Fleiri fréttir

Ráðherrar sverja af sér vélbyssur

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist ekki haft nein afskipti af komu 250 MP5-hríðskotabyssa hingað til lands. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að lögreglan hafi heimild til að endurnýja búnað sinn án þess að ráðherra skipti

Þriðjungur segist styðja ríkisstjórnina

Næstum sjö af hverjum tíu segjast ekki styðja ríkisstjórnina. Formenn ungliðahreyfinga stjórnarflokkanna segja að þetta skýrist af umræðu um virðisaukaskatt.

Starfsemin riðlast öll í verkfalli

Þróun kjaradeilu ríkisins og Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands hefur orðið þess valdandi að læknar hyggjast ganga ákveðið fram í verkfallsaðgerðum sínum. Þeir sinna þó alvarlegustu tilfellum sem upp koma.

Konungleg uppgötvun á Þingvöllum

Hleðslur úr hinum forna Konungsvegi komu í ljós við lagfæringar við Nikulásargjá og Flosagjá á Þingvöllum. Fornleifafræðingar rannsaka nú fundinn. Hanna þarf svæðið að nýju með hliðsjón af minjavernd, segir fræðslufulltrúi þjóðgarðsins.

„Ætla að taka Breivik á þetta“

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á sextugsaldri fyrir að hafa haft í frammi ógnandi framkomu og hótað sýslumanninum í Keflavík og öðrum starfsmönnum líkamsmeiðingum og lífláti á skrifstofu embættisins í Keflavík árið 2012.

Réttlætismál að leiðrétta kjör ASÍ-félaga

Gylfi Arnbjörnsson, nýendurkjörinn forseti ASÍ, segir ríkisstjórnina á leið til aukinnar misskiptingar og ASÍ muni sækja leiðréttingu á kjörum sinna félaga í samræmi við aðra hópa.

Nýja gistiskýlið skoðað

Nýtt gistiskýli fyrir útigangsmenn er nú tilbúið og verður opnað á mánudaginn. Húsið er staðsett á Lindargötu og er mun stærra og nútímalegra en forveri þess, en umsjónarmenn nýja gistiskýlisins fullyrða að nú verði engum vísað frá.

Framsókn fer ekki á taugum yfir skoðanakönnunum

Fylgi Framsóknarflokksins hefur hrapað frá síðustu kosningum samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birt var í dag. Aðrir flokkar bæta allir við sig fylgi, Samfylkingin sínu mest.

Mótmæla vopnaburði lögreglu

Um tvö hundruð manns eru nú saman komnir fyrir framan Lögreglustöðina á Hverfisgötu til að mótmæla að lögregla beri vopn.

Myndir vikunnar

Fyrsti snjór vetrarins á höfuðborgarsvæðinu var áberandi í fréttavikunni.

Heldur sveltinu áfram

38 ára karlmaður frá Írak, Adam Ibrahim Pasha sem dvelur á Fit Hostel í Reykjanesbæ heldur til streitu hungurverkfalli sem hann hóf á þriðjudagskvöldið síðastliðinn.

Harma aðgerðaleysi BYKO

Hreyfingin BDS – Ísland – Sniðganga fyrir Palestínu harmar aðgerðarleysi stjórnar BYKO vegna hvatningar sem hreyfingin sendi BYKO og ELKO í byrjun september um að hætta að selja SodaStream vörur.

Rúmföt Íslendinga þvegin sjaldnar en Breta

Rúmlega 65% Íslendinga þvo rúmföt sín á tveggja vikna fresti eða oftar. 19,3% þvo rúmföt sín vikulega eða oftar og 34,6% þvo þau á þriggja vikna fresti eða sjaldnar.

Kirkjuþing sett á morgun

Á meðal þeirra mála sem liggja fyrir þinginu eru fjármál þjóðkirkjunnar og endurskoðuð jafnréttisáætlun.

Ákærður fyrir kynferðisbrot: Áfram í gæsluvarðhaldi

Aðalmeðferð í máli karlmanns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum lauk í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 14. nóvember, eða þar til dómur fellur.

Fær bætur vegna gæsluvarðhalds

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða karlmanni skaðabætur upp á 1,5 milljón króna vegna gæsluvarðhalds sem hann sat í, grunaður um aðild að skotárás.

Fundu fíkniefni í þremur bílum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni í þremur bílum, sem afskipti voru höfð af í gærkvöldi og í nótt. Fyrst fannst smáræði af efnum í kyrrstæðum bíl og gekkst ökumaðurinn við að eiga það.

Tveir bjóða sig fram til forseta

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur fengið mótframboð í embætti forseta, á þingi ASÍ. Það er Ragnar Þór Ingólfsson, VR, sem bíður sig fram gegn Gylfa.

Vöktun á síldinni undirbúin

Hafrannsóknastofnun setti niður súrefnismæli í Kolgrafafirði í gær vegna vöktunarverkefnis þar sem fylgst er með ástandinu í firðinum. Eiginlegar mælingar hefjast þó ekki fyrr en um 10. nóvember næstkomandi.

Telja gagnrýni ekki réttmæta

"Íslandsstofa á sérstaklega gott samstarf við íslenska kvikmyndagerðarmenn í gegnum verkefnið Film in Iceland, sem er ætlað að laða til landsins erlenda kvikmyndagerðamenn,“ segir Jón Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Noregur féllst ekki á hlut Íslands

Norðmenn vildu ekki samþykkja hlut Íslands af heildarafla makríls á árlegum fundi strandríkja um stjórnun makrílveiða í norðaustanverðu Atlantshafi. Samkomulag um skiptingu aflahlutdeildar fyrir næsta ár náðist því ekki en önnur strandríki vildu samþykkja hlut Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir