Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skattur á rafbækur og tónlist stórlækkaður Efnahagsskattanefnd samþykkti í morgun að leggja til að lækka virðisaukaskatt á rafbækur og tónlist á netinu. Hingað til hefur skatturinn verið 25 prósent en verði tillagan samþykkt lækkar skatturinn niður í 7 prósent. 2.9.2011 10:53
Ferðamálafrömuðir fyrir norðan fagna áformum Nubo Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi fagnar áformum kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo að stefna að uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Nubo vill, eins og frægt er orðið, reisa glæsilegt hótel á Grímsstöðum á Fjöllum. Í yfirlýsingu frá markaðsstofunni segir að öll ný fjárfesting í ferðaþjónustu sem fellur að lögum og reglum og fylgir markmiðum um sjálfbæra nýtingu og umhverfisvæna ferðaþjónustu sé af hinu góða. 2.9.2011 10:39
Ákærðir fyrir að lúberja mann - þurfti að sauma 25 spor Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar þeir lömdu tæplega þrítugan mann fyrir utan skemmtistaðinn Boston í október á síðasta ári. 2.9.2011 10:20
Sængurverasett með liðinu þínu Nú er hægt að kaupa sænguverasett með sínu íslenska íþróttafélagi. Það er Hagkaup sem lét framleiða fyrir sig um tíu þúsund eintök af settunum með einkennismerki og lit níu íþróttafélaga. 2.9.2011 09:27
Þingfundir hefjast í dag eftir sumarleyfi Þingfundir hefjast að nýju á Alþingi í dag klukkan hálfellefu að loknu sumarleyfi. Þingið mun starfa næstu tvær vikurnar en hlé var gert á 139. löggjafarþingi í sumar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur þingstörf með munnlegri skýrslu um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum og að henni lokinni taka við umræður um skýrsluna. 2.9.2011 08:52
Beit lögreglukonu í gegnum hanskann Lögreglukona var bitin í höndina þegar hún var að setja konu í fangaklefa á Hverfisgötu nú undir morgun. Konan brást illa við handtökunni og beit frá sér, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. 2.9.2011 07:50
Fjöldi undanþága veittur Innanríkisráðuneytið, áður dómsmálaráðuneytið, hefur frá árinu 2007 veitt 24 undanþágur frá banni við því að aðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins kaupi fasteignir og lóðir hér á landi. 2.9.2011 06:30
Ánægjuleg þróun „Það er mjög ánægjulegt að þessi þróun heldur áfram, heildarendurheimtuhorfurnar batna og fé kemur hraðar inn þannig að handbært fé er orðið umtalsvert," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um nýtt mat á eignum þrotabús Landsbankans. 2.9.2011 06:00
Bretar og Hollendingar fá allt til baka "Þetta eru afskaplega góð tíðindi. Þetta sýnir að þær breytingar sem við gengumst fyrir í hruninu með neyðarlögunum, þegar innstæðum var skapaður forgangur, munu leiða til þess að innstæðueigendur í Bretlandi og Hollandi fái allt sitt til baka, jafnvel þó að þeir hafi verið með innstæður umfram það sem innstæðutryggingarkerfið átti að tryggja,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, um nýtt mat á eignum þrotabús Landsbankans. 2.9.2011 06:00
Icesave ætti að vera úr sögunni „Það er mjög jákvætt ef þetta verður niðurstaðan og eignirnar duga fyrir öllum forgangskröfum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um nýtt mat á eignum þrotabús Landsbankans. 2.9.2011 05:45
Áætlaður kostnaður við laugarnar 320 milljónir Framkvæmdir við endurgerð sundlauganna í Reykjavík eru hafnar og er áætlaður kostnaður nú kominn upp í 320 milljónir króna eftir endurskoðaða fjárhagsáætlun frá 30. júní. Í apríl síðastliðnum kom fram að áætlaður kostnaður yrði um 275 milljónir króna, en þó var gert ráð fyrir 500 milljónum í framkvæmdirnar í upphaflegri fjárhagsáætlun 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 2.9.2011 05:00
