Fleiri fréttir

Landsnet kærir úrskurð

Landsnet hefur kært til Hæstaréttar úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði aðfararbeiðnum fyrirtækisins um eignarnám á landhluta úr fjórum jörðum á Reykjanesi vegna lagningar Suðurnesjalínu 2.

Átta tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir

Árið 2015 bárust Lyfjastofnun 105 aukaverkanatilkynningar, átta þeirra töldust alvarlegar. Tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir eru færri á Íslandi en í Danmörku og Svíþjóð. Lyfjastofnun vill vakningu um mikilvægi slíkra tilkynninga.

Jómfrúin og Snaps vilja vera undir einum hatti

Snaps og Jómfrúin bíða samþykkis Samkeppniseftirlitsins og hyggja á samstarf. Félögin sameinast en veitingastaðirnir verða reknir hvor í sínu lagi. Stofnendur Snaps halda áfram um tauma þar og sömuleiðis annar eigandi Jómfrúarinnar.

Vill endurnýja forystu Samfylkingarinnar

Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður, býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar í komandi formannskjöri. Hann vill fara aftur á þing og hefur fulla trú á því að hægt verði að rétta fylgi Samfylkingarinnar við.

„Líka mýkt í BDSM“

Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur segir vanta meiri umræðu um BDSM ef skera eigi út um það hvort það sé kynhneigð eða kynhegðun.

Vaxandi jafnréttisvitund í Versló

Sylvía Hall hefur á stuttum tíma endurvakið feminstafélag Verslunarskóla Íslands. Berst á móti "sjomla“-menningunni sem hún segir hafa verið mikil í skólanum út á við.

Ítarleg leit að nýjum skólastjóra Melaskóla

Aðstoðarskólastjóri sem ekki fékk starfið þegar fráfarandi skólastjóri var ráðinn var meðal umsækjenda þegar borgin ákvað að framlengja umsóknarfrest um stöðuna.

Kröfu um nálgunarbann hafnað

Maður, sem hefur hótað að dreifa kynlífsmyndbandi af barnsmóður sinni og bíður dóms fyrir líkamsárás gegn henni, þarf ekki að sæta nálgunarbanni.

Gummi Ben lýsir leikjum Íslands á EM

Yfirmaður íþróttasviðs 365 segir fyrirtækið ekki geta hafa staðið í vegi fyrir að Gummi Ben lýsti leikjunum fyrir íslensku þjóðina.

Popúlismi aðalvandi stjórnmálanna

Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, ræðir ferilinn í pólitíkinni, stöðu Sjálfstæðisflokksins og flóttamannamálin sem eru henni sérstaklega hugleikin.

Sjálfstæðisflokkurinn rétt yfir kjörfylgi

Stjórnarflokkarnir bæta nokkuð við sig frá könnun sem gerð var í lok janúar. Píratar gefa hins vegar lítillega eftir. Björt framtíð nær ekki að rétta úr kútnum og mælist enn án þingmanns. Ekki er hægt að mynda tveggja flokka stjórn án Pírata.

Ferðafólki att á kaldan klaka við Gullfoss

Gríðarlegt svell er yfir öllu við Gullfoss þar sem ferðamenn á öllum aldri fikra sig varfærnislega í átt að náttúruperlunni. Lítið er gert til að draga úr hálkunni og gera leiðina greiðfærari.

Tveir þriðju reyna endurlífgun

Framfarir í meðferð, forvarnir og lífsstílsbreyting er talin orsök þess að æ færri fara í hjartastopp. Árangur í endurlífgun hérlendis er góður á heimsvísu. Almenningur bjargar fjölmörgum mannslífum á ári hverju.

Telur Fjólu sniðgengna af fáfróðum í ráðuneyti

Snædís Rán Hjartardóttir er ósátt við vinnubrögð mennta- og menningarmálaráðuneytis. Snædís segir ráðuneytið hafa sniðgengið Félag fólks með samþætta sjón - og heyrnarskerðingu. Hún bíði breytinga eftir dóm um túlkaþjónustu.

Skoða beri aðra flugvallarvalkosti

Áætlað er að nýta tugi milljarða króna til að stækka og bæta Keflavíkurflugvöll á árinu. Forstjóri Icelandair Group segir ekki úr vegi að kanna hvort fyrir hendi séu betri kostir, því horfa eigi áratugi fram í tímann.

Sjá næstu 50 fréttir