Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hefði skammast sín fyrir að þora ekki í ráðherraembætti Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi atvinnuvegaráðherra, segir að aldrei hafi annað komið til greina en að takast á við þau verkefni sem honum væri falið sem formanni annars stjórnarflokksins eftir hrun. Þetta sagði hann í samtali við útvarpsþáttinn Harmageddon á X-inu. "Ég sá aldrei eftir því og ég hefði sagt það áður að þá fyrst hefði ég skammast mín ef við hefðum runnið undan og ekki helt okkur í þetta,“ segir Steingrímur. "Þetta var erfitt og við vissum að þetta yrði erfitt,“ segir Steingrímur. 24.5.2013 16:23
Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar afstaðinn Eitt af fyrstu verkum nýrrar ríkisstjórnar var að samþykkja tillögu forsætisráðherra um að skipuð yrði ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna. 24.5.2013 16:07
Baráttan fyrir Nasa heldur áfram Agent Fresco, Eyþór Ingi, Friðrik Dór, GusGus, Helgi Björns og Todmobile eru meðal þeirra 200 tónlistarmanna og hljómsveita sem skora á borgarfulltrúa að hætta við fyrirhugaðar framkvæmdir við Ingólfstorg og Austurvöll sem heimila að hinn sögufrægi Nasasalur verði rifinn. 24.5.2013 16:01
Félag áhugakvenna um breytingaskeiðið stofnað í gær Félag áhugakvenna um breytingaskeiðið var formlega stofnað í dag. "Löngu tímabært“, segir Edda Arinbjarnar, félagsfræðingur og formaður nýstofnaðs félags. 24.5.2013 15:04
Öllum úr stórum hópi Króata synjað um hæli Innanríkisráðuneytið, í umboði Ögmundar Jónassonar, ákvað að fresta ekki brottflutningi fólksins þrátt fyrir að niðurstaða Útlendingastofnunar um synjun hælis hefði verið kærð. Króatía verður aðili að Schengen þann 1. júlí næstkomandi. 24.5.2013 14:57
Lögreglan á Suðurnesjum leitar að brennuvargi Ummerki á vettvangi benda til þess að um innbrot og íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kom upp í vinnusal Bláfells ehf. á Suðurnesjum í vikunni. Við íkveikjuna var notaður eldfimur vökvi, sem var fyrir í húsnæðinu og var notaður við smíðar plastbáta, sem fyrirtækið annast. 24.5.2013 14:34
36 fjármálaráðgjafar útskrifaðir 36 starfsmenn fjármálafyrirtækja útskrifuðust í gær úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa við hátíðlega athöfn sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík. 24.5.2013 14:25
Karlmaður örmagnaðist á göngu um Fimmvörðuháls Franskur karlmaður örmagnaðist á göngu yfir Fimmvörðuhálsinn rétt fyrir hádegi í morgun. Maðurinn hringdi í Neyðarlínuna eftir hjálp. Samtalið slitnaði áður en ljóst varð hvar maðurinn er staðsettur. Tilraunir til þess að reyna að ná í manninn aftur báru ekki árangur. Því var hafin leit. 24.5.2013 14:00
Ný ríkisstjórn hóf fund klukkan 13 Ríkisstjórnarfundur hófst klukkan eitt í dag. Þetta er fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar, undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, en venju samkvæmt er dagskrá fundarins ekki gefin upp fyrr en að loknum fundi. 24.5.2013 13:49
„Ég hef aldrei séð það svona svart í undirheimunum“ Sættir hafa náðst í undirheimum vegna líkamsárásarmálsins í Ystaseli á föstudaginn í seinustu viku, en ástandið er enn mjög viðkvæmt. 24.5.2013 13:41