Matarkarfan ódýrust í Krónunni - Bónus mótmælir vinnubrögðum Allt að 28 prósenta verðmunur er á matarkörfu ASÍ á milli Krónunnar, þar sem hún er ódýrust, og Nóatúns, þar sem hún er dýrust. 2.9.2011 04:00
Óvíst að hægt sé að halda verðbólgu lágri Hægt er að afnema verðtryggingu án mikils kostnaðar ef verðbólga helst lág og stöðug. Hvort það sé raunhæft er hins vegar önnur og flóknari spurning. 2.9.2011 03:00
Samsetning bóta til skoðunar Samsetning bóta til fórnarlamba ofbeldis er nú til skoðunar í innanríkisráðuneytinu. Til þess að breyta samsetningu bótanna þarf að breyta lögum, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, aðstoðarmanns innanríkisráðherra. 2.9.2011 02:00
Svar Seðlabankans ekki fullnægjandi Hagsmunasamtök heimilanna telja svör Seðlabankans sem hann sendi frá sér á þriðjudaginn ekki fullnægjandi. Bankinn hafi ekki getað bent á eina skýra lagaheimild fyrir reglum sínum um framkvæmd verðtryggingar. 1.9.2011 23:35
Íslenski barinn rýmdur vegna piparúðadólgs Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að reykræsta Íslenska barinn á Pósthússtræti nú í kvöld eftir að einhver óprúttinn aðili sprautaði piparúða inni á staðnum. 1.9.2011 22:50
Hundur hljóp á bíl Sérkennilegt umferðaróhapp varð klukkan hálf sex í dag þegar stór hundur hljóp á bifreið á Holtavegi. Bíllinn var á leiðinni norður þegar hundurinn hljóp á faratækið samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is, en nánari tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 1.9.2011 20:30
Íslensk ungmenni norðurlandameistarar í kannabisneyslu Margt bendir til þess að marijúananeysla unglinga fari vaxandi hér á landi að sögn forvarnarfulltrúa. Framboð á marijúana hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum en tæplega fjórðungur íslenskra ungmenna hefur prófað efnið. 1.9.2011 19:30
Sterkur skjálfti skammt frá Goðabungu Tveir skjálftar mældust skammt frá Goðabungu við Mýrdalsjökul skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld. Annarsvegar mældist skjálfti upp á 3,2 á richter en upptök hans voru 3,5 kílómetrar Norð-Austur af Goðabungu. 1.9.2011 19:30
Vilja gera Hvalfjörð að útivistarperlu borgarbúa Skógræktarfélögin vilja gera Hvalfjörð að næstu útivistarperlu borgarbúa og hafa í því skyni falast eftir því að kaupa jörðina Hvammsvík af Orkuveitu Reykjavíkur. Hartnær fjörutíu ár eru liðin frá því skógræktarfélög keyptu jörðina Fossá og hófu þar gróðursetningu trjáplantna. 1.9.2011 18:45
Saka fjármálafyrirtækin um villandi upplýsingar Hagsmunasamtök heimilanna saka fjármálafyrirtækin um að leggja fram villandi upplýsingar um afskriftir lána. Af rúmlega hundrað og fjörtíu milljörðum sem fjármálafyrirtækin flokka sem afskriftir eru hundrað og tuttugu tilkomnir vegna gengistryggðra lána. 1.9.2011 18:28
Þriðjungur styður ríkisstjórnina - Framsókn mælist með 17 prósent Þriðjungur kjósenda styður ríkisstjórnina, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup og fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá. Þar kemur fram að stuðningur við stjórnina hefur lítið breyst undanfarna mánuði. Fylgi flokkanna er sömuleiðis stöðugt. 1.9.2011 18:19
Arna Sif fundin Arna Sif Þórsdóttir er fundin á heilu og höldnu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lýst var eftir henni þar sem ekkert hafði til hennar spurst síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. 1.9.2011 17:24
