólusetningarmiðstöð í Laugardalshöll verði tekin í notkun á miðvikudaginn. 6.2.2021 20:58
Utanríkisráðherra Pakistan segir að allt verði gert til að bjarga John Snorra og samferðamönnum hans Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi við Makhdoom Shah Mahmood Qureshi, utanríkisráðherra Pakistans, síðdegis í dag vegna leitarinnar að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans. 6.2.2021 20:19
„Everest er eiginlega bara túristafjall miðað við þetta fjall“ „Þetta er bara agalegt í rauninni. Maður gerir sér enga grein fyrir hvernig staðan er hjá þeim og hvar þeir eru og hvort þeir séu þarna einhvers staðar í vari. Það er eiginlega það sem maður er að vonast eftir,“ segir Kári G. Schram, kvikmyndagerðarmaður í samtali við Vísi. 6.2.2021 20:02
Flúðir – „Nafli alheimsins,“ segir oddvitinn Framkvæmdir við nýtt íbúðahverfi á Flúðum eru nú að hefjast en mikill skortur er á leiguhúsnæði og minni íbúðum í þorpinu. Auk íbúða verða í nýja hverfinu söfn og ferðatengd þjónusta. 6.2.2021 19:33
Vöðvabólgan reyndist vera heilablæðing eftir að hún vaknaði blóðug á gólfinu Hin 39 ára Kidda Svarfdal vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hún fann allt í einu fyrir yfirþyrmandi verk í höfðinu. Eftir að hafa verið greind með slæma vöðvabólgu í kjölfarið vaknaði hún nokkrum dögum síðar blóðug á gólfinu heima hjá sér. Kom þá í ljós að heilablæðing skýrði þá miklu verki sem hún hafi þurft að þola og henni komið skjótlega í skurðaðgerð. 6.2.2021 19:16
Fyrsta sendingin frá AstraZeneca komin til landsins Fyrsta sending af bóluefni AstraZeneca kom til landsins fyrr í dag. 1.200 skammtar bárust af efninu í þetta skiptið sem ætti að duga fyrir 600 manns. 6.2.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld fjöllum við um leitina að fjallgöngumanninum John Snorra Sigurjónssyni sem er saknað á fjallinu K2. Ekkert hefur spurst til John Snorra og félaga hans í einn og hálfan sólarhring. 6.2.2021 18:02
Fjórir fluttir á slysadeild vegna tveggja umferðarslysa Nokkrar umferðartafir hafa myndast í Ártúnsbrekku vegna tveggja umferðarslysa sem áttu sér stað um þrjú leytið. Fjórir voru fluttir á slysadeild með minniháttaráverka. 6.2.2021 15:35
Borgarlína og Sundabraut lifi góðu lífi saman Borgarlínan og Sundabraut geta vel þrifist saman að mati forstjóra Vegagerðarinnar. Tillögur að Borgarlínu og Sundabrautinni gera báðar ráð fyrir nýjum brúm, sem myndu þvera Kleppsvík og Elliðaárvog. 6.2.2021 15:31
Blaðamyndir ársins 2020 Verðlaun voru afhent fyrir bestu myndir ársins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur klukkan tvö í dag. Verðlaun voru veitt í sjö flokkum, auk myndar ársins. 6.2.2021 15:00
Björgunarsveitir kallaðar út vegna konu sem datt á Grímansfelli Björgunarsveitir voru kallaðar út á öðrum tímanum í dag eftir að tilkynning barst frá göngufólki á Grímansfelli í Mosfellsdal vegna konu sem hafði dottið og slasast á fæti ofarlega í hlíðum fjallsins. Björgunarsveitarfólk úr sveitum í Mosfellsbæ og Reykjavík hefur verið sent á staðinn auk sjúkraflutningamanna frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 6.2.2021 14:36
Samferðamaður Johns og Ali kominn í grunnbúðirnar Sajid Sadpara, göngufélagi Johns Snorra sem sneri við á lokasprettinum, kom í grunnbúðir K2 nú eftir hádegi. Sajid sneri við úr fjórðu búðum fjallsins eftir að súrefniskútur hans hætti að virka og fékk hann aðstoð við að komast niður í grunnbúðirnar nú í morgun. 6.2.2021 13:53