„Háskólinn tekur ekki tillit til fatlaðra“ "Ég er bara alveg rosalega sorgmædd yfir þessu. Það er alltaf sagt að það eigi ekki að mismuna fötluðu fólki en ég finn mikið fyrir því í þessu tilfelli. Þetta er bara algjör skandall“, segir Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Steinunn hefur nú lokið hefur tveggja ára diplómanámi frá Háskóla Íslands ásamt 16 öðrum fötluðum einstaklingum. Þau fá ekki að útskrifast við hefðbunda athöfn í Laugardalshöll þann 22 júní. 24.5.2013 13:17
Píratar kæra framkvæmd kosninga Píratar hafa kært framkvæmd alþingiskosninga í apríl síðastliðnum. Í samantekt sem birt er á vefnum Svipan.is segir að umboðsmenn Pírata á kjörstað og í talningu hafi séð ýmislegt ábótavant við framkvæmd kosninganna. 24.5.2013 12:54
Sökudólgurinn fundinn: Varist innflutt frosin jarðarber Matvælastofnun hvetur fólk til þess að neyta ekki innfluttra frosinna jarðarberja án þess að sjóða þau fyrst í lágmark eina mínútu. 24.5.2013 12:48
Kennarar þurfa að sýna árangur í starfi Mark C. Taylor vekur viðbrögð innan háskólasamfélagsins með hugmyndum sínum um að taka fyrir fastráðningar prófessora og taka upp starfssamninga til sjö ára í staðinn. Háskólastarfið er langtímastarf, segir fyrrverandi háskólarektor. 24.5.2013 12:00
Óskýr mörk tísku og listar Listamennirnir Andrea Maack og Huginn Þór Arason opna sýninguna Kaflaskipti á Kjarvalsstöðum á morgun. Undirbúningur verkefnisins hefur tekið rúmlega tvö ár, en verkið byggir á reynslu Andreu sem ilmvatnsframleiðanda en einnig á áhuga Hugins Þórs á að umbylta hlutverki sýningarsalsins. 24.5.2013 10:59
Nýir ráðherrar tóku við lyklum Nýir ráðherrar tóku við lyklum í atvinnuvegaráðuneytinu og umhverfisráðuneytinu í morgun. 24.5.2013 10:11
Vilja breyta nýja vegstæðinu um Kjálkafjörð Talið er að um 150 þúsund rúmmetrar af mold og grjóti hafi fallið í skriðunni sem féll þann 23 apríl, en það jafngildir fullfermi á vel á annað þúsund malarflutningabíla. 24.5.2013 06:53
Menn moka upp karfanum Mokveiði hefur verið hjá íslensku togurunum á karfamiðunum djúpt úti á Reykjaneshrygg og eru sumir þegar búnir með kvóta sína. 24.5.2013 06:51
Kornrækt í tómu tjóni Útlit er fyrir að kornrækt á Norðurlandi verði ekki svipur hjá sjón í sumar. 24.5.2013 06:48
Bílaleigubílar undir smásjá Allir bílar, sem fara frá Leifsstöð, verða stöðvaðir eftir hádegi og bílaleigubílar skoðaðir sérstaklega. 24.5.2013 06:45
Fréttablaðs-app komið í snjalltæki Frá og með deginum í dag mun lesendum Fréttablaðsins standa til boða að fá blaðið sent í spjaldtölvu eða snjallsíma með nýju smáforriti, svokölluðu appi. Áfram verður hægt að nálgast vefútgáfu blaðsins á visir.is eins og verið hefur frá ársbyrjun 2005. 24.5.2013 06:00
Stöðva alla bílaleigubíla í dag "Við ætlum að stöðva öll ökutæki sem koma frá flugstöðinni,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, um átak í dag þar sem kanna á ástand bílaleigubíla. 24.5.2013 06:00
Hafna ásökunum um óheilindi í meirihluta "Við vísum alfarið á bug þeim ásökunum Ómars Stefánssonar og Rannveigar Ásgeirsdóttur að við höfum ekki unnið af heilindum í meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs,“ segir í yfirlýsingu Gunnars I. Birgissonar og Aðalsteins Jónssonar, tveggja af fjórum bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. 24.5.2013 06:00
