Kettir hverfa sporlaust á Eyrarbakka BBI skrifar 9. október 2012 22:39 Mynd úr safni. Mynd/Kristinn
Fjölmargir kettir hafa horfið sporlaust á Eyrarbakka það sem af er ári. Það eru alla jafna skógarkettir eða aðrir dýrir kettir sem hverfa og eftir það sést hvorki tangur né tetur af þeim. Það var tónlistarmaðurinn Johnny King sem sagði frá þessu í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann er sjálfur dýravinur og hefur misst nokkra ketti á þennan dularfulla hátt. Frá því hann flutti til Eyrarbakka í byrjun árs hafa 16-18 kettir horfið úr bænum. „Og mér skilst að einhverjir hafi líka horfið af Selfossi," segir Johnny. „Og þá eru þeir bara horfnir. Við finnum hvorki hræin né nokkuð annað." Johnny kann enga skýringu á þessu en menn grunar jafnvel að óprúttnir aðilar standi á bak við hvörfin. „Við vitum ekki hvort einhver er að gera sér leik að þessu en við erum nokkuð sammála um að ef við finnum þann sem er valdur að þessum hvörfum má hann biðja bænirnar sínar og biblíuna aftur á bak og áfram ef hann kann það," segir Johnny, enda segir hann kettina dýrmæta fjölskylduvini. Johnny hefur sjálfur gengið um allan bæ í leit að köttunum en finnur ekki neitt. „Það hefði verið gaman að finna hræin svo það væri þá hægt að grafa þá," segir hann. Johnny er nú búinn að fá sér lítinn chihuahua hund í staðinn fyrir kettina. „Ég vona að ég fái að vera í friði með hann," segir hann. Viðtalið í heild sinni má nálgast á hlekknum hér að ofan.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira