Fleiri fréttir

Segir annmarka á hugmyndum Helga Hjörvar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að annmarkar séu á hugmynd Helga Hjörvars um fjármögnun á leiðréttingum verðtryggðra lána. Hún vill ná sáttum í skuldamálum heimilanna með fulltrúum allra flokka.

Ísbjörn kallar á tugi nýrra starfa á Ísafirði

Í fyrsta sinn í tvo áratugi hefur togari bæst í flota Vestfirðinga. Hartnær þrjátíu störf eru að bætast við á Ísafirði vegna kaupa á rækjutogara, sem fer í sína fyrstu veiðiferð í næstu viku. Eigendur ætla með skipakaupunum að styrkja rækjuiðnaðinn í höfuðstað Vestfjarða.

Reynt að þvinga stúlku í sendibíl - lögreglan óskar eftir vitnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna að atviki er varð á Skothúsvegi við Tjarnargötu í Reykjavík föstudagskvöldið 24. febrúar klukkan 22.20. Þar var reynt að þvinga stúlku, sem var fótgangandi á vesturleið, inn í hvítan sendibíl sem var staðsettur á gangstétt við götuna.

Guðlaugur Þór: "Grafalvarlegt og með ólíkindum ef rétt reynist“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki fengið formlega staðfestingu á því að Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hafi komist yfir gögn um fjárhag þingmannsins, með ólögmætum hætti. Stjórn FME hefur kært Gunnar fyrir að hafa komist yfir gögnin, auk þess sem hann var rekinn í morgun.

Vigtaði vitlaust - Eins og að fá egg í andlitið

Friðrik Höskuldsson, sá sem vigtaði matvörur og komst að þeirri niðurstöðu að pakkningarnar voru ítrekað vitlaust merktar, segir á Facebook síðu sinni að hann hafi gert mistök. Þannig biðst hann afsökunar og skrifar:

Svindl ef vörur eru of léttar - Neytendastofa skoðar málið

"Miðað við þær upplýsingar sem þarna koma fram þá er verið að svindla á neytendum,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, um vigtun Friðriks Höskuldssonar á matvælum, sem hann birti á Facebook. Þar kom fram að raunþyngd á öllum innlendum vörum reyndist minni en uppgefin þyngd á umbúðum varanna.

Einelti mælist minna í skólum Reykjavíkurborgar

Niðurstöður úr viðhorfskönnun foreldra grunnskólabarna sem lögð var fyrir í febrúar 2012 sýna að hlutfall þeirra foreldra sem segja barn sitt hafa lent í einelti í skólanum hefur lækkað mikið frá síðustu könnun 2010.

Fangi á Suðurnesjum lést af völdum höfuðhöggs

Maður sem lést í fangaklefa Lögreglustjórans á Suðurnesjum í byrjun september á síðasta ári lést vegna heilablæðingar af völdum höfuðhöggs sem hann hlaut skömmu áður en hann var handtekinn.

Bjarni Ben: Þetta er ekki áfall fyrir mig

"Ég gerði mér fyrir því að það hafi verið mikil átök bakvið tjöldin. Flokksfélög hafa verið að álykta um þessi mál og þingmenn hafa verið settir undir mikinn þrýsting,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og flutningsmaður tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde.

Landsdómsmálið heldur áfram - frávísunartillaga samþykkt

Frávísunartillaga á þingályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að afturkalla ákæru á hendur Geirs H. Haarde, var samþykkt á Alþingi nú fyrir stundu, með 33 atkvæðum gegn 27. Það þýðir að þingmenn munu ekki greiða atkvæði um hvort að ákæra verður afturkölluð. Landsdómsmálið heldur því áfram. Aðalmeðferð fer fram á mánudaginn.

Faldi fíkniefni fyrir milljónir í sandkassa

Lögreglan á Akureyri lagði hald á um 300 grömm af ætluðu MDMA dufti í gær. MDMA, sem er virka efnið í e-töflum, er nú farið að finnast í auknum mæli í duftformi og er iðulega sterkara en í töfluformi.

Hægt að kjósa í rússneska sendiráðinu

Þann 4. mars nk. verða haldnar forsetakosningar í Rússlandi. Rússneskum ríkisborgurum, 18 ára og eldri, býðst á þeim degi að taka þátt í atkvæðagreiðslu á kjörstað N. 5106 í ræðisskrifstofu sendiráðs Rússlands, Túngötu 24, 101 Reykjavík, frá kl. 8:00 til kl. 20:00 að íslenskum tíma.

