Fleiri fréttir

Siglir í sumar um Diskóflóa

Skipið Fram frá norska skipafélaginu Hurtigruten hafði viðkomu í Reykjavík á föstudag á leið sinni til Grænlands. Fram siglir í sumar um Diskóflóa undan vesturströnd Grænlands þar sem farþegar koma við í þorpum og öðrum athyglisverðum stöðum. Fram er sérútbúið til ferða á heimskautasvæðum og er nefnt eftir skipi landkönnuðarins Roalds Amundsen.- þj

Dúxinn úr MR með 9,83 í meðaleinkunn

„Ég hef notið þess öll árin í MR að vera með frábæra kennara sem hafa vakið áhuga á námsgreinunum og kennt þær vel,“ segir nýstúdentinn Hólmfríður Hannesdóttir, beðin um að uppljóstra leyndarmálinu að baki þeim árangri að útskrifast með 9,83 í meðaleinkunn af eðlisfræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík. Það er fjórða hæsta einkunn sem gefin hefur verið í sögu skólans. Til viðbótar við það að hafa góða kennara segir Hólmfríður árangurinn byggja á heldur einfaldri formúlu: Að skipuleggja sig og nýta tímann vel.

Sjá fyrir sér hagstofu atvinnulífsins

Meðal þess sem horft er til með sameiningu hagsmunasamtaka sem starfa fyrir atvinnulífið er að búa til öfluga hagdeild, nokkurs konar hagstofu atvinnulífsins. Samkvæmt heimildum blaðsins er í yfirstandandi viðræðum einna helst horft til þess að sameina með einhverjum hætti starfsemi Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands (VÍ). Greint var frá því í blaðinu 10. þessa mánaðar að þreifingar hefðu átt sér stað á vettvangi samtakanna um nánara samstarf.

Aukningin 1,3 prósent í maí

Umferð um landið jókst um 1,3 prósent í nýliðnum maímánuði samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Það er mesta aukningin milli mánaða á árinu.

1000 ára gamall ruslahaugur grafinn upp

Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands munu taka þátt í uppgreftri á Görðum á Grænlandi í júlí og ágúst. Rústasvæðið kom í ljós árið 2005 þegar unnið var að framræslu votlendis skammt frá. Vegna framræslunnar hefur mýrin þornað upp og er varðveislu leifanna því hætta búin.

Öll andvíg eða full efasemda gagnvart ESB

Herdís segist hafa efasemdir um aðild Íslendinga að ESB eins og staðan sé núna. Hún sagði í kappræðunum á Stöð 2 í kvöld að það væri mikil óvissa innan ESB.

Þóra er í fæðingarorlofi

Þóra Arnórsdóttir er í fæðingarorlofi á sama tíma og hún heyir sína kosningabaráttu. Þetta kom fram í fyrirspurn af netinu. Þóra sagðist ennfremur ætla að vera í orlofi til 31. júlí, en bætti við að barnið væri svo heppið að eiga föður sem kæmi til móts við móður þess. Þóra eignaðist, eins og kunnugt er, dóttur þann 18. maí síðastliðinn.

Herdís: Mikilvægt að forseti sé þroskaður og með reynslu

Í landi æskudýrkunar að þá er maður kominn framyfir síðasta söludag 38 ára, sagði Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi þegar talið barst að aldri forsetaframbjóðenda í dag. Herdís sagði að sér þætti mikilvægt að ung fólk sé kappsfullt og bryddi upp á nýjunum. "En mér finnst skipta máli að sá sem leiðir og er í forystu , að hann sé kominn með þroska og reynslu,“ sagði Herdís. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var spurður að því hvort hann væri ekki orðinn of gamall í starfið, í ljósi þess að hann yrði sjötugur á næsta ári. Hann svaraði því til að þótt hann vildi ekki líkja sér við Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, eða Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, þá hefðu þeir báðir verið eldri en hann í embætti. "Þetta er annasamt starf, er þá ekki gott að fá einhvern sem er tilbúinn til að leggja sín orkuríkustu ár í þetta,“ sagði Þóra Arnórsdóttir þegar hún var spurð út í það hvort aldur skipti máli.

Þóra vill láta þjóðinni líða betur

"Ég held að ég vildi láta minnast mín fyrir að hafa þjónað þjóðinni vel, að hafa náð til hennar, að ég hafi getað hafa látið henni líða örlítið betur og að hún gæti verið stolt af mér,“ sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar Elín Stephensen, áhorfandi úr sal, spurði hana hvernig hún vildi láta minnast sín sem forsetaframbjóðanda í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 og Vísis í kvöld.