Tónlistin fái sömu endurgreiðslu og bíó Kveðið er á um það í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að tónlist njóti sömu hvetjandi ívilnana og kvikmyndagerð hefur gert hér á landi, það er, að hluti kostnaðar við tónlistarupptökur verði endurgreiddur. Þórir Jóhannsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Stúdíós Sýrlands, segir mjög jákvætt ef af því verður. 24.5.2013 06:00
Aldrei stóð til að slá striki yfir gjaldið Aldrei stóð til að afnema sérstakt veiðigjald með einu pennastriki í sumar, segir Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr sjávarútvegsráðherra, spurður um fréttaflutning þess efnis, en alltaf var ljóst að því yrði breytt í grundvallaratriðum. Staðinn verður vörður um strandveiðar og fleiri byggðaleg úrræði. 24.5.2013 06:00
Hér er örugglega skilið vel við, segir Bjarni Valdaskipti urðu í gær þegar ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við völdum. Sigmundur Davíð varð í gær yngsti forsætisráðherra í lýðveldissögunni, rétt rúmlega 38 ára gamall. 24.5.2013 06:00
Ekki sérstakur viðbúnaður hjá lögreglu „Við vitum af þessum orðrómi og öðru slíku en það er enginn sérstakur viðbúnaður,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort lögreglan væri með sérstakan viðbúnað vegna meintra hótana og vopnasöfnunar aðila sem tengjast líkamsárásinni í Ystaseli. 24.5.2013 06:00
Telja ekki gengið nógu langt Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar, fráfarandi atvinnu- og nýsköpunarráðherra, um að stækka verndað svæði á Faxaflóa til hvalaskoðunar. 24.5.2013 06:00
Kláruðu kvótann á tólf dögum Þerney RE 101, skip HB Granda, er á landleið eftir að hafa klárað úthafskarfakvóta sinn á tólf dögum. Hið sama á við um Örfirisey RE en hin tvö skip HB Granda sem stundað hafa úthafskarfaveiðarnar, Helga María AK og Venus HF, eru enn á miðunum. 24.5.2013 06:00
Fagnar endurskoðun veiðigjalds „Það liggur fyrir að ný ríkisstjórn ætlar sér að skoða álagningu veiðigjaldanna á sjávarútveginn. Það virðast uppi hugmyndir um fast gjald sem allir borga og því til viðbótar að reikna gjald til viðbótar niður á hvert fyrirtæki. 24.5.2013 06:00
Gekk fram á lík í dauðabeltinu á Everest „Hann gat ekki hringt í okkur af tindinum vegna veðurs, en hann hringdi í gærmorgun, og var þá í 8.300 metrum og á leiðinni niður. 24.5.2013 06:00
Velta vanda mögulega áfram Ákvæði í stjórnarsáttmála Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks um að til greina komi stofnun „sérstaks leiðréttingarsjóðs“ til að ríkisstjórnin nái markmiðum sínum í tengslum við skuldaleiðréttingar eru í nýjasta tölublaði efnahagsritsins Vísbendingar ekki sögð hljóma vel. 24.5.2013 06:00
Ætla að nýta tækifærin fyrir norðan Dysnes Þróunarfélag ehf. var stofnað í gær. Félagið á að standa að uppbyggingu, markaðsstarfi og kynningu á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðarhafnarsvæði vegna þjónustu við námu- og olíuvinnslu fyrir norðan Ísland. 24.5.2013 06:00
Framleiðendur bera ábyrgðina Íslenskir dreifingaraðilar á vörum bera á þeim ábyrgð umfram það sem heimilt er samkvæmt Evrópulöggjöf. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent íslenska ríkinu lokaviðvörun vegna þessa. 24.5.2013 06:00