Öryggisvörður ársins bjargaði aldraðri konu

Öryggisverðir ársins 2011 eru Daníel Þór Hafsteinsson, Sigurður E. Kristjánsson og Þorsteinn R. Ingólfsson. Þeir komu allir að hjálparkalli þann 4. nóvember á síðasta ári.

100 milljóna sekt staðfest

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um 100 milljóna króna sekt Lyfja og heilsu.

Hitavatnsleki á Tjarnargötu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúðarhúsi við Tjarnargötu í Reykjavík nú fyrir stundu vegna hitavatnsleka. Varðstjóri segir að ekki sé mikið vatn sem leki en slökkvilið fari alltaf í útköll sem þessi til að takmarka tjónið.

Nauðgunarkæran komin til ríkissaksóknara

Nauðgunarkæra á hendur Agli "Gillzenegger“ Einarssyni og unnustu hans er komin inn til ríkissaksóknara. Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

Mugison kom, sá og sigraði

Mugison var sigurvegari kvöldsins á Íslensku tónlistarverðlaununum í gærkvöldi. Alls fékk hann fimm verðlaun, þar á meðal fyrir besta lagið og bestu plötuna.

Vörusvik í innlendri matvöru

Raunþyngd á öllum innlendum vörum sem Friðrik Höskuldsson á Alftanesi keypti nýverið, reyndist minni en uppgefin þyngd á umbúðum varanna, að því er Friðrik greinir frá á Facebook-síðu sinni.

Mörg umferðaróhöpp vegna hálku

Björgunarsveitarmenn frá Hvammstanga voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða ökumenn í vandræðum á þjóðveginum norður. Þar var mikil hálka og þæfingur.

Veitingahús með fornmannamat í torfkofa

„Mig langar að byggja fornaldarbæ í Hljómskálagarðinum eða miðbænum sem býður ferðamönnum að kynnast sögu okkar, mat og menningu,“ segir í einni tillögunni sem sett hefur verið fram á vefnum Betri Reykjavík sem borgin hefur nú rekið um nokkurt skeið. „Ferðamenn sem koma til Íslands vilja kynnast sögu okkar, menningu og jafnvel bra

Þrír hafa tilkynnt um framboð

Þrír hafa tilkynnt um framboð til annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins, en kosið verður til embættisins í fyrsta skipti á flokksráðsfundi hinn 17. mars næstkomandi. Þeir sem þegar hafa stigið fram eru Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, og Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn.

Sorpu á Álfsnesi líkt við stóran útikamar

„Við viljum fá bæinn í lið með okkur og fara með málið fyrir umhverfisnefnd Alþingis og lengra,“ segir Rúnar Þór Guðbrandsson, formaður íbúasamtaka Leirvogstungu í Mosfellsbæ sem enn kvarta vegna ólyktar frá urðunarstöð Sorpu í Álfsnesi. Sorpa hefur meðal annars brugðist við kvörtunum vegna óþefsins með því að sprengja gjá til seyrulosunar. Í hana fer lífrænn úrgangur á borð við þann sem situr eftir í skolphreinsikerfi höfuðborgarbúa. „Þetta er eins og risastór útikamar,“ lýsir Rúnar sem kveður framkvæmdina misheppnaða.

Garðyrkjustjóri fær árs skilorð

Fyrrverandi garðyrkjustjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Kristinn H. Þorsteinsson, hefur verið fundinn sekur af ákæru sérstaks saksóknara og dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. Kristinn lét Orkuveituna greiða garðyrkjufélagi sem hann tengdist rúmar 25 milljónir króna á fimm ára tímabili sem runnu í vasa tveggja kvenna sem gegndu stöðu framkvæmdastjóra félagsins.

Annar snarpur skjálfti á suðvesturhorninu

Snarpur skjálfti varð á suðvesturhorni landsins rétt um klukkan eitt í nótt. Áður hafði skjálfti mælst í nágrenni við Helgarfell um hálfeitt. Sjálfvirkar mælingar sýndu að sá skjálfti var 3,2 á Richter en þegar búið var að yfirfara mælinguna kom í ljós að hann var öllu stærri eða 3,7.

Jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu

Jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu um klukkan hálf eitt í nótt. Upptök skjálftans voru í grennd við Helgafell, fyrir ofan Hafnarfjörð. Skjálftinn var af stærðinni 3,2 og var hann á 3,8 kílómetra dýpi. Fyrr í kvöld mældust skjálftar á Norðurlandi, NV af Gjögurtá. Frekari upplýsingar um skjálftann sem varð eftir miðnætti liggja ekki fyrir.

Sjá næstu 50 fréttir