Þóra Arnórsdóttir: "Ég sé enga skriðdreka“

Ólafur Ragnar Grímsson segir enga tengingu á milli þess að Þóra Arnórsdóttir fór í barneignarleyfi á sama tíma og hann ákvað að hefja kosningabaráttu sína. Hann hafnaði forsendum spurningarinnar og sagði að hann hefði hafið sína baráttu vegna þess að það var orðið ljóst hverjir byðu sig fram og að kjörstjórnir væru búnar að óska eftir meðmælendalistum frambjóðanda.

Ólafur Ragnar: Sextán ár nóg ef aðstæður væru eðlilegar

"Vissulega, í eðlilegum kringumstæðum og eðlilegum aðstæðum, þá væri það langur tími,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, aðspurður um það hvort ekki væri nóg að forsetinn sæti í sextán ár eins og hann hefur gert.

Herdís gekk ekki út - mikilvægara að ávarpa áhorfendur

Herdís Þorgeirsdóttir segist taka undir sjónarmið forsetaframbjóðandanna þriggja sem gengu út úr sjónvarpssal í mótmælaskyni við Stöð 2 vegna fyrirkomulags um að ræða við tvo frambjóðendur í einu í Hörpu og láta Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur mætast tvö ein.

Brýnt að kenna börnum forritun snemma

Það má í raun segja að börn í dag kunni að lesa en ekki að skrifa, út frá tækninni. Þetta segir framkvæmdastjóri menntafyrirtækisins Skema sem ætlar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík að efla kennslu barna í forritun, ekki síst með þarfir atvinnulífsins í huga.

Reyndi að smygla kókaíni til landsins

Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Maðurinn sem er útlendur var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá Lundúnum samkvæmt vf.is.

Borgarfulltrúi vill meta betur hættuna af hraunflóði

Huga þarf betur að líkum á eldsumbrotum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og hraunsflóðs af völdum þeirra. Þetta segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Hann segir gagnrýni eldfjallasérfræðings á áhættumati Almannavarna réttmæta.

Kappræðurnar í Hörpu í beinni útsendingu á Vísi

Hægt er að horfa á kappræður frambjóðenda til embættis forseta Íslands hér fyrir ofan og á sjónvarpssíðu Vísis. Dagskráin fer fram í Hörpu og stýra fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson umræðunum, sem eru einnig í opinni dagskrá á Stöð 2.

Tekið á móti spurningum til frambjóðenda í gegnum Facebook og Twitter

Frambjóðendur til embættis forseta Íslands mætast í kappræðum í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 18.55 í kvöld. Dagskráin fer fram í Hörpu og munu fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson stýra umræðunum. Andri Ólafsson fréttamaður tekur einnig á móti spurningum áhorfenda í sal, auk áhorfenda heima í stofu, sem gefst kostur á því að spyrja frambjóðendur í gegnum Facebook og Twitter.

Almennir borgarar handtóku vopnaða ræningja á Akureyri

Almennir borgarar handtóku karlmann og konu á þrítugsaldri í hádeginu í dag þegar þau reyndu að ræna apótek á Akureyri. Fólkið var í annarlegu ástandi þegar þau komu inn í apótekið vopnuð kúbeinum og með hulin andlit. Þau ógnuðu starfsfólki sem tókst þó að hrekja þau á flótta.

Steingrímur vill skattaívilnanir fyrir sjómenn í framtíðinni

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, sagði í hátíðarræðu sinni í tilefni af sjómannadeginum í dag að hann vildi ekki varpa frekari skugga á hátíðarhöldin með því að ræða um harðvítug átök LÍÚ og ríkisstjórnarinnar. "Það kynni ég að hafa látið eftir mér ef mál hefðu ekki skipast með þeim hætti sem raun bar vitni í gær,“ sagði Steingrímur og vitnaði þar til mótmælaaðgerða LÍÚ en nær allur skipafloti Íslendinga mun verða bundin við bryggju í næstu viku í svokölluðu neyðarkalli útgerðarmanna.