4,2 milljónir söfnuðust Góðgerðakvöldverður fyrir Barnaspítala Hringsins var haldinn í Laugardalshöll föstudaginn 17. maí. 24.5.2013 06:00
Nýr stjórnarsáttmáli mjög framsóknarlegur Nýr stjórnarsáttmáli er þjóðlegri og ber meiri keim af eldri hugmyndafræði Framsóknarflokksins en Sjálfstæðisflokksins að mati sagnfræðings. Stjórnarsáttmáli síðustu ríkisstjórnar hafi verið með ítarlegri og útfærðari verkefnalista en sáttmáli nýrrar ríkisstjórnar. 23.5.2013 19:51
Sigmundur Davíð: Skemmtilegast að hafa hlut kynjanna jafnan "Auðvitað er alltaf skemmtilegast að hafa sem jafnast hlut kynjanna,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýr forsætisráðherra, þegar hann var spurður út í ójafnt kynjahlutfall í nýrri ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, en 6 karlmenn eru ráðherrar, á móti þremur konum. Þannig fækkar um eina konu með nýrri ríkisstjórn. 23.5.2013 19:22
Gagnrýndu nýja ríkisstjórn harðlega á Bessastöðum Það var annasamur dagur á Bessastöðum í dag þegar stjórnarskiptin gengu í gegn. Dagurinn hófst á því að ráðherrar úr ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir mættu á ríkisráðsfund. 23.5.2013 18:45
Dysnes við Eyjafjörð verði þjónustuhöfn Norðurslóða Félag var stofnað í dag um átján milljarða króna uppbyggingu hafnar á Dysnesi við Eyjafjörð til að þjóna verkefnum á Norðurslóðum. Aðstandendur vonast til að framkvæmdir hefjist á næsta ári. 23.5.2013 18:45
Sakfelldur fyrir ofbeldisfull kynferðisbrot gegn manni - hótaði að smita hann af AIDS Hæstiréttur segir árásina hafa verið hrottalega og þyngdi héraðsdóminn yfir árásarmanninum um meira en helming. 23.5.2013 17:02
Grét yfir tíufréttunum Guðrún Tryggvadóttir, umhverfissinni og ritstjóri náttúra.is greindi frá því á facebook í gærkvöldi að hún hefði hágrátið yfir tíufréttunum. Umhverfismál á Íslandi næstu fjögur árin eru henni mikið áhyggjuefni. 23.5.2013 17:00
Hæstiréttur staðfesti í dag að íslenska ríkið skyldi greiða manni bætur sem sætti gæsluvarðhaldi vegna skotárásar sem varð í Smáíbúðahverfinu á aðfangadag jóla árið 2010. 23.5.2013 16:54
Þykir vænt um kaggann "Þetta er fínasti bíll, vinnur vel og gangurinn er góður í honum - eðalvagn satt best að segja,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi formaður Vinstri Grænna sem mætti á ljósbláum Volvo 142 á Bessastaði í dag. 23.5.2013 16:40
Nýtt ráðuneyti tekur við á ríkisráðsfundi Nýtt ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar kom til fundar með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum klukkan þrjú í dag. Það er skipað, eins og kunnugt er, þingmönnum úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Níu ráðherra skipa nýju ríkisstjórnina, fimm úr Sjálfstæðisflokki og fjórir úr Framsóknarflokki. 23.5.2013 16:27
Ingólfur Geir kominn í grunnbúðir Ingólfur Geir Gissurarson, sem komst í gær á topp Everest, kom í dag niður í grunnbúðir. Hann er við fína heilsu. Á morgun verður haldið af stað niður úr grunnbúðum áleiðis til Lukla þaðan sem flogið verður til Katmandu á mánudaginn. Áætluð heimkoma er miðvikudaginn 29. maí, en þann dag fyrir sextíu árum gekk fyrsti maðurinn á Everest. 23.5.2013 15:43