Húsaleigukerfið mismunar námsmönnum Námsmenn sem búa í námsmannaíbúðum eða heimavistum hafa rýmri rétt til húsaleigubóta en námsmenn sem leigja á almennum markaði. Húsaleigubætur eru að meginreglu miðaðar við ákveðna fjárhæð fyrir hverja íbúð. Hins vegar hafa námsmenn sem leigja saman herbergi eða tvíbýli á námsmannagörðum rétt á fullum húsaleigubótum, hver fyrir sig, að því gefnu að þeir hafi hver gert sinn leigusamninginn. Þessi ríkari réttur námsmanna sem búa á námsmannagörðum kemur fram í 5. mgr. 7. gr. laga um húsaleigubætur, sem kom inn í lögin árið 2001. 1.9.2011 16:29
Slysavarnafélagið komið með öflugan netbúnað Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur fengið lánaðan búnað frá Mílú í stjórnstöðvarbíl sinn. Búnaðurinn sem um ræðir er örbylgjulinkur sem gerir björgunarsveitamönnum kleift að komast í samband við internetið, á stöðum þar sem slíkt er venjulega ekki mögulegt. Samkvæmt upplýsingum frá Mílu tengist búnaðurinn neti í nágrenninu, annað hvort með 3G beini eða við netkerfi húss, og framlengir því þráðlaust í stjórnstöðvarbílinn sem getur verið staðsettur í margra kílómetra fjarlægð. 1.9.2011 15:11
Bólusetning gegn leghálskrabbameini hefst í mánuðinum Almenn bólusetning gegn HPV veirunni, sem veldur leghálskrabbameini, hefst hér á landi seinni hluta septembermánaðar. Þetta er í fyrsta sinn sem almenn bólusetning er veitt gegn veirunni. Í vetur verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin bólusetning og framvegis verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega. 1.9.2011 14:59
Nýjar valkyrjur í kórinn Valkyrjurnar-kvennakór í Breiðholti óskar eftir nýliðum í kórinn. Allar lagvissar og hressar konur eru velkomnar. 1.9.2011 14:15
Þingmannsbörnum fjölgar ört Þeim fjölgar ört þingmannsbörnunum þessa dagana. Formönnum tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna, þeim Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, munu fæðast börn á næstunni. 1.9.2011 14:08
Fjárdráttur hjá Hval hf Fyrrverandi fjármálastjóri Hvals hf er grunaður um að hafa dregið að sér tugi milljóna króna. Talið er að brotin gætu náð allt að fimm ár aftur í tímann. 1.9.2011 14:04
Ísfólkið verður Ísþjóðin Lausn er fundin á deilu norska rithöfundarins Margit Sandemo og Ríkissjónvarpsins vegna sjónvarpsþáttarins Ísfólkið með Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur. Þátturinn mun heita Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni. 1.9.2011 14:00
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna 20 ára Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna verður tuttugu ára á morgun, en það var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Í tilefni af þessum tímamótum verður haldin afmælisveisla um helgina þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra heiðra félagsmenn með nærveru sinni. 1.9.2011 13:18
Rúmlega 300 milljóna króna framkvæmdir við sundlaugarnar Framkvæmdir við endurgerð sundlauganna í Reykjavík eru hafnar og hljóðar kostnaðaráætlun upp á 320 milljónir króna samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun frá 30. júní. Unnið er við nær allar laugar í Reykjavík og í dag var verkefnastaðan kynnt fyrir borgarráði. 1.9.2011 13:11
Þriðjungur íhugar að segja sig úr Þjóðkirkjunni MMR kannaði afstöðu meðlima þjóðkirkjunnar til þess hvort þeir hefðu hugsað um að segja sig úr þjóðkirkjunni á síðastliðnum mánuðum. 1.9.2011 12:55
Irene herjar á Ísland Eins og flestir hafa eflaust orðið varir við hefur fellibylurinn Irene haldið innreið sína til landsins með tilheyrandi úrkomu. Irene telst tæplega fellibylur lengur, aðeins hefðbundin lægð. 1.9.2011 12:53