Gerði LÍÚ tilboð í beinni: Sendið skipin út og við skulum funda

"Ég skal gera þér tilboð. Nú skulum við hætta þessum skærum, sendið skipin á sjó og ég skal sjálfur, prívat og persónulega sjá til þess að við setjumst niður í vikunni og ræðum þetta,“ sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, þegar hann gerði framkvæmdastjóra LÍÚ, Friðriki Arngrímssyni, tilboð um sáttafund á milli sambandsins og ríkisstjórnar.

Þrír stútar teknir í morgun

Þrír ökumenn voru stöðvaðir í morgun fyrir ölvunarakstur og fíkniefnaakstur. Þannig voru tveir teknir á sjöunda tímanum í morgun. Annar var stöðvaður á Hringbraut í Reykjavík en hinn á Vesturlandsvegi við Korputorg. Báðir voru fluttir á lögreglustöð þar sem málin voru gerð upp.

Veifaði hnífi á Vesturgötunni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem veifaði hníf á Vesturgötunni í miðborg Reykjavíkur um klukkan hálf sjö í morgun. Þegar lögreglan kom á vettvang hafði maðurinn slíðrað hnífinn en lögreglan fann hann við leit á manninum.

Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur

Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Fjölbreytt dagskrá er víða í boði. Hægt verður að skella sér í lundaskoðun, hlusta á ljúfa tóna og smakka makríl og loðnu svo eitthvað sé nefnt.

Bannað að nefna eftir Aðalvík

Ekki er leyfilegt að nefna barn sitt eftir hinni fögru Aðalvík á Hornströndum þar sem mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um að nafnið Aðalvíkingur verði fært í mannanafnaskrá.

Skálavörður fann villta göngumenn

Par sem var í gönguferð á Rjúpnafelli í Þórsmörk villtist af leið og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Bróðurhöndin undan Eyjafjöllum voru kallaðar út til leitar.

Stúlka skölluð í andlitið

Stúlka var flutt á slysadeild skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt en óprúttinn aðili virðist hafa skallað hana í andlitið á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur.

Hjólar í kringum landið með parkinson-sjúkdóminn

Skemmtiferð hringinn um landið á reiðhjóli hófst núna klukkan tíu frá Prentsmiðjunni Odda. Það er Snorri Már Snorrason, sem á veg og vanda að ferðinni en hann er 47 ára og glímir við parkinson-sjúkdóminn. Snorri hefur verið metinn 75 prósent öryrki en heldur starfsorku sinni með líkamsþjálfun og hreyfingu að því er segir á fréttavef Skessuhorns. Áheitasöfnunin hans er með heldur óvenjulegu sniði því hann vill ekki fá peninga frá fólki heldur vill hann fá fólk til þess að hreyfa sig.

Gagnrýnir Almannavarnir fyrir andvaraleysi

Almannavarnir huga ekki að hættunni sem steðjar að höfuðborgarsvæðinu þegar eldsumbrot verða næst á Reykjanessvæðinu og yfirvöld hafa leyft byggingar á stöðum sem ekki ætti að byggja á. Þetta segir Haraldur Sigurðsson, einn helsti eldfjallasérfræðingur heims

Dagur afboðar komu sína á fund Útgerðarmannafélags Reykjavíkur

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur afboðað komu sína á fund sem Útgerðarmannafélag Reykjavíkur hafði óskað með honum sem varaformanni Samfylkingarinnar og formanni Borgarráðs. Dagur tilkynnir þetta á Facebook síðu sinni en þar útskýrir hann ástæðuna svona:

Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“

„Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag.

Maður og kona duttu á höfuðið í miðbænum

Maður og kona duttu á höfuðið í miðborg Reykjavíkur í dag. Maðurinn datt um klukkan þrjú í dag og hlaut sár á höfði. Kalla þurfti á sjúkrabíl til þess að flytja manninn á spítala.

Þóra segist ekki vilja kappræður á kostnað annarra frambjóðanda

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi hefur afþakkað boð um að mæta Ólafi Ragnari Grímssyni í kappræðum á Stöð 2 næstkomandi sunnudag. Ástæðan er sú að öðrum frambjóðendum til forsetambættisins var ekki boðið til kappræðnanna og segir Þóra að hún geti ekki fellt sig við það.

Ölvaðir ökumenn klesstu á og ultu

Fjórir ökumenn voru teknir í gærkvöldi og í nótt grunaðir um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Einn þeirra var á ferð í austurbænum í Reykjavík þegar hann lenti í árekstri.

Sjá næstu 50 fréttir