Innlent

Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum

Atli Ísleifsson skrifar
Snjóþekja og hálkublettir eru víða á Suðurlandi.
Snjóþekja og hálkublettir eru víða á Suðurlandi. Vísir/Stefán
Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði, Sandskeiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að þæfingur sé á Lyngdalsheiði.

„Hálkublettir eru á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. Snjóþekja og hálkublettir eru víða á Suðurlandi.

Hálka eða hálkublettir eru á Vesturlandi. Þæfingur og skafrenningur er á  Bröttubrekku en snjóþekja og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er hálka og skafrenningur er á Hálfdán, Mikladal og á Kleifarheiði. Þæfingur er á Hjallahálsi, Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum annars eru hálkublettir og éljagangur er mjög víða.

Það eru hálkublettir mjög víða á Norðurlandi vestra. Óveður er á Siglufjarðarvegi.

Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði en hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Á Austurlandi eru hálkublettir á flestum fjallvegum.

Greiðfært er með suðausturströndinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×