Leiðrétting Drekaklúðurs komin á dagskrá Alþingis Þrjú frumvörp, sem eru forsenda olíuleitarútboðs á Drekasvæðinu, hafa verið sett á dagskrá Alþingis á morgun, en þingið kemur þá saman til stutts haustsþings. Orkustofnun neyddist í sumar til að fresta útboðinu, sem átti að hefjast 1. ágúst, þar sem frumvörpin dagaði uppi á lokadögum þingsins í júní. 1.9.2011 12:08
Reiðubúinn að stíga til hliðar Starfsmenn Kvikmyndaskóla Íslands leggja til að nýr stjórnarformaður verði skipaður í stjórn skólans í nýrri sáttatillögu. Núverandi stjórnarformaður segist reiðubúinn að víkja úr sæti ef það leiði til lausna. 1.9.2011 12:04
Skylt að birta ljósmyndir sem sýna skaðsemi reykinga Skylt verður að birta ljósmyndir í lit á öllum umbúðum sem innihalda tóbaksvörur til að undirstrika skaðsemi vörunnar. Ákvæði um þetta eru í nýrri reglugerð sem tekur gildi í dag. Þó verður heimilt að flytja inn sígaréttur sem eru merktar í samræmi við eldri reglugerð allt til ársloka 2012 og hafa í sölu til 31. júlí 2013. 1.9.2011 11:55
Tvítugur síbrotamaður dæmdur fyrir bankarán Nítján ára gamall piltur hefur verið dæmdur í árs fangelsi fyrir bankarán í Arion banka í Hraunbæ þann 5. janúar síðastliðinn auk fjölda annarra smærri brota. 1.9.2011 11:31
Ferðir Herjólfs falla niður Vegna veðurs og mikillar ölduhæðar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hefur verið ákveðið að fella niður ferðir Herjólfs sem fara átti klukkan hálf tólf í dag frá Eyjum og klukkan eitt eftir hádegi frá Landeyjahöfn. 1.9.2011 10:45
Matarkarfan ódýrust í Krónunni Samkvæmt nýjustu verðkönnun Alþýðusambands Íslands var allt að 28 prósent verðmunur á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit sambandsins kannaði verð í átta matvöruverslunum síðastliðinn mánudag. Matarkarfan var ódýrust í Krónunni en dýrust í Nótatúni. 1.9.2011 10:44
Með fölsuð skilríki í Leifsstöð Karlmaður á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri voru stöðvuð við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli fyrir um tíu dögum síðan. Þau eru grunuð um að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við lögreglu en samkvæmt þeim eru þau frá Írak. 1.9.2011 10:04
Þyrlan sótti fárveika konu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan hálf sex í morgun eftir að beiðni barst frá lækni í Stykkishólmi vegna bráðveikrar konu. Þyrlan fór í loftið um klukkan sex og var flogið beint á flugvöllinn í Stykkishólmi en þar beið sjúkrabifreið með konuna. Var hún flutt yfir í þyrluna og farið að nýju í loftið um klukkan tíu mínútur í sjö. Þyrlan lenti svo á Landspítalanum í Fossvogi um hálf átta. 1.9.2011 09:44
Hundrað bílar stöðvaðir Lögregluþjónar á vegum umferðardeildar lögreglunnar hafa verið áberandi í umferðinni síðastliðna daga, einkum á morgnana, við eftirlit. Frá því á mánudaginn hafa hundrað ökumenn verið stöðvaðir í eftirliti sem miðar einkum að því að fylgjast með farsímanotkun ökumanna, svigakstri í þéttri umferð og stefnuljósanotkun. 1.9.2011 09:43
Aldrei fleiri kennarar með réttindi Alls voru 1.852 starfsmenn við kennslu í framhaldsskólum á Íslandi í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Tæplega 85% þeirra höfðu kennsluréttindi og hefur það hlutfall hækkað um 13,6 prósentustig á einum áratug, úr 71,3% skólaárið 2000-2001. Hlutfall réttindakennara hefur ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir rúmlega áratug. 1.9.2011 09:38
Góðan daginn Reykvíkingar - myndband Í dag er „Góðan daginn“ dagurinn haldinn í annað sinn en dagurinn er hugarfóstur Jóns Gnarr borgarstjóra í Reykjavík. Á vef Reykjavíkurborgar segir að í dag eigi maður að vera einstaklega góður við náunga sinn og bjóða honum góðan daginn. Það er gert til að auka náunga kærleik. 1.9.2011 09:19