Allar tiltækar bjargir notaðar við leitina Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur nú til meðferðar mál fjallgöngumannsins Johns Snorra Sigurjónssonar sem saknað er í Pakistan og er starfsfólk borgaraþjónustunnar í sambandi við fjölskyldu hans. 6.2.2021 13:45
„Byrjað að sjást í ána þar sem sást ekki í hana áður“ Vatnshæðin við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur lækkað síðan í gær. Hætta er þó enn talin á krapahlaupum í ánni og er eftirlit við brúna. 6.2.2021 13:42
Sunnlendingar með þorrablót í beinu streymi í kvöld Hákarl og brennivín, súrir hrútspungar, sviðasulta og harðfiskur verður eflaust á borðum margra Sunnlendinga í kvöld því þá fer Þorrablót Sunnlendinga fram í fyrsta sinn í beinu streymi. 6.2.2021 12:25
Trúa því að þeir séu það sterkt teymi að það sé ástæða til að vera bjartsýn enn þá Umfangsmikil leit stendur nú yfir að fjallgöngumanninum John Snorra og tveimur félögum hans á fjallinu K2 í Pakistan en ekkert hefur heyrst til þeirra í á annan sólarhring. Þyrlur hersins hafa verið notaðar við leitina og reyna á að nýta gervihnetti. Fjölskylduvinur segir fjölskyldu og vini trúa því John Snorri og Ali, sem er með honum á fjallinu, séu það sterkt teymi að það sé ástæða til að vera bjartsýn enn þá. 6.2.2021 11:35
Eini sem greindist var utan sóttkvíar Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var ekki í sóttkví við greiningu og er smitrakning hafin. 6.2.2021 10:13
Leit hersins á K2 bar ekki árangur Þyrlur pakistanska hersins fundu ekkert í leitarferð sinni nú í morgun. Þyrlurnar voru kallaðar út eftir að ekkert hafði spurst til Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans, en þær flugu hæst í um það bil sjö þúsund metra hæð áður en þær sneru aftur til borgarinnar Skardu í Pakistan. 6.2.2021 09:47
Grunaður um að hafa stolið tveimur pokum af humri Lögregla sinnti nokkrum útköllum vegna þjófnaðar í gærkvöldi og í nótt, en á níunda tímanum í gærkvöld var tilkynnt um hnupl úr verslun í miðbæ Reykjavíkur. Þar var maður sagður hafa stolið matvöru og var hann tekinn í skýrslutöku hjá lögreglu en látinn laus að henni lokinni. 6.2.2021 08:28
Óboðnir gestir ruddust í samkvæmi ungmenna Lögregla var kölluð til í samkvæmi í Grafarvogi á öðrum tímanum í nótt eftir ítrekaðar tilkynningar. Þar voru flestir gestir á aldrinum sextán til átján ára og höfðu óboðnir gestir ruðst inn í samkvæmið samkvæmt upplýsingum lögreglu. Grunur er um líkamsárás, húsbrot og brot á vopnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. 6.2.2021 08:18
Prestar og kráareigendur taka gleði sína á ný Heilbrigðisráðherra kynnti nýjar tilslakanir á sóttvarnareglum í gær en meðal stærstu breytinga sem taka gildi á mánudag er að krám og skemmtistöðum verður aftur leyft að opna til klukkan 22 á kvöldin. Þar að auki verður 150 fullorðnum einstaklingum leyft að vera viðstaddir athafnir í kirkjum og hjá öðrum trúfélögum. 6.2.2021 08:00
Engar fregnir eftir nóttina og herinn sendir þyrlur til leitar Enn hefur ekkert spurst til Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans í rúman sólarhring. Síðast sást til þeirra klukkan fimm að föstudagsmorgni á íslenskum tíma, en hópurinn lagði af stað á fimmtudag áleiðis á topp K2. Pakistanski herinn mun senda þyrlur til að leita að hópnum. 6.2.2021 07:29
Enn ekkert heyrst frá John Snorra Tæplega þrjátíu klukkustundir eru liðnar síðan John Snorri Sigurjónsson og ferðafélagar hans lögðu af stað úr þriðju búðum lokaáfangann áleiðis á topp K2 í Pakistan. Þeir lögðu fjórir af stað en einn í hópnum sneri við á leiðinni vegna vandamála með súrefniskútinn hans. 5.2.2021